Morgunblaðið - 30.04.2008, Síða 23

Morgunblaðið - 30.04.2008, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 23 UMRÆÐAN NÝLEGA var auglýst til sölu einbýlishús á Stokkseyri. Ég hafði beðið eftir þessari auglýs- ingum um tíma þar sem mér var kunnugt um að viðskiptabankinn minn hafði eignast húsið og hygðist selja. Þegar ég sá verðið sem sett var á húsið hugsaði ég með mér að kannski væri það ekki eins illa farið og ég hafði talið eftir að hafa skoðað það lauslega utan frá fyrr í vetur. Eftir að hafa fengið lykla hjá fast- eignasalanum fórum við hjónin ásamt tveim húsasmiðum og skoðuðum djásnið. Og takið nú eftir: allir gluggar ónýtir og gler sömuleiðis, gólfið sigið á fleiri en einum stað, lek, ryðguð hitalögn í gólfi, þakjárn ónýtt, rakaskemmdir í veggjum og múrhúð utan mjög illa farin, lóðin í mikilli óhirðu og bílskúrinn hálfgert hrófatildur. 16,8 milljónir fyrir hvað! Okkar niðurstaða var að það þyrfti að gera svo mikið fyrir þetta hús að ekki mætti gefa meira en 8-9 milljónir fyrir það. Samtals höfum við sem skoð- uðum húsið yfir 100 ára reynslu í byggingariðnaðinum og erum því væntanlega mörgum fremri við mat á ástandi húsa og kostnaði við lagfæringar. Svo þræta fasteignasalar fyrir að þeir haldi uppi fasteignaverði! Þetta hús er dæmi um hið gagn- stæða og sýnir svo ekki verður um villst að það er fásinna að láta sama aðila sjá um hagsmuni bæði seljanda og kaupanda. Þeim er ekki treystandi til þess af augljósum aðstæðum. Það er löngu tíma- bært að breyta lög- um og reglum varð- andi kaup og sölu fasteigna. Þvæla eins og að söluþókn- un sé prósenta af andvirði eignar á ekki að þekkjast. Prósentureglan eyk- ur einmitt líkur á svona vitlausu mati eins og átt hefur sér stað á Stokkseyri í þessu tilfelli. Fasteignasalar eru heldur eng- an veginn færir um að verðmeta hús nema í algjörum undantekn- ingartilfellum. Fæstir þeirra hafa nokkra þá menntun sem ætla megi að gagnist við slíkt mat. Og mér er alveg sama hvað formaður fasteignasala hefur verið að segja um þetta í fjöl- miðlum, fasteignasalar reyna alltaf að þrýsta verðinu upp. Auðvitað gera þeir það. Hver vill ekki hærri laun? Það á ekki að hengja bakara fyrir smið. Kerfið er snarvit- laust. 16,8 milljónir fyrir ónýtt hús? Gestur Kristinsson skrifar um fasteignaverð Gestur Kristinsson » Fasteignasalar verð- leggja mjög illa farið hús á Stokkseyri á 16,8 milljónir. Hvað veldur? Hafa þeir ekkert vit á húsbyggingum eða er það söluþóknunin Höfundur er pípulagningameistari og fyrverandi sölumaður fasteigna. Mér brá óneitanlega nokkuð er ég las pistil Dagnýar Heiðdal „listfræðings“ í sunnudagsblaðinu hvar hún gerir nokkrar at- hugasemdir við síðasta sjónspegil minn. Fyrst og fremst fyrir að segja mig hnýta ótæpilega í þann hóp sem meintur sökudólgur kýs að kalla „listsögufræðinga“, eins og það sé eitthvert uppnefni (!) og taka þá til ábyrgðar um fjarveru Jóns Stef- ánssonar á umræddri sýningu á GL STRAND. Allt skal þó hiklaust áréttað sem ég setti þar fram enda ekki í fyrsta skipti sem gengið er fram hjá Jóni varðandi kynn- ingu norrænna myndlistarmanna sem stunduðu nám í einkaskóla Matisse í París. En Dagný tekur ummælin full- bókstaflega til sín og stéttar sinn- ar og athugar ekki að hér var um að ræða samantekt gildra sýn- ingaviðburða í Kaupmannahöfn en ekki listrýni eða greinarskrif. Þykist ég kenna draug yfir öxl hennar því þetta lítur ekki út fyr- ir að