Morgunblaðið - 29.04.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 29.04.2008, Síða 44
Íslendingar skjóta hluti niður og veiða þá svo aftur upp þegar útlönd taka við sér … 47 » reykjavíkreykjavík Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „ÉG var á kvikmyndahátíð í Kristi- anssand í Noregi, þar var Dugg- holufólkið, myndin sem ég leik eitt af aðalhlutverkunum í, að fá að- alverðlaunin fyrir tveimur dögum. Ég var þar úti að fylgja myndinni,“ segir Árni Beinteinn Árnason, leikstjóri og leikari með meiru. Hann frumsýnir fyrstu „alvöru“ myndina sína, eins og hann orðar það, stuttmyndina Auga fyrir auga, í Háskólabíói fimmtudag- inn nk. kl. 15. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Auga fyrir auga hét áður Flagð undir fögru skinni en Árni ákvað að breyta nafninu og segir nýja nafnið eiga miklu betur við. – Þetta er spennumynd? „Já, þetta er spennumynd, það má líklega segja það,“ svarar Árni. Þó sé myndin fyrir alla fjölskylduna. Í myndinni segir af vandræðaung- lingnum Gumma sem strýkur af upp- tökuheimili. Sindri, skólafélagi Gumma, veit að hann á ekki von á góðu. Það voru nefnilega Sindri og Ólöf, fyrrverandi kærasta Gumma, sem sögðu til hans á sínum tíma, að hann væri í slagtogi við eiturlyfjasala. Gummi svífst einskis til að hefna sín og fær til liðs við sig alræmdan glæpamann. Saman leggja þeir á ráð- in með lögguna á hælunum. Auga fyrir auga er sjálfstætt fram- hald stuttmyndarinnar Ekki er allt sem sýnist sem hlaut áhorfendaverð- launin á Stuttmyndadögum árið 2007. – Hvernig tókst þér að sannfæra fullorðna fólkið um að vinna fyrir 12 ára strák? „Ég er bara góður í því að sann- færa og heilla fólk held ég, ég held að það sé málið,“ segir Árni. „Ég hef verið að leika undanfarin þrjú ár og þekkti þ.a.l. margt fólk, hringdi í þá bestu sem ég þekkti og fékk færasta fólkið til liðs við mig. Það var ekki erf- itt.“ – Ertu með umboðsmann? „Mamma mín hefur nú hingað til kallast minn umboðsmaður,“ segir Árni og tekur undir að betri umboðs- mann geti menn varla fengið, í það minnsta sé öruggt að umboðsmað- urinn hafi trú á skjólstæðingnum. Árni segist vera með átta og jafnvel tíu myndir í bígerð og hundruð hand- rita í höfðinu. Hann ætli að hefja tök- ur á nýrri mynd í sumar. – Hvaða mynd er það? „Það má ekki segja frá því á þessu stigi málsins,“ svarar Árni eins og hann hafi verið í bransanum áratug- um saman. Það er ljóst að Árni er metnaðarfullur, ungur maður. Góður í að sannfæra fólk Leikur tvær persónur Veggspjald Auga fyrir auga sýnir Árna í hlut- verki Gumma annars vegar og Sindra hins vegar. Árni Beinteinn Árnason, leikari og leikstjóri, frumsýnir nýja stuttmynd 1. maí og hefur tökur á annarri í sumar Stiklur og kitlur úr Auga fyrir auga má sjá á YouTube: youtube.com/beinteinn.  Reykjavík – Belfast nefnist glænýtt lag með ærslabelgjunum í XXX Rottweiler- hundum. Mynd- bandið er að mestu byggt á fréttamyndum af mótmælunum við Norðlingaholtið og fór eins og eldur um sinu á net- inu í gær. Ef marka má at- hugasemdakerfi Youtube er greini- legt að lagið vekur sterk viðbrögð og í það minnsta verður að hrósa hundunum fyrir gott viðbragð. Ádeila þeirra Rottweilerhunda beinist eins og oft áður að yfirvöld- um og að hinu margumtalaða en loðna hugtaki, „kerfinu“ og öskur lögregluþjónanna með gasið spilar þar stóra rullu. Öruggt má telja að eitthvað muni teygjast úr 15 mín- útna frægð þeirra félaga. Nýtt lag með XXX Rottweilerhundum  Kvikmynd Ara Kristinssonar, Duggholufólkið, vann til verðlauna nú í annað sinn á nokkrum vikum þegar hún fékk aðalverðlaunin á Alþjóðlegu barnamyndahátíðinni í Kristiansand sem lauk um síðustu helgi. Duggholufólkið vann aðal- verðlaunin á Sprockets-hátíðinni í Toronto fyrir stuttu. Myndin fékk að þessu sinni CI- FEJ-verðlaunin, sem eru aðal- verðlaun Kristiansandhátíðarinnar, en það er alþjóðleg dómnefnd sem velur verðlaunamyndina. Alls voru sýndar ríflega 60 myndir á barna- myndahátíðinni í Kristsansand. Ari rakar þeim inn Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÓLAFUR Arnalds er einn þeirra tónlistar- manna sem standa á mörkum tveggja heima, popps og klassíkur og neita að taka afstöðu með einum þeirra heldur einbeita sér frekar að hvers kyns samkrulli og að afmá mörk og mæri. Þannig keyrir Ólafur nýklassíska tónlist sína í gegnum myspace-setur sitt og heimasíðu (www.olafurarnalds.com) þar sem m.a. er hægt að kaupa boli með nafni tónlistarmannsins eins og tíðkast hjá fullveðja rokksveitum. Hann og strengjakvartettinn hans skottast svo í svitakófi á milli tónleikastaða í sendibíl og til að pústa á milli ægifallegra, minimalískra tónverka lemur Ólafur húðir með mulningsþéttum öfgarokks- veitum. Það er eins og maðurinn sagði, tónlist er jú alltaf bara tónlist … Útgáfutónleikar í Iðnó Síðasta ár var annasamt hjá Ólafi og hann endasentist um allar jarðir til að kynna fyrstu breiðskífu sína, Eulogy for Evolution. Þetta ár verður með svipuðu sniði en meira verður að gera ef eitthvað er. En fyrst eru það útgáfu- tónleikar vegna nýrrar stuttskífu, Variations of Static, sem fram fara í Iðnó 18. maí. „Það er meira um raftónlist í þetta skiptið,“ segir Ólafur, spurður um þróun á milli platna. „Platan er líka minimalískari, það er minna um epík og drama. Maður er hættur að vera ung- lingur (hlær).“ Platan kemur svo út hjá tveimur merkjum ytra, Progression og Erased Tapes Records. Eftir útgáfutónleikana er það svo langur túr um Evrópu, síðan er farið til Bandaríkjanna, svo aftur til Evrópu, þarnæst til Asíu (Kína, Japan, Taívan og Suður-Kóreu) og svo enn aft- ur til Evrópu. Ólafur verður því á flandri nær stanslaust á þessu ári og linnir utanferðum ekki fyrr en í desember. Er nema von að blaðamað- ur spyrji: „Hvaða bókara ertu eiginlega með?“ „Ha, ha hann heitir Ralph og vinnur fyrir bókunarfyrirtæki sem kallast 2fortheroad. Hann er frábær og talað er um hann sem einn þann besta í Evrópu,“ svarar Ólafur Sem víðast Ólafur segist fjármagna ferðalögin með sjálf- um tónleikunum. Lítið svigrúm virðist vera til sköpunar á tónlist á meðan á þessu stendur en Ólafur segist ætla að nota daginn til þess og auk þess sé hann að semja á fullu núna. „Stefnan er að koma heim í desember og taka upp efni fyrir breiðskífu sem kæmi svo út á næsta ári,“ segir hann að lokum. „Maður stendur auðvitað frammi fyrir miklu ævintýri og ég ætla að passa mig á að njóta þess í botn. Við erum að fara að ferðast til yfir 20 landa og tíminn á meðan fer í að byggja grunn fyrir næstu plötu og næsta ár sem verður vonandi enn annasamara en þetta. Markmiðið er auðvit- að að koma þessari tónlist á framfæri sem víð- ast.“ Á túr út árið  Ólafur Arnalds ferðast til 20 landa með tónlist sína á þessu ári  Ný plata væntanleg 19. maí og tónleikar í Barbican í júní Morgunblaðið/Valdís Thor Alæta Ólafur Arnalds gerir ekki greinarmun á klassískri tónlist og mulningsþéttri harðkjarnatónlist. Leiklistarnámskeið í Iðnó Skemmtileg, lærdómsríkt og ódýrt skyndinámskeið fyrir fólk á öllum aldri þó ekki yngra en 16 ára. Námskeiðið hefst laugardaginn 3. maí. Nemendur fá tilsögn í leikspuna, persónusköpun, raddbeitingu, framsögn, tjáningu og hreyfingum á leiksviði. Möguleiki á að hæfileikafólki verði boðið að koma fram í sýn- ingunum „Light Nights“ í sumar. Nánari uppl. og bókun í síma 551 9181

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.