Morgunblaðið - 29.04.2008, Side 15

Morgunblaðið - 29.04.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 15 MENNING SEMBALLEIKARINN Jory Vinikour leikur Goldberg- tilbrigði Bachs í Salnum annað kvöld. Vinikour er talinn meðal bestu semballeikara heims og á langan og glæstan feril að baki. Hann hefur meðal annars vakið athygli sem meðleikari, til dæmis með söngkonunni Anne Sofie von Otter. Geisla- diskur hans með Goldberg- tilbrigðunum eftir Bach var valinn einn af tíu bestu diskum ársins af Chicago Tribune- dagblaðinu. Tónleikarnir hefjast klukkan átta. Tónlist Vinikour leikur Goldberg-tilbrigðin Jory Vinikour Í HÁDEGINU á morgun ræð- ir Inga Lára Baldvinsdóttir um klæðaburð Íslendinga og leiðir gesti um sýninguna Til gagns og fegurðar sem stendur yfir í Þjóðminjasafninu. Sýningin byggist á rann- sóknum Æsu Sigurjónsdóttur listfræðings. Íslendingar hafa notað ljósmyndir, þjóðbúninga og tísku til að búa til mynd af sjálfum sér. Ljósmyndirnar á sýningunni gefa vísbendingu um hvernig þeir litu út og sýna hvernig þá langaði til að vera. Leiðsögnin hefst klukkan 12.05 í anddyri safns- ins og er öllum opin. Fræði Klæðaburður Íslendinga Inga Lára Baldvinsdóttir EGILL Guðmunds- son og Kári Bjarkar Gestsson halda sam- eiginlega útskrift- artónleika annað kvöld klukkan átta í Fella- og Hóla- kirkju. Þeir útskrif- ast báðir með BA próf í tónsmíðum frá tónlistardeild LHÍ í vor. Á tónleikunum verða flutt níu verk eftir Egil sem samin eru á árunum frá 2005 til 2008 og frum- flutt „Messa í kaþólsku formi“ eftir Kára Bjarkar. Flytjendur á tónleikunum eru Kirkjukór Fella- og Hólakirkju, kórinn Hrímþursarnir og fjöldi annarra flytjenda. Tónlist Ný verk eftir ný- útskrifuð tónskáld Fella- og Hólakirkja KRISTINN Sigmundsson bassa- söngvari fær lofsamlega dóma í bandarískum dagblöðum fyrir söng sinn í óperu Mozarts, Brottnáminu úr kvennabúrinu, í Metropolitan- óperunni í New York um helgina. Um er að ræða eldri uppfærslu sem var tekin til sýninga að nýju. Krist- inn syngur hlutverk Osmins, groddalegs umsjónarmanns kvennabúrsins. Í The New York Times segir að góðir söngvarar vegi upp á móti gamaldags útliti uppfærslunnar. Kristinn er sagður túlka hlutverk sitt af „sterkri útgeislun“ og fínni tilfinningu fyrir hinu skoplega. Sterk og ómandi rödd hans hafi þó stundum horfið í „djúp grimmd- arlega lágra tóna hlutverksins“. Í The New York Sun er söngv- arahópurinn sagður frábær. Um Kristin er sagt að hann þurfi að feta í fótspor hins frábæra þýska bassa Kurt Moll sem hafi sungið Osmin síðast. „Moll var ógleym- anlega góður. Samt stóð Íslending- urinn fyrir sínu,“ segir gagnrýn- andinn. „Söngur hans var dökkur og nákvæmur, og stundum tign- arlega kraftmikill. Hann hafði einn- ig fína tilfinningu fyrir kómíkinni; var til dæmis skemmtilega drukk- inn. Háu tónarnir voru auðveldir og lágu nóturnar aðeins síður.“ Síðan bætir gagnrýnandinn við: „En mætti ég segja að Osmin ætti að vera aðeins feitari en herra Sig- mundsson?“ Gagnrýnandi Associated Press segir Kristin hafa sýnt besta gam- anleikinn af söngvurunum. Hann hafi gætt hlutverkið „gríðarlegum þokka og ákafa“. Allt raddsviðið undir „Það gekk vel og það var mjög gaman,“ sagði Kristinn þegar blaðamaður náði sambandi við hann í New York í gær. „Stemningin var óvenjulega góð. Þetta er gömul uppfærsla en frumsýningarandi í húsinu engu að síður. Margir höfðu séð sýninguna oft og maður átti ekki von á neinum dúndurviðtökum, en það varð allt vitlaust.