vera sú sama jarðtengda Dagný og reit prýðilegan pistil í blaðið fyrir nokkrum árum og vís- aði á falda fjársjóði í fórum Lista- safns Íslands. Margir myndlist- armenn kunnu vel að meta hann og kunnu henni ómældar þakkir fyrir, sáu hér bjarma fyrir nýrri kynslóð fræðinga. En í mínu tilfelli er mál einfald- lega að ég er engan veginn höf- undur algildra hugtaka í myndlist en skilgreiningu á þeim má lesa í uppsláttarbókum, lexíkonum, og hvet hana (og drauginn/draugana) til að fletta upp í þeim. Allt hef ég áður skilgreint og sundurliðað í pistlum mínum og hlotið ámæli og svívirðingar fyrir frá hendi „list- fræðinga“. Einn gekk svo langt að segja að ég væri á móti menntun, þ.e. lærdómi, svo sem alþjóð væri fullkunnugt um!! Lengra er nú trauðla hægt að ganga í óhróðri og öfugmælum. Samkvæmt „lexíkonum“ hvar gerð eru ítarleg skil á mennt- unargrunni á myndlistir er jafn miklu púðri eytt í listasögu og listfræði þ.e. „kunsthistorie og kunstteori“. Í öllu falli í þeirri sem ég styðst helst við og er í tólf bindum: „Lexikon der Kunst, Malerei, Architektur,, Bildhauerk- unst. Herder Verlag GmbH & co KG, Freiburg 1989 (önnur útgáfa). Og samkvæmt orðanna hljóðan í rit- röðinni má telja að ganga megi út frá því að fyrri skilgreiningin eigi réttar við um hér- lenda fræðinga en hin seinni. Nokkrir þeirra hafa nefnilega tekið það ráð er þeir eygðu að almenn saga lá ekki fyrir þeim ytra, að nýta fengna áfanga í þeirri grein til fljóttekins list- söguprófs svona til að koma með einhver prófskírteini og réttindi heim. Heimkomnir og teknir til starfa hafa viðkomandi skiljanlega verið lítt upplýstir um íslenska myndlist enda hennar að engu getið í uppsláttarritum og fjarri því íþyngjandi kennslufag í há- skólum ytra! Þá vil ég alveg sérstaklega vísa til þess að ég ber jafn mikla virð- ingu fyrir inniviðum beggja hug- takanna, geri mér þó ljósa grein fyrir að í báðum starfshópunum eru til framúrskarandi ein- staklingar, einnig slakir, svona eins og gerist og gengur á mann- lífsvettvangi. Ég stend á því fastar en fót- unum hvað það snertir að vegur Jóns Stefánssonar hefur verið fyr- ir borð borin af íslenskum list- sögufræðingum og þjóðinni, líkt og það sé alveg gleymt að hann bar viðurnefnið „Islands store maler“ á hinum Norðurlöndunum, sem auðsjáanlega hefur farið í taugarnar á einhverjum hér heima og enn vindur upp á sig. Veglega var staðið að aldarafmæli Ásgríms Jónssonar 1976, þakkað veri frænku hans, dugnaðarfor- kinum Bjarnveigu Bjarnadóttur, en síður listsögufræðingum. Alveg átti að gleyma aldarafmæli Jóns Stefánssonar 1981, eins og hann væri ekki til en því gátum við þá- verandi Lesbókarritstjóri bjargað að nokkru. Hins vegar var annað uppi á teningnum varðandi ald- arafmæli Jóhannesar Kjarvals 1985, heil tvö ár fóru í undirbún- ing veglegra hátíðahalda ásamt tilheyrandi skrifum. Ástæðan var að hópur málsmetandi manna stóð jafnan og alla tíð að baki lista- mannsins, sem í sjálfu sér er auð- vitað gott mál en slíkt bakland áttu hinir tveir brautryðjendurnir stórum minna. Kemur að sjálf- sögðu listrænu vægi myndverka þeirra lítið við, en kannski hægt að afsaka þetta að nokkru með því að listsögufræðingarnir voru þá örfáir. En svo komið er mikil spurn hvaða afsökun fræðingarnir hafi þegar þeir eru orðnir um og yfir fimmtíu talsins en stein- gleymdu aldarafmæli Þorvaldar Skúlasonar 1906 og Jóhanns Briem 1907? Loks ekki að ófyr- irsynju