Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í VIÐTALI á Stöð 2 við Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra kom
fram að skoðanir hans um að
breyta yfirstjórn löggæslumála á
Suðurnesjum eru óbreyttar. Hann
vill að embætti lögreglustjóra komi
undir samgöngu-, fjármála- og
dómsmálaráðuneytið, en eins og
kunnugt er fer lögreglustjóri, Jó-
hann R. Benediktsson, nú einn
með yfirstjórn þessara mála. Rétt
er að árétta að allt frá því að varn-
arsamningurinn var gerður 1951
við Bandaríkin hefur ávallt lög-
reglustjóri eða sýslumaður gegnt
yfirstjórn löggæslumála á Kefla-
víkurflugvelli, í 56 ár, en embættið
kom þá eins og kunnugt er undir
utanríkisráðneytið þar til varn-
arliðið fór.
Þessi yfirstjórn hefur alla tíð
hentað þessu embætti vel og eng-
inn ágreiningur verið um það, fyrr
en núverandi dómsmálaráðherra
vill fara að þrískipta yfirstjórn
þess. Aðalrök hans fyrir þessari
breytingu eru að spara fjármuni.
Yfirleitt er þessu öfugt farið, að
sameining embætta og sveit-
arstjórna sé gerð til hagræðis og
að spara fé. Persónulega sé ég
engin haldbær rök hjá ráðherra
fyrir þessari breytingu. Ég tel mig
gjörþekkja þessa stofnun bæði
fjárhags- og rekstrarlega eftir að
hafa starfað þar á sínum tíma, sem
deildarstjóri á þriðja tug ára.
Ég hef á bloggsíðum mínum lýst
skipulagháttum embættisins er
viðkemur störfum í flugstöðinni.
Hér er aðallega um að ræða lög-
reglu-, tollgæslu- og öryggismál,
landamæraeftirlit o.fl. Þá hefur
fíkniefnaeftirlit verið stóraukið
eins og kunnugt er. Flest þessara
starfa tengjast með einum eða öðr-
um hætti komu- og brottfararf-
arþegum og fragtflugi. Skipulag
þessara starfa samtengist á vett-
vangi öryggismála, enda er hér um
samverkandi eftirlit að ræða, sem
verður að skipuleggja í meg-
inatriðum út frá áætlun flugfélaga
til og frá landinu. Það ætti því öll-
um að vera augljóst, sem að þess-
um skipulagsmálum koma, að þrí-
skipting valds myndi
stjórnsýslulega torvelda boðleiðir
og veikja stjórnunarstörf embætt-
isins stórlega. Það væri afar slæmt
ef Jóhann R. Benediktsson og
fleiri starfsmenn embættisins
hættu störfum þarna vegna ágrein-
ings við dómsmálaráðherra. Jó-
hann er hæfileikaríkur, dugmikill
kjarkmaður, sem hefur sýnt í verki
hvers megnugur hann er og hann
hefur á að skipa mjög hæfu starfs-
liði.
Enn og aftur bið ég því dóms-
málaráðherra að koma sér upp úr
þeirri svartavillu sem hann hefur
rótfest sig í þessu máli. Hins vegar
er ég sammála ráðherra um að
a.m.k. 200-300 manna varaliði verði
komið á fót til að styrkja og efla
lögregluna þegar skortir mannafla
við sérstakar aðstæður, annað er
ábyrgðarleysi.
KRISTJÁN PÉTURSSON,
fv. deildarstjóri.
