Morgunblaðið - 29.04.2008, Page 13

Morgunblaðið - 29.04.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 8391 839   $% & % : : 839) 2;9   & % &% : : 5)<) =  >      & % & % : : ?@ 59   % & % : : 8393" 8394     & % & % : :          !  " #$% &$''% 56 7   ,)  % )7& ;  + % )7& @A , & 1% )7& % , B  & C&@  7 &0 $   DE  % )7& F 7. $; & 1  B     & 3 & GH8= ,   I; -  - &B& ?J & K  & 8 ' 6  9   & & E & , , E < J , , EG, ) G# @ ;  $ % )7& L )J ;  DE  E% )7& =M &  7, & ? J$$ $ , & 4  , & 5 4   :  N , J  N) C;%  & C 7 & ;  <  % %       %  % %  %  %  %  %    %                               4  7,  $ ? B) /) $ O F 7 ! I !!  " ! ! "  "! "!"! !  ! "    "  ! " I   "!! "!  I I I I " I I "" I I  " ""  " "  ! " ! " "  ! "    "!!    " I I " I I ! " I   " ! "  "   "" ! "! ""  !! "   ""    " "  I I I  " !  +  7, I  "   "  ! " ""  "  I I I   I I I I " I I ! I I 5 $ , $ + +                "         " "  "     Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is AFKOMA Bakkavarar Group á fyrsta fjórðungi þessa árs veldur stjórn félagsins vonbrigðum en tap félagsins á tímabilinu nam 12,8 milljónum punda, andvirði tæplega 1,9 milljarða íslenskra króna. Á sama tímabili árið 2007 varð um 9,9 milljóna punda hagnaður af rekstr- inum. Rekstrarkostnaður jókst um fjór- ar milljónir punda milli ára og fram- legð dróst saman um rúmar fimm milljónir. Felur það í sér að rekstr- arhagnaður fyrirtækisins var um 16 milljónir punda á fyrsta fjórðungi þessa árs samanborið við 25,4 millj- ónir á sama tíma í fyrra. Virðisbreyting skiptasamnings um hluti í írska félaginu Greencore Group hafði neikvæð áhrif á afkomu Bakkavarar upp á um 15,8 milljónir punda. Eignir Bakkavarar drógust saman um 0,4% á tímabilinu og eru nú um 1,48 milljarðar punda. Þá minnkaði eigið fé félagsins um 4% og er nú um 266,2 milljónir punda. Í tilkynningu er haft eftir Ágústi Guðmundssyni, forstjóra Bakkavar- ar, að niðurstöðurnar valdi von- brigðum. Áframhaldandi verðhækk- anir á hráefni auk gengislækkunar punds gagnvart evru hafi haft mikil áhrif á gengi félagsins. Kaup erlendis Í gær var einnig greint frá kaup- um Bakkavarar á hlutum í tveimur erlendum matvælafyrirtækjum. Annars vegar er um að ræða 45% hlut í La Rose Noire, einum helsta köku- og brauðframleiðanda í Hong Kong, og hefur Bakkavör kauprétt á 45% hlut til viðbótar árið 2010 og 90% hlut í starfsemi fyrirtækisins í Kína árið 2011. Þá hefur Bakkavör keypt ítalska pitsuframleiðandann Italpizza. Í báðum tilvikum er kaup- verð trúnaðarmál. Afkoma Bakkavarar veldur vonbrigðum Í HNOTSKURN » Velta Italpizza var um 4,9milljarðar króna árið 2007 og starfa hjá félaginu um 230 manns. Gert er ráð fyrir því að veltan muni aukast um 15% á þessu ári. » Hjá La Rose Noire starfaum 250 manns og nam velta fyrirtækisins í Hong Kong um 920 milljónum króna í fyrra og í Kína nam veltan um 307 milljónum króna. ● MOODY’S láns- hæfismatsfyr- irtækið hefur tek- ið lánshæfi General Motors Corp. til endur- skoðunar til hugs- anlegrar lækk- unar. Í frétt Wall Street Journal segir að Moody’s hafi áhyggjur af því að dótturfélag GM, GMAC LLC, sem er fjármálafyr- irtæki, geti haldið áfram að styðja við móðurfélagið. Er það fast- eignalánadeild GMAC sem veldur Moody’s mestum áhyggjum, en tap deildarinnar nam 4,3 milljörðum dala í fyrra og á fyrsta fjórðungi þessa árs nam tapið tæpum 400 milljónum dala. Lánshæfiseinkunn GM er B3, sem þykir í slakara lagi og hafa fjárfestar af því áhyggjur að slæmt gengi GMAC muni neyða móðurfélagið til að færa hluta eigin fjár félagsins til GMAC, en það hefði neikvæð áhrif á afkomu GM. General Motors í kröggum ● VERÐBÓLGA verður meðaltali 3,2% á evrusvæðinu í ár, samkvæmt spám Evrópusambandsins. Verð- bólga mældist að meðaltali 2,1% á evrusvæðinu á síðasta ári en verð- hækkanir á olíu og matvælum eru meðal ástæðna fyrir aukinni verð- bólgu í ár. Í spá Evrópusambandsins er gert ráð fyrir því að hagvöxtur verði minni innan þeirra fimmtán Evrópuríkja sem eru aðilar að myntbandalagi Evr- ópu en áður var talið. Hljóðar spáin upp á 1,7% hagvöxt í ár en á síðasta ári var hagvöxturinn 2,6% á evru- svæðinu. Segir í skýrslu ESB að horfurnar séu óvenju óstöðugar en þrátt fyrir það sé engin hætta á samdrætti í hagkerfi Evrópusambandsríkjanna á næstu árum. Aukin verðbólga og minni hagvöxtur í ESB ● MARS sælgæt- isframleiðandinn og Berkshire Hat- haway, fjárfest- ingasjóður