Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
sýnd í álfabakka og selfossi
/ ÁLFABAKKA
eeee
- H.J., MBL
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
BÍÓTAL
KVIKMYNDIR.IS
sýnd í álfabakka og akureyri
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
DRILLBIT TAYLOR kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 10 ára
DRILLBIT TAYLOR kl. 8 - 10:20 lúxus vip
IN THE VALLEY OF ELAH kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30
SHINE A LIGHT kl. 5:30 lúxus vip
FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
FOOL'S GOLD kl. 8 - 10:20 B.i. 7 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 6 B.i. 7 ára
sýnd í álfabakka og akureyri
FJÖLSKYLDUTENGSL eru áber-
andi þegar rýnt er í lista yfir þá
sem koma að sýningunni Ástin er
diskó, lífið er pönk. Eins og bent
hefur verið á eru höfundur verks-
ins og leikstjóri bræður. Selma
Björnsdóttir leikur stórt hlutverk
í sýningunni en systur hennar,
Birna og Guðfinna, eru danshöf-
undar sýningarinnar. Sverrir Þór
Sverrisson, betur þekktur undir
nafninu Sveppi, leikur danskenn-
arann Danna Diskó en hann og
Björnsdætur eru systkinabörn,
húsinu og segist margoft hafa
unnið með systrum sínum á leik-
sviði. Það liggur beinast við að
spyrja, í ljósi þess að þær Birna
og Guðfinna hafa samið dansa
fyrir verkið, hvort pönkarar
dansi yfirleitt.
„Þetta er góð spurning. Pönk-
arar eru aðallega með „attitude“
með hráar og grófar hreyfingar.
Auðvitað hreyfa þeir sig við sína
tónlist á sinn einstaka hátt,“
svarar Birna. Þær systur hafi
horft á Rokk í Reykjavík m.a. og
fylgst með hreyfingum pönkara
þar. Menn hafi hrist hausinn mik-
ið, stappað niður fótum og hrist
líkamann. Ólgan brjótist út í
dansi pönkaranna. Í diskóinu sé
af nógu að taka og verkefnið sem
slíkt algjör danshöfundadraumur.
Fjölskyldu-
sýning
Systur Birna, Selma og Guðfinna Björnsdætur.
„VIÐ gerðum einu sinni söngleik fyr-
ir Verzlunarskóla Íslands sem heitir
Wake Me Up og það var eitthvað svo
skemmtilegt, mann langaði alltaf að
endurtaka leikinn,“ segir Hallgrímur
Helgason, rithöfundur og leikskáld,
um söngleik sinn Ástin er diskó, lífið
er pönk sem frumsýndur verður í
Þjóðleikhúsinu á fimmtudaginn.
Leikstjóri verksins er bróðir hans,
Gunnar.
Sögusviðið er Ísland um 1980 þeg-
ar diskóæðið var í algleymingi og
pönkið gerði innrás með látum. Fata-
stíll og tónlist koma upp í hugann
þegar orðin tvö eru nefnd en upp-
reisn gegn stjórnvöldum og á móti
neysluhyggju og lífsgæðakapphlaupi
auðvitað líka. Inn í þetta fléttast svo
ástarsaga, diskódrottningin Rósa,
nýkrýnd Ungfrú Hollywood, verður
skotin í pönkaranum Nonna, söngv-
ara hljómsveitarinnar Neyslubolta.
Diskóið heillaði líka
Eins og menn vita þá var pönkið
og diskóið eins og svart og hvítt og
fólk skiptist í fylkingar, grjótharða
pönkara og bossadillandi diskófólk.
En í hvoru liðinu var Hallgrímur?
Var hann kannski í báðum?
„Maður var náttúrulega pönk-
megin. Það voru bara tveir skemmti-
staðir í bænum, Borgin og Holly-
wood. Pönkið var á Borginni og ég
var þar fastagestur, það var svona
mitt „crowd“. Ég hlustaði mikið á
pönk frá svona 1978-82. Svo fór mað-
ur að meta diskótónlistina líka, mað-
ur mátti ekki hlusta á hana og hún
varð spennandi fyrir vikið. Það var
náttúrulega mjög spennandi líka að
fara í Hollywood og kíkja á þennan
heim sem var alveg lokaður fyrir
manni,“ segir Hallgrímur. Þetta hafi
ekki verið ósvipað muninum á svo-
kölluðum„hnökkum“ og „krúttum“ í
dag.
Í texta við lokalag sýningarinnar
er þessi fleyga setning: „Pönk og
diskó áttu krakka, sirkusdýr og fm-
hnakka“. Eru þá krúttin afkvæmi
pönkaranna?
