Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 117. TBL. 96. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
HÁSKÓLI HAFSINS
HANN ER RUNNINN UPP Í BÆJARALANDI EN
HEILLAÐUR AF VESTFIRSKRI NÁTTÚRU >> 17
Engisprettur >> 45
Öll leikhúsin á einum stað
Leikhúsin í landinu
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8-
00
80
NÝJAR OG HANDHÆGARI UMBÚÐIRostur.is
UNNIÐ verður samkvæmt viðbragðsáætlun á Landspítala
vegna uppsagna skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga sem
taka gildi á morgun. Aðeins verður hægt að veita bráðaþjón-
ustu, þar á meðal gera keisaraskurði og skurðaðgerðir vegna
krabbameins. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra
segir að kappkostað verði að halda úti eins góðri þjónustu og
mögulegt er miðað við aðstæður.
Viðbragðsáætlunin byggist á samstarfi við spítala í nágrenni
Reykjavíkur; á Akranesi, Selfossi, í Reykjanesbæ og Hafnar-
firði. Á meðan bráðatilvikum verður sinnt á Landspítala verður
reynt að vísa öðrum verkefnum yfir á hina spítalana eins og
mögulegt er.
Þeim breytingum sem boðaðar voru á vinnuskipulagi hjúkr-
unarfræðinganna segir Guðlaugur Þór að sé ætlað að tryggja
lágmarkshvíldartíma samkvæmt Evróputilskipun, og í breyt-
ingunum felist mjög lítill sparnaður fyrir Landspítala. Vel hafi
gengið að innleiða sams konar breytingar við aðrar deildir.
Vonast ráðherra til að deilan muni leysast og að þeir hjúkr-
unarfræðingar sem sagt hafa upp komi aftur til starfa.
Sinnir bara bráðatilvikum
Ráðherra vonar
að deilan leysist
UPPSAGNIR 96 skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga á
Landspítalanum taka gildi á miðnætti í kvöld. Matthildur Guð-
mannsdóttir og Elín Ýrr Halldórsdóttir voru á vaktinni í gær-
kvöldi en þær verða ekki á vaktinni á morgun, að öllu óbreyttu.
Morgunblaðið/Frikki
Síðustu verkin á deildinni
UPPSAGNIR 96 skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga á
Landspítalanum standa og taka gildi á miðnætti í kvöld. Þeir
réðu ráðum sínum í gær og í yfirlýsingu kemur fram að þeir sjái
sér ekki fært að verða við tilmælum stjórnenda spítalans um að
draga uppsagnir sínar til baka því með því sé aðeins verið að
fresta vandanum. Ekkert hafi komið fram sem bendi til samn-
ingsvilja yfirmanna og lýst er yfir vantrausti á yfirstjórn Land-
spítalans.
Vigdís Árnadóttir skurðhjúkrunarfræðingur segir að hjúkr-
unarfræðingar vildu gjarnan vinna á sínu sérsviði, en starfs-
friður hefði ekki verið góður í mörg ár og ekki væri gaman að
vinna á vinnustað þar sem stanslaust væri verið að rjúfa vinnu-
friðinn. Mikil samstaða væri í hópnum og frestun Landspítalans
á breytingum á vaktafyrirkomulaginu til haust væri aðeins til
þess að rjúfa þessa samstöðu.
Geislafræðingar funduðu í gærkvöldi. Þeir sögðust ætla að
ræða við yfirmenn sína á Landspítalanum árla dags í dag og til-
kynna í kjölfarið hvort þeir stæðu við uppsagnir sínar og gengju
út á miðnætti eða drægju þær til baka. | 4
Hjúkrunarfræð-
ingar fengið nóg
HÓPUR kvenna, sem starfa hjá
Flugfélagi Íslands, hefur fundið upp
á nýstárlegri leið til að safna fé til
styrktar Krabbameinsfélagi Íslands
og ætlar að selja varagljáa frá YSL
undir slagorðinu „Á allra vörum“.
Verður hægt að kaupa varagljá-
ann í flugvélum Icelandair og í frí-
hafnarverslun Flugfélags Íslands í
Reykjavík. Hægt er að velja um tvo
liti, bleikan eða glæran.
Söfnunarátakinu var hleypt af
stokkunum í gær, og á myndinni
bera þær gljáa á varirnar fyrir gott
málefni, Gróa Ásgeirsdóttir sem er
einn af umsjónarmönnum söfnunar-
innar, Vigdís Finnbogadóttir, fyrr-
verandi forseti, og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra. Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Varagljái
fyrir gott
málefni
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA
kynnti í gær frumvarp fyrir ríkis-
stjórn um stofnun nýrrar sjúkra-
tryggingastofnunar.
Að sögn Guðlaugs Þórs Þórðar-
sonar heilbrigðisráðherra er meg-
inávinningurinn af slíkri stofnun fyr-
ir sjúkrahúsin sá að framlög hennar
munu fylgja umfangi starfsemi
þeirra. Einnig er ætlunin að gegnsæi
á starfsemi sjúkrahúsanna aukist,
meiri hvati verði fyrir hendi til auk-
inna afkasta auk þess sem sveigjan-
leiki skapist til að beina starfsemi
sjúkrahúsanna í þann farveg sem
nauðsyn krefur á hverjum tíma.
Markmiðið er, að sögn ráðherra,
að skapa fjármögnunarkerfi sem
stuðli að trausti milli kaupenda og
seljenda heilbrigðisþjónustunnar.
Með því verði til fjölbreytilegra
rekstrarform, fjárveitingar verði
markvissari og fjármálastjórn heil-
brigðisstofnana bætt.
Nýja stofnunin mun heyra undir
heilbrigðisráðuneytið og á að taka til
starfa 1. september næstkomandi.
Ráðherrann greindi frá áformunum
á ársfundi Landspítalans í gær. | 8
Fjárframlög munu fylgja
umsvifum sjúkrahúsanna
Í HNOTSKURN
»Tekið er á móti 255 sjúkling-um á venjulegum degi á
slysa- og bráðamóttöku Land-
spítalans.
»55 sjúklingar fara í skurð-aðgerð á venjulegum degi og
tólf eru á gjörgæslu.
VERÐ hækkaði almennt mest í lág-
vöruverðsverslunum skv. nýjum
mælingum verðlagseftirlits ASÍ á
vörukörfu. Mældar voru breytingar
á verðlagi milli annarrar og þriðju
viku aprílmánaðar.
Verð lækkaði milli vikna í aðeins
einni verslun, Samkaupum-Strax, en
lækkunin þar nam 1,3%. Af lágvöru-
verðsverslunum hækkaði verð mest í
Kaskó, um 5,7%, en minnst í Krón-
unni, um 0,7%.
Vörutegundir hækkuðu mismikið
á milli verslana. Brauð og korn var
meðal þess sem hækkaði verulega,
um 7% í Nettó og 4% í Hagkaup og
Nóatúni. | 11
Hækkaði
mest í lág-
vöruverðs-
verslunum