“ Kristinn mun syngja allar fjórar sýningarnar á óperunni að þessu sinni. Þetta er þriðja uppfærslan sem hann tekur þátt í í húsinu í vetur, en hann hefur þegar sungið í Rómeó og Júlíu og Óþelló. Hann er ekki eini Íslendingurinn sem tekur þátt í Brottnáminu því í hljómsveit hússins eru þau Stefán Höskulds- son flautuleikari og Hrafnhildur Atladóttir fiðluleikari. „Þetta hlutverk á vel við mig. Þetta er eitt af fíflunum sem ég hef gaman af,“ segir Kristinn og hlær. Hlutverk Osmins er sagt með þeim erfiðari því röddin spannar óvenju- vítt svið. „Allt raddsviðið er undir. Bæði hæð og dýpt. Varðandi hæð- ina nýtist mér það að hafa sungið barítón í gamla daga. Dýptin er bara eins og hún er!“ Vígalegur Kristinn í Wagner- hlut- verki við Metrópólitan-óperuna. „Íslending- urinn stóð fyrir sínu“ Kristinn í Brottnám- inu í New York Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is HÚN stendur við eldhúsvaskinn og vaskar upp glös og diska þegar ég gægist inn fyrir dyrnar á eldgamalli íbúðinni við Laufásveginn. „Fáðu þér sæti,“ segir hún, „ég ætla að klára að vaska upp.“ Það er í lagi. Hvernig gæti þessi manneskja verið annað en dansari? Jafnvel við uppvaskið geta hreyfingar og líkamsburður ekki log- ið til um annað. Hún heitir Ina Chris- tel Johannessen, er norsk og þykir einn fremsti dansahöfundur Evrópu í dag. Hún segir mér að Katrín Hall hafi spurt hvort hún gæti unnið eitt- hvað fyrir íslenska dansflokkinn og þegar Katrín og Arne Fagerholt, stjórnandi norska dansflokksins Carte Blanche, hafi hist á fundi og farið að ræða mögulegt samstarf, hafi orðið úr að hún yrði fengin til að setja upp sýningu, semja verk sem fyrst yrði sýnt á Listahátíð í Reykjavík, svo á Listahátíðinni í Björgvin. „Ég fór að velta því fyrir mér hvers vegna þau hefðu beðið mig, en ekki ein- hverja aðra. Ég fór að skoða tengslin, hafið, þorskinn og hvalinn,“ segir Ina og sest við eldhúsborðið með kaffi- bolla. Hún er hreint út sagt ótrúleg „Þegar ég fór að hugsa um hvalinn, hringdi ég í leikmyndarhönnuð sem ég hef unnið með, Kristinu Torp, og sagði henni að ég væri með verkefni í huga og vildi hafa hval á sviðinu. Ég sagði þetta nú meira í hálfkæringi, því það hvarflaði ekki að mér að þetta væri möguleiki. En hún er hreint út sagt ótrúleg, og eftir tæpan hálfan mánuð hringdi hún til baka og var þá komin með hval! Hún hafði fundið beinagrind af steypireyði sem hafði strandað við Jan Mayen. Það sem meira var, steypireyðurin átti sögu, skráða af vísindamönnunum sem fundu hana. Það er sjaldgæft að steypireyðar strandi, mér er sagt að það sé mun algengara með smærri hvali.“ Þar með var Ina komin með sögu og sviðsmynd að verkinu, risastóra sviðsmynd. Strand í víðustu merkingu „Steypireyðurin minnir okkur á það hversu smá við erum og brothætt og hvað við erum í raun lík skepn- unni. Það að hvalurinn skyldi hafa strandað finnst mér táknrænt fyrir mannskepnuna sem glatar vitundinni um það hver hún er. Við vitum hver við erum og hvert við ætlum, en ein- hvers staðar á leiðinni villumst við og lendum í ógöngum og týnumst.