Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FREYMÓÐS-DANLEY verðlaunin sem veitt eru íslenskum nem- endum Háskóla Íslands fyrir góð- an námsárangur við Kaliforníu- háskólann í Santa Barbara, voru veitt í fjórða sinn þann 14. apríl sl. Námsárið 2007-2008 hlutu verð- launin Ásdís Helgadóttir, nemandi í vélaverkfræði, og Brynjar Grét- arsson, nemandi í tölvunarfræði. Bæði Ásdís og Brynjar eru dokt- orsnemendur við Kaliforníu- háskólann við Santa Barbara. Freymóðs-Danley- verðlaunin afhent LAGADEILD Háskóla Íslands fagn- aði nýverið útgáfu fjögurra fræði- rita, sem rituð voru af kennurum deildarinnar, hvert á sínu sviði lög- fræðinnar, samkv. fréttatilkynn- ingu frá lagadeildinni. Viðar Már Matthíasson prófessor gaf út ritið Fasteignir og fasteigna- kaup þar sem fjallað er um rétt- arreglur um fasteignakaup en um- fjöllunin er fyrst og fremst byggð á nýjum lögum um fasteignakaup sem og dómum um sama efni. Ritið Samstæður hlutafélaga er eftir Stefán Má Stefánsson prófess- or en ritið á að gefa samfellda lýs- ingu á þeim reglum sem gilda um samstæður hlutafélaga og einka- hlutafélaga. Róbert R. Spanó prófessor hefur gefið út rit þar sem fjallað er um lögskýringafræði, eðli lögskýringa og lögskýringaferlið í heild sinni. Sjötta ritið í ritröð Lagastofn- unar skrifar síðan Helgi Áss Grét- arsson, sérfræðingur Lagastofn- unar, um Réttarsögu fiskveiða frá landnámi til 1990. Höfundarnir Helgi Áss Grétarsson, Róbert Spanó, Stefán Már Stef- ánsson og Viðar Már Matthíasson. Fjögur fræði- rit í lögfræði SIGRÍÐUR Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra Íslands í Suður-Afríku, heldur miðvikudaginn 30. apríl næstkom- andi fyrirlestur um þróun stjórnmála í Suður-Afríku í stofu 101, Háskólatorgi. Það er Alþjóðamálastofnun Há- skóla Íslands sem stendur fyrir fyrirlestrinum í sam- starfi við utanríkisráðuneyti Íslands. Í fyrirlestrinum er fjallað um stjórnmálaþróunina í Suður-Afríku og áhrif hennar á þróun mála í nágranna- ríkjunum. Ýmis lýðræðisleg umbrot eiga sér nú stað í Suður-Afríku, m.a. innan Afrísku þjóðarfylkingarinnar, sem hefur setið við stjórnvölinn í Suður-Afríku frá því að aðskilnaðarstjórn hvítra leið undir lok árið 1994. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir er flestum Íslendingum kunn en hún sat á Alþingi fyrir Kvennalista árin 1983-1987 og er prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Þá sat hún í stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands ár- in 1989-1993, í stjórn Mannfræðistofnunar Háskóla Íslands frá 1989, sér- fræðinganefnd Ráðherranefndar Norðurlanda um umhverfisrannsóknir í félagsvísindum síðan 1991 og í ráðgjafarnefnd framkvæmdastjóra UNESCO um málefni kvenna síðan 1994. Sigríður Dúna hefur stundað rannsóknir í Afríku og haldið þar erindi á ráðstefnum um rannsóknir sínar. Eftir fyrirlesturinn, sem er öllum opinn, verða fyrirspurnir um efni hans og málefni ríkja í sunnanverðri Afríku. Stjórnmálaþróun í S-Afríku Sigríður Dúna Kristmundsdóttir ÍÞRÓTTA- og tómstundanefnd Hafnarfjarðar (ÍTH) og Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkurborgar (ÍTR) efna til málþings um hópa- starf í Hafnarborg hinn 29. apríl nk. frá kl. 12.30 til kl. 16.00. Mál- þingið er ætlað starfsfólki fé- lagsmiðstöðva og félagsþjónustu, námsráðgjöfum og þeim sem vinna með börnum og unglingum í 5.-10. bekk. Margrét Gauja Magnúsdóttir for- maður (ÍTH) setur fundinn. Erindi flytja: Geir Bjarnason, forvarna- fulltrúi Hafnarfjarðar, Haraldur Sigurðsson, forstöðumaður Tóna- bæjar og hópstjóri í Hálend- ishópnum, Haukur Haraldsson sál- fræðingur, Gísli Árni Eggertsson lýðheilsufræðingur, Erna Sóley Stefánsdóttir, forstöðumaður Hraunsins, Helga Ingadóttir deild- arstjóri og Þórunn Vignisdóttir verkefnastjóri. Málþing um sam- starf með börnum MIÐVIKUDAGINN 30. apríl nk. mun Guðmundur H. Frímannsson prófessor flytja erindi á málstofu kennaradeildar undir yfirskriftinni „Heimspeki í menntun kenn- araefna“. Málstofan hefst kl. 16.15 í stofu 14, Þingvallastræti. Kennaradeild Háskólans á