Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ ÁKVEÐIÐ hefur verið að leggja ljós- leiðara í hvert hús í Arnarneshreppi. Fulltrúar hreppsins skrifa í dag und- ir samning þar að lútandi við fyrir- tækið Tengi hf. á Akureyri sem vinn- ur verkið með stuðningi sveitarfélagsins. Reiknað er með að verkinu verði lokið í haust. „Fólk fær tengingu inn til sín og nauðsynlegan endabúnað, og þarf svo bara að semja við eitthvert netþjón- ustufyrirtæki,“ sagði Axel Grettis- son, oddviti Arnarneshrepps, í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Alls er um að ræða hálfan sjötta tug húsa. „Þetta verður bylting fyrir íbúa sveitarfélagsins. Búsetuskilyrðin gjörbreytast raunverulega,“ segir oddvitinn, og segist þegar vita um einhver fyrirtæki sem ætli að flytja starfsemi sína í hreppinn. Í dag er boðið upp á örbylgjusamband, sem hann segir lélegt og því nái ekki einu sinni allir. „Þeir eru þá bara með ISDN-tengingu sem enginn vill nota lengur vegna þess að hún er svo hæg.“ Verkið hefst í næstu viku og af full- um krafti um leið og frost fer úr jörðu. Ljósleiðari í allan Arn- arneshrepp FRAMKVÆMDIR við lengingu Ak- ureyrarflugvallar hefjast næstu daga. Samgönguráðherra skrifaði undir samning þar að lútandi í gær við forráðamenn Ístaks í Flugsafn- inu á Akureyri. Ístak bauð rúmar 475 milljónir króna í verkið en kostnaðaráætlunin var upp á tæpar 555 milljónir króna. Tilboð Ístaks er því um 85% af kostnaðaráætlun. Aðallega er um að ræða jarðvegsskipti á um 600 metra löngu svæði við suðurenda brautar- innar og 150 m við norðurendann. Samkvæmt útboðinu á verktakinn jafnframt að færa Brunná suður fyr- ir flugvöll, verja nýjan farveg fyrir rofi, koma upp öryggisgirðingu og hliðum, undirstöðum undir loftnet og fleira. Samgönguráðherra, Kristján Möller, sagði við Morgunblaðið að þessum hluta verksins ætti að ljúka í haust en því miður næðist ekki að malbika brautina fyrr en næsta sum- ar. „Við töpuðum dýrmætum tíma í vetur þegar beðið var úrskurðar um hvort umhverfismat væri nauðsyn- legt eða ekki og það er ekki hægt að malbika nema fram í september.“ Ráðherra segir framkvæmdina mikilvæga fyrir Norðlendinga. „Þeg- ar þessu verður lokið verður hér mjög fínn flugvöllur sem skiptir allt Miðnorðurland miklu máli, bæði vegna farþegaflugs og fraktflugs.“ Malbikun vallarins var boðin út sérstaklega. Eitt tilboð barst, sem opnað var nýlega. Það var frá fyr- irtækinu Hlaðbæ – Colas í Hafnar- firði en það bauðst til að vinna verkið fyrir rúmar 719 milljónir sem er um 111% af kostnaðaráætlun sem var rúmlega 647 milljónir. Kristján segir að þrátt fyrir að tilboðið hafi verið hærra en áætlunin hafi ríkisstjórnin ákveðið á fundi í gærmorgun að þessu brýna verkefni yrði haldið áfram. Flugbrautin á Akureyri verður lengd um 460 til suðurs og örygg- issvæði gerð við báða enda hennar. Að framkvæmdum loknum verður brautin 2.400 m löng. Kjartan Lárusson, framkvæmda- stjóri Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi, sagði við Morgunblaðið þegar ljóst var að verkið þyrfti ekki í umhverfismat að lenging brautar- innar skipti miklu máli. „Það er sér- staklega tvennt sem vinnst með því. Annars vegar að með því að fjölga komustöðum inn í landið verða ferðamöguleikar hins tímabundna nútímamanns mun meiri en hingað til, það þarf ekki alltaf að fara hring- inn í kringum landið enda hafa menn ekki tíma til þess lengur, og hins vegar – sem er ekki síður mikilvægt – léttir þetta á Keflavíkurflugvelli en þar er álagið orðið ansi mikið. Í leið- inni mun þetta væntanlega létta nokkuð álag á hringveginum sem er þjóðhagslega mikilvægt.“ Hefjast handa við að lengja flugbrautina Ekki verður malbikað fyrr en næsta sumar, segir ráðherra Ljósmynd/Kristján Allt klárt Júlíus Sæberg Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, Haukur Hauksson, aðstoðarframkvæmdastjóri Flugstoða, Kristján Möller samgönguráð- herra, Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístaks, og Ásgeir Loftsson, yfir- verkfræðingur Ístaks, við undirritun samningsins á Akureyri í gær. RÚMUM 4,5 milljónum hefur verið úthlutað úr Menningarsjóði Spari- sjóðs Svarfdæla til 18 verkefna. 100.000 – Myriam Dalstein til heimasíðugerðar vegna ferðaþjón- ustu á Skeiði; Dana Ýr Antonsdóttir til að vinna að eigin tónlist. 150.000 – Freyr Antonsson til að koma á fót ljósmyndasamkeppni vegna 10 ára afmælis Dalvík- urbyggðar; Skafti Brynjólfsson til að vinna að rannsóknum á jöklum. 200.000 – Foreldrafélag leikskól- anna til danskennslu fyrir leik- skólabörnin; Elmar Sindri Eiríks- son til útgáfu hljómdisks. 