„Já, það má eiginlega segja það,“
svarar Hallgrímur. Þó sé boðið upp á
þriðju leiðina í sýningunni, „litla syst-
ir“ komi með eitthvað nýtt sem
hvorki sé pönk né diskó. Jarðveg-
urinn hafi enda verið afskaplega frjór
og upp úr honum sprottið merkar
sveitir og tónlistarmenn, t.d. Björk.
– Var það ekki dauðadómur fyrir
pönkara að viðurkenna að þeir hefðu
líka gaman af diskói og öfugt á þess-
um tíma?
„Það var alveg stórhættulegt. Ég
man að ég keypti mér einu sinni ein-
hverja diskóplötu og reyndi að ganga
með hana yfir að kassanum án þess
að það sæist hvaða plata þetta væri
en það var mjög erfitt af því að LP-
plöturnar voru svo stórar,“ segir
Hallgrímur og hlær. Það eitt að
mæta í of glansandi skóm í partí hafi
þýtt að viðkomandi væri „diskó-
ógeð“.
Hallgrímur segist reyna að snúa
aðeins upp á Rómeó og Júlíu-þemað í
söngleiknum. Ekkert sé ómögulegt,
ekki einu sinni að pönkari og diskó-
gella felli hugi saman. „Mér fannst
líklegra að diskógella og pönkstrákur
myndu draga sig saman heldur en
pönkgella og diskóstrákur,“ segir
Hallgrímur og nefnir dæmi, Bubba
Morthens, fyrrum pönkara, og
Hrafnhildi Hafsteinsdóttur, fegurð-
ardrottningu Íslands 1995. Hall-
grímur segist reyndar hafa verið bú-
inn að skrifa söngleikinn þegar þau
drógu sig saman.
Bubbi kemur við sögu í söng-
leiknum, á þrjú eða fjögur lög í sýn-
ingunni að sögn Hallgríms, m.a. „Hi-
roshima“ sem hann söng með
Utangarðsmönnum.
Ekki eins kurteis við Hallgrím
„Þetta er alltaf stress, alltaf vesen
og alltaf gaman,“ segir Gunnar um
æfingaferlið. Tónlistin er í öndvegi á
sýningunni, bæði þekkt pönk- og
diskólög flutt auk frumsaminna laga
eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson,
tónlistarstjóra sýningarinnar. Þá eru
tvö ný pönklög í sýningunni sem val-
in voru í pönklagasamkeppni Þjóð-
leikhússins og Rásar 2 í vetur eftir
hljómsveitirnar Jól og Vafasöm síð-
mótun.
„Ég er ekki eins kurteis við hann
og aðra höfunda,“ svarar Gunnar
spurningu um það hvernig sé að leik-
stýra verki eftir bróður sinn.
– Skiptir hann sér af leikstjórn-
inni?
„Já, alltof mikið. Hann fer og talar
við leikarana og reynir að fá eitthvað
í gegn. Þá segi ég honum að fara vin-
samlegast út af sviðinu og út í sal,“
segir Gunnar og hlær.
– Hvernig sýning er þetta?
„Skemmtileg.“
– Ógeðslega skemmtileg?
„Ég myndi jafnvel taka það djúpt í
árinni, já.“
Pönk og diskó í eina sæng
Gunnar Helgason
leikstýrir söngleik
eftir Hallgrím
bróður sinn í Þjóð-
leikhúsinu
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Bræður Gunnar segir Hallgrím skiptir sér heldur mikið af leikstjórninni.
Danni Diskó Sveppi, sem sést hér fremstur, leikur diskódanskennarann Danna Diskó.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
www.leikhusid.is
feður þeirra eru bræður. Ekki er
allt búið enn því Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson, tónlistar-
stjóri sýningarinnar, er eig-
inmaður Þórunnar Geirsdóttur
sýningarstjóra. Svona er nú litla
Ísland.
Ef til vill er að skapast sérstök
hefð í Þjóðleikhúsinu, boðið upp
á fjölskyldusýningar í nýrri
merkingu þess orðs. Leikritið
Engisprettur er slík fjöl-
skyldusýning, leikstjóri verksins,
Þórhildur Þorleifsdóttir, leik-
stýrir þar dóttur sinni, eig-
inmanni og bróður.
Hreyfingar pönkara skoðaðar
Birna Björnsdóttir, systir
Selmu og Guðfinnu, hlær að þess-
um tíðu fjölskyldutengslum í leik-
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson