Morgunblaðið - 30.04.2008, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞAÐ eru blikur á lofti í mann-
virkjageiranum. Menn treysta sér
þó ekki til að spá um þróunina
næstu vikur og
mánuði, því um
er að ræða sam-
spil svo margra
ólíkra þátta,“
segir Árni Jó-
hannsson, for-
stöðumaður
mannvirkja-
greina hjá Sam-
tökum iðnaðarins
(SÍ).
„Þetta er mjög mannaflsfrekur
iðnaður og ef það hægir á þá snert-
ir það atvinnuhagsmuni mjög
margra. Þannig að vöxtur og við-
gangur mannvirkjageirans er ekki
lengur einkamál þeirra sem starfa
þar,“ segir Árni og bendir á að árið
2007 hafi 17 þúsund manns starfað
í mannvirkjageiranum. „Sem betur
fer hafa stjórnvöld brugðist við og
veitt auknu fjármagni t.d. til vega-
gerðar sem vegur upp á móti sam-
drætti í byggingabransanum.“
Að sögn Árna má skipta markaði
mannvirkjagerðar upp í minni
markaði, þ.e. íbúðabyggingar, at-
vinnuhúsnæði og innviði á borð við
vegagerð, flugvallargerð og stór-
iðjuframkvæmdir,“ segir Árni.
Bendir hann á að sum fyrirtæki í
geiranum hafi sérhæft sig á einu
sviði meðan önnur vinni á öllum
sviðum. Því sérhæfðari sem fyr-
irtækin á íbúðabyggingamarkaði
séu, þeim mun erfiðara eigi þau
með að bregðast við samdrætti á
sínu sviði. Spurður hversu hátt
hlutfall fyrirtækja í bransanum sé
mjög sérhæft segir Árni þær tölu-
legu upplýsingar ekki liggja fyrir.
Bendir hann jafnframt á að þegar
saman dragist í nýbyggingarfram-
kvæmdum, þá leiti menn annað,
m.a. í að sinna viðhaldi sem menn
geri síður á uppgangstímum.
Öll hráefni hækka í verði
„Það sem er að gerast núna
snertir fyrst og fremst markað
með íbúðabyggingar, sem er kom-
inn í steinastopp og er búinn að
vera stopp síðan í nóvember,“ segir
Árni. Tekur hann fram að erfitt sé
að spá um framhaldið á markaðn-
um þar sem samspil þátta á borð
við aðgengi verktaka að lánsfé til
að fjármagna framkvæmdir sínar,
gengisþróunin, þróun stimpilgjalda
og hugsanlegt afnám þeirra sem og
almenn eftirspurn eftir íbúðarhús-
næði muni hafa mikil áhrif á þróun
mála.
Einnig muni hækkun hráefnis-
kostnaðar hafa talsverð áhrif. „Öll
hráefni til byggingarstarfsemi,
nema timbur, hafa og eru að
hækka á heimsmarkaði. Þannig
hefur verð á olíu, plasti, öllum
lagnaefnum á borð við kopar og
stál verið á fleygiferð í vetur,“ seg-
ir Árni.
Blikur eru á lofti í
mannvirkjageiranum
Sérhæfðari fyrirtækin eiga erfiðara með að bregðast við
Í HNOTSKURN
» Árið 2007 unnu 17.000manns í mannvirkjageir-
anum.
» Markaður með íbúðabygg-ingar er búinn að vera í
„steinastopp“ frá því í nóvember.
» Öll hráefni til bygginga-starfsemi hafa hækkað á
heimsmarkaði.
» Leita í önnur verkefni þegarsamdráttur verður í nýbygg-
ingum, s.s. í viðhaldsverkefni.
Árni Jóhannsson
ÞRJÁTÍU starfsmönnum hjá
steypustöðinni Mest hefur verið
sagt upp störfum. Að sögn Hjalta
Más Bjarnasonar, forstjóra Mest, er
hér um neyðaraðgerð að ræða til
þess að bregðast við ástandi mark-
aðarins og erfiðum horfum fram-
undan. Segir hann uppsagnirnar
þannig gerðar í hagræðingarskyni.