Warr- ens Buffetts, hafa gert yfirtöku- tilboð í fyrirtækið Wm. Wrigley, sem framleiðir hið heimsfræga tyggjó, Wrigley’s. Er tilboðið sagt hljóða upp á 23 milljarða dollara, jafnvirði um 1.680 milljarða króna. Verði af þessum samruna er hann talinn hafa mikil áhrif á sælgæt- isframleiðslu á heimsvísu, að því er segir í Wall Street Journal. Mars Inc. framleiðir m.a. samnefnt súkkulaði, Snickers, og M&M og fleira nafn- togað sælgæti. Hlutabréf Wrigley hækkuðu verulega í gær við þessi tíðindi. Mars og Buffett að kaupa Wrigley’s Warren Buffett AUÐUR Capital hefur fengið starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu til að reka verðbréfafyrirtæki. Halla Tómasdóttir og Kristín Pét- ursdóttir, sem eru á meðfylgjandi mynd, stofnuðu fyrirtækið en þar starfa nú 12 manns. Auður Capital er í meirihlutaeigu stofnenda og starfsmanna en aðrir hluthafar eru athafnakonurnar Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, Hildur Petersen, Katrín Pétursdóttir, Kristín Jó- hannesdóttir, Svafa Grönfeldt, Ing- unn Wernersdóttir, Guðbjörg Matt- híasdóttir, Marinella Haraldsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir. Fyrirtækið býður fjárfestinga- tengda þjónustu á sviði eigna- stýringar, fyrirtækjaráðgjafar auk þess að stýra fjárfestasjóðum. Auður Capital fær starfsleyfi Ljósmynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson ÞETTA HELST ... ● ÚRVALSVÍSITALA kauphallarinnar hækkaði um 0,63% í gær og er 5.299 stig. Bréf Straums-Burðaráss hækkuðu um 3,06%, SPRON um 1,96% og Century Aluminium um 1,45%. Bréf Teymis lækkuðu um 6,23% og Eimskips um 1,76%. Krónan styrktist um 0,5% í gær en velta á millibankamarkaði nam 22,1 milljarði króna. Gengi dollars var 73,13 krónur við lokun markaða og gengi evru 114,35 krónur. Skuldatryggingarálag á bréf Landsbanka hækkaði lítillega í gær og er um 305 punktar, álag á bréf Glitnis lækkaði í u.þ.b. 387 punkta og álag á bréf Kaupþings lækkaði í u.þ.b. 350 punkta. Hækkun í kauphöll FASTEIGNAFÉLAGIÐ Novator Properties hefur tekið til starfa en félagið er að 70% hluta í eigu feðg- anna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Samkvæmt fréttatilkynningu mun félagið fjárfesta í hefðbundnum fast- eignum, sem og fasteignaþróunar- verkefnum. Um 80% eigna Novator Proper- ties eru utan Íslands en flestar þeirra voru áður í eigu Samson Pro- perties ehf., fasteignafélags í eigu Björgólfsfeðga. Helstu eignir Nova- tor Properties eru í Danmörku, Finnlandi, Búlgaríu og Króatíu auk Íslands. Samson Properties ehf. verður dótturfélag hins nýja félags og sér alfarið um rekstur verkefna félagsins á Íslandi. Í tilkynningunni segir að Samson Properties vinni að tveimur stórum þróunarverkefnum hér á landi, annars vegar uppbygg- ingu Listaháskóla Íslands í miðborg- inni og hins vegar þróun verslunar- kjarna á efri hluta Laugavegar. Forstjóri Novator Properties er Sveinn Björnsson. Nýtt fasteignafélag VIRÐING hf. hefur lokið fyrsta áfanga fjármögnunar á veðskuldabréfa- sjóði sem sér- hæfir sig í að fjármagna fullbúið atvinnu- húsnæði. Í fréttatilkynn- ingu segir að nú þegar hafi verið aflað skuldbindinga fyrir 9 millj- arða króna í sjóðinn en fjárfestar séu margir helstu lífeyrissjóðir landsins. Lokað verður fyrir áskrift fjárfesta að sjóðnum með haustinu. Friðjón Rúnar Sigurðsson, for- maður fjárfestingarráðs Virðingar, telur að nú, þegar aðgengi að láns- fjármagni er erfitt, sé rétti tíminn til að fara af stað með þennan sjóð. „Viðtökurnar til þessa hafa verið góðar og við erum bjartsýn á að fleiri fjárfestar bætist í hópinn á næstu mánuðum,“ segir hann. Fyrsta áfanga lokið Friðjón Rúnar Sigurðsson GLITNIR hefur verið tilnefndur til svonefndra sjálfbærniverðlauna viðskiptablaðsins Financial Times í flokknum Sjálfbæri samningur árs- ins. Er sú tilnefning vegna þátttöku bankans í verkefni með fyrirtækinu Hudson Ranch sem tengist þróun og rannsóknum á jarðvarmasvæð- inu Salton Sea í Kaliforníu. Þar er fyrirhuguð 50 megavatta jarð- varmavirkjun en Glitnir hefur lán- að 15 milljónir dollara til verkefn- isins, ríflega einn milljarð króna. Samtals voru 182 verkefni frá 129 fjármálafyrirtækjum í 54 lönd- um til skoðunar hjá Financial Tim- es og verða verðlaunahafarnir kynntir við athöfn í Lundúnum þann 3. júní næstkomandi. Financial Times tilnefnir Glitni ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.