Óbreytt afstaða dóms-
málaráðherra veldur óhug
Frá Kristjáni Péturssyni
MJÖG hafa verið misjafnar skoð-
anir manna á mótmælum vörubíl-
stjóra og oft heyrst að mótmælin
beinist aðallega gegn almenningi
og að þeim sé ekki sýnd sama
harka og öðrum mótmælendum af
hálfu lögreglu. Afleiðingin af
kröfunni um meiri hörku gegn bíl-
stjórum birtist svo í einhverri fá-
ránlegustu uppákomu af hálfu
lögreglu sem sést hefur og var
varla hægt annað en vorkenna
þeim lögreglumönnunum sem í
þessu stóðu. Mér finnst mikill
munur á því hvort verið er að
mótmæla t.d. virkjunum eða
krefjast réttlátrar vinnuaðstöðu
og rekstrarafkomu eins og bíl-
stjórarnir gera. Það vekur furðu
mína að við skulum þurfa að taka
upp hvíldartímasetningu Evrópu-
sambandsins þar sem við erum
ekki í Evrópusambandinu, erum
hér langt úti í hafi og þar með
ekki í neinum tengslum við bíla-
umferð annarra landa í Evrópu.
Erum við kannski ekki frjálst og
fullvalda ríki lengur? Ef Evrópu-
sambandið ræður ríkjum hér og
við getum ekki lengur sett vinnu-
löggjöf í landinu sem hentar okk-
ur Íslendingum, hefði átt að byrja
á því að byggja sams konar vegi
og eru í Evrópu og þjón-
ustustöðvar sem henta reglunum,
áður en bílstjórunum var gert
skylt að vinna eftir þeim.
Sinnuleysi viðsemjenda í kjara-
baráttu hefur oft kallað fram mót-
mæli sem leitt hafa til harkalegra
samskipta við lögreglu og hand-
töku manna. Slík barátta hefur
alltaf komið niður á hinum al-
menna borgara, en ekki gegn
þeim, heldur viðsemjendum,
þannig er þetta einnig hjá bíl-
stjórunum. Nú stendur yfir mikil
deila við hjúkrunarfræðinga og
hafa þeir ákveðið að mótmæla
neitum yfirvalda um samninga
með því að hætta störfum. Ætli
ríkisvaldið sendi óeirðasveit til að
berja á hjúkrunarfræðingum og
þvinga þá til að fara aftur inn og
vinna? Þarna koma mótmælin
harðast niður á sjúklingum, en er
þó ekki beint gegn þeim, heldur
ríkisvaldinu sem sýnir einræði og
neitar lýðræðislegu samkomulagi,
sem leiðir af sér mótmæli. Þegar
búið verður að stofna óeirða-
lögreglu til að berja á almenningi
í hagsmunabaráttu, hversu mikið
er þá eftir af lýðræðinu?
GUÐVARÐUR JÓNSSON
Valshólum 2, Reykjavík.
Mótmæli vörubílstjóra
Frá Guðvarði Jónssyni
I. Jafnvægisástand: Íslendingar
gera ótrúlegar kröfur til lífsstíls síns.
Þetta unga, vel menntaða, skulduga
fólk á alla samúð mína. Ísland græðir
á því að fólksfjöldi landsins vaxi, því
nær sem við komumst því að vera
milljón talsins þeim mun hagstæðara
verður lífið fyrir fleiri á Íslandi. Hag-
fræðilegir útreikningar. Sjáið bara
tollana sem renna til
ríkissjóðs af bílainn-
kaupum, þeir hækka
um næstum helming á
ótrúlega litlum ára-
fjölda vegna aukinnar
fólksfjölgunar. Það
þyrftu að vera viðmið á
þessum tollum hvenær
ríkissjóður stendur á
sléttu og hvenær hann
er að græða og láta
þann gróða þá aftur til
fólksins með lækkun
tollagjalda. Þessi vönt-
un á jafnvægisstuðlum
kemur niður á unga fólkinu sem er
hreinlega ekki komið með háu tekj-
urnar … enn!
II. Fasteignir utan höfuðborg-
arsvæðis: En það búa nú ekki allir í
miðri stórborginni. Þegar verð á
fasteignum í höfuðborginni er fyrir
ofan velsæmismörk eða verið að
höfða til fólks með peninga þá leitar
annað fólk aðeins út fyrir svæðið,
Akranes, Borgarnes og Suðurnesin
eru með mun viðráðanlegra verðlag.