Bendir hann á að það sé ekkert
launungarmál að skórinn kreppi að
fólki í byggingaiðnaðnum og tekur
fram að hjá Mest verði menn varir
við að erfiðlega gangi að fá greitt
frá viðskiptavinum fyrirtækisins.
Að sögn Hjalta hafa um 220
manns starfað hjá fyrirtækinu fram
að þessu. Spurður hvort von sé á
fleiri uppsögnum svarar Hjalti því
neitandi og segist vonast til þess að
þessar uppsagnir dugi
Ekki borist fleiri hópuppsagnir
Hjá Vinnumálastofnun fengust
þær upplýsingar að tilkynningin
frá Mest um hópuppsögn væri sú
eina sem borist hefði stofnuninni í
aprílmánuði sem senn er á enda.
Morgunblaðið/Júlíus
Erfiðar horfur Viðvarandi samdráttur í byggingabransanum leiðir nú til
uppsagna starfsmanna. Margir telja erfitt að spá um framhaldið.
30 starfsmönnum
sagt upp hjá Mest
FORSÆTIS-
RÁÐHERRA Ís-
lands, Geir H.
Haarde, hefur
verið útnefndur
„grænasti stjórn-
málaleiðtoginn“ af
tímaritinu News-
week.
Á vefsíðu tíma-
ritsins er nýting
Íslendinga á orkuauðlindum lands-
ins lofuð í hástert og talin öðrum
þjóðum til eftirbreytni. Newsweek
segir frá því að hamingja og velferð
Íslendinga sé fyrst og fremst til
komin af legu landsins sem sé
óþrjótandi uppspretta náttúrulegrar
orku. Einarða stjórn hafi þó þurft til
að minnka jarðefnaeldsneytisnotkun
Íslendinga.
Í viðtali við tímaritið lýsir Geir
þróun orkumála hérlendis og for-
ystuhlutverki Íslendinga hvað jarð-
varmatækni varðar.
Geir er
grænastur
leiðtoga
Geir H. Haarde
KARLMAÐUR á áttræðisaldri hef-
ur verið kærður til lögreglu fyrir
beita stúlku kynferðislegu ofbeldi
um langa hríð, eða frá því hún var
tólf ára til tvítugs. Konan er 21 árs í
dag. Björgvin Björgvinsson, yfir-
maður kynferðisbrotadeildar lög-
reglunnar, segir rannsókn miða
ágætlega en vildi lítið tjá sig efnis-
lega um málið. Maðurinn er ekki í
haldi lögreglu.
Skemmst er að minnast þess að
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í
lok mars sl. mann á áttræðisaldri til
tveggja ára fangelsisvistar fyrir kyn-
ferðisbrot gegn tveimur stúlkum
sem voru þá tíu og tólf ára.
Þá rennur gæsluvarðhald yfir
manni sem grunaður er um gróf kyn-
ferðisbrot gegn tveimur dætrum sín-
um, sem eru átta og þrettán ára, út í
dag. Tekin verður ákvörðun um
framlengingu gæsluvarðhalds yfir
honum í dag.
Brotin stóðu
yfir í átta ár
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
og Ylfu Kristínu Árnadóttur
LÖGREGLAN handtók fjóra menn í
um tvítugt í fyrrinótt grunaða um
mikla sinubruna á svæði Skógrækt-
arfélags Hafnarfjarðar við Hvaleyr-
arvatn þar sem mörg þúsund tré
skemmdust ásamt gróðri. Hinir
handteknu játuðu við yfirheyrslur að
hafa kveikt í sinunni en ekki hafa
fengist skýringar á því af hverju þeir
gerðu það. Þeir voru enn í haldi lög-
reglu í gærkvöld og ekki ljóst hvort
þeim yrði sleppt að loknum yfir-
heyrslum eða farið fram á gæslu-
varðhald. Hinir handteknu hafa allir
komið við sögu lögreglunnar áður
vegna óknytta.
Mennirnir eru fyrst og fremst
handteknir fyrir eignaspjöll en sam-
kvæmt hegningarlögum varða stór-
felld eignaspjöll allt að 6 ára fangelsi.
Búast má við að um fimm þúsund
tré, mörg allt að mannhæðarhá, hafi
eyðilagst í sinueldinum. Flest trén
voru gróðursett fyrir um fimmtán
árum að sögn Árna Þórólfssonar,
starfsmanns Skógræktarfélags
Hafnarfjarðar. Tjónið er mikið að
hans sögn, ekki síst vegna þeirrar
miklu vinnu sem lá í uppgræðslu á
svæðinu og gróðursetningu.
