Morgunblaðið - 30.04.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 27
ærri kjörum.
t fyrir hinn
hvað varðar
ans sem eru
sem slík sam-
niborðinu, að
um stundir,
ar mögulegar
mismunandi
sbankinn og
væri viðbúið
lánardrottna
m hætti, þótt
vikum yrði að
endir lánar-
s segja eitt-
ssi sameining
skiptamódeli.
erslu á að þið
ykkar erlend-
Nú virðist þið
if ykkar á Ís-
num. Þetta er
ð það sem þið
g því þarf að
ýtt.
itnis erlendis
ögðin verið á
ði alltaf talað
löndum, sér-
tengdri sjáv-
áherslan vera
til Íslands og
dseyja. Þetta
samið verði á
gtímalánalín-
mmar
r erlenda lán-
bankana eru
skuldatrygg-
nú í himin-
kkað umtals-
kum en álagið
ndandi lang-
tímalánum er á hinn bóginn á bilinu
20 til 40 punktar sem jafngildir 0,2%
til 0,4% álagi á LIBOR vexti en það
álag er um þessar mundir á bilinu 225
til 375 punktar, (2,25% til 3,75% álag
á LIBOR). Þegar verst lét fór
skuldatryggingarálag Kaupþings yf-
ir 1.000 punkta, eða 10%. Þótt álagið
hafi lækkað til muna undanfarnar
vikur fer því víðsfjarri að kjörin sem
standa bönkunum til boða séu að-
gengileg og því halda þeir að sér
höndum.
Hér er því um fjárhæðir að tefla
sem skipta milljörðum, jafnvel tug-
milljörðum, í versnandi kjörum fyrir
íslensku bankana ef þeir þyrftu að
endursemja um langtímalánalínur
sínar í dag.
Það skiptir því öllu máli fyrir bank-
ana hvort sem um viðskiptabankana
þrjá er að ræða, eða Straum fjárfest-
ingarbanka, að hreyfa sig ekki eitt
hænufet í átt til sameiningar hvað
sem líður reiknilíkönum um svo og
svo mikinn sparnað, hagræðingu og
ávinning af hugsanlegri sameiningu.
Stjórnendur íslensku bankanna
vita að erlendu lánardrottnarnir bíða
eins og hrægammar eftir því að ís-
lensku bankarnir misstígi sig, þannig
að sá möguleiki opnist að segja upp
lánum sem eru á góðum kjörum og
bjóða síðan upp á nýja samninga á af-
arkjörum.
Þeir telja því að þeir geti sig hvergi
hrært, hvað varðar sameiningar-
áform, því við þær aðstæður sem nú
ríkja á fjármálamörkuðum væri sú
hætta yfirvofandi að allt hagræðið af
sameiningu sem menn hefðu í huga
að skipta á milli hluthafa og neytenda
hér á landi lenti í vösum erlendra lán-
ardrottna bankanna. Því sé betur
heima setið en af stað farið, að
minnsta kosti nú um stundir og að
öllum líkindum næstu misserin, jafn-
vel árin, ef spár svartsýnustu manna
ganga eftir.
Morgunblaðið/Golli
hagsmunir viðskiptabankanna eru í húfi að kjör á
dist óbreytt. Jafnvel getur munað tugmilljörðum.
ar sameiningu innan banka-
m og knúið fram afarkjör
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Við erum að hreinsa ósprungnarsprengjur í þorpum, á banana-ekrum, á allskonar svæðum. Viðerum að gera fólki kleift að búa
þarna áfram. Verkið hefur gengið mjög vel,“
segir Sigurður Ásgrímsson, fagstjóri
sprengjudeildar Landhelgisgæslunnar um
þátttöku Íslendinga í sprengjuleit í Líbanon.
„Þetta er í annað skiptið sem við hjá
Landhelgisgæslunni förum til Líbanon. Við
erum þarna á vegum íslensku friðargæsl-
unnar vegna samnings sem felur í sér að við
útvegum sjálfboðaliða í þetta verkefni sem
friðargæslan greiðir síðan fyrir.
Við sendum tvo menn rétt eftir miðjan
mars, þá Jónas Þorvaldsson og Alexander
Rúnarsson, sem eru komnir heim. Þeirra í
stað héldu utan þeir Marvin Ingólfsson og
Martin Sövang, en þeir verða í Líbanon til
6. júní. Það sem við erum að gera er að
starfa að mannúðarverkefni með Svíum und-
ir því sem nefnt er regnhlíf Sameinuðu þjóð-
anna.“
Sigurður segir sérfræðinga Landhelg-
isgæslunnar fást við ýmsar gerðir af
sprengjum, þar með taldar klasasprengjur
og stórar sprengjur, en Ísraelsher beitti
m.a. fyrrnefndu gerðinni í átökum við
skæruliða Hizbollah-hreyfingarinnar í Suð-
ur-Líbanon sumarið 2006. Stór hluti
sprengnanna er frá þeim tíma.
„Fyrir skömmu voru okkar menn að
sprengja 500 kílóa flugvélasprengju. Eins og
með allar sprengjur þurftum við að gera
hana óvirka svo hægt væri að flytja hana.
