Morgunblaðið - 30.04.2008, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Kæra Hanna,
Nú er komið að
kveðjustund. Þú kvaddir alltof
snemma. Þvílíkt óréttlæti, kona á
besta aldri tekin í burtu frá yndisleg-
um eiginmanni og tveimur frábærum
börnum, og eftir sitjum við og syrgjum
yndislega, góða og hjartahlýja konu.
Það eru ekki nema þrjú ár síðan þú
greindist með krabbameinið. Þá kom í
ljós hvaða persónu þú hafðir að
geyma, alltaf svo jákvæð og dugleg,
enda var það jákvæðni og þín létta
lund sem einkenndi þig alla tíð. Þú
varst ákveðin strax í upphafi að hafa
betur í baráttunni sem þú og gerðir
þá. Aldrei heyrði ég þig kvarta, styrk-
ur þinn var engu líkur. Áfallið var því
gríðarlegt þegar þú veiktist aftur um
páskana. Þá varð ekki við neitt ráðið.
Lokaorrustan var erfið og þú mikið
veik. En þrátt fyrir það var alltaf stutt
í húmorinn hjá þér.
Elsku Hanna mín, það eru forrétt-
indi að hafa fengið að kynnast þér og
hlúa að þér þar til yfir lauk. Ég á svo
margar yndislegar minningar um þig
sem ég mun varðveita. Það verður svo
tómlegt án þín. Ég sakna þín óskap-
lega.
Elsku Hjalli, Hjalti og Helga. Við
Hinrik og Skúli Freyr vottum ykkur
okkar dýpstu samúð við fráfall ynd-
islegrar eiginkonu og móður og þér
Stína mín við fráfall yndislegrar dótt-
ur.
Kæra Hanna mín, oft töluðum við
um að við hefðum átt að kynnast fyrr
en við gerðum, en héldum að í staðinn
ættum við margt ógert saman, ætl-
uðum okkur að eldast saman og
skemmta okkur í ellinni.
Ég kveð þig með miklum söknuði
og sorg í hjarta en jafnframt þakklæti
fyrir að fá að kynnast þér. Ég mun
ávallt minnast þín og þeirra góðu
stunda sem við fengum saman.
Þín vinkona,
Ásta Skúla.
Þá er Hanna Stína gengin og hug-
urinn reikar aftur til fortíðar að upp-
hafi kynna okkar og atburða liðinna
tíma. Í brjóstinu bærast ólgandi til-
finningar, eftirsjá, tregi, reiði vegna
óréttlætis heimsins og spurningin
vaknar hvers vegna hún, hvers vegna
tekur skaparinn alltaf fyrst sína bestu
menn, langt um aldur fram. Hvers
vegna mega þeir ekki dvelja hér enn
um stund, sjáfum sér og öðrum til
gagns og gamans. Hver er tilgangur
alls þessa. En það eru líka minningar
um gleðilegar samverustundir, ferða-
lög, matarboð og umræður um vanda-
mál heimsins. Og tímarnir hafa verið
tvennir á liðnum áratugum, nóg að
ræða um. Minningar um hjartahlýjan,
glaðværan, félagslyndan fagurkera
með nýja sýn á lífið, annað sjónar-
horn, ákveðinn í skoðunum og mein-
ingu sinni trúr. Ekki gat farið hjá því
að umræður yrðu líflegar og skoðana-
skipti mikil.
Og upphafið var eitthvað á þá leið
að Hjálmar, bekkjarbróðir og félagi
okkar, sem þykir manna glæsilegast-
Jóhanna Kr.
Ragnarsdóttir
✝ Jóhanna KristínRagnarsdóttir
(Hanna Stína) hár-
greiðslumeistari
fæddist í Neskaup-
stað 3. febrúar 1961.
Hún lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 11. apríl síð-
astliðinn og var
jarðsungin frá
Hafnarfjarð-
arkirkju 25. apríl.
