Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 30.04.2008, Qupperneq 28
28 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þórður Þorkels-son fæddist í Reykjavík 20. febr- úar 1925. Hann andaðst á Landspít- alanum 21. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Þorkell Þórð- arson, sem lengi rak Billjardstofuna á Klapparstíg, f . 4.9. 1897, d. 10.2. 1983 og Guðrún Kristjánsdóttir hús- freyja, f. 11.9. 1900, d. 6.4. 1989. Systir Þórðar er Ragnheiður Kristín, f. 5.8. 1926 og hálfbróðir hans var Óskar Þorkelsson, f. 7.12. 1923, d. 22.3. 1990. Hinn 2.12. 1950 kvæntist Þórð- ur eftirlifandi eiginkonu sinni, Svanhildi Guðnadóttur, f. 3.1. 1924. Dóttir þeirra er Guðrún Þórey, f. 28.7. 1952, gift Þorvaldi Kára Þorsteinssyni, f. 5.11. 1951. Þorvaldur og Guðrún eiga dæt- urnar Svanhildi, gift Þór Tryggvasyni, og Margréti Ágústu, gift Georg Garðarssyni. Dóttir Svanhildar og Þórs er Embla Þórey og börn Margrétar varð þrisvar sinnum Íslands- meistari með meistaraflokki. Hann sat í aðalstjórn Vals meira og minna í 25 ár, þar af sem for- maður félagsins í 5 ár. Þórður lét sér mjög annt um félagið og hag þess og mátti alltaf til hans leita þegar krafta hans var þörf. Hann var líka lengi gjaldkeri Íþrótta- sambands Íslands og var einn af helstu frumkvöðlum þess að Ís- lensk getspá, sem rekur Lottóið, var stofnuð, ásamt því að vera fyrsti stjórnarformaður hennar um árabil. Þá átti hann þátt í að koma Íþróttahátíð ÍSÍ á lagg- irnar. Fyrir störf sín í þágu íþrótta- hreyfingarinnar var Þórður heiðraður á margan hátt. Hann var heiðursfélagi Vals og Íþrótta- sambands Íslands og hin ýmsu sérsambönd ÍSÍ heiðruðu hann fyrir margvísleg störf. Þórður hafði mikinn áhuga á laxveiði og sérstaklega voru El- liðaárnar honum hugleiknar enda veiddi hann þar mikið frá 12 ára aldri. Benda má á að á fræðslu- vef Orkuveitu Reykjavíkur er að finna viðtal við Þórð um veiðar í ánni hér áður fyrr. Þórður var sjálfstæðismaður og starfaði mikið fyrir flokkinn, einkum í hverfanefndum, og sat mörg landsþing. Útför Þórðar fer fram frá Dómkirkjunni í dag kl. 15. og Georgs eru Íris Aðalheiður og Kári Þorvaldur. Á uppvaxtarárum Þórðar bjó fjöl- skyldan lengst af á Norðurmýrarbletti, sem nú er Hörgshlíð 2 í Reykjavík. Síðar byggðu Þórður og Svanhildur húsið að Hörgshlíð 6 ásamt foreldrum hans, systur og mági. Hús- ið að Hörgshlíð 6 var því, og er enn, sannkallað fjölskylduhús. Þórður lauk verslunarprófi frá Verzlunarskóla Íslands. Fyrst á eftir rak hann eigið hjólbarða- verkstæði en hóf síðan störf á endurskoðendaskrifstofu Sig- urðar Stefánssonar. Í kjölfarið stofnaði hann eigin stofu og starfaði við bókhald og endur- skoðun eftir það auk þess að sinna ýmsum skrifstofu- og upp- gjörsverkefnum hjá Prentsmiðj- unni Odda um áratugaskeið. Félagsmál voru Þórði mjög hugleikin. Hann var Valsmaður í húð og hár. Hann lék knatt- spyrnu og síðar handknattleik með félaginu um langt skeið og Tengdafaðir minn, vinur og veiði- félagi hefur stigið sín hinstu skref. Á slíkum stundum reikar hugurinn til baka og fram koma ýmsar minning- ar og atvik sem alla jafna er ekki verið að leiða hugann að dagsdag- lega. Það eru komin yfir 40 ár síðan ég fór að venja komur mínar í Hörgs- hlíðina. Fljótlega kom í ljós að við Þórður áttum margt sameiginlegt. Má þar fyrst