Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 31 ✝ Hans Hall-grímur Sigfús- son fæddist á Stóru- Hvalsá í Hrútafirði 6. nóvember 1913. Hann lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 20. apríl síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin á Stóru- Hvalsá, Kristín Gróa Guðmunds- dóttir, f. 8. október 1888, d. 15. febrúar 1963, og Sigfús Sig- fússon, f. 7. ágúst 1887, d. 29. janúar 1958. Systkini Hans Hallgríms eru: Guðmundur, f. 5. nóvember 1912, d. 5. nóv- ember 2007, Lárus, f. 5. febrúar 1915, Anna Helga, f. 12. júní 1918, Steingrímur Matthías, f. 12. júní 1919, d. 20. apríl 1976, Salóme Sig- fúsa, f. 1920, d. á fyrsta ári, Guð- rún Sigríður, f. 9. nóvember 1921, d. 24. febrúar 1998, Eiríkur, f. 21. janúar 1923, Garðar, f. 6. apríl 1924, d. 15. febrúar 1988, Har- 1955, börn þeirra eru a) Hans Ís- fjörð, f. 1977, b) Margrét Dögg Ís- fjörð, búsett í Englandi, f. 1980, maki Baldur Mcqueen, f. 1971, börn þeirra eru Kara Mist, f. 2000, Victor Hugi, f. 2002, og Athena Huld, f. 2005, c) Matthías Ísfjörð, f. 1981, sambýliskona Valgerður Bachman, f. 1984, d) Arnór Ís- fjörð, f. 1985, maki Ólafía Þor- steinsdóttir, f. 1987, börn þeirra eru Michael Árni Ísfjörð, f. 2003, og Lárus Breki Ísfjörð, f. 2007. 3) Stjúpdóttir Hans Hallgríms er Guðrún Jónsdóttir, f. 1953, maki Pálmi Sveinbjörnson, f. 1950, börn þeirra eru a) Ásdís Björg, f. 1976, maki Rúnar Gíslason, f. 1971 börn þeirra eru Andrea Líf, f. 2003, og Alexandra, f. 2005. b) Jón Páll, f. 1983. Hans ólst upp á Stóru-Hvalsá í Hrútafirði hjá foreldrum og systk- inum. Hann var bóndi á Hvalsá til 1959, þá fluttist fjölskyldan suður, fyrst í Silfurtúnið í Garðahreppi síðan í Hafnarfjörð. Hans vann lengst af hjá Hval hf. í Hafnarfirði. Síðustu fimm árin bjó hann á Hrafnistu í Hafnarfirði. Áður hafði hann búið hjá Regínu dóttur sinni og hennar fjölskyldu. Útför Hans Hallgríms verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. aldur Gísli, f. 21. september 1925, Sól- björg, f. 11. mars 1927, d. 6. ágúst 1947, Salóme Sig- fríður, f. 12. febrúar 1932, Guðbjörg, f. 5. júní 1929 og Þor- björn Sigmundur, f. 25. janúar 1934, d. 16. júlí 2002. Árið 1953 kynntist Hans Hallgrímur El- ísabetu Lúðvíks- dóttir frá Rostock í Þýskalandi, f. 26. september 1917, d. 25. maí 1999, og eignuðust þau tvær dætur. Áð- ur átti Elísabet dóttur úr fyrra sambandi: 1) Regína Bettý, f. 1955, maki Eyjólfur Þór Kristjánsson, f. 1952, börn þeirra, a) Þuríður Bettý, f.1973, dóttir hennar og Sverris Más Sverrissonar, f. 1973, er Elísabet Ósk, f. 1994, og b) Andri Þór, f. 1987. 2) Valgerður Sigf. K. Hansdóttir, f. 1957, maki Guðmundur Árni Matthíasson, f. Elsku pabbi, mikið held ég að þú sért glaður að vera loks kominn heim til allra sem voru á undan þér, þú varst orðinn langþreyttur á að bíða eftir að komast. Síðustu fimm árin varstu á Hrafnistu í Hafnarfirði hjá yndislegu fólki sem hugsaði um þig á svo fallegan og nærgætin átt. Vorum við fjölskyld- an þakklát fyrir það og verður seint þakkað. Þér leið vel hjá stelp- unum þínum þar, þær eru svo góð- ar við mig, sagðir þú og brostir þínu góðlátlega brosi. Hjá okkur varstu í 27 ár. Þurý og Andri, afabörnin þín, lærðu mik- ið af þér. Alltaf varstu heima til staðar fyrir þau. Þú hjálpaðir okk- ur mikið við bygginguna á húsinu og þú varst í essinu þínu uppi í sumarbústað, þar tókstu aldeilis til hendinni, slóst með orfi og ljá, stakkst upp kartöflugarðinn og hvaðeina sem þér datt í hug, þú varst alveg óstöðvandi þar; bónd- inn hefur líklega komið upp í þér þar. Bless, elsku pabbi minn, við Eyj- ólfur þökkum þér fyrir samfylgdina og allt sem þú gerðir fyrir okkur, ég á eftir að sakna þín. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, feginn hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésd., Steingr. Sigfússon.) Þín dóttir, Regína Bettý. Mig langar svo til að segja þér hve kær þú ert mér og hve mikils virði þú ert í mínum augum. Ég tel mig lánsama að hafa fengið að kynnast þér. Ég væri ekki það sem ég er í dag nema vegna þín. Þú hefur leitt mig í gegnum lífið, þurrkað tár mín og huggað mig á slæmum tímum. Þú hefur stórt hjarta, fullt af visku. Ég vildi að ég hefði getað gefið þér þann hæfi- leika að geta séð sjálfan þig með augum annarra. Þá hefðir þú séð hve sérstakur þú í rauninni varst. Takk fyrir að hafa verið til stað- ar. Takk fyrir að hafa verið þú. Ég elska þig, pabbi, en nú er komið að kveðjustund. Í huga mér stendur hæst sú gleði og eftirvænt- ing sem skein úr andliti þínu þegar ég kom að heimsækja þig, annað hvort ein eða með fjölskyldu minni. Ég er þakklát fyrir að hafa verið hjá þér ásamt Regínu systur síð- ustu þrjá dagana sem þú lifðir, það var yndislegt að halda í hendur þínar og finna hlýjuna frá þér, þær minningar mun ég geyma í hjarta mínu. Takk fyrir allt sem þú varst mér og fyrir allt sem þú gerðir fyr- ir mig. Með þessum fallega texta vil ég kveðja þig, elsku pabbi minn, þar til að við hittumst á ný. