Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.04.2008, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR TVEIR ungir piltar voru hand- teknir í Hlíðunum í Reykjavík að- faranótt laugardags en þeir eru grunaðir um eignaspjöll með því að krota merki sín á fjölmarga veggi frá miðborginni og upp í Hlíðar. Rannsókn málsins er á frumstigi en ljóst má vera að piltarnir hafa vald- ið miklu tjóni. Enn er óljóst nákvæmlega hversu mörg hús og eigur borgarinnar piltarnir krotuðu á en lög- reglumenn voru iðnir við að mynda herlegheitin í gærmorgun. Pilt- arnir voru yfirheyrðir í gærmorg- un og í kjölfarið sleppt. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hefur annar pilturinn verið kenndur við svonefndan SC- hóp en meðlimir hans bera ábyrgð á mörgu veggjalýtinu. Krota þeir jafnan stafina SC við verk sín. Hvetur fórnarlömb til að kæra Piltarnir tveir fóru meðal annars um Hverfisgötu og skildu eftir sig slóð skemmdarverka. Íbúi við göt- una sem Morgunblaðið ræddi við sagði vegg þann sem piltarnir „skreyttu“ hafa verið nýmálaðan og nú þurfi aftur að leggja út fyrir aðkeyptum málara. Hann hvetur sem flesta sem urðu fyrir barðinu á piltunum í fyrrinótt að kæra þá til lögreglunnar og setja fram skaða- bótakröfur. Benedikt Lund hjá rannsókn- ardeild lögreglunnar á höfuðborg- arsvæðinu segir „krotara“ plágu í borginni. „Þetta eru eignaspjöll og ekkert annað. Og það sem meira er, þetta eru einu eignaspjöllin sem ég veit um þar sem menn fara að heim- an frá sér, oft á tíðum með leyfi for- eldra, með það fyrir augum að skemma. Það gera ekki nema veggjakrotarar.“ Engum dylst að veggjakrot hefur aukist gríðarlega á umliðnum árum og segir Benedikt að það muni ekki breytast nema til komi vitund- arvakning. „Ef almenningur rís upp á móti þá breytist þetta kannski. En menn verða að skilja að þetta eru eignaspjöll en ekki list. Þetta er stórtjón sem þeir eru að valda.“ Flestir þeir „krotarar“ sem lög- regla grípur eru stálpuð ungmenni, á aldrinum 16 til 21 árs. „Krotarar“ plága í borginni  Tveir veggjakrotarar handteknir í Hlíðunum aðfaranótt mánudags  Lögregla segir foreldra oft á tíðum meðvitaða um skemmdarverk barna sinna Lýti Veggjakrotarar herja á miðborg Reykjavíkur þar sem ástandið hefur verið vægast sagt skelfilegt. SC Crew Annar piltanna, sem handteknir voru, er í svonefndum SC-hóp og hefur verið iðinn við kolann. Morgunblaðið/Valdís ThorMorgunblaðið/Valdís Thor Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is AKRANESKAUPSTAÐUR hefur boðið grunnskólakennurum bæjar- ins aukagreiðslu að upphæð 60.000 kr. sem koma á til greiðslu við und- irritun nýrra kjarasamninga. Þetta var ákvörðun bæjarstjórn- ar á fundi í gærkvöld. Að sögn Gísla S. Einarssonar bæjarstjóra er þessu boði ætlað að koma til móts við kröfur kennara, sem hafa viljað fá viðbótargreiðslur frá sveitarfélaginu með svipuðum hætti og gert hefur verið í öðrum bæjarfélögum á suðvesturhorninu. Til að fylgja kröfum sínum eftir hafa kennarar neitað að vinna aukavinnu og af- leysingar um- fram umsamda vinnuskyldu frá því í síðustu viku. Af þeim sökum hefur ver- ið mikil röskun á skólastarfi og var t.d. í gær nær engin kennsla í unglingadeild- um Brekkubæjarskóla og féll kennsla niður í sumum fögum við Grundaskóla. Á þessu ári hafa meðal annars Reykjavík, Seltjarnarnes, Grinda- vík og Hafnarfjörður greitt kenn- urum eða öllum bæjarstarfsmönn- um aukagreiðslu og nema upphæðirnar frá 23.000 kr. í viðbót við mánaðarlaun og upp í ein- greiðslur að upphæð allt að 200.000 kr. Auk þess að bjóða kennurum aukagreiðslu mun Akranesbær veita öðrum starfsmönnum kaup- staðarins sömu upphæð í ein- greiðslu þegar kjarasamningar hafa verið undirritaðir í haust. Fá einnig samningsbundna launahækkun Fulltrúar bæjarstjórnar funduðu