250.000 – Vignir Þór Hall- grímsson til að vinna að listsköpun; Kvikmyndafélag Dalvíkurbyggðar til að safna og festa viðburði í Dal- víkurbyggð á filmu; Guðrún Edda Gunnarsdóttir til að gera upp 100 ára kvíhús á Atlastöðum. 300.000 – Artex ehf. til merking- ar gönguleiða og uppsetningar skilta; Guðmundur Ingi til gerðar heimasíðu og að koma þar fyrir efni og myndum úr gömlum Bæjarpóst- blöðum; Fígúra ehf. til innréttingar á brúðuhúsi vegna sýninga og leið- sagnar fyrir börn; Karlakór Dalvík- ur til styrktar starfsemi kórsins; Mímiskórinn til að halda kóramót eldri borgara; Kvennakórinn á Dal- vík til að koma starfseminni á rek- spöl; Hrísiðn Hrísey til að byggja upp aðstöðu til sýninga og vinnslu á gömlum amboðum og minjagripum; Byggðasafnið Hvoll til útgáfu á bæklingi um skemmtanir og dægradvöl í Dalvíkurbyggð. 500.000 – Urðakirkja í Svarfað- ardal til forvörslu á predikunarstól kirkjunnar. 4,5 millj. kr. til átján verkefna GUÐMUNDUR Heiðar Frímanns- son prófessor flytur í dag erindi á málstofu kennaradeildar undir yf- irskriftinni Heimspeki í menntun kennaraefna. Málstofan hefst kl. 16.15 í stofu 14 í húsnæði HA við Þingvallastræti. Heimspeki og kennaraefni AKUREYRI SKÓFLUSTUNGA að nýrri við- byggingu við Fjölbrautaskólann í Breiðholti (FB) var tekin fyrir skömmu. Þau Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Ólafur F. Magnússon borgar- stjóri tóku saman skóflustungu og skrifuðu að því loknu undir samning um framkvæmdina. Viðbyggingin, sem verður vestan við skólann, verður um tvö þúsund fermetrar að stærð og mun hýsa al- mennar skólastofur, myndlistar- deild skólans og mötuneyti. Áætl- aður kostnaður er á bilinu 5-600 milljónir. Starfsfólk og nemendur fylgdust glaðbeittir með skóflustungunni og létu skólameistarinn, Kristín Arn- alds, og aðstoðarskólameistarinn, Stefán Benediktsson, sig að sjálf- sögðu ekki vanta. Þá mættu einnig á viðhöfnina nú- verandi formaður nemendafélags FB, Svava Gunnarsdóttir, sem og þrír fyrrverandi formenn. Átti upphaflega að vera stærri Í ræðu sem menntamálaráðherra hélt kom það fram að um lang- þráðan draum væri að ræða að stækka skólann. Skólinn, sem er fyrsti fjölbrautaskólinn í Reykjavík, var byggður í þremur áföngum á árunum 1972-5 og er minni en upp- haflega var gert ráð fyrir. Í upp- runalegu teikningunum var gert ráð fyrir fjórum álmum á tveimur hæð- um en úr varð að aðeins tvær álmur voru byggðar en á þremur hæðum. Viðbyggingarinnar hefur því lengi verið beðið. Verklok eru ráðgerð 20. júlí 2009. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti stækkar Tölvuteikning/Arkís Glæsileg Áætlað er að viðbyggingin, sem er um 2.000 fm, verði tekin í notkun 20. júlí 2009 en arkitektastofan Arkís hannaði hana. Ljósmynd/Bjarni G. Þórmundsson Undirritun Ólafur F. Magnússon borgarstjóri og Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra ásamt Stefáni Benediktssyni, aðstoð- arskólameistara FB, og Kristínu Arnalds, skólameistara FB. KRISTJÁN Möller samgöngu- ráðherra átti í gærmorgun fund með stjórnendum Garðabæjar til að fara yfir stöðuna í samgöngu- málum Garðbæinga. Fundurinn hófst á gatnamótum Hafnarfjarð- arvegar og Vífilsstaðavegar þar sem ráðherra sá þá erfiðu stöðu sem íbúar í Ása- og Sjálandshverfi búa við til að komast í vinnu á morgnana. Til að auðvelda um- ferðarflæði innanbæjar og bæta hljóðvist hefur Garðabær sett fram þau fyrirheit í aðalskipulagi að Hafnarfjarðarvegur verði sett- ur í stokk til framtíðar, segir í frétt frá Garðabæ. Fram kemur að hópurinn skoð- aði einnig væntanleg brúarmann- virki á mótum Reykjanesbrautar og Vífilsstaðavegar. Að lokum var ráðherranum boðið í kaffi á bæj- arskrifstofunum þar sem málin voru rædd. Fundurinn var haldinn að frum- kvæði Stefáns Konráðssonar, bæj- arfulltrúa og formanns skipulags- nefndar Garðabæjar sem ritaði nýverið grein í Morgunblaðið þar sem hann vakti athygli á stöðu samgöngumála í Garðabæ og á höfuðborgarsvæðinu. Í greininni hvatti Stefán ráðherra til að koma í heimsókn og fara yfir málin. Ráðherrann brást skjótt við þess- ari hvatningu og mætti til Garða- bæjar í morgun. Á fundinum auk Stefáns voru formaður bæjarráðs, Erling Ásgeirsson, Guðjón Erling Friðriksson bæjarritari og Ey- steinn Haraldsson bæjarverkfræð- ingur. Fundarmenn Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur, Stefán Konráðs- son, form. skipulagsnefndar, Kristján Möller samgönguráðherra, Erling Ásgeirsson, formaður bæjarráðs, og Guðjón E. Friðriksson bæjarritari. Kynnti sér sam- göngur í Garðabæ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.