(Ágætis 1. íbúðar blokkaríbúðir, t.d á
Hjallavegi í Njarðvík á 10-15 millj-
ónir, sjá fasteignir mbl.is.) Þessi
sveitarfélög mega náttúrlega líka
njóta góðs af unga, vel menntaða,
skulduga mannauðnum. Strætóferð-
ir í bæinn fríar vegna nýrrar tækni
sem heitir vetni, ég geri ráð fyrir að
vegna vetnisstrætóanna séu ferð-
irnar ókeypis
III. Vetnisbílar: Svo á fólk nátt-
úrlega ekki að þurfa að skammast
sín fyrir að keyra ekki á nýjasta bíla-
módelinu. Setja smáprinsippreglu
um að eiga bílinn til nokkurra ára,
allavega þangað til hann er orðinn
skuldlaus, ha? Ekki henda bílum sem
ganga enn o.s.frv. Það eru til raf-
magnsbílar á undir milljón sem hægt
er að hlaða heima í húsi þannig að
bensínkostnaður er enginn, svo eru
líka til hybrid-bílar á islandus.com
sem hafa fengið afslátt á innflutn-
ingstollum ríkissjóðs á „umhverf-
isvæna bíla“ sem enn eru á fyrsta
milljónabilinu og eru mun ódýrari í
rekstri en bensínbílar. Það þarf ekki
alltaf að keyra á 100 …
Hvað dóu margir í
árekstrum þetta árið?
Fleiri en í fyrra held ég,
– mætti lækka kröf-
urnar þar. Einhver
hvíslaði því að mér að
það væri ekkert mál að
breyta bensínvélum í
vetnisknúnar vélar.
Bílasalarnir sem eru að
reyna að losa sig við
eldri bensínmódelin
yrðu glaðir ef þeir gætu
boðið upp á slíka um-
setningu líka (http://
www.runyourcarwithwater.com).
Verðugt viðfangsefni fyrir unga,
efnilega, nýútskrifaða bifvélavirkja
að halda þeim í landinu.
IV. Veltukort: Hvernig fer maður
að þessu? Nú er talað með miklum
vandlætingarsvip um aukna skulda-
söfnun Íslendinga, sem eflaust að
einhverjum hluta kemur til af því að
okkur þykir gott að geta veitt okkur
áður ósparanlega (dýra) hluti á af-
borgunum. Eftir því sem fólki fjölgar
aukast afborgunarskuldir. Þannig er
það bara. Við viljum vera til í dag,
sem er mjög skiljanlegt, þó að nátt-
úrlega gamaldags, rómantísku sam-
böndin þar sem sparað var fyrir hlut-
unum eigi nú dálítinn hljómgrunn
meðal unga fólksins líka. Það er bara
verst þegar slíkt verður að tísku, þá
hleypur verðbólga í þá hugsjón líka.
Fólk hættir að skynja hvað eru raun-
veruleg verðmæti og hvað ekki …
Svo náttúrlega þegar börnin koma,
þá verða allir að vera jafnir og þá
tekur IKEA við. Í huga mér hef ég
alltaf blessað tilkomu veltukortanna
árið 1998 og afborgunarmöguleik-
ana. Dásamlegt að þurfa ekki alltaf
að standa reikningsskil gjörða sinna
á mánaðarfresti. Minnir mann á
blæðingar! Menn hafa mun lengri
tíðahring og við fáum að njóta þess
með tilkomu veltukortsins í baráttu
um daglega brauðið eða kannski ekki
daglega brauðið, áður ófáanlegu
hlutina. Maður fer bara heim til
mömmu og pabba fyrir daglega
brauðið, það er nú það góða við Ís-
land, fjölskyldubönd eru sterk … og
svo er það náttúrlega ótrúlega BÓN-
US …
V. Að lokum: Þannig hafa gerst
hér lífsbætandi hlutir á tíunda ára-
tugnum sem hreinlega voru ekki í
boði hér áður fyrr. IKEA, Bónus,
veltukort, ríkissjóður. Þannig að ef
unga fólkið er eitthvað að velta því
fyrir sér hvernig á að fara að hlut-
unum, af hverju ekki að vera snið-
ugur og nýta sér góða afkomu rík-
issjóðs? T.d. ráða sig í kennslu, allir
innan skólakerfisins elska nýút-
skrifað háskólafólk og opinberar
stöður lausar í röðum í starfsauglýs-
ingum. Hjálpa þannig borgarsjóði að
koma sér hjá því að setja meiri pen-
inga í að ráða starfsfólk (hljómar
þetta ekki dálítið fáránlega?).
