Morgunblaðið - 30.04.2008, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG VERÐ AÐ HÆTTA AÐ
BORÐA KLEINUHRINGI
KLEINU-
HRINGIRNIR
ERU BÚNIR
JÁ... HVAÐ
ÆTLAR ÞÚ
AÐ GERA
Í ÞVÍ?
ÉG ER
MEÐ
TILLÖGU
Á ÉG EKKI AÐ FINNA
EITTHVAÐ Í STAÐINN
FYRIR TEPPIÐ ÞITT?
KANNSKI VISKUSTYKKI
EÐA EITTHVAÐ
MUNDIR ÞÚ GEFA SVELTANDI
HUNDI GÚMMÍBEIN?
STUNDUM
ER
HEIMUR-
INN SVO
DIMMUR OG
LEIÐIN-
LEGUR
ÞESS VEGNA
ERU DÝR
SVONA
MJÚK OG
KRÚTTLEG
JÁ...
LÆKNIR, HVAÐ
ER AÐ MÉR?
ÞÚ DREKKUR OF MIKIÐ, ÞÚ BORÐAR OF MIKIÐ, ÞÚ
ERT LÁVAXINN, ÞÚ ERT ANDFÚLL, ÞÚ SEFUR EKKI
NÓG, ÞÚ HREYFIR ÞIG ALDREI, ÞÚ ERT MEÐ
SLÆM HNÉ, ÓNÝTT BAK, ÞÚ ÞARFT AÐ FÁ ÞÉR
GLERAUGU, ÞÚ ERT AÐ VERÐA HEYRNALAUS,
HÁRIÐ Á ÞÉR ER SKÍTUGT OG ÞÚ ERT MEÐ FLÖSU
GETUR ÞÚ NOKKUÐ SKRIFAÐ
UPP Á EITTHVAÐ FYRIR MIG?
MÉR TÓKST
ÞAÐ! MÉR TÓKST
AÐ LIFA AF ÚTI
Í NÁTTÚRUNNI
TIL
HAMINGJU
ÉG ER BETRI
HUNDUR FYRIR
VIKIÐ! ÉG ER
HARÐARI! ÉG ER
HUNDUR! ALVÖRU
HUNDUR!
HVERT
ERTU AÐ
FARA?
ÞAÐ ER ALLT
OF LANGT
SÍÐAN ÉG
ÞURRKAÐI AF
DÚKKUSAFN-
INU MÍNU
VARST ÞÚ Í
ÞESSUM SKÓLA?
NEI, ÉG ER
BARA MAKI
ÉG LÍKA!
KONAN MÍN
VAR
ROSALEGA
HRÆDD VIÐ
AÐ KOMA
HINGAÐ
MÍN LÍKA! ÞAÐ
ER ÓTRÚLEGT
HVAÐ ÞEIM
FINNST
MIKILVÆGT AÐ
LÍTA VEL ÚT FYRIR
ÞETTA FÓLK
FÓRST ÞÚ
Á SVONA
SAMKOMU HJÁ
SKÓLANUM
ÞÍNUM?
TIL AÐ LEYFA
ÞEIM AÐ SITJA
OG DÆMA MIG?
KEMUR EKKI TIL
GREINA!
HVERNIG
VISSIR ÞÚ AÐ
M.J. VÆRI
VIÐ TÖKUR
HÉRNA?
MEIRA AÐ
SEGJA MENN
MEÐ ARMA
GETA LESIÐ
BLÖÐIN
HÚN LÍTUR ANSI VEL
ÚT Í MARVELLU
BÚNINGNUM SÍNUM
EN HÚN Á EFTIR AÐ
LÆRA AÐ ÞAÐ ÞARF
MEIRA EN BÚNING
TIL ÞESS AÐ VERÐA
OFURHETJA
dagbók|velvakandi
Óréttlæti
ÉG las um daginn forsíðugrein í DV
þar sem fjallað var ýtarlega um fá-
tæktina á Íslandi. Svo sannarlega er
það rétt að margir eiga mjög erfitt
með að ná endum saman og lifa við
stöðugar fjárhagsáhyggjur. Finnst
mörgum það líka niðurlægjandi að
þurfa að leita til hjálparstofnana en
eiga því miður ekki annarra kosta völ.
Í DV 28. apríl er forsíðugreinin um
ólíka hluti, þar er fjallað um laun
þeirra sem stjórnað hafa landi okkar.
Þar er sagt meðal annars að einn hafi
tvöfaldað eftirlaun sín og þetta sé svo
sniðið að ferli annarra. Mikið er þetta
óréttlátt.
Það er skelfileg misskipting sem
orðin er í þessu samfélagi okkar og
þeir sem þiggja laun úr hendi skatt-
greiðenda hafa lítið vilja gera til þess
að rétta hlut hinna lægst launuðu, t.d.
eldri borgara og öryrkja. Þetta fólk
fékk aðeins 4% hækkun um síðustu
mánaðamót og sagt er að það vanti
10.000 kr upp á til að ná kjarasamn-
ingum. Ég vil bara ekki trúa öðru en
að ríkistjórnin leiðrétti þetta sem
allra fyrst, annars ættum við að
hugsa okkur vel um fyrir næstu
kostningar.