seint í gærkvöld með fulltrúum kennara og kvaðst Gísli S. Ein- arsson bjartsýnn á að tilboð bæj- arins yrði til þess að kennsla kæm- ist í eðlilegt horf í dag. Kjaranefnd sveitarfélaga náði einnig samkomulagi við félag grunnskólakennara í gær um 15- 23% launahækkun í þrepum á þessu ári. Í HNOTSKURN »Kennarar fá eingreiðslu aðupphæð 60.000 kr. við und- irritun samninga. »Sveitarfélögin og grunnskóla-kennarar sömdu í gær um 15- 23% hækkun á árinu. Kennurum á Akranesi boðin aukagreiðsla Vandi skapaðist þegar grunnskólakennarar neituðu að vinna umfram vinnuskyldu Gísli S. Einarsson Norskur línu- veiðari tekinn í landhelgi NORSKT línuveiðiskip var staðið að meintum ólöglegum veiðum undan Suðausturlandi síðastliðið sunnudagskvöld og viðurkenndi skipstjórinn að hafa verið á svæð- inu við skýrslutöku í gær. Skipinu var vísað til hafnar í Vestmannaeyjum og kom þangað um kl. 9 í gærmorgun. Tekin var skýrsla af skipstjóranum og gerir sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum ráð fyrir að lögð verði fram ákæra í dag þar sem farið verði fram á sekt og upptöku afla og veiðarfæra. Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF- GNÁ, kom að línuveiðiskipinu Gayser Senior sem var að meint- um ólöglegum veiðum inni á lok- uðu svæði í Skaftárdjúpi, að því er segir í tilkynningu Landhelg- isgæslunnar. Svæðið er lokað sam- kvæmt reglugerð um friðun hrygningarþorsks og skarkola á vetrarvertíð og hefur verið lokað á þessum tíma undanfarin ár. Stýrimaður þyrlunnar seig um borð í skipið, rannsakaði meint brot og fór yfir afladagbækur og önnur skipsskjöl. NOTENDUM fréttavefjar mbl.is er nú boðið að skoða stærri útgáfu fréttamynda, sem birtar eru með fréttum á vefnum. Það nægir að smella á myndina til að skoða stærri útgáfuna. Rétt er að taka fram að þessi stækkun gildir ekki um eldri myndir. Stærri myndir á mbl.is HAGNAÐUR Árvakurs fyrir skatta og fjármagnsliði (EBITDA) árið 2007 nam 151 milljón króna, samanborið við 84 milljóna króna tap árið áður. „Raunverulegur viðsnúningur í rekstri Morgunblaðsins og mbl.is, sem voru uppistaðan í rekstr- inum, er umtalsvert meiri en sem þessu nemur því á síðasta ári lagði félagið í verulegan kostnað tengdan kaupum og viðsnúningi á starfsemi fríblaðsins 24stunda, sem er komið í Árvakursfjölskyld- una“, segir Einar Sigurðsson, for- stjóri Árvakurs. „Það er búið að taka til hend- inni í þessum rekstri og leggja góðan grunn að uppbyggingu sem er framundan undir forystu nýrr- ar stjórnar og nýrra ritstjóra. Við erum því afar bjartsýn á fram- haldið og það er sóknarhugur í fyrirtækinu. Hér starfa á annað hundrað manns að efnisöflun og miðlun í gegnum Morgunblaðið, 24stundir og mbl.is og ná þannig í hverri viku til nær allrar þjóð- arinnar.“ Ný stjórn kjörin Á aðalfundi Árvakurs í gær var kjörin ný stjórn félagsins en tölu- verðar breytingar urðu á henni. Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvá og formaður Samtaka atvinnulífs- ins, verður formaður stjórnar í stað Stefáns Péturs Eggertssonar verkfræðings, sem verður vara- formaður. Aðrir í stjórn eru Kristinn Björnsson fjárfestir, Ás- dís Halla Bragadóttir, fyrrverandi forstjóri BYKO, og Skúli Valberg Ólafsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Straums-Burðaráss. Úr stjórn gengu Þór Kristjánsson og Ragnhildur Geirsdóttir ásamt Guðmundi P. Davíðssyni sem tek- ur sæti í varastjórn auk Helgu Gunnarsdóttur, Emilíu Björns- dóttur, Livar Bergþórsdóttur og Óttars Pálssonar. Raunverulegur við- snúningur í rekstri Morgunblaðið/Golli Stjórnendur Árvakurs Að loknum aðalfundi frá vinstri: Ásdís Halla Bragadóttir, Einar Sigurðsson forstjóri, Skúli Valberg Ólafsson, Þór Sigfússon formaður, Kristinn Björnsson og Stefán Pétur Eggertsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.