Krækja í hagstæð lífeyrissjóðslán
hins opinbera fyrir fasteignakaupum
og halda síðan áfram þaðan. Það
gerði fólkið hérna í gamla daga og
tók svona tíu ár að fá það sem kröfu-
harðir eru að biðja um að gerist strax
hjá þeim. Tími er peningar og því
meiri tíma sem hlutirnir taka þeim
mun verðmætari verða þeir. Og þá
náttúrlega líka er unga fólkið komið
með tilfinningu fyrir landi og þjóð,
sem þýðir raunveruleg ítök í landinu.
Léttu leiðirnar ljúfu
Vera Steinsen skrifar
um lífsstíl » Í framhaldi af lands-
flóttagrein unga
fólksins eftir Unni Mar-
íu Birgisdóttur og
Eygló Arnardóttur
Vera Steinsen
Höfundur er kennari.
FLESTIR þolendur ofbeldis,
andlegs, líkamlegs og kynferðislegs
ganga um samfélagið í þrúgandi
þögn og leita sér sjaldnast hjálpar.
Hvers vegna? Hvers vegna er það
kraftaverki líkast fyrir einstakling
að koma fram og segja frá ofbeldi og
leita sér hjálpar?
Þessari spurningu
erum við að leitast við
að svara, m.a. á þessari
árlegu forvarn-
arráðstefnu Blátt
áfram. Blátt áfram eru
sjálfstæð félagasamtök
og er tilgangur sam-
takana að efla for-
varnir gegn kynferð-
islegu ofbeldi á
börnum. Ráðstefnan er
í samstarfi við
Barnaverndarstofu,
Þroskahjálp, Háskól-
ann í Reykjavík,
Heilsugæslu Reykjavíkur og Neyð-
arlínuna 112. Ráðstefnan verður
haldin dagana 15. og 16. maí 2008 í
Háskólanum í Reykjavík.
Samkvæmt rannsóknum (og ber
þeim íslensku saman við þær er-
lendu) læknar tíminn ekki öll sár. Ef
eitthvað er þá getur tíminn sem líð-
ur frá því að ofbeldið gerist og þang-
að til einstaklingurinn leitar sér
hjálpar valdið því að einstakling-
urinn á það á hættu að missa heilsu
sína og jafnvel nokkur ár af ævi
sinni. Líkurnar eru einnig miklar á
því að þessi einstaklingur hafi fund-
ið leið til að deyfa sársaukann með
einhverju móti, meðvitað eða ómeð-
vitað, með nikótíni, áfengi, eit-
urlyfjum, mat, sjónvarpi, tölvunni,
ofbeldi, samböndum o.fl.
Hugmyndin með ráðstefnunni er
að sýna fram á mikilvægi þess að
einstaklingar sem hafa orðið fyrir
ofbeldi leiti sér hjálpar og mikilvægi
þess að fagfólk spyrji réttu spurn-
inganna til að gera fólki kleift að
segja frá reynslu sinni. Það er á
ábyrgð samfélagsins í heild að opna
umræðuna um ofbeldi. Ofbeldi er
samþykkt með þögninni! Við þurfum
öll að skoða okkur sjálf
og sjá hversu opin við
erum fyrir þessari um-
ræðu. Hvernig bregst
ég við því að lesa þessa
grein? Fer ég í vörn?