ur á velli, fór austur á
sjóinn. Hann réð sig á
Barðann í sumarfríum
frá skólanum og dvald-
ist því á Neskaupstað
þegar hann var ekki á
sjó. Það hlaut að fara
svo að hann drægist að
hvað besta kvenkosti
staðarins og svo fór að
Hanna Stína slóst í för
og var kynnt suður í
Hafnarfirði. Tóku nú
við ár glaðværs skóla-
fólks sem eyddi frí-
stundum sínum í ferða-
lög, heimsóknir hvert hjá öðru og
umræður um landsins gagn og nauð-
synjar en ekki síst um pólitík, um-
hverfismál og tilgang lífsins. Seinna
skildi leiðir er Hanna Stína og Hjálm-
ar fluttu austur á Neskaupstað og við
í aðrar áttir. Sambandinu var haldið
með bréfa- og kortaskrifum á tímum
þegar ekkert var tölvunetið og símtöl
svo dýr að nota varð sparlega. Úr
rættist þegar Hafnarfjörður varð
okkar samastaður á ný þótt þráður-
inn næði landshorna á milli í bókstaf-
legustu merkingu þeirra orða. Nýir
tímar voru að ganga í garð með auð-
veldari samskiptum. Enn rættist úr
er Hanna Stína og Hjálmar fluttu aft-
ur í Hafnarfjörð og fjarlægðir minni.
Í umræðum komu skýrt fram skoð-
anir Hönnu Stínu, hún lá ekki á þeim
og stóð fast á þeim. Hún var ákveðinn
mannvinur, vildi bæta hag þeirra sem
minna máttu sín og var umhverfis-
sinni. Á tímum þegar Neskaupstaður
var kallaður litla Moskva og kalda
stríðið í algleymi var hún gagnrýnin á
stefnu Vesturlanda þótt ekki tæki
hún upp hanskann fyrir Sovétríkin.
Umhverfismál voru einnig ofarlega á
baugi og þá tengd við neysluvenjur
okkar Vesturlandabúa sem kunnum
okkur ekki hóf og kaupum bíla og
annan varning án umhugsunar um
áhrif á umhverfið eða efnahag þriðja
heims þjóða.
Hanna Stína var því ekki bara góð-
ur félagi, hún skilur eftir sig minn-
ingar um mannvin, góðan viðræðu-
félaga og hjartahlýju sem leitun er á.
Hún skilur einnig eftir sig tvö mynd-
arleg börn sem greinilega hafa margt
frá henni fengið og varðveita hennar
góðu rúnir í orðum og æði.
Á kveðjustund er samúð okkar öll
hjá Hjalla og börnunum. Megi þau
ganga á guðs vegum.
Þórður, Halldóra, Helgi, Pétur
og Anna Stína.
Kæra vinkona! Það er erfitt að trúa
því að ég setjist nú niður til að skrifa
nokkur orð til minningar um þig. Að
þú sért nú horfin frá okkur sem eftir
erum, er erfitt að sætta sig við. Þú
varst alltaf svo bjartsýn og viss um að
þú myndir sigrast á og hafa betur í
baráttu við þennan illvíga sjúkdóm
sem hrjáði þig síðustu árin og hefur
nú haft betur. Þetta lýsir þér þó vel
því þú varst alltaf svo bjartsýn, von-
góð og aldrei var neinn barlóm hjá
þér að heyra,tókst með æðruleysi og
hugrekki á við það sem fylgir slíkum
sjúkdómi.
Það eru margar minningar sem
hafa komið upp í hugann síðustu daga
um samveru okkar, minningar sem
ekki munu gleymast og verða huggun
um ókomna tíð.
Við urðum strax góðar vinkonur
sem börn. Þú komst með gleði og
óendanlega uppsprettu af allskyns
uppátækjum inn í tilveru mína í sveit-
inni. Svo fékk ég líka að vera mikið
samvistum við þig hjá foreldrum þín-
um sem alltaf tóku mér opnum örm-
um og þar var ég ávallt velkomin og
fannst ég vera aufúsugestur. Þegar
ég hugsa til baka get ég ekki munað
að við höfum látið okkur leiðast, þar
skipti miklu að þú varst ótrúlega
uppátækjasöm og ýmislegt var fundið
sér til gamans. Við höfum líka oft í
seinni tíð hlegið að því sem við fund-
um okkur til afþreyingar.
Það var mínu fólki öllu mikil
ánægja að hafa þig hjá okkur og þú
varst okkur mjög kær. Ekki var það
kannski alltaf það sem þótti viðeig-
andi og gott eitt sem við gerðum og
foreldrar okkar voru sjálfsagt stund-
um áhyggjufullir. En þannig er nú að
vera barn og unglingur, maður gerir
stundum annað en það sem gott er.
Þegar við urðum eldri urðu sam-
skipti okkar minni, en sú vinátta sem
við bundumst sem börn var alltaf til
staðar. Þegar ég flutti til útlanda, þar
sem ég hef að mestu búið undanfarin
ár, gat ég alltaf haft samband og kom-
ið og hitt þig, án þess að hafa að því
aðdraganda. Það var mér mikils virði,
því að oft rofna tengsl og jafnvel miss-
ir maður alveg samband við vini sína.