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur, og fagrar vonir tengir líf mitt við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað.) Þín dóttir Valgerður Sigf. K. Kveðja til afa og langafa. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Með þessum orðum viljum við minnast þín, elsku besti afi minn og langafi. Guð geymi þig og blessi. Þínar afastelpur, Þuríður Bettý og El- ísabet Ósk. Kveðja til afa. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta, skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Faðir minn, láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi.) Elsku afi, takk fyrir allt og allt. Þinn Andri Þór. Elsku besti afi, þessi fallegi sálmur er til þín frá okkur. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta okkar. Ég kveiki á kertum mínum við krossins helga tré. Í öllum sálmum sínum hinn seki beygir kné. Ég villtist oft af vegi. Ég vakti oft og bað. Nú hallar helgum degi á Hausaskeljastað. Í gegnum móðu’ og mistur ég mikil undur sé. Ég sé þig koma, Kristur, með krossins þunga tré. Af enni daggir drjúpa, og dýrð úr augum skín. Á klettinn vil ég krjúpa og kyssa sporin þín. Ég fell að fótum þínum og faðma lífsins tré. Með innri augum mínum ég undur mikil sé. Þú stýrir vorsins veldi og verndar hverja rós. Frá þínum ástareldi fá allir heimar ljós. (Davíð Stefánsson.) Hans, Margrét, Matthías og Arnór (Valgerðarbörn.) Elsku langafi okkar. Með þessari bæn viljum við bræðurnir kveðja þig. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Prestshólum.) Michael Árni og Lárus Breki (Arnórsbörn.) Hans Hallgrímur Sigfússon Til ástkærs langafa okkar, Guð blessi þig. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Ég fel í sérhvert sinn sál og líkama minn í vald og vinskap þinn vörn og skjól þar ég finn. (Hallgrímur Pétursson) Kara Mist, Victor Hugi og Athena Mcqueen (Mar- grétarbörn.) HINSTA KVEÐJA ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GISSUR JÓEL GISSURARSON, Brávallagötu 26, Reykjavík, andaðist þriðjudaginn 23. apríl. Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 2. maí kl. 13.00. Margrét Margeirsdóttir, Ívar Gissurarson, Stefanía Hrólfsdóttir, Margeir Gissurarson, Hulda Biering, Snorri Gissurarson, Bára Ægisdóttir, Laufey Elísabet Gissurardóttir, Kristinn Ólafsson, Lilja Gissurardóttir, Árni Benediktsson, Ingólfur Gissurarson, Valdís Arnórsdóttir, afa- og langafabörn. ✝ Elsku eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, ELSA GUÐBJÖRG VILMUNDARDÓTTIR jarðfræðingur, Kaldrananesi, Mýrdal, lést miðvikudaginn 23. apríl. Útför hennar fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn 7. maí kl. 13.00. Pálmi Lárusson, Vilmundur Pálmason, Lilja Björk Pálsdóttir, Guðrún Lára Pálmadóttir, Oddur Valur Þórarinsson, Elsa Barðdal Vilmundardóttir, Ásrún Ösp Vilmundardóttir, Arnþór Víðir Vilmundarson. ✝ Okkar ágæta ÞORBJÖRG FINNBOGADÓTTIR húsmæðrakennari, Víðilundi 20, Akureyri, er látin. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 5. maí kl. 13.30. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Jónas Finnbogason. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, dóttir mín og systir okkar, GUÐBJÖRG MAGNA BJÖRNSDÓTTIR, Fensölum 2, Kópavogi, sem lést þriðjudaginn 22. apríl, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 2. maí kl. 15.00. Fyrir hönd vandamanna, Þórður Jónsson, Þórunn Soffía Þórðardóttir, Þórður Sveinlaugur Þórðarson, Þórunn Magnúsdóttir, Sveinlaugur Björnsson, Rebekka Björnsdóttir, Þórgunnur Björnsdóttir, Sveinbjörn Björnsson. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, BÁRA VALDÍS PÁLSDÓTTIR, lengst af til heimilis á Sunnubraut 16, Akranesi, lést sunnudaginn 27. apríl á dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Jarðarförin auglýst síðar. Margrét Valtýsdóttir, Arnar Halldórsson, Ármann Sigurðsson, Díana Bergmann Valtýsdóttir, Viktor Björnsson, Benedikt Valtýsson, Jóna Sigurðardóttir, Kristrún Valtýsdóttir, Erlingur Þ. Guðmundsson, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.