Morgunblaðið - 29.04.2008, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 29.04.2008, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL 2008 41 árnað heilla ritstjorn@mbl.is 60ára afmæli. Í dag, 29. apríl, erGuðlaugur Jóhannsson, Hrauntúni 69, Vestmannaeyjum, sex- tugur. Guðlaugur verður að heiman á afmælisdaginn. dagbók Í dag er þriðjudagur 29. apríl, 120. dagur ársins 2008 Orð dagsins: En ef einhver elskar Guð, þá er hann þekktur af honum. (I.Kor. 8, 3.) Tónlist Fella- og Hólakirkja | Útskriftartónleikar Egils Guðmundssonar og Kára Bjarkars Gestssonar kl. 20, en þeir eru að útskrif- ast úr tónsmíðum frá tónlistardeild LHÍ. Flutt verða níu verk eftir Egil sem samin eru á árunum 2005–2008 og frumflutt Messa í kaþólsku formi eftir Kára Bjarkar. Íslenska óperan | Tónleikar baritón- söngvarans Sir Willards White verða kl. 20. Tónleikarnir bera yfirskriftina Kvöld- stund með Willard White til heiðurs Paul Robeson. Hér er um að ræða lifandi dag- skrá: negrasálmar, þjóðlög og gömul djasslög. Seltjarnarneskirkja | 1. maí verða vor- tónleikar sönghópsins Hljómeykis. Á efn- isskránni verða verk eftir íslensk og er- lend tónskáld og verður frumflutt verkið Oft fellur sjór yfir hlunna, eftir Hildigunni Rúnarsdóttur. Vortónleikar sönghópsins eru að þessu sinni upphitun fyrir kóra- keppni í Frakklandi. Fyrirlestrar og fundir Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12, orgelleikur, íhugun og bæn. Kirkjustarf eldri borgara kl. 13-16, heimsókn frá Sví- þjóð. Spil, spjall og kaffiveitingar. Helgi- stund í kirkju. Háskólatorg 101 | Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir, sendiherra Íslands í Suður- Afríku, heldur fyrirlestur um þróun stjórn- mála í Suður-Afríku kl. 12.15–13.15. Fyr- irlesturinn fer fram á íslensku og er opinn öllum. Sjá einnig á www.hi.is/ams Háskóli Íslands, Oddi | Fyrirlestur Vin- áttufélags Íslands og Kanada. Dr. Þór Jakobsson, veðurfræðingur, fjallar um áhrif bráðnunar hafíss við Kanada mið- vikud. 30. apríl kl. 20 í Odda, HÍ, stofu 106. Síðan mun dr. Guðrún Björk Guð- steinsdóttir, dósent í kanadískum bók- menntum við HÍ, flytja erindið Leiðarljós í Nýja Íslandi. Mosfellsbær | Aðalfundur Sögufélags Kjalarnesþings verður haldinn á Ásláki í Mosfellsbæ miðvikudaginn 30. apríl og hefst kl. 20. Á dagskránni verða venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál. Að því loknu mun Kristinn Magnússon fornleifa- fræðingur flytja fyrirlestur um fornleifa- skráningu í Mosfellsbæ en skýrsla um hana kom út árið 2006. Seðlabanki Íslands | Málstofa kl. 15 í fundarsal Seðlabankans, Sölvhóli. Máls- hefjandi er Hrafn Steinarsson, sérfræð- ingur hjá Askar Capital og ber erindi hans heitið „Rætur lausafjárkrísunnar: Undir- málslán eða útlánaáhætta“. Öryrkjabandalag Íslands | Kvennahreyf- ing ÖBÍ heldur fund miðvikudaginn 30. apríl kl. 18–20 í Hátúni 10, 9.hæð. Sig- þrúður Guðmundsdóttir, fræðslu- og framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins heldur fyrirlestur um heimilisofbeldi og úrræði sem í boði eru. Kaffiveitingar. Leiklist Bifröst, Sauðárkróki | Leikfélag Sauð- árkróks sýnir farsann Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney í nýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar. Leikstjóri er Jón Stef- án Kristjánsson. Sýnt kl. 20.30, miðasala 849–9434. FRÉTTIR UPPSTIGNINGARDAGUR er dagur aldraðra í kirkjum landsins. Þessi dagur er sérstaklega tileink- aður eldri borgurum og fjölskyldum þeirra. Á degi aldraðra taka margir eldri borgarar virkan þátt í mess- unni, m.a. með því að lesa ritning- arlestur, flytja prédikun og syngja. Fjölskyldum gefst tækifæri til að eiga saman hátíðarstund í kirkjunni sinni og að lokinni guðsþjónustu er boðið upp á veitingar. Herra Pétur Sigurgeirsson biskup lagði til á kirkjuþingi árið 1982 að dagur aldraðra yrði árlegur við- burður í kirkjum landsins og sá dag- ur myndi verða á uppstigningardag. Útvarpað verður messunni frá Grafarholtssókn. Ellimálanefnd Þjóðkirkjunnar hvetur eldri borgara og fjölskyldur þeirra til að koma í kirkju á uppstigningardag. Kirkjudagur aldraðra ■ Fim 8. maí kl. 19.30 PPP áttræður Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan með þessum tónleikum þar sem einn athyglisverðasti ungi sellisti heims leikur dásamlegan sellókonsert Schumanns. Þá er á efnis- skránni hin magnaða fimmta sinfónía Mahlers auk verks eftir afmælis- barnið. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba. Einleikari: Danjulo Ishizaka Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir. ■ Fim. 15. maí kl. 19.30 Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna Hinn heimsþekkti sönghópur Swingle Singers mætir með efnisskrá sem spannar allt sviðið. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af. ■ Lau. 17. maí kl. 14. Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri endurflutt. Tryggið ykkur miða!Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is Afmælisrit Samtakanna ’78er komið út og er sérlegaveglegt að þessu sinni endafagna samtökin 30 ára af- mæli í ár. Frosti Jónsson er formaður Sam- takanna ’78: „Í þessu riti reynum við að gera sögu samkynhneigðra á Ís- landi góð skil í máli og myndum. Sag- an er sögð frá ýmsum sjónarhornum og meðal annars sagðar sögur sem aldrei hafa heyrst áður. Þetta eru sögur af venjulegum Íslendingum sem upplifðu aðra tíma en við lifum núna,“ segir Frosti. Ritinu ritstýrði Þóra Kristín Ás- geirsdóttir blaðamaður og kom fjöldi fólks að útgáfunni, bæði með skrifum og frásögnum sínum. „Meðal efnis í blaðinu má nefna ávarp Jóhönnu Sig- urðardóttur félags- og trygginga- málaráðherra til samtakanna í tilefni afmælisins. Þá er í afmælisritinu að finna mjög athyglisvert viðtal við Sjöfn Helgadóttur sem stundum er kölluð elsta lesbía landsins. Hún segir mjög merkilega reynslusögu sína um upplifun sína sem lesbía í því lokaða samfélagi sem eitt sinn var,“ segir Frosti. „Þá er í ritinu mjög skemmti- leg grein eftir Hilmar Magnússon um hinsegin samfélagið sem blómstraði á stríðsárunum. Ekki hefur mikið verið fjallað um þátt hinsegin fólks í þeirri sögu en mikið var að gerast undir yf- irborðinu og eru í greininni sagðar ýmsar athyglisverðar sögur af sam- félagi á árunum milli 1940 og 1950.“ Blaðið segir Frosti að eigi erindi til allra, jafnt hinsegin fólks sem ann- arra: „Sú saga sem er sögð í afmæl- isritinu er mikilvægur hluti af sögu landsins og nauðsynlegt að hún sé sögð,“ segir hann. „Barátta samkyn- hneigðra hefur tekið á sig ýmsar myndir á þessum tíma. Saga samkyn- hneigðra var lengi saga þagnarinnar en því fylgdu auðvitað miklar breyt- ingar og persónulegar fórnir þegar hommar og lesbíur rufu þessa þögn og brutust fram í dagsljósið. Margir þeirra sem sköpuðu þessa sögu þurftu mikinn kjark og dugnað til að breyta samfélaginu og mikilvægt að við gleymum ekki framlagi þeirra og hvaðan þau réttindi koma sem við njótum í dag.“ Afmælisritinu verður dreift til fé- lagsmanna Samtakanna ’78, í skóla, á opinberar stofnanir, bókasöfn og víð- ar. Þá má nálgast ókeypis eintak af ritinu á skrifstofu Samtakanna ’78 á Laugavegi 3, 4. hæð. Heimasíða Samtakanna ’78 er á slóðinni www.samtokin78.is og má þar finna nánari upplýsingar um starfsemi félagsins. Samfélag | Sögu samkynhneigðra gerð skil í riti Samtakanna ’78 Sögur af venjulegu fólki  Frosti Jónsson fæddist árið 1972 og ólst upp á Kirkjubæj- arklaustri. Hann lauk BA-prófi í sálfræði frá HÍ 1998 og meist- araprófi í hag- nýtum hagvís- indum frá Háskólanum á Bifröst 2005. Frosti hefur starfað að mark- aðsmálum um langt skeið og sem ráðgjafi hjá Birtingahúsinu frá 2005. Hann hefur verið formaður Samtakanna ’78 frá því í mars 2007. Kirkjustarf Áskirkja | Opið hús kl. 10-14. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir alþing- ismaður ræðir um tryggingamál kl. 11, bænastund í umsjá sóknarprests kl. 12, eftir bænastundina er borinn fram léttur hádegisverður. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjón- usta kl. 17.30. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11. Kirkjustarf aldraðra kl. 12. Léttur málsverður. Margrét Loftsdóttir sér um helgistund. Hildur Hálfdánardóttir kynnir starf Soroptimista og greinir frá tilurð Sunnuhlíðar. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9.-10. bekk kl. 19.30-21.30. www.digraneskirkja.is Fríkirkjan Kefas | Almenn bæna- stund kl. 20.30. Hægt er að senda inn bænarefni á kefas@kefas.is. Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spilað og spjallað. Kaffi og eitthvað með því. TTT fyrir 10-12 ára kl. 16-17 í Engjaskóla og kl. 17-18 í Borgaskóla. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Stutt helgistund með altarisgöngu og bæn fyrir bænaefnum. Að helgistund lokinni gefst kostur á léttum máls- verði á vægu verði. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta kl. 9.15-10.30 í umsjá sr. Sig- urjóns Árna Eyjólfssonar héraðs- prests. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega. Skráningu lokið í Akureyr- arferð 14.-16. maí. Biðlisti. Vinsamlega látið strax vita um forföll. Fundur kl. 14 föstudaginn 2. maí. Gengið frá end- anlegri dagskrá og farareyrir greidd- ur. Upplýsingar í síma 568–3132. KFUM og KFUK á Íslandi | Holtavegi 28. Afmælisfundur KFUK kl. 20. Sig- rún Jóhannsdóttir flytur eigin ljóð. Tónlist í umsjón Svanhvítar Hall- grímsdóttur. Nemendur frá tónlistar- skóla Hörpunnar koma í heimsókn. Sr. Sigurður Jónsson flytur hugleiðingu. Kaffi eftir fundinn. Allar konur eru vel- komnar. Langholtskirkja | Opið hús fyrir for- eldra ungra barna og verðandi mæð- ur kl. 10-12. Spjall og hressing. Stund- um koma góðir gestir í heimsókn með fræðslu. Umsjón hefur Lóa Maja Stef- ánsdóttir, móðir og sjúkraliði. Laugarneskirkja | Morgunbæn í kirkj- unni kl. 8. T.T.T. kl. 16, hópurinn Kvöld- söngur með Þorvaldi Halldórssyni og Gunnari Gunnarssyni kl. 20. Sókn- arprestur flytur Guðs orð og bæn. Sr. Bjarni býður upp á trúfræðslu í safn- aðarheimilinu á sama tíma og tólf spora hópar ganga til sinna verka kl. 20.30. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrð- arstund kl. 12, tónlist leikin og ritning- artextar lestnir, súpa og brauð kl. 12.30, opið hús kl. 13-16, vist, brids og púttgræjur á staðnum, kaffi. Akstur fyrir þá sem vilja, upplsími 895-0169. Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa- vinna, smíði/útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, botsía kl. 9.45. Uppl. í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43 | Barnakór Háteigs- kirkju syngur vor- og sumarlög fyrir kaffigesti kl. 14.45. Slökunarnudd (s. 535-2760), hárgreiðsla, böðun, al- menn handavinna, vefnaður, morg- unkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádeg- isverður, línudans, kaffi. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand- mennt opin kl. 9-16, leiðb/Halldóra kl. 9-12, framsögn kl. 14, leiðb.Guðný, fé- lagsvist kl. 14. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Ferð um Vatnsleysuströnd - Voga - Njarðvíkurnar - Keflavík- urflugvöll - Keflavík - Garðskaga - Sandgerði - Hafnir - Reykjanesvita - og Grindavík verður farin föstudaginn 2. maí. Brottför frá Gjábakka kl. 9.45 og Gullsmára kl. 10. Kvöldmatur í Grindavík. Skráningarlistar í fé- lagsmiðstöðvunum. Félag eldri borgara, Reykjavík | Stangarhyl 4. Skák kl. 13, félagsvist kl. 20. Félag kennara á eftirlaunum | Tölvu- starf í Ármúlaskóla frá kl. 15.15. Engar mætingarkvaðir. Félagsheimilið Gjábakki | Almenn leikfimi, gler- og postulínsmálun og jóga fyrir hádegi, handavinnustofan opin, leiðbeinandi verður til kl. 17, ró- leg leikfimi kl. 13 og alkort kl. 13.30, kaffi til kl. 16. Skila þarf munum á vor- sýninguna í dag og á morgun til Þór- hildar og Kristínar. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn- aður kl. 9, jóga, myndlhópur, ganga kl. 9.15, leikfimi kl. 11 og hádegisverður. Bútasaumur kl. 13, jóga kl. 18.15 og handavinnukvöld kl. 20. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Línudans kl.12, spilað í Kirkjuhvoli kl. 13, tréskurður/trésmíði kl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14. Tekið á móti mun- um á vorsýningu í Jónshúsi kl. 10-16, skráning í Suðurnesjaferð e.b. á sama stað. Rúta frá Hleinum kl. 12.30 og Jónshúsi kl. 12.45 Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustof- ur opnar kl. 9-16.30, m.a. glerskurður og perlusaumur. Létt ganga um ná- grennið kl. 10.30. Postulínsnámskeið kl. 13. Lagt af stað kl. 13.15 á kynning- arfund um viðhorf aldraðra í Ráðhús- inu, boðið upp á kaffiveitingar, allir velkomnir. s. 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Frjáls spila- mennska kl. 13, kaffiveitingar kl. 15. Hraunbær 105 | Handavinna, gler- skurður og hjúkrunarfræðingur kl. 9, botsía, kl. 10, leikfimi kl. 11, hádeg- ismatur, Bónusbíllinn kl. 12.15, þurr- burstun á keramik kl. 13, kaffi. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, gler- skurður kl. 10, leikfimi kl. 11.30, gler- skurður, brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-13 hjá Sigrúnu. Jóga kl. 9-11, Björg F. Námskeið í myndlist kl. 13.30-16.30. Opinn kynningarfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur kl. 14, ferð frá Hvassaleiti kl. 13.15. Böðun fyrir hádegi. Hár- snyrting. Íþróttafélagið Glóð | „Afró“ dansar í Kópavogsskóla kl. 14.20-15.20. Uppl. í síma 564-1490 og 554-5330. Korpúlfar, Grafarvogi | Opinn kynn- ingarfundur í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag, þriðjudag, kl. 14 um hag og við- horf aldraðra. Boðið upp á léttar kaffi- veitingar. Á morgun, miðvikudag, er félagsfundur Korpúlfa á Korpúlfs- stöðum kl. 13.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morg- unkaffi – vísnaklúbbur kl. 9, botsía, kvennahópur kl. 10.15, handverksstofa opin kl. 11, „opið hús“ spilað á spil – vist/brids, kaffiveitingar kl. 14.30, Guðrún D. Ásmundardóttir flytur fræðsluerindi um byltuvarnir og hjálp- artæki í íþróttasalnum kl. 15. Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin leiðb. Daníel kl. 9-16, vinnustofa í handmennt opin, leiðb. Halldóra kl. 13- 16. Myndlistarnámskeið leiðb. Hafdís kl. 9-12. Þrykk og postulín leiðb. Haf- dís kl. 13-16, leikfimi leiðb. Janick kl. 13. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | Hátúni 12. Uno spil og bingó kl. 19.30 í félagsheim- ilinu. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta- aðgerðir opnar kl. 9-16. Myndmennt kl. 10.15, enska kl. 11.45, hádeg- isverður, leshópur kl. 13, spurt og spjallað / myndbandasýning og búta- saumur kl. 13-16, spilað kl. 14.30, kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinnustofa, morgunstund leikfimi, glervinnsla, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofa opnar allan dag- inn, upplestur kl. 12.30, félagsvist kl. 14. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10. Bónusbíllinn kl. 12. Salurinn opinn og frjáls spil kl. 13. Kaffiveitingar kl. 15. Bókabíllinn kl. 16.45. Morgunblaðið/Jim Smart Breiðholtskirkja.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.