Morgunblaðið - 30.04.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 11
FRÉTTIR
UPPSKERUHÁTÍÐ vísindafólks
við Landspítalann hefst formlega
kl. 11.30 í dag með opnun vegg-
spjaldasýningar í K-byggingu spít-
alans.Yfir 350 vísindamenn og
samstarfsaðilar þeirra munu
kynna niðurstöður rannsókna við
spítalann.
Á fundi sem hefst í Hringsal kl.
13 verður m.a. valinn heiðursvís-
indamaður ársins og erlendur fyr-
irlesari, dr. Robin Murray, flytur
erindi um áhrif umhverfis á orsak-
ir geðrofs – einkum af völdum
kannabisefna. Dr. Robin Murray
er talinn einn helsti sérfræðingur
heims á sínu sviði. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra ávarpar samkom-
una, en Landspítalinn er ein
stærsta mennta- og vísindastofnun
landsins.
Á veggspjöldum verður að finna
niðurstöður margháttaðra rann-
sókna, t.a.m. um tengsl tölvuleikja
við ofvirkni og athyglisbrest, áhrif
náttúrulyfs á lungnaþekjuvef, lífs-
gæði krabbameinssjúklinga og líð-
an heilbrigðisstarfsfólks.
Vísindahátíðin á Landspítala í
dag er að venju opin öllum al-
menningi.
Morgunblaðið/Þorkell
Landspítali Hinn árlegi vísindadagur LSH fer fram á spítalanum í dag.
Uppskeruhátíð vísindafólks
við Landspítala haldin í dag
FJÓRÐUNGUR þeirra GSM-senda
sem ráðgert er að tæknimenn
Vodafone setji upp á árinu er nú
þegar kominn í notkun. Alls hafa 35
nýir GSM-sendar verið gangsettir
um allt land og tryggt GSM-
samband á fjölmörgum svæðum
sem ekki höfðu notið slíkrar þjón-
ustu fyrr. 11 nýir sendar voru
gangsettir í byrjun vikunnar en
aldrei hafa fleiri sendar verið gang-
settir í sömu viku, segir í frétt frá
fyrirtækinu.
Flestir eru þessir sendar á Vest-
fjörðum t.d. í Súgandafirði, í Bol-
ungarvík og Ísafirði en einnig voru
nýir sendar gangsettir á Norður-
landi t.d. í Siglufirði, Ólafsfirði og á
Skollahnjúk.
Vodafone hyggst halda uppbygg-
ingunni áfram út árið og á næstu
vikum munu íbúar á völdum svæð-
um finna áþreifanlega fyrir breyt-
ingu. Ofangreind uppbygging hef-
ur nú þegar leitt til þess að við-
skiptavinir Vodafone geta notað
GSM-símann víðar en áður.
Eyjar Unnið að uppsetningu.
GSM-sendar
settir upp
SJÖFN Þórðardóttir verkefnastjóri hefur tekið við for-
mennsku Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra. Sjöfn
tók við af Maríu Kristínu Gylfadóttur, sem gegnt hefur
formennsku undanfarin fjögur ár.
Sjöfn er fædd 9. júlí 1972. Hún hefur mikla reynslu af
uppeldis-, félags- og nefndarstörfum og hefur tekið virk-
an þátt í ýmiss konar foreldrastarfi hjá börnum sínum í
leik- og grunnskóla, æskulýðs- og íþróttastarfi frá árinu
1994.
Hún var formaður foreldrafélags Mýrarhúsaskóla
2004 til 2006, meðstjórnandi í foreldrafélagi Grunnskóla
Seltjarnarness 2006-2007 og stjórnarmaður landssamtakanna Heimilis og
skóla frá árinu 2006.
Sjöfn er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og stundar nú nám
við Kennaraháskóla Íslands. Sjöfn er gift Lárusi B. Lárussyni flugstjóra og
eiga þau saman tvö börn, Aron Frey, 16 ára, og Elínu Helgu, 10 ára.
Formaður Heimilis og skóla
Sjöfn Þórðardóttir
VIKUNA 2.-9. maí fer fram árleg
hreinsunarvika á Seltjarnarnesi
undir slagorðunum: Koma svo –
Allir með!
Þessa viku eru bæjarbúar hvattir
til að láta hendur standa fram úr
ermum og huga að sínu nánasta
umhverfi og opnum svæðum.