Alltaf var jafn gefandi og gaman að
hitta þig. Þú áttir svo ótrúlega mikið
að gefa af þér, varst svo hlý og hafðir
einstaka samskiptahæfileika. Ég vildi
svo gjarnan hafa átt meiri samveru
með þér en þá sem raun var og nú síð-
ustu daga hefur mér orðið ljósara hve
lífið og hver dagur þess er dýrmætur.
Það er mikilvægt að njóta hvers
augnabliks og gleðjast yfir því sem
það hefur upp á að bjóða.
Það væri of langt að telja upp minn-
ingar sem hafa komið upp í hugann
þegar ég hef verið að skoða myndir og
annað sem við höfum átt saman. Þær
mun ég geyma með mér. Ég rakst þó
á miningarbókina mína sem þú hafðir
skrifað í og þar á meðal þessa vísu
Skáld-Rósu.
Augun mín og augun þín
ó! þá fögru steina.
Mitt er þitt og þitt er mitt,
þú veist hvað ég meina.
Ég vil senda Hjalla, Hjalta, Helgu,
Stínu og öðrum aðstandendum mínar
bestu samúðarkveðjur.
Minningin um þig mun lifa áfram.
Besta kveðja að austan
Friðný Helga Þorláksdóttir (Fía).
Það er sárt að þurfa að kveðja
Hönnu Stínu nú þegar náttúran er að
vakna eftir veturinn og birtan varpar
ljósi á fegurðina sem vorið kemur
með. Hún minnti sjálf alltaf dálítið á
vorið með sinni léttu lund og jákvæðu
afstöðu.
Kynni okkar hófust þegar hún
kynntist eftirlifandi eiginmanni sín-
um, Hjálmari Kristinssyni, sem á ætt-
ir að rekja til Norðfjarðar. Hann hafði
sem barn hlustað á ömmu sína, Helgu
Hjálmarsdóttur frá Ekru á Norðfirði,
segja sögur frá æskustöðvum sínum
og í þeim sögum var sannarlega bjart
yfir Norðfirði og þar bjó aðeins úrvals
fólk. Það má því segja að það hafi
glatt fjölskylduna, sem öll var flutt á
mölina, að fá aftur tengingu við
heimahagana á Austurlandi. Þau
Hanna Stína stofnuðu heimili á Norð-
firði og Hjálmar varð fljótt mikill
Norðfirðingur í sér og þar fæddust
börnin þeirra, Hjalti og Helga.
Hjálmar var ekki sá eini úr fjöl-
skyldunni, sem náði tengingu við upp-
runann fyrir austan. Synir okkur áttu
þess einnig kost að dvelja hjá þeim
sumarlangt og minnast þeir þess með
gleði og þakklæti. Það var ekki síst
gestrisni Hönnu Stínu að þakka, en
hún var boðin og búin að opna heim-
ilið fyrir borgarbörnunum og gefa
þeim innsýn í bæjarbraginn, þar sem
allir þekkjast og eru tilbúnir að gefa
af sér og greiða fyrir náunganum.
Hjálmar hafði þegar kynnst sorg-
inni er hann hitti Hönnu Stínu, en
hann var aðeins 17 ára þegar móðir
hans dó eftir erfið veikindi. Það eru
því ótrúleg örlög að hann skuli nú sjá
á bak eiginkonu sinni, sem var búin að
berjast við sjúkdóminn og virtist á
tímabili ætla að hafa betur.
Elsku Hjálmar, Hjalti, Helga og
Kristín, megi bjartar minningar um
Hönnu Stínu veita ykkur og öðrum
ástvinum styrk á þessari erfiðu
stundu.
Örn og Bjarney.
Elsku Hanna mín. Það er alveg
ótrúlegt hvað sjúkdómurinn tók þig
hratt. Ég vil þakka þér fyrir þau frá-
bæru kynni sem við áttum síðastliðin
tuttugu og fimm ár. Okkar kynni hóf-
ust þegar ég kom með Eddu Guðrúnu
í heimsókn á Svalbarðið og kynnti
hún okkur þar. Strax fannst mér þú
svo skemmtilegur karakter og heill-
aðist ég mikið af frásagnargleði þinni.
Mér fannst þú svo veraldarvön að
hafa farið til Danmerkur í Lýðháskól-
ann sem þú sagðir okkur sögur af.
Það var fyrir þína tilstuðlan að ég fór
að læra hárgreiðslu fimmtán ára
gömul og komst að sem nemi á hár-
greiðslustofunni Carmen þar sem þú
varst nemi líka. Við áttum svo sann-
arlega skemmtileg ár saman þar.
