Morgunblaðið - 29.04.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 29.04.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 27 Josef Fritzl, 73 ára Austurríkismaður, játaði ígær að hafa haldið dóttur sinni fanginni ígluggalausum kjallara í 24 ár, beitt hanakynferðislegu ofbeldi og átt með henni sjö börn. Þrjú barnanna, sem eru núna fimm til nítján ára, kúldruðust í kjallaranum með móður sinni, fjórða barnið dó þar skömmu eftir fæðingu en þrjú barnanna bjuggu hjá ömmu sinni og afa/föður sem höfðu fengið heimild til að taka þau í fóstur. Málið hefur vakið mikinn óhug meðal Austurrík- ismanna, einkum íbúa Amstetten, 23.000 manna bæjar, þar sem börnin fundust. Mörg austurrísk dagblöð kröfðust svara við því hvers vegna yfirvöld fundu ekki börnin fyrr í „hryllingshúsinu“. Dag- blaðið Österreich lýsti málinu sem „versta glæp allra tíma“ í sex síðna grein. „Hvernig getur þetta gerst hérna?“ spurði blaðið Die Presse. „Öll þjóðin þarf að spyrja sig grundvallarspurninga um hvað farið hefur úrskeiðis,“ sagði blaðið Der Standard í forystugrein. Áður höfðu yfirvöldin sætt harðri gagnrýni fyrir handvömm við rannsókn á hvarfi tíu ára stúlku, sem 44 ára karlmaður rændi og hélt nauðugri í dýflissu á heimili sínu í nágrenni Vín- arborgar í rúm átta ár þangað til hún slapp fyrir til- viljun í ágúst 2006. Kurteis og vingjarnlegur Austurrísk dagblöð höfðu eftir nágrönnum Fritzl að hann hefði verið vel þokkaður, kurteis og vin- gjarnlegur. Rannsókn lögreglunnar bendir þó til þess að „Skrímslið Fritzl“, eins og blöðin kalla hann, hafi skipulagt glæpinn mjög nákvæmlega til að geta haldið honum leyndum svo lengi. „Á sama tíma og dóttir hans og þrjú börn hennar liðu endalausa kvöl í dýflissu lék Skrímslið Fritzl virðulegan afa í sama húsi,“ sagði dagblaðið Kro- nen-Zeitung. „Hann lék umhyggjusaman afa sem annaðist um þrjú barnabörn sín, en þau reyndust vera hans eigin börn, getin í blóðskömm.“ Haft var eftir nágrönnum Fritzl að hann hefði verið geðfelldur og kurteis, alltaf verið tilbúinn til að hjálpa öðrum og virst bera mikla umhyggju fyrir börnum sínum og barnabörnum. Hann á sjö upp- komin börn með eiginkonu sinni, Rosemarie, sem virðist ekki hafa vitað af prísund dóttur sinnar og barnabarnanna þriggja í kjallaranum. Fritzl er á eftirlaunum og var áður rafvirki í verksmiðju sem framleiðir byggingarefni. Dóttir Fritzl, Elizabeth, sem er nú 42 ára, segir að hann hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi frá því að hún var ellefu ára. Hann hafi gefið henni svefn- lyf, handjárnað hana og læst hana inni í kjall- aranum 28. ágúst 1984, þegar hún var átján ára. Fritzl neyddi stúlkuna til að skrifa bréf þar sem hún bað foreldra sína um að leita ekki að sér. Hann taldi lögreglunni og bæjarbúum trú um að stúlkan hefði gengið í einangraðan sértrúarsöfnuð. Lögreglan hefur eftir Elizabeth að faðir hennar hafi haldið áfram að beita hana kynferðislegu of- beldi í þau 24 ár sem hann hélt henni í prísundinni. Sex barnanna, sem hún ól í kjallaranum, eru nú á aldrinum fimm til nítján ára. Sjöunda barnið dó nokkrum dögum eftir fæðingu vegna ófullnægjandi aðhlynningar og Fritzl játaði að hafa brennt lík þess. Fritzl og eiginkona hans segjast hafa fundið þrjú barnanna – dreng og tvær stúlkur – fyrir utan hús þeirra á árunum 1993, 1994 og 1997 þegar þau voru níu til fimmtán mánaða gömul. Talið er að hann hafi neytt dóttur sína til að skrifa bréf sem skilið var eft- ir hjá barninu sem fannst 1993, en í því stóð að móð- irin ætti þegar tvö önnur börn og gæti ekki annast það þriðja. Í öðru bréfi kvaðst hún hafa eignast son í desember 2002 og foreldrarnir voru beðnir um að leita ekki að henni. „Það væri gagnslaust og gæti aðeins aukið þjáningu mína og barna minna.