Starfsmenn áhaldahúss Seltjarn-
arness munu í hreinsunarvikunni
fjarlægja garðaúrgang og af-
klippur í knippum sem settar hafa
verið við lóðamörk. Einungis verð-
ur fjarlægt það sem áður er upp-
talið en ekki almennt rusl og úr sér
gengin tæki. Þeim sem þurfa að
farga slíku er bent á næstu mót-
tökustöð Sorpu.
Í vikunni verður svo borinn í hús
umhverfisvænn sumarglaðningur
frá umhverfisnefnd Seltjarnarness.
Hreinsað á Nesinu
SIGRÚN Sigurðardóttir menning-
arfræðingur flytur fyrirlestur á
morgun, miðvikudag, í Kennarahá-
skóla Íslands í salnum Bratta milli
kl. 16-17. Fyrirlesturinn ber yf-
irskriftina „Helförin: Listræn úr-
vinnsla og söguskilningur.“
Í fyrirlestrinum verður fjallað
um þau vandamál sem sagnfræð-
ingar og höfundar kennsluefnis
standa frammi fyrir þegar kemur
að umfjöllun um síðari heimstyrj-
öldina. Sérstaklega verður fjallað
um helförina og úrvinnslu á henni
eins og hún birtist í ritum rithöf-
unda, kvikmyndagerðarmanna,
listamanna og arkitekta sem vinna
með reynslu fólks af þessum at-
burðum í verkum sínum. Rætt verð-
ur um hvernig listaverk sem byggj-
ast á úrvinnslu helfararinnar geta
nýst við kennslu.
Helförin rædd
STUTT
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ALLAR matvöruverslanakeðjur að
einni undanskilinni hækkuðu verð á
vörukörfu ASÍ á milli annarrar og
þriðju viku aprílmánaðar. Verðlags-
eftirlit ASÍ mælir breytingar á
verði vörukörfu sem endurspeglað
getur almenn meðalinnkaup heim-
ilis. Í nýjustu mælingunum kemur
fram að verðhækkanir voru almennt
mestar í lágvöruverðsverslunum.
Aðeins í klukkubúðinni Samkaup-
um-Strax lækkaði verðið milli vikna
um 1,3%.
Karfan hækkaði mest í Kaskó
Í lágvöruverðsverslunum hækk-
aði vörukarfa ASÍ um 0,7% til 5,7%
á milli vikna. Karfan hækkaði
minnst hjá Krónunni, um 0,7%, og
mest í Kaskó, um 5,7%. Í almennum
matvöruverslunum hækkaði vöru-
karfan mest í Nóatúni, um 1,7%, og
minnst í Samkaupum-Úrval um
0,5%. Í klukkubúðunum hækkaði
verð á vörukörfu ASÍ mest í 10-11
um 1,6% en lækkaði í Samkaupum-
Strax um 1,3%.
Þegar einstakir vöruflokkar í
körfunni eru skoðaðir kemur í ljós
að brauð og kornvörur hækkuðu
mikið milli vikna. Þær hækkuðu
t.a.m. um ríflega 4%, bæði í Hag-
kaupum og Nóatúni.
Almennt hækkuðu brauð og korn-
vörur, kjötvörur og mjólkurvörur,
ostar og egg mest í lágvöruverðs-
verslunum. Mest hækkuðu brauð og
kornvörur í Nettó, eða um 7% milli
vikna.
Flokkurinn mjólkurvörur, ostar
og egg hækkaði mikið í öllum versl-
unum á milli vikna, eða á bilinu
3,7%-5,1%.
Í klukkubúðunum breyttist verð á
einstaka vöruflokkum með mjög
misjöfnum hætti milli verslana.
Þannig hækkuðu kjötvörur um 5,1%
í 10-11 en lækkuðu um 8,1% í Sam-
kaupum-Strax. Brauð og kornvörur
hækkuðu um 4,6% í 11-11 en verð í
Samkaupum-Strax stóð í stað.
Allar keðjur utan
ein hækka verð
Verð hækkar mest í lágvöruverðsverslunum
Brauð og kornvörur meðal þess sem hækkar mikið
!!"
Í HNOTSKURN
»Vörukarfa ASÍ inniheldurallar almennar mat- og
drykkjarvörur, t.d. brauðmeti,
morgunkorn, pasta, kjöt, fisk,
grænmeti, ávexti, kaffi og fleira.
»ASÍ vekur athygli á því aðekki er um beinan verðsam-
anburð að ræða, heldur eru birt-
ar upplýsingar um verðbreyt-
ingar í verslunarkeðjunum á
milli vikna.
»Verðlagseftirlit ASÍ hefur aðbeiðni viðskiptaráðuneytisins
hafið sérstakt átak í eftirliti með
breytingum á verðlagi í mat-
vöruverslunum.