að minna hér á að ald- arafmæli Jóns Engilberts ber upp á þessu ári, nákvæmara í næsta mánuði, en ég hef ekki orðið var við neinn viðbúnað enn sem komið er. Lýsir þetta brennandi áhuga fræðinganna á íslenskri myndlist og að gera veg hennar sem mest- an innan lands sem utan? Og hvað hefur íslenska þjóðin gert til að viðhalda rótgróinni ímynd þeirra Jóns Stefánssonar og Júlíönu Sveinsdóttur í Danmörku (?), svarið er: nákvæmlega ekki neitt, umhyggjusemin á núlli. Eitthvað þykir mér þetta skondið og á skjön við þá ræktarsemi sem hin- ar Norðurlandaþjóðirnar sýna brautryðjendum sínum í list og mennt. Öðrum og meiðandi sparðatín- ingi læt ég ósvarað en vísa til að allur efsti salur GL STRAND var tekinn undir alls óskylt verkefni, innsetningu ungra sem stendur hrárri hugmyndfræði nær, svo ekki var um rýmisskort að ræða á staðnum og kom til viðbótar hinni framkvæmdinni ekki hið minnsta við. Fjarstæða að fjárhagsskortur hafi sett sýningarstjórunum skorður því sáralítið hefði kostað að senda nokkur verk Jóns Stef- ánssonar utan, eða einungis brotabrot af því sem fór í svo- nefnda „heimsmeistarakeppni“ myndlistar í Feneyjum á liðnu sumri. Orð til Dagnýjar Heiðdal Bragi Ásgeirsson svarar grein Dagnýjar Heiðdal »Dagný tekur um- mælin fullbók- staflega til sín og stéttar sinnar og athugar ekki að hér var um að ræða samantekt gildra sýn- ingaviðburða í Kaup- mannahöfn en ekki list- rýni eða greinarskrif. myndlistarmaður Höfundur er myndlistarmaður og gagnrýnandi. NÚ STANDA yfir samræmd próf í grunnskólum landsins og hópur nemenda er að ljúka tíu ára skyldu- námi. Fyrir suma er það spennandi og skemmtilegt verk- efni en aðrir fyllast kvíða og streitu. Það er mikilvægt að við foreldrar styðjum börnin okkar í þessu verkefni, hvetjum þau á uppbyggilegan hátt, séum til staðar og gef- um þeim af tíma okk- ar. Foreldrar, skólar og félagsmiðstöðvar hafa undanfarin ár unnið saman að því að skipuleggja ýmsa at- burði fyrir 10. bekkinga strax að loknum samræmdum prófum. Hef- ur verið almenn ánægja með fram- kvæmdina og unglingarnir átt góð- ar stundir með skólafélögum, foreldrum, kennurum og starfs- mönnum félagsmiðstöðvanna. Það hefur mikið að segja að við for- eldrar tökum virkan þátt í und- irbúningi og framkvæmd þessara atburða. Það er ekki síst á ábyrgð okkar að stuðla að því að ungling- urinn okkar fagni þessum þátta- skilum á jákvæðan og upp- byggilegan hátt. Margar fjölskyldur móta líka sínar eigin hefðir til að halda upp á tímamótin með ung- lingnum sínum og er það vel. Við foreldrar berum ábyrgð á uppeldi barnanna okkar og menntun a.m.k. þar til þau ná 18 ára aldri. Rannsóknir hafa sýnt svo ekki verður um villst að þeim börnum sem upplifa umhyggju, aðhald og eftirlit foreldra líður betur, þeim gengur betur í skóla og þau eru síð- ur líkleg til að neyta áfengis og ann- arra vímuefna. Næstu dagar og vik- ur eru erfiðir dagar fyrir mörg börn. Þau þurfa á nærveru okkar og umhyggju að halda núna og það þolir enga bið. Hvernig ætlar þú að forgangsraða? Börnin þurfa á nær- veru okkar að halda Bergþóra Valsdóttir brýnir fyr- ir foreldrum að huga að börn- um sínum við próflok Bergþóra Valsdóttir » Fyrir suma eru sam- ræmd próf spenn- andi og skemmtilegt verkefni en aðrir fyllast kvíða og streitu. Höfundur er framkvæmdastjóri SAMFOK og fulltrúi í SAMAN- hópnum. smáauglýsingar mbl.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.