“ Fritzl og eiginkona hans fengu heimild til að taka börnin þrjú í fóstur og nágrannar þeirra sögðu að ekkert virtist hafa verið athugavert við uppeldi þeirra. Þau eru nú á aldrinum tólf til sextán ára. Hin börnin þrjú, nítján ára stúlka og tveir bræð- ur hennar, fimm og átján ára gamlir, dvöldu hins vegar í kjallaranum og höfðu aldrei séð dagsljós þegar þau fundust. „Móðir þeirra kenndi þeim að tala,“ höfðu austurrísku dagblöðin eftir talsmanni lögreglunnar. Samkvæmt yfirlýsingu frá lögreglunni sleppti maðurinn Elizabeth og tveimur barnanna úr prís- undinni nýlega og sagði eiginkonu sinni að dóttir þeirra hefði ákveðið að segja skilið við söfnuðinn og koma aftur heim. Þriðja barnið, Kerstin, sem er nítján ára, fannst síðan meðvitundarlaus í íbúð mannsins fyrir rúmri viku og hjá henni var bréf þar sem móðir hennar bað um að dóttur sinni yrði kom- ið undir læknishendur. Á sjúkrahúsi í bænum kom í ljós að Kerstin þjá- ist af alvarlegum og óþekktum sjúkdómi og yfirvöld gáfu út yfirlýsingu þar sem þau báðu móðurina að gefa sig fram til að hægt yrði að afla upplýsinga sem gætu varpað ljósi á sjúkdóminn. Elizabeth fannst síðan hjá föður sínum á laugardaginn var og kvöldið eftir fann lögreglan dýflissu barnanna þriggja og móður þeirra. Þeim var haldið í þremur herbergjum sem eru alls 50-60 fermetrar og lofthæðin mest 1,70 metrar. Lögreglustjórinn Franz Polzer sagði að mörgum spurningum væri enn ósvarað, til að mynda hvernig Fritzl sá Elizabeth og börnunum fyrir mat, hvernig hún gat fætt börnin og annast þau í þessu þrönga rými og hvernig hann gat haldið þeim svo lengi í prísund án þess að eiginkona hans kæmist að því. Polzer sagði að Fritzl hefði verið mjög ráðríkur í fjölskyldunni og stranglega bannað öllum að fara inn í kjallarann sem hann kvaðst nota sem verk- stæði. Lögreglumenn fundu ekki dýflissuna fyrr en Flitzl gaf þeim upp leynilegan kóða til að opna rammgerða og skráarlausa hurð á bak við hillur sem voru fullar af brúsum og öðrum ílátum. Börnin þrjú og móðir þeirra voru allan tímann án sólarljóss og algjörlega einangruð frá umheiminum að öðru leyti en því að í dýflissunni var sjónvarps- tæki, útvarp og myndbandstæki. Í henni voru einn- ig plötur til að hita mat og lúga sem maðurinn not- aði til að koma matvælum og fatnaði til barna sinna. Í kjallaranum er sturta og eitt herbergjanna fóðrað með gúmmíi af einhverjum ástæðum. Elizabeth er í mjög slæmu ástandi líkamlega og andlega, náföl og virðist 20 árum eldri en hún er, að sögn lögreglunnar, sem sagði að konan hefði ekki viljað svara spurningum lögreglumanna fyrr en þeir lofuðu að hún þyrfti ekki að sjá föður sinn aft- ur. Hún er sögð á sjúkrahúsi og njóta þar meðal annars aðstoðar sálfræðinga. Yfirvöld hafa ekki viljað veita upplýsingar um líðan barnanna. Eig- inkona Fritzl og amma barnanna hefur fengið áfallahjálp. Skrímslið hélt börnum sínum í gluggalausri kjallaraprísund Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Dýflissan Austurríska lögreglan birti í gær myndir af gluggalausri kjallaradýflissunni. Á myndinni til vinstri sést þröngur gangur inn í svefnherbergi og til hægri sést inngangurinn að prísundinni. Reuters Skrímslið 73 ára maður, sem hefur játað að hafa