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
HUNDARÆKTARFÉLAG Íslands
(HRFÍ) hefur fengið skráð vöru-
merkið HRFÍ eða H.R.F.Í. hjá
Einkaleyfastofunni en það var áður
skráð á Hundaræktunarfélagið Ís-
hunda.
Í október sl. skráðu Íshundar
skammstöfunina H.R.F.Í. sem vöru-
merki hjá Einkaleyfastofunni en
HRFÍ varð ekki kunnugt um það
fyrr en í byrjun árs þegar Íshundar
tilkynntu um það á heimasíðu sinni.
Þá var tveggja mánaða andmæla-
frestur liðinn. Í kjölfarið hafði félag-
ið samband við Lögfræðistofu
Reykjavíkur sem óskaði eftir því við
Einkaleyfastofuna að skráning vöru-
merkisins yrði afmáð úr vöru-
merkjaskrá. Þegar því var hafnað
var farið fram á lögbann við notkun
Íshunda á vörumerkinu.
Gæti valdið óbætanlegu tjóni
Rök HRFÍ voru þau að skamm-
stöfunin hefði verið notuð alla tíð, frá
stofnun félagsins árið 1969. Hún
hefði verið notuð í tengslum við flest
það sem tengdist félaginu, t.d. ætt-
bókarskírteini, hundasýningar, nám-
skeið og fréttabréf auk þess sem
félagsmenn hefðu tekið þátt í við-
burðum erlendis undir merki HRFÍ.
Þá hefði félagið átt lénin hrfi.is og
hrfí.is í tæp 10 ár. Í lögbannsbeiðn-
inni sagði einnig að HRFÍ hefði lagt
„gífurlegar fjárhæðir í að skapa sér
sérstöðu undir skammstöfuninni
HRFÍ og myndi notkun gerðarþola
[Íshunda] á skammstöfuninni skapa
mjög mikla ruglingshættu og hafa í
för með sér óbætanlegt tjón“.
Röksemdir Íshunda voru á þá leið
að vörumerkið H.R.F.Í. (með punkt-
um milli stafa) fæli í sér beina skír-
skotun í nafn félagsins. Hefði HRFÍ
öðlast rétt á vörumerkinu HRFÍ
með langvinnri notkun á því þá
þyrfti skráning Íshunda á vöru-
merkinu H.R.F.Í. ekki að brjóta á
þeim rétti. Þá hefði HRFÍ ekki and-
mælt skráningunni innan tilskilins
frests.
Sýslumaðurinn í Reykjavík sam-
þykkti lögbannið í byrjun marsmán-
aðar og sagði það vera ljóst, að með
notkun skammstöfunarinnar fyrir
starfsemi sína í tæplega 40 ár hefði
HRFÍ öðlast vörumerkjarétt yfir
henni.
Viðurkenndu rétt HRFÍ
Þremur dögum síðar gerðu HRFÍ
og Íshundar með sér samkomulag. Í
því fólst að Íshundar viðurkenndu
rétt HRFÍ yfir skammstöfuninni og
vörumerkinu HRFÍ og H.R.F.Í. en í
staðinn féll HRFÍ frá kröfum um að
Íshundar greiddu allan málskostnað.
Í kjölfarið fékk HRFÍ heimild til að
afskrá vörumerkið af nafni Íshunda.
Send var inn ný umsókn til Einka-
leyfastofunnar þar sem óskað var
eftir að vörumerkið væri skráð á
nafn Hundaræktarfélags Íslands og
var það samþykkt fyrir skemmstu.
HRFÍ fær loks skráð
vörumerkið HRFÍ
Íshundar eignuðust vörumerkið í haust en viðurkenndu rétt
Hundaræktarfélags Íslands yfir því í kjölfar lögbannskröfu
Deiluefni Vörumerkið H.R.F.Í. var bitbein Hundaræktarfélags Íslands og
Hundaræktunarfélagsins Íshunda en leyst hefur verið úr ágreiningnum.
Í HNOTSKURN
»Hundaræktarfélag Íslandsvar stofnað 4. september
1969 og hefur notað skammstöf-
unina HRFÍ allar götur síðan
»Í október sl. skráði Hunda-ræktunarfélagið Íshundar
vörumerkið H.R.F.Í. á sitt nafn
»HRFÍ fór í kjölfarið fram álögbann og var það sam-
þykkt. Stuttu síðar gerðu félögin
með sér samkomulag. Í því fólst
m.a. að réttur HRFÍ yfir skamm-
stöfuninni var viðurkenndur.