Árni segir að mikill hiti hafi mynd-
ast í eldinum, og kvoðan í trjánum
soðið, með þeim afleiðingum að trén
drepist. Vera kunni að þau laufgist í
sumar, en ólíklegt að þau lifi af
næsta vetur.
Á annað hundrað sinuútköll
Það sem af er þessu ári hafa 60 út-
köll vegna sinuelda borist slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins. Vanalega
þarf slökkviliðið að sinna 60-130 út-
köllum árlega vegna sinubruna. Í
fyrra bárust slökkviliðinu 90 tilkynn-
ingar um sinubruna en árin 2005 og
2006 voru þær um 130. Að sögn Daða
Þorsteinssonar, sviðsstjóra grein-
ingarsviðs Slökkviliðs höfuðborgar-
svæðisins, sinna slökkviliðsmenn
u.þ.b. 300 útköllum á ári vegna elds á
víðavangi, t.d. elds í bifreiðum, gám-
um og sinu, og eru sinubrunar um
þriðjungur þessara útkalla. Alls fer
slökkviliðið í rúm 1.400 útköll á ári og
er eldur á víðavangi stærsti einstaki
flokkurinn.
Daði segir álagið síðustu daga
hafa verið gífurlegt. Nú séu þurrkar
og hlýindi og því góð veðurfarsleg
skilyrði fyrir sinubruna.
„Ástandið batnar ekki fyrr en við
fáum almennilegar rigningar eða nýi
gróðurinn kemst í gegn,“ segir Daði.
Aðspurður segir hann afar mismun-
andi hve langan tíma það getur tekið
að slökkva sinueld. „Það getur verið
mjög mismunandi, allt frá því að
stappa með stígvéli á sinuna upp í þó
nokkuð marga klukkutíma.“
Játuðu íkveikjuna á
skógræktarsvæðinu
Morgunblaðið/Júlíus
Sinubruni Mikið skógræktarstarf eyðilagðist í sinubrunanum í fyrrinótt og er málið í rannsókn lögreglunnar.
Fjórir ungir menn handteknir vegna íkveikju í Hafnarfirði
♦♦♦
NOKKRIR
starfsmenn Sím-
ans fengu upp-
sagnarbréf í gær,
að sögn Lindu
Bjarkar Waage,
forstöðumanns
samskiptasviðs
Skipta og upplýs-
ingafulltrúa Sím-
ans. Hún segir að
í nokkurn tíma hafi ekki verið ráðið í
störf sem hafi losnað og fólk hafi ver-
ið fært til innan fyrirtækisins í hag-
ræðingaskyni.
Um 750 manns starfa hjá Síman-
um. Linda Björk segir að sumum
starfsmönnum hafi verið boðið að
færa sig til innan fyrirtækisins, en
viðbrögð við því boði liggi ekki fyrir.
Linda Björk segir að Síminn hafi,
eins og mörg önnur fyrirtæki, þurft
að draga saman seglin á sumum svið-
um vegna ástandsins í þjóðfélaginu
og hagræðing því nauðsynleg.
Síminn til-
kynnir
uppsagnir
Linda Björk Waage
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hef-
ur dæmt systkini í 2 mánaða skil-
orðsbundið fangelsi fyrir ofbeldi
gegn lögregluvarðstjóra við skyldu-
störf í árslok 2006. Ákærðu voru 17
og 23 ára þegar brotið var framið í
stympingum á lögreglustöð í Hafn-
arfirði. Sannað þótti að pilturinn
hefði skallað varðstjórann tvisvar í
andlit og systir hans klórað hann í
andlit og bitið í handlegg. Dómurinn
taldi ósannað að varðstjórinn hefði
beitt fólkið harðræði eins og ákærðu
héldu fram og hefði háttsemi hans
gagnvart þeim ekki gefið þeim tilefni
til að bregðast við eins og þau gerðu.
Bæði voru þau með hreint sakarvott-
orð þegar brotið var framið.
Veittust
að varð-
stjóra
2 mánaða fangelsi
♦♦♦