Finnst mér verið að
ásaka mig? Ef þú tekur
þessu sem jákvæðri
áskorun frekar en nei-
kvæðri ásökun þá ertu
að leggja málefninu lið
og hugsanlega að
hjálpa einstaklingum í
þínu umhverfi sem eru
að leita að hjálp. Þú
eykur líkurnar á því að hjálpa vin í
raun. Því jákvæðari og opnari sem
þú ert gagnvart þessum upplýsing-
um, því meiri líkur eru fyrir því að
samfélagið sé að breytast. Og það er
að breytast! með því að axla ábyrgð
og sýna fordæmi og taka virkan þátt
í opinni og jákvæðri umræðu um úr-
ræði hvað varðar allt ofbeldi.
Meðal góðra gesta á ráðstefnunni
verður Vincent Felitti, læknir við
forvarnadeild Medicine Kaiser
Permanent Medical Care Program í
Kaliforníu. Dr. Felitti mun fjalla um
13 ára rannsókn, sem 17 þúsund
Kaliforníubúar tóku þátt í, sem sýn-
ir sambandið milli mismunandi of-
beldis og vanrækslu í æsku annars
vegar og heilsu á síðari árum hins
vegar. Þessi rannsókn er líklega ein
sinnar tegundar í heiminum og er
unnin í samvinnu við Heilbrigð-
isstofnun Bandaríkjanna. Dr. Felitti
sýnir í erindi sínu auðveldar leiðir
sem mögulega er hægt að fara til að
koma til móts við einstaklinga sem
leita til læknastéttarinnar eftir að-
stoð, því miður oft ekki fyrr en þeg-
ar skaðinn er skeður. Dr. Felitti
varpar fram mörgum athygl-
isverðum spurningum tengdum
rannsókninni sem vert er að leita
svara við.
Önnur erindi í boði á ráðstefnunni
eru m.a. kynferðisofbeldi gegn fötl-
uðum og greindarskertum börnum,
örugg netnotkun, afleiðingar kyn-
ferðislegt ofbelds á heilsu kvenna,
ásakanir um kynferðisofbeldi í for-
ræðismálum, kynning á starfsemi
Barnahúss og kynning á forvarna-
átaki Blátt áfram. Ráðstefnan er öll-
um opin og fer fram á ensku.
Forvarnir er besta leiðin!
Svava Björnsdóttir segir frá
ráðstefnunni Forvarnir er
besta leiðin! sem haldin verður í
Háskólanum í Reykjavík
» Flestir þolendur of-
beldis, andlegs, lík-
amlegs og kynferðis-
legs, ganga um samfé-
lagið í þrúgandi þögn og
leita sér sjaldnast hjálp-
ar. Hvers vegna?
Svava Björnsdóttir
Höfundur er einn af stofnendum
Blátt áfram og hefur umsjón
yfir undirbúningi og framkvæmd
ráðstefnunnar.
TENGLAR
..............................................
www.blattafram.is
MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun
móttökukerfi fyrir aðsendar greinar.
Formið má nálgast undir liðnum
Senda inn efni undir lógói Morgun-
blaðsins ofarlega á forsíðu mbl.is, og
einnig neðarlega á forsíðu mbl.is
undir liðnum Sendu inn efni. Ekki er
lengur tekið við greinum sem sendar
eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að skrá sig inn í kerf-
ið með kennitölu, nafni og netfangi,
sem fyllt er út í þar til gerða reiti.
Næst þegar kerfið er notað er nóg að
slá inn netfang og lykilorð og er þá
notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsamlegast
beðnir að nota þetta kerfi. Nánari
upplýsingar gefur starfsfólk greina-
deildar.
Móttökukerfi aðsendra greina