til taka takmarkalausa aðdáun okkar á heimasætunni á staðnum og báðir höfðum við mikinn áhuga á íþróttum. Í ljós kom sam- eiginlegur áhugi okkar á stangveið- um og síðast en ekki síst stuðlaði hann að því að ég gerðist endur- skoðandi, þannig að bókhald og end- urskoðun varð starfsvettvangur okkar beggja. Félagsmálin voru Þórði í blóð borin. Ungur hóf hann að leika með Val og síðan snerist stór hluti af hans lífi um Val. Ágæt saga er til sem gerðist í formannstíð hans. Nýbúið var að byggja grasvöllinn meðfram Flug- vallarvegi og nokkurt gras farið að spretta. Eldsnemma sunnudags- morguns er hringt í Þórð frá flug- turninum og hann látinn vita að völl- urinn sé þakinn gæsum. Brást hann skjótt við og það næsta sem þeir í turninum sáu var minn maður á fullri ferð eftir vellinum veifandi báðum höndum. Svo mikill var hrað- inn og bægslagangurinn að flugum- ferðarstjórarnir voru komnir á fremsta hlunn með að veita honum flugtaksheimild. Af gæsunum sagði fátt, þær héldu sig vestan megin í Vatnsmýrinni það sem eftir lifði sumars. Laxveiði stundaði hann frá barns- aldri og fórum við venjulega tvisvar á sumri í Elliðaárnar, auk margra annarra ferða. Ekkert gefið eftir þó aldurinn færðist yfir og búinn að kaupa sinn dag í sumar. Sá dagur verður notaður og er ég þess fullviss að hann líti yfir öxl okkar þann dag- inn. Hann hvatti oft sína menn á vell- inum og ef honum fannst eitthvað gefið eftir lét hann menn heyra að leiknum væri ekki lokið fyrr en flautað hefði verið af. Hann lifði og starfaði sjálfur eftir þessu. Að gef- ast upp var einfaldlega ekki í mynd- inni. Það sem hann kom í verk með fullu starfi er í sjálfu sér með ólík- indum. Þetta gerði hann hins vegar ekki einn því kona hans Svanhildur studdi hann með ráðum og dáð og var það Þórði mikil gæfa að hafa hana sér við hlið. Hann naut þess að vera í faðmi fjölskyldunnar og lét sér sérstak- lega annt um barnabörnin, fylgdist grannt með hvað þær voru að gera og aðstoðaði allan hátt. Síðustu árin bættust við langafabörnin sem veittu honum mikla gleði. Daginn áður en Þórður lést hafði hann á orði við mig að nú hefði hann lokið við að gera upp þau fyrirtæki, sem hann var með auk þess að ljúka öllum sínum skattframtölum og sagði að líklega væri ég ekki svona vel staddur. Þetta lýsir honum kannski best, ljúka við uppgjörin, ljúka við framtölin. Allt klárt, nú er hægt að kveðja. Leikurinn flautaður af. Nær kemst maður ekki að fæðast, lifa og deyja með glæsibrag. Ég ætla að kveðja með þessum fá- tæklegu orðum og veit að góður guð mun vera með þér á þeirri braut sem þú nú hefur lagt út á. Þorvaldur K. Þorsteinsson. Afi leyfði mér alltaf að halda í stýrið þegar hann keyrði mig heim upp Drápuhlíðina. Þegar ég fékk Prinskex hjá lang- ömmu í kjallaranum og nagaði allt súkkulaðið af þá borðaði hann alltaf afganginn. Hann leyfði mér alltaf að binda inn listaverkin mín með rauða lím- bandinu í skjalaskápnum. Hann kenndi mér mannganginn. Þegar hann gleymdi sér í sínum eigin heimi þá sönglaði hann, „Dara- reideideideideidei …“ Stundum, þegar ég gisti hjá ömmu og afa, fékk ég að sofa í hol- unni hans. Hann keypti alltaf handa mér mjólkurhristing, stóran með jarðar- berjabragði, þegar ég var búin í pí- anóprófi. Hann geymdi bíllyklana sína í misheppnaða öskubakkanum sem ég bjó til í