“ Hvalirnir tala saman Ína talar um hljóð hvalsins og hvað hann virðist háþróaður í samskiptum með hljóðum og táknum og hljóð- heimur hvalsins og hvalasöngurinn verður hluti sýningarinnar. „Merki- legt hvernig hvalirnir tala hverjir við aðra og gefa boð sín á milli. Fílar gera þetta víst líka, með því að stappa í jörðina. Það er samt ekki vitað ná- kvæmlega hvernig þetta gerist og hvað boðin merkja. Manneskjan er ekkert síður furðuleg og við sendum alls konar skilaboð og tákn okkar á milli sem eru ekki alltaf skiljanleg.“ Tuttugu og einn dansari frá báðum dansflokkunum dansa í sýningunni, og Ina hefur ekki samið svo stóra sýningu áður. Núna standa yfir þrot- lausar æfingar; þær byrjuðu á Íslandi fyrir páska, þá var æft í Bergen, svo aftur á Íslandi og næst aftur í Berg- en. „Það munar um plássið í aðstöð- unni okkar úti. Þar erum við í stóru sjónvarpsveri og getum æft í nánast sömu vídd og sviðsstærðin í Borg- arleikhúsinu er. Það munar svo miklu upp á alla tækniútfærslu í dansinum.“ Tónlistina í sýningunni – fyrir utan þá sem hvalirnir sjá um – semja Kira Kira, Hildur Ingveldardóttir Guðna- dóttir og Dirk Desselhaus. Hildur tekur beinan þátt í sýningunni og verður á sviðinu og leikur með sjálfa sig og hljóð. „Það er eins gott að til er internet, því tónlistarfólkið er hvort á sínum stað, og það gerir þetta erf- iðara. Við sendum hljóðskrár og hug- myndir á milli, og þannig þarf það að ganga.“ Fegurðin í niðursuðudósunum Það vekur undrun þegar Ina fer að tala um ruslið og draslið sem prýða muni sýninguna. „Það kemur til af því að ég fór að velta fyrir mér hval- veiðum okkar Norðmanna, bæði hér á norðurslóðum og annars staðar. Hvernig við fórum um, byggðum bæi og þorp … og þá sjón sem er að sjá á þessum stöðum í dag. Við skildum ekkert eftir nema drasl. En er það ekki bara einkennandi fyrir mann- eskjuna í dag – við erum að tortíma okkur sjálfum með drasli.“ Og ruslið og draslið verður hluti af sviðsmynd- inni. Gegnsæ mót voru búin til og þau fyllt af hroða, plastflöskur, dósir, pappírsdrasl, plast … „Veistu hvað niðursuðudósir sem búið er að pressa saman geta verið fallegar þegar ljósi er beint að þeim?“ Nei … „Draslið öðlast nýja fegurð. Beinagrind hvals- ins er líka eins konar drasl, ekki bein- línis drasl, heldur eitthvað sem skilið er eftir til að eyðast og hverfa. Drasl- ið kveikir spurningar um líf og dauða.“ Ambra verður sýnd á Listahátíð í Reykjavík 23., 24. og 25. maí kl. 20 í Borgarleikhúsinu. Með steypireyði í farangrinum Stórhveli Steypireyðurin og vísindamaðurinn Jan Erik Ringstadt við strönd Jan Mayen. Norski danshöfundurinn Ina Christel Johannessen teflir saman Íd og Carte Blanche í danssýningunni Ambra sem frumsýnd verður á Listahátíð í Reykjavík Morgunblaðið/Valdís Thor Ina Christel Johannessen Hún er meðal fremstu danshöfunda í Evrópu. Á ELDFJALLAEYJUNNI Jan Ma- yen – Djöflaeyjunni í Norður- Íshafinu – sjást daglega merki um jarðhræringar á jarðskjálftamælum; jörð skelfur, minniháttar skjálftar ganga yfir og endrum og eins vakna eldfjöll til lífsins. Að morgni mánu- dags hinn 6. ágúst árið 2001 upp- götvar starfsmaður á rannsókn- arstöð í Íshafinu nýjan dranga úti fyrir ströndinni. Í sjónaukanum sín- um kemur hann auga á hval sem rekur að landi og stefnir í strand. Úr ferðabók Jans Eriks Ringstads vís- indamanns:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.