Einnig vil ég þakka þér fyrir alla að-
stoðina sem þú veittir okkur Jónu
Draumeyju þegar hún fór í gegnum
sitt próf í hárgreiðslu. Þér fannst ekk-
ert mál að koma og hjálpa til.
Elsku Stína, Hjalli, Hjalti, Helga
og fjölskyldur, megi Guð styrkja ykk-
ur á þessum erfiðu tímum.
Þórey Erla Gísladóttir.
Nú er komið að kveðjustund.
Margt kemur upp í huga minn þegar
mín góða vinkona og samstarfskona
til margra ára kveður. Ekki grunaði
mig að það myndi gerast svo snögg-
lega. Hanna var ung í blóma lífsins og
átti eftir að gera svo margt.
Það ríkti alltaf gleði þar sem Hanna
var og húmorinn aldrei langt undan.
Hún hafði sterkan persónuleika og
var jákvæð, glaðleg og góð. Það var
þægilegt að leita til hennar og hún
hafði lag á að sjá jákvæðar hliðar á
hlutunum.
Henni gekk mjög vel í sínu fagi og
samskiptum við annað fólk. Það líkaði
öllum vel við Hönnu. Við eyddum
ófáum stundum saman í vinnu og ut-
an. Ég minnist ferða okkar til London
þar sem við sóttum nokkrar saman
námskeið. Það var mikið hlegið enda
hafði Hanna sérstakt lag á að sjá
spaugilegar hliðar lífsins.
Guðrún Hanna biður fyrir bestu
kveðjur til fjölskyldunnar. Hún minn-
ist Þórsmerkurferðar sem við fórum
með Hönnu og Hjalla fyrir meira en
tuttugu árum. Fólk hændist auðveld-
lega að Hönnu og tengslin sem mynd-
uðust rofnuðu aldrei.
Ég, Björgvin, Kolla og Guðrún
Hanna sendum Stínu, Hjalla og fjöl-
skyldu okkar innilegustu samúðar-
kveðjur á þessum erfiða tíma.
Selma Jónsdóttir.
Elsku Hanna.
Það er erfitt til þess að hugsa að þú
verðir ekki hér á meðal okkar áfram.
Sumarið ’84 þá 12 ára gömul hófust
okkar kynni. Þú ætlaðir að setja upp
stofu í Neskaupstað og vantaði barna-
píu. Úr varð að ég fór með ykkur
austur. Mér leið svo vel hjá ykkur því
að þið höfðuð það sameiginlegt að
gefa frá ykkur gleði og góða nærveru.
Þetta er mér minnisstætt, því þetta
var í fyrsta sinn sem ég fór lengi frá
foreldrum mínum og kveið ég því. En
þetta varð allt svo eðlilegt og síðan þá
hefur mér fundist ég vera partur af
ykkur.
Leiðir lágu aftur saman árið ’02
þegar við urðum vinnufélagar á Car-
men. Þar gafst mér tækifæri á að
kynnast þér betur, bæði sem fag-
manneskju og persónu. Skynbragð
þitt á öllu því sem tengdust hönnun og
tísku var mikið og þú drakkst í þig all-
ar nýjungar tengdar faginu af mikilli
ástríðu og áhuga.
Árið eftir gerðumst við meðlimir í
Intercoiffure á Íslandi, sem okkur
þótti mikill heiður að. Mér fannst ég
svo heppin að fá að vinna meira með
þér því ég leit mikið upp til þín sem
fagmanneskju. Þau voru mörg kvöld-
in sem við veltum fyrir okkur nýjung-
um í faginu. Man ég sérstaklega eftir
því þegar við vorum fengnar til að
kynna nýjar línur á námskeiði á veg-
um Intercoiffure. Það var alltaf svo
gaman að heyra þig lýsa klippiaðferð-
um. Þú gerðir allt svo skemmtilegt og
komst ávallt með góða punkta. Þú
hefur kennt mér svo margt, jafnt í
faginu sem og lífinu.
Þegar þú fluttist suður aftur urðum
við nágrannar, svona geta örlögin nú
verið. Það var svo notalegt að sitja við
eldhúsgluggann með börnunum á
morgnana og sjá ykkur Hjalla koma
úr morgungöngunni af Víðistaðatúni
sem þið gerðuð alla morgna saman.