leirmótun. Einu sinni fékk ég að fara með honum á landsleik í fótbolta og sitja í heiðursstúkunni. Þegar mér fannst einn páfagauk- urinn í Dýraríkinu eitthvað út und- an fór hann sér ferð með mig í búð- ina daginn eftir til að athuga hvort ekki væri örugglega í lagi með hann. Hann sagði alltaf „itræt“ í staðinn fyrir „íþróttir“ þegar við spiluðum Trivial Pursuit. Hann nennti alltaf að skutla mér á æfingu eða í píanótíma. Hann tók mynd af mér þegar ég sofnaði í sófanum. Þegar hann komst að því að vinur minn hefði áhuga á fótbolta, sendi hann honum alltaf Valsblaðið – þó að vinur minn kynni ekki íslensku – og spurði eftir Liverpool-manninum. Hann sendi mér reglulega tölvu- póst til að láta mig vita hvernig Val gengi í boltanum. Við kvöddumst alltaf með þéttu faðmlagi og dálitlum látum. Ég hélt að hann myndi lifa að ei- lífu. Svanhildur. Kallið er komið, Þórður Þorkels- son er horfinn á braut. Doddi, eins og hann var kallaður í fjölskyld- unni, fylkir nú liði með fleiri ástvin- um fjölskyldunnar sem hafa kvatt okkur. Það fylgdi Dodda ávallt góð- ur og léttur andblær. Hann var hláturmildur og skemmtilegur, einnig við okkur krakkana, öðruvísi þekkti ég hann ekki. Hann var þó mikill alvörumaður, það sannar bæði sá starfsvettvangur sem hann valdi sér og öll þau trúnaðarstörf sem hann gegndi fyrir íþróttahreyf- inguna. Doddi kvæntist Svönu Guðna- dóttur, systur föður míns Páls Guðnasonar. Þeir voru saman í Val og báðir tóku þeir virkan þátt í að vinna að framgangi félagsins. Það var góður vinskapur milli fjölskyld- anna, kannski ekki síst vegna sam- eiginlegs áhugamáls þeirra Dodda og pabba. Það var margt brallað, en eftirminnilegastar eru skíðaferðir okkar og veiðiferðirnar vestur í Hvannadalsá. Doddi var mikill veiðimaður og fóru þeir pabbi í marga könnunarleiðangra um ána og komu iðulega með vænan laxinn heim í kofa. Við krakkarnir fengum stundum að koma með. Einu atviki gleymi ég aldrei, það var held ég okkar fyrsta ferð saman í ána. Gunna frænka, eins og hún var köll- uð af okkur systkinunum, dóttir Svönu og Dodda fór með föður sín- um í leiðangur, markviss tilgangur þeirra var að finna fisk, því ekkert hafði veiðst daginn áður. Þau voru komin alllangt frá veiðikofanum og það mátti grilla í þau við veiðar. Allt í einu heyrðist óp og síðan sáum við Gunnu frænku greinilega hoppa hæð föður síns og ekki bara einu sinni. Hafði orðið slys? Það var rok- ið af stað og þegar komið var á vett- vang mættum við gleiðbrosandi feðginum, með fisk. Ég held að fáum hafi tekist annað eins stökk og henni frænku minni. Á veturna var farið á skíði, þar lærðum við börnin að standa skíðin. Þetta varð til þess að á unglings- árum stunduðum við systkinin og Gunna frænka íþróttina. Ármanns- skálinn í Jósepsdal var okkar heimasvæði. Þar kynntist Gunna sínum framtíðarförunauti, Þorvaldi Þorsteinssyni. Þar fékk Doddi góð- an félaga, en svo vildi til að Valdi lagði þá stund á viðskiptafræði og hefur hann síðar m.a. unnið við end- urskoðun líkt og tengdafaðir hans. Það er ávallt eftirsjá að góðum manni og horfum við systkinabörn- in nú á eftir kynslóð foreldra okkar kveðja þessa tilvist eitt af öðru, en ég er þess fullviss að það er ekki endapunkturinn heldur góð byrjun á næsta ferli. Ég votta Svönu, Gunnu og Valda, dætrum þeirra og fjölskyldum mínar