Ak- ureyri hefur frá upphafi lagt áherslu á heimspeki í menntun kennaraefna. Guðmundur hyggst ræða tengsl menntunarfræða og heimspeki, innviði og einkenni heimspeki sem fræðigreinar og af hverju hún geti talist heppileg sem ein uppistaða í menntun kennara. Heimspeki í námi STUTT Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is VERÐBÓLGUTÖLURNAR sem birtust í gær eru slæmar „og verri en við bjuggumst við og flestir voru búnir að spá. Hins vegar hefur það legið í hlutarins eðli í nokkrar vikur að við myndum ganga í gegnum til- tekinn verðbólgukúf,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í fyrir- spurnartíma á Alþingi í gær. Forsætisráðherra svaraði fyrir- spurn Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins. Guðni sagði að margt gengi illa í íslensku sam- félagi. Verðbólgan væri nú 12% og „engin ríkisstjórn hefur í tuttugu ár verið jafnmáttvana frammi fyrir efnahagsvandanum sem blasir við“. „Allt sem við framsóknarmenn höf- um sagt mánuðum saman er að koma fram,“ sagði Guðni. Ríkisstjórnin ber þar meiri ábyrgð en nokkur ann- ar, sagði Guðni og bætti við að hann teldi að hún ætti að segja af sér. Verðbólgukúfur gangi hratt yfir Fram kom í svari forsætisráð- herra að miðað við þær tölur sem nú liggja fyrir sé líklegt að verðbólgu- kúfurinn gangi hraðar yfir en áður var talið. Líklegt sé að „verðbólgan muni minnka hratt á næstunni úr þessum 11,8% sem hún mælist nú miðað við síðustu tólf mánuði. Það eru góðu fréttirnar í þessu“, sagði Geir. Hann vísaði til hækkana á heims- markaðsverði ýmissa afurða, svo sem á korni, hveiti og plasti. „Það sem er síðan meginskýringin á verð- hækkunum núna er að gengi krón- unnar hefur lækkað mjög hratt og mjög mikið á undanförnum vikum. Sú breyting er að skila sér mun hrað- ar í verðlaginu heldur en venja er og það er sennilega vegna þess hversu snögg gengislækkunin varð. Það er líka hugsanlegt að einhverjir séu í skjóli þeirra breytinga að neyta að- stöðu sinnar til þess að hækka verð- lag að ástæðulausu. Gegn því þurfum við að vera á verði og það er þess vegna sem ríkisstjórnin að frum- kvæði viðskiptaráðherra hefur ákveðið að beita tilteknum ráðstöf- unum,“ sagði Geir. Hann benti jafnframt á að verið væri að glíma við innfluttan verð- bólguvanda og aðstæður sem enginn hafi getað séð fyrir þegar kjarasamn- ingar voru gerðir í febrúar. „Ríkis- stjórnin lá þá undir ámæli fyrir að gera ekkert til þess að stuðla að kjarasamningum. Svo þegar þeir voru komnir var enginn sem þakkaði ríkisstjórninni fyrir hennar atbeina að því máli,“ sagði Geir. Forsendur hefðu vissulega breyst og við blasti það verkefni að takast á við þær. Það myndi ríkisstjórnin gera í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins. „Það hefur þegar verið boðaður fundur á svokölluðum samráðsvettvangi,“ sagði Geir. Gera mætti ráð fyrir að sá fundur færi fram strax eftir helgi. „Þá munum við taka til óspilltra mál- anna að því marki sem slíkur vett- vangur getur gripið inn í framvindu mála.“ Verðbólgutölur „verri en við bjuggumst við“ Geir H. Haarde Guðni Ágústsson Guðni Ágústsson segir að ríkisstjórnin eigi að segja af sér Í HNOTSKURN » Guðni Ágústsson, formaðurFramsóknarflokksins, segir að engin ríkisstjórn hafi í tutt- ugu ár verið jafnmáttvana frammi fyrir ríkjandi efnahags- vanda. » Geir H. Haarde, forsætisráð-herra, segir góðu fréttirnar að líklegt sé að verðbólgan minnki hratt á næstunni. » Forsætisráðherra segir aðm.a. sé verið að glíma við inn- fluttan verðbólguvanda. „ÉG held að við séum stödd á ögurstundu næstu daga og næstu vikur. Ef okkur tekst ekki að hemja þetta ástand erum við í mjög slæmum málum. Nógu eru þau slæm fyrir,“ segir Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðu- sambands Íslands um verðbólgutölurnar. Hann segir ljóst að kjarabætur þær sem náðust fram í kjarasamningi ASÍ og SA í febrúar rýrni dag hvern. Hjá ASÍ hafi menn gert sér grein fyrir því að verðbólg- an færi hækkandi og að það kæmi kúfur í kringum mitt ár. „Við töldum að hann yrði farinn að ganga verulega niður undir lok ársins. En þetta er eitthvað allt annað og langtum meira sem við sjáum fram á.