Þá var hún orðin mjög örugg. Síðan þurfti
að flytja hana á afvikið svæði þar sem hún
var sprengd ofanjarðar. Með okkur í för er
Eggert Guðmundsson bráðatæknir frá
slökkviliði höfuðborgarsvæðisins (SHS), sem
er til taks ef eitthvað kemur fyrir. Við erum
ávallt á tveimur bílum. Annar er fyrir
sprengjuleitarmennina en hinn er hugsaður
sem sjúkraflutningabíll.“
Yfirleitt fimm ára þjálfun
Aðspurður hvaða menntun þurfi til að
gegna stöðu sprengjuleitarmanns segir Sig-
urður mennina fjóra alla hafa svokallaða
EOD-þjálfun, sem veiti alþjóðleg réttindi til
að eyða hernaðarsprengjum.
„Slíka þjálfun fáum við erlendis, bæði í
Bretlandi og Danmörku. Hún gefur okkur
réttinn til að fást við allar hernaðarsprengj-
ur, frá minnstu sprengjum upp í stærstu
flugskeyti. Miðað við að námið sé tekið sam-
hliða öðrum störfum áætlum við að full-
þjálfun sprengjuleitarsérfræðings taki fimm
ár. Nú eru fjórir hjá gæslunni með prófið,
eftir að sá fimmti hætti.“
Sigurður vill nýta sérfræðingana í meira
mæli til sprengjuleitar á Íslandi til að fín-
kemba svokölluð „óhreinsuð“ svæði.
„Við stöndum frammi fyrir því núna að
geta bætt við mannskap. Það eru óhreinsuð
svæði á Íslandi og við höfum því varpað
fram þeirri hugmynd að hægt væri að nýta
þennan mannskap hér heima á sumrin og
erlendis á veturna, þegar ekki er hægt að
vinna hér heima.
Þá á ég við svæði sem hafa verið könnuð
lauslega af okkur, einkum æfingasvæði sem
Bandaríkjaher var með á sínum tíma.
Stærsti hluti svæðanna er á Reykjanesi, í
kringum gamla varnarsvæðið. Auðvitað er
búið að fara yfir þau nokkrum sinnum, en
nú stendur til að fara að gera það með
skipulegum hætti.“
Fylgja mjög stífum reglum
Jónas Þorvaldsson hefur nýlega tekið þátt
í sprengjueyðingu í Líbanon.
Inntur eftir verkefnum Íslendinga segir
Jónas hópinn sinna bráðatilfellum fyrir
Sameinuðu þjóðirnar, á meðan önnur teymi
frá öðrum ríkjum leiti að sjálfum sprengj-
unum.
Hann segir hópinn fylgja ströngum vinnu-
reglum.
„Þegar við höfum kannað aðstæður og
komist að því að ekki er öruggt að nálgast
hlutinn þurfum við að beita öðrum ráðum
eins og að nota málmleitartæki. Það vakna
margar spurningar í upphafi og áður en haf-
ist er handa er haldinn stuttur fundur með
sjúkraflutningamanni þannig að allir viti
hvað er að fara að gerast og í hvaða stigum
ætlunin er að vinna verkefnið,“ segir Jónas.
„Öruggasta leiðin er hreinlega að
sprengja sprengjuna á staðnum. Það er allt-
af fyrsti valkostur. Ef, einhverra hluta
vegna, staðsetningin er þannig að ekki er
hægt að sprengja sprengjuna þurfum við
annað hvort að gera hana óvirka eða færa
hana á öruggan hátt á stað þar sem við get-
um eytt henni. Einnig erum við með heil-
mikið af búnaði sem er notaður til að gera
sprengjur óvirkar, allt frá því að skjóta
kveikibúnaðinn af sprengjunni til þess að
skrúfa hann af með fjarstýrðu tæki.
Þá erum við með búnað til að færa hluti
án þess að þurfa að liggja ofan í þeim. Við
erum jafnframt með röntgenmyndavél og
getum skoðað ástand hlutar og gegnumlýst
hann, ásamt því sem við getum flett upp
upplýsingum um hann í gagnabanka NATO
um hvernig eigi að gera hlutinn óvirkan.
Stundum er þetta þó gert í höndunum og þá
þarf maður að taka upp verkfæri og fram-
kvæma ýmsa galdra.“
Spurður að lokum hvernig tilfinning það
sé að halda á sprengju segir Jónas það kom-
ast upp í vana. Fylgt sé „rosalega stífum
reglum“, enda aðeins ein aðferð sem fylgja
beri hverju sinni þegar sprengja er aftengd.
Sprengjueyðing Líbanskir hermenn ræða við heimamenn fyrir framan holu við hús í Suður-Líbanon þar sem 500 kílóa flugvélasprengja lenti.
Aftengja sprengjur í Líbanon
Sérfræðingar Landhelgisgæslunnar eyða ósprungnum sprengjum eftir
átökin í S-Líbanon árið 2006 Vilja fínkemba „óhreinsuð“ svæði á Íslandi
Hluti búnaðarins Eggert Guðmundsson (t.v.), bráðatæknir hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
(SHS), Jónas Þorvaldsson, sprengjusérfræðingur hjá Landhelgisgæslunni og Kristján Sigfússon,
bráðatæknir hjá SHS, ræða saman í höfuðstöðvum deildarinnar í Tyr. Bíllinn sem sést inn í er
sprengjuleitarbíll, hinn er sjúkraflutingabíll. Jafnan er bráðatæknir við sprengjueyðinguna.
Á leitarstaðnum Jónas Þorvaldsson fylgir
stífum reglum við eyðingu klasasprengju.
Í HNOTSKURN
»EOD stendur fyrir explosive ordnancedisposal og felur í sér að sprengja er
gerð óvirk á öruggan hátt.
»Sprengjudeild Landhelgisgæslunnarsér um alla sprengjueyðingu á Íslandi.
Ljósmynd/Sprengjudeild Landhelgisgæslunnar