dýpstu samúð- arkveðjur. Guð blessi ykkur. Þór Elís Pálsson. Hann Þórður (Doddi) er látinn. Ég kynntist Dodda fyrst þegar ég vandi komu mínar fyrir rúmum 20 árum „heim“ í Hörgshlíðina til þess að hitta frænku Dodda, hana Helgu sem síðar varð konan mín. Hörgshlíðin var sannkallað fjöl- skylduhús en á efstu hæðinni bjuggu Helgi og Ragnheiður systir Dodda, sem urðu síðar tengdafor- eldrar mínir, á miðhæðinni Doddi og Svana, og á neðstu hæðinni amma Guðrún. Ég var fljótur að kynnast Dodda enda hafði ég góða forgjöf þar sem ég var og er Valsmaður. Doddi var mikill Valsmaður og var á sínum tíma leikmaður, og seinna meir tók hann að sér hin ýmsu störf bæði hjá Val og ÍSÍ. Þetta var áður en netið kom til sögunnar og því ekki hlaup- ið að því að fá úrslit úr leikjum ef maður átti ekki kost á því að sjá þá í sjónvarpi. Það var því auðvelt að heimsækja miðhæðina og fá upplýs- ingar um leikina. Doddi sat mikið við skrifborðið sitt og sinnti sínum endurskoðunarstörfum nú eða hann sat við sjónvarpið og fylgdist með öllum íþróttum nánast í öllum heim- inum. Doddi hafði sterkar skoðanir á öllum hlutum og lét mann heyra það á góðlátlegan hátt ef svo bar undir. Hann var léttur í lund og lúmskt stríðinn þannig að það voru oft líf- legar samræður sem áttu sér stað. Ekki má gleyma innskotum frá Svönu en hún er létt í lund eins og Doddi heitinn og einstaklega orð- heppin. Heimsóknir mínar urðu fleiri og þann tíma sem við hjónin bjuggum erlendis og komum heim í frí bjugg- um við í húsinu. Landsleikir voru margir á þessum árum og það var eins gott að landa sigrum svo Doddi, sem fylgdist grannt með í sjónvarpinu, tæki vel á móti manni, hann var gagnrýninn en alltaf sann- gjarn og studdi þennan gaur sem kominn var inn í fjölskylduna. Við fluttum heim og ég fór aftur að spila með Val og enn síðar fór ég að þjálfa ÍR og þrátt fyrir að stuðn- ingur væri frá honum vildi hann samt sem áður sjá sinn mann koma heim og þjálfa á Hlíðarenda. Hver veit nema sá dagur komi, og það er nokkuð ljóst að ef af verður þá verð- ur hann meðal áhorfenda og styður sitt lið og sinn mann eins og áður. Með þessum fáu orðum viljum við Helga og Alexander Örn þakka Dodda fyrir allar góðu samveru- stundirnar. Vottum Svönu, Gunnu, Þorvaldi og fjölskyldu samúð. Júlíus Jónasson. Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Val Við Valsmenn kveðjum í dag með þakklæti einn þriggja heiðursfélaga okkar, Þórð Þorkelsson endurskoð- anda. Valur hefur átt því láni að fagna að hafa í gegnum langa tíð átt marga áhugasama og vinnuglaða félaga sem með ræktarsemi sinni og elju hafa gefið mikið af sér til þess að sjá drauma sína um eflingu Vals rætast. Þórður var svo sann- arlega einn þessara félaga, ávallt að huga að framgangi mála og vildi enga kyrrstöðu. Í þeim efnum voru Þórði töm orð eldri frumkvöðla Vals: „Valur er ekki annað en ég, þú og allir hinir!