Sigrún Reynisdóttir
Landspítali
háskólaskjúkrahús
ÉG vil benda stjórnendum Landspít-
alans á að lesa viðtalið sem birtist
þann 25. apríl í Morgunblaðinu. Þetta
er viðtal við Björn Flygering hjarta-
skurðlækni, en hann er yfirlæknir við
sjúkrahúsið í Boston. Hann segir
meðal annars: „Ef breytingar eiga að
takast, þá verður að fara fyrir slíkum
breytingum góður leiðtogi og að
starfsfólk trúi á breytinguna. Breyt-
ingin má ekki aðeins koma ofan frá,
hún verður einnig að koma neðan frá.
Þannig höfum við reynt að vinna og
ég tel það ástæðuna fyrir því að okk-
ur hafi farnast svo vel sem raun ber
vitni. Við reynum að virkja alla og fá
allt starfsfólkið til að taka þátt. Það
skiptir mjög miklu máli að fólk finni
að á það sé hlustað og að það hafi eit-
hvað að segja um hvernig hlutirnir
þróast og að skoðun þess skipti máli.
Sé fólki aðeins skipað fyrir fær það á
tilfininguna að því sé ekki treyst og
að breytingar gerðar samkvæmt slík-
um vinnubrögðum eru dæmdar til að
mistakast.“
Mér finnst viðtalið við Björn vera
góð lexía fyrir yfirstjórnendur Land-
spítalans.
Skurð- og svæfingahjúkrunarfræð-
ingum sendi ég baráttukveðjur.
Hrönn Jónsdóttir
Geðhjúkrunarfræðingur á
eftirlaunum
Lyklakippa fannst
STÓR lyklakippa fannst á planinu við
Nauthólsvík sl. sunnudagsmorgun
27. april. Eigandinn getur fengið upp-
lýsingar í síma 691-4024
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞAÐ er róandi að hlusta á gutlið í sjónum og horfa á ruggandi smábátana,
þessi hundur hefur látið það eftir sér að fá sér blund á bryggjunni og er
ekkert að flýta sér.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Rólegheit við höfnina
LÖGREGLUMESSA verður í Lang-
holtskirkju á uppstigningardag og
hefst kl. 11 en þetta er í 15. sinn sem
sérstök lögreglumessa er haldin.
Við messuna munu sr. Hans
Markús Hafsteinsson, héraðs-
prestur og fyrrverandi lög-
reglumaður, og sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson, sjúkrahúsprestur
og prestur lögreglunnar, þjóna fyr-
ir altari. Ræðumaður verður Snorri
Magnússon, nýkjörinn formaður
Landssambands lögreglumanna,
Lögreglukórinn syngur undir
stjórn Guðlaugs Viktorssonar. Org-
anisti verður Jón Stefánsson.
Starfsfólk lögreglunnar les ritning-
arorð.
Að guðsþjónustunni lokinni býð-
ur Lögreglukórinn til kirkjukaffis.
Almenningur er hvattur til að
mæta í messuna.
Lögreglu-
messa á upp-
stigningardag
FRÉTTIR
BIFHJÓLASAMTÖK lýðveldisins,
Sniglarnir, efna til stærstu hóp-
keyrslu ársins 1. maí. Mæting verður
á plani Marels, Austurhrauni 9,
Garðabæ, kl. 13.30 og lagt af stað kl.
14.30.
Ekið verður frá Marel út á
Reykjanesbrautina. Þaðan liggur
leiðin inn á Sæbraut. Keyrslunni lýk-
ur á nýju bryggjunni beint á móti
Viðey, nánar tiltekið á Skarfabakka.
Fjölbreytt dagskrá verður á veg-
um Snigla á endastöð.
Vegfarendur eru beðnir að taka
tillit til bifhjólafólks á þessari leið á
milli kl.14.30 og 15.30 þann 1. maí.
Allt bifhjólafólk hvatt til að mæta
og taka þátt í að setja enn eitt Ís-
landsmetið í hópkeyrslu.
Hópkeyrsla
Snigla á morgun
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Varmársamtakanna verður haldinn
í Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna
hinn 8. maí nk. kl. 20.30.
Á dagskrá fundarins er tillaga að
lagabreytingu og kosning í stjórn.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að þeir sem áhuga hafa á að starfa í
stjórn samtakanna þurfi að til-
kynna framboð sitt í síðasta lagi
einum sólarhring fyrir fundinn.
Sama gildir um þá sem vilja gerast
félagar. Áður en aðalfundur hefst
mun fulltrúi frá Mosfellsbæ segja
frá undirbúningi að nýju miðbæj-
arskipulagi. Gert er ráð fyrir al-
mennum umræðum um skipulagið
að lokinni kynningu.
Varmársamtökin voru stofnuð 8.
maí 2006 í þeim tilgangi að standa
vörð um útivistarsvæði og sögu-
legar minjar á bökkum Varmár en
auk þess eru samtökin hugsuð sem
vettvangur íbúa til að taka þátt í
mótun bæjarfélagsins. Nánari upp-
lýsingar er að finna á blogginu
www.varmarsamtokin.blog.is
Framhaldsaðal-
fundur Varmár-
samtakanna