Þið veifuðuð til okkar í glugganum,
alltaf svo glöð. Það var svo aðdáun-
arvert að sjá hversu samhent þið vor-
uð í einu og öllu, miklir vinir og virð-
ingin, kærleikurinn og ástin fannst og
sást langar leiðir. Þannig eru góð
hjónabönd. Þið eignuðust tvö börn,
Hjalta og Helgu, sem nú hafa misst
mikið. Það er gott veganesti fyrir þau
að hafa fengið þennan dýrmæta tíma
með mömmu og pabba saman og
minningin um yndislega móður sem
gerði allt af einlægni, ást og um-
hyggju mun hjálpa þeim í framtíðinni.
Lífið gengur í hringi eins og stund-
um er sagt. Ég byrjaði að passa fyrir
þig og þegar ég svo eignast hann Ein-
ar Örn minn, fékk ég Helgu, dóttur
þína, til að passa fyrir mig. Enda hef-
ur hún alveg einstakt lag á börnum.
Svo eignast ég Emilíu fyrir um 5 ár-
um og á Helga í þeim hvert bein. Oft
kom það fyrir að börnin fóru í heim-
sókn til Hönnu, þá var sko aldeilis
dekrað við þau. Já, já, bara eins og að
vera hjá ömmu. Ég er svo þakklát og
glöð fyrir að börnin mín fengu að
kynnast þér. Þau sakna þín sárt og
eru alveg viss um það að þú sért hjá
guði og englunum og búin að hitta
Einar afa. Hann tekur á móti þér opn-
um örmum, það erum við viss um.
Hanna mín.Takk fyrir þennan dýr-
mæta tíma. Þín verður sárt saknað.
Elsku Hjalli, Hjalti og Helga. Megi
góður guð styrkja ykkur og varðveita
um ókomna framtíð og votta ég ykkur
og fjölskyldunni allri mína dýpstu
samúð.
Sigríður Margrét
Einarsdóttir (Sirrý).
Elsku Hanna mín.
Mér er þetta svo erfitt að setjast
niður og minnast þín, okkar fyrstu
kynni voru er þú og Hjalli komuð til
mín á Carmen haustið ’81. Þú sóttir
um að komast á samning hjá mér í
hársnyrtiiðn. Það var ekki spurning
að minni hálfu, þú varst ráðin á staðn-
um og byrjaðir strax næsta dag. Það
kom strax í ljós hvaða mann þú hafðir
að geyma, bæði sem fagmanneskja,
einstaklega hlý og jákvæð og húm-
orinn var aldrei langt undan. Það er
svo margs að minnast, elsku vina.
Ég byrja á þegar við mættum í
Neskaupstað ég, Þórey, Selma og
fleiri í brúðkaup ykkar Hjalla sem var
yndislegur dagur. Þið voruð höfðingj-
ar heim að sækja eins og reyndar fjöl-
skyldan öll sem þarf nú að sjá á eftir
þér langt fyrir aldur fram. Alltaf vor-
um við í góðu sambandi þó að þú vær-
ir búin að opna stofu í Neskaupstað.
Þú fylgdist vel með öllu sem snerti
tísku og varst fljót að tileinka þér nýj-
ungar á öllum sviðum. Þú varst frá-
bær fagmaður, enda fórst þú að
kenna í Verkmenntaskóla Austur-
lands og opnaðir síðar stofu á Egil-
stöðum. Þú varst með hárgreiðslu-
sýningar, námskeið og greiddir
fegurðardrottningum svo ekki sé
meira sagt.
Kaflaskipti urðu í ykkar lífi þegar
þið fjölskyldan ákváðuð að flytja aftur
suður árið 2000. Hanna mín. Mikið
var gaman að fá þig til liðs við okkur á
Carmen 2002 eftir þá 21 ár ásamt
Selmu, því það voruð nú þið tvær sem
byrjuðu með mér ’81. Það var mikið í
gangi hjá okkur, að miðla, deila, fram-
kvæma og skiptast á skoðunum um
allt sem sneri að hári og tísku. Það var
oft hlegið, því alltaf var stutt í húm-
orinn hjá okkur.
Árið 2002 gerðist þú meðlimur í
Við samstarfsmenn og eig-
endur Aríu viljum þakka
Hönnu Stínu innilega sam-
starfið sem var gott en allt of
stutt. Hanna var einstök
kona, jákvæð, þægileg og allt-
af stutt í gleðina hjá henni.
Verður hennar sárt saknað.
Við sendum fjölskyldu
hennar okkar innilegustu
samúðarkveðjur með von um
að minning um yndislega
konu hjálpi þeim á sorg-
artíma.
Kristín, Edda og Íris.
HINSTA KVEÐJA
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919