“. Þeir voru því glaðir heiðursfélagarnir Þórður, Sigurður Ólafsson og Jóhannes Bergsteins- son þegar nýju mannvirkin að Hlíð- arenda voru vígð á síðasta ári. Þórður fæddist í Reykjavík 20. febrúar 1925. Hann gerðist félagi í Val 8 ára gamall og æfði og lék knattspyrnu framan af þar til hann söðlaði að mestu um og sneri sér að handknattleiknum. Hann varð þrisvar sinnum Íslandsmeistari með Val í handknattleik á árunum 1945 til 1954. Samhliða íþróttaiðk- uninni tók Þórður þátt í stjórnar- störfum og sat í aðalstjórn félagsins frá 1948 til 1955 og aftur á árunum 1964 til 1967. Þórður varð síðan for- maður félagsins árin 1970-1975. Ár- ið 1971 var Þórður skipaður for- maður nefndar til þess að stýra uppbyggingu á nýjum knattspyrnu- velli með áhorfendastæðum að Hlíðarenda. Með honum í nefndinni sátu þekktir Valsmenn, þeir Úlfar Þórðarson, Jóhannes Bergsteins- son, Guðmundur Ásmundsson, Guðmundur Kr. Guðmundsson og Guðni Jónsson. Hinn 9. september 1979 var völlurinn, sem þá þótti glæsilegt mannvirki, vígður. Þann- ig hafa áfangasigrar unnist og oft- ast hefur Þórður verið nærri þegar góðir hlutir hafa gerst innan Vals með sínu jákvæða og framsækna hugarfari. Þórður var gerður að heiðursfélaga Vals á 85 ára afmæli félagsins hinn 11. maí 1996. Ekki er möguleiki á því að fjöl- skyldumenn geti lagt svo vel til fé- lagsstarfsemi nema þeim fylgi full- ur stuðningur frá eiginkonu og fjölskyldu. Þórður var lánsamur í einkalífi sínu og gekk að eiga eft- irlifandi eiginkonu sína Svanhildi Guðnadóttur hinn 2. desember 1950. Dóttir þeirra hjóna er Guðrún Þórey, gift Þorvaldi K. Þorsteins- syni. Barnabörn Þórðar og Svan- hildar eru tvö og barnabarnabörnin eru þrjú. Við Valsmenn kveðjum kæran fé- laga og vandaðan mann og sendum fjölskyldu hans, ættingjum og vin- um hugheilar samúðarkveðjur. Grímur Sæmundsen, formaður Knattspyrnufélagsins Vals Með Þórði Þorkelssyni er geng- inn merkur forystumaður íslenskra íþróttamála, en eftir farsælan íþróttaferil með Val gerðist hann formaður félagsins og síðar stjórn- armaður í ÍSÍ. Þá er ógetið fram- lags Þórðar við stofnun Íslenskrar getspár, sem stofnuð var 1986 og gjörbreytti tekjuöflun íþrótta- hreyfingarinnar á Íslandi. Þórður var fyrsti stjórnarformaður fyrir- tækisins og leiddi starfsemi þess fyrstu árin. Stjórnarmenn ÍSÍ á þessum árum, þ. á m. Þórður, geng- ust í persónulegar ábyrgðir í Landsbankanum svo að fyrirtækið kæmist á laggirnar. Síðan þá hafa milljarðar króna runnið úr sjóðum Íslenskrar getspár til íþróttafélaga, héraðssambanda og sérsambanda ÍSÍ. Við leiðarlok vil ég þakka Þórði ánægjulega samfylgd og minnist með hlýju fjölmargra ferðalaga sem við hjón fórum með Þórði og Svönu konu hans, en þau voru einstaklega samhent. Blessuð sé minning Þórðar Þor- kelssonar. Alfreð Þorsteinsson. Þórður Þorkelsson starfaði með okkur í Odda um langa hríð en þótt formlegu samstarfi hafi lokið fyrir meira en 10 árum, hélt hann alla tíð góðu sambandi við sína fyrrverandi samstarfsmenn og fyrirtækið og var annt um hvort tveggja. Þórður var alltaf einstaklega mikill félagi allra sem hann vann með, vinsæll, virtur og vel metinn enda heiðarlegur og traustur og léttleikinn aldrei langt undan. Þótt formlegu starfi hans lyki fyrir löngu var hann í stöðugu sam- bandi við okkur og kom í heimsókn- ir af og til og fylgdist grannt með fyrirtækinu og sínum gömlu sam- starfsmönnum. Hann var alltaf vel- kominn og öllum þótti vænt um Þórður Þorkelsson Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur i verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Með söknuði ég kveð minn kæra bróður og þakka fyrir langa sam- fylgd sem aldrei bar skugga á. Ragnheiður systir. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.