“ Spurður hvort hann telji kjarasamningana halda segir Grétar það „deginum ljósara að ekki einu sinni kraftaverk getur tryggt forsendur kjarasamninga þeg- ar kemur að þessari endurskoðun eða uppsögn eftir at- vikum. “ Mestar áhyggjur af unga fólkinu Grétar bendir á að greiðslubyrði heimilanna stór- aukist dag frá degi. „Þar hefur maður mestar áhyggjur af því unga fólki sem hefur keypt íbúðir á allra síðustu árum. Umtalsverður hluti þeirra siglir inn í meiri hátt- ar vandamál,“ segir hann. Grétar fagnar því að viðskiptaráðherra hafi ákveðið að setja af stað sérstakt átak í verðlagseftirliti, sem verið hafi í undirbúningi í nokkrar vikur. Átakið felur m.a. í sér að tvær milljónir renna til verðlagseftirlits ASÍ og aðrar tvær milljónir fara til Neytendasamtakanna. „Allt sem gert er í þessa veru hjálpar til. En ástandið er þannig núna að svo mikilvægt sem það er að fylgjast með verðlagi á matvörum þarf að mínu mati að tryggja virkt eftirlit með öllu verðlagi og þjónustu í landinu. Það sem við sjáum í þessum skelfilegu tíðindum í [gær]morgun er með þeim hætti að manni dylst ekki að hinir og þessir aðilar nýta sér þetta ástand.“ Vissulega hafi verið rök fyrir því að hækka sumar vörur, sérstaklega erlend aðföng af ýmsu tagi. „En svo hafa vöruflokkar og þjónusta hækkað sem hefur engin tengsl við slíka hluti. Þetta minnir mann á ástandið sem var fyrir tuttugu til þrjátíu árum þegar hér var bullandi verðbólga, en þá horfði maður upp á þetta,“ segir Grétar. Viðfangsefnið núna sé að reyna að koma böndum yf- ir þetta skelfilega ástand. „Menn eiga að einbeita sér að því,“ segir Grétar sem þó varar við því að „gull og grænir skógar“ séu ekki fyrirsjáanlegir á næstum mán- uðum. Erum stödd á ögurstundu Grétar Þorsteinsson „ÞETTA er allt of mikil verð- bólga,“ segir Vil- hjálmur Eg- ilsson, framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins. „Menn gældu við að þetta yrði ekki svona mikið,“ bætir hann við. Ljóst sé að gengislækkun krónunnar hafi komið mjög sterkt fram. „Ég hafði ekki reiknað með því að þetta gerðist svona fljótt og svona mikið,“ segir hann. Vilhjálmur segist binda vonir við að þar sem verðbólgan hafi aukist svo hratt sem raun ber vitni, detti hún líka fyrr niður og stöðugleiki komist á verð að nýju. „Lækki geng- ið ekki meira er búið að stilla verð- lagið af miðað við hvernig gengi krón- unnar er nú,“ segir hann. Vilhjálmur segir að við gerð kjara- samninga SA og ASÍ í febrúar hafi ekki verið gert ráð fyrir svo mikilli verðbólgu. Hann kveðst ekki vilja leggja mat á hve miklu muni þarna fyrr en að árinu loknu. Hún sé þó miklu meiri „en við gátum reiknað með“. Hann segir að fulltrúar SA fundi reglulega með ASÍ-fólki um kjaramálin. „Við erum alltaf að funda. Þessi þróun er verulegt áhyggjuefni.“ Ekki víst að hægt hafi verið að gera betur Vilhjálmur segir að spyrja þurfi hvort hægt hefði verið að gera betur en gert var í kjarasamningunum í vetur, sé litið fram hjá aukinni verð- bólgu. Hann bendir á að þeir sem eru lægst launaðir hafi fengið ríflega launahækkun. Aðrir hópar hafi hins vegar engar hækkanir fengið út úr samningunum. „Um helmingur við- semjendanna fékk ekki launahækk- anir.“ Vilhjálmur bendir á að lífskjör allr- ar þjóðarinnar versni þegar gengið falli. „Þetta er áfall fyrir fyrirtækin líka,“ segir hann. Mörg fyrirtæki eigi útistandandi kröfur í krónum og taki á sig hærri lán og kostnað. Fyrirtæki geti gripið til þess að hækka verð, líkt og gerst hefur. Í óstöðugleika eins og nú ríki sé þó erfitt að ná árangri í rekstri fyrirtækja. „Viðskiptalegar ákvarðanir sem eru byggðar á til- teknum forsendum verða rangar þeg- ar forsendurnar breytast.“ Nú verði að vonast eftir því „að það sjái fyrir endann á þeirri fjár- málakreppu sem gengur yfir heim- inn. Við vonumst sérstaklega til þess að íslensk fyrirtæki fari að fá aðgang að erlendu lánsfé“. „Allt of mikil verðbólga“ Vilhjálmur Egilsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.