haldið dóttur sinni fanginni í 24 ár, beitt hana kynferðislegu ofbeldi og átt með henni sjö börn. Þrjú þeirra voru í prísund með henni í gluggalausum kjallara. » Blöðin höfðu eft- ir nágrönnum Fritzl að hann hefði verið geðfelldur og kurteis maður, sem hefði alltaf verið tilbúinn til að hjálpa öðrum og virst bera mikla umhyggju fyrir börnum sínum og barnabörnum. Hann á sjö upp- komin börn með eig- inkonu sinni, Rose- marie, sem virðist ekki hafa vitað af prísund dóttur sinn- ar og barna- barnanna þriggja í kjallaranum. Hryllingshúsið Sjónvarpsmenn fyrir utan húsið þar sem konunni og börnunum var haldið. Austurríkismaður játar að hafa haldið dóttur sinni fanginni í 24 ár og eignast með henni sjö börn sitala milli mars og apríl. Fara þarf allt aft- ur til janúar árið 1985 til að finna meiri hækkun, en þá hækkaði vísitalan án húsnæðis- liðarins um 4,8%. Í tilkynningu Hagstofunnar segir að gengissig íslensku krón- unnar undanfarið hafi skilað sér mjög hratt út í verðlagið og hækkaði verð á innfluttum vörum um 6,2% milli mars og apríl í ár. (Vísitöluáhrif af þeirri hækkun eru 2,1%). Kostnaður vegna reksturs eig- in bifreiðar jókst um 7,1% (vísitöluáhrif 1,14%), en þar af hækkaði verð á nýjum bílum um 11,0% (vísitöluáhrif 0,77%) og verð á bensíni og olíum um 5,2% (0,24%). Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 6,4% (0,77%), þar af hækkaði verð á mjólk og mjólkurvörum um 10,2% (0,20%). lga      : : % ( B2  B  ( nn að geta haft hemil á gengislekanum. engi krónunnar verður hins vegar alltaf eiflukennt, og ef sveiflurnar eru að koma ona beint inn í verðbólguna þá gerir það verkum að það er erfitt að reka pen- gamálastefnu í landinu,“ segir Ásgeir. erðbólgan hraðar niður Að sögn Ingólfs Bender, forstöðumanns reiningar Glitnis, skýrist munurinn á spá ildarinnar og raunverulegri hækkun á sitölu neysluverðs milli mars og apríl fyrst fremst af því að gengisáhrifin hafi komið fyrr og af meiri krafti en búist hafi verið Hann segir að því fylgi mikil óvissa hve tt gengislækkun sé velt út í verðlagið. nnski hafi þar áhrif nú hvað gengislækk- n í mars hafi verið mikil á skömmum a. Gengislækkunin hafi gefið tilefni til rra verðlagshækkana sem orðið hafi og nvel gott betur, og við því sé að búast að iri hækkanir séu fram undan vegna geng- hrifanna. Við reiknuðum með því áður að verð- gumarkmið Seðlabankans myndi nást á nni helmingi næsta árs og að verðbólgan ndi detta tiltölulega hratt niður þegar ngisáhrifin verða frá. Það sem er að ger- nú er að gengisáhrifin eru að koma fyrr , þannig að verðbólgan mun að öllum lík- um lækka fyrr en við gerðum áður ráð ir,“ segir Ingólfur. aðar ður voru í lok apríl í fyrra, en þeir voru þá 4,65%. Þá er gert ráð fyrir að lánstíminn sé 40 ár. Eftirstöðvar af 18 milljóna króna láni, sem tekið var fyrir ári síðan, hafa einnig hækkað eins og greiðslubyrðin og eru nú um 19,3 milljónir. Til að standa skil á hærri mánaðarlegum greiðslum af 18 milljóna króna íbúðaláni, sem tekið var fyrir ári síðan, þurfa laun að vera rúmlega 9 þúsund krónum hærri nú en þau voru þá, þegar tekið hefur verið tillit til staðgreiðslu skatta. Ekki er þá horft til hugsanlegra hærri vaxtabóta sem einhverjir gætu fengið. Rétt er að benda á að íbúða- lán með 4,65% vöxtum eru ekki í boði hjá Íbúðalánasjóði nú. Lægstu vextir sjóðsins eru 5,2%. Mánaðarleg greiðslubyrði af slíku láni upp á 18 milljónir og til 40 ára er nú um 90 þúsund krónur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.