Morgunblaðið - 30.04.2008, Page 44
■ Fim 8. maí kl. 19.30
PPP áttræður
Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í
þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan
með þessum tónleikum þar sem einn athyglisverðasti ungi sellisti
heims leikur dásamlegan sellókonsert Schumanns. Þá er á efnis-
skránni hin magnaða fimmta sinfónía Mahlers auk verks eftir afmælis-
barnið. Hljómsveitarstjóri: Rumon Gamba. Einleikari: Danjulo Ishizaka
Missið ekki af tónleikakynningu Vinafélags SÍ. Súpa og fyrirlestur á
Hótel Sögu kl. 18. Aðeins 1.200 kr. Allir velkomnir.
■ Fim. 15. maí kl. 19.30
Swingle Singers – frá Bach til Bítlanna Hinn heimsþekkti
sönghópur Swingle Singers mætir með efnisskrá sem spannar allt
sviðið. Tónleikar sem söngunnendur vilja ekki missa af.
■ Lau. 17. maí kl. 14.
Maxi snýr aftur! Vegna fjölda áskorana og mikilla vinsælda
bókarinnar um Maxímús Músíkús verður þetta stórkostlega ævintýri
endurflutt. Tryggið ykkur miða!Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Ég vissi ekki hver
hann var fyrr en ég
heyrði að hann hefði verið
að drulla yfir mig … 49
»
reykjavíkreykjavík
ÞAÐ eru ekki einatt hinir stóru
hljómleikahaldarar sem barma sér
um þessar mundir undan hruni
krónunnar. Smærri innflytjendur á
borð við þá sem flytja inn einn og
einn plötusnúð finna fyrir geng-
islækkuninni á eigin skinni og svo er
komið að töluvert fleiri miða þarf að
selja inn á hvert ball svo það standi
undir sér. Þó skal ekki vanmeta þá
sem standa í þessum bransa því oft-
ar en ekki hafa þeir hugsjónina eina
að leiðarljósi og brennandi áhugann
á tónlist.
Eins og flestir vita er von á plötu-
snúðnum og hljóðblandaranum Eric
Prydz hingað til lands í næst mánuði
(17. maí). Undanfarna daga hefur
sérstakt tilboðsverð verið í boði á
ballið sem haldið verður á Broadway
en síðasti dagur tilboðsins verður í
dag. Tónleikahaldarar biðla því auð-
mjúklega til allra dansfíkla um að
skella sér niður á Broadway milli kl.
13 og 17 og útvega sér miða á 3.000
krónur í stað 4.000 krónur. Einnig er
hægt að nálgast miða á midi.is.
Eric Prydz á afslætti
Eric Prydz Lagið „Call On Me“ verður án efa spilað á Broadway.
Svo virðist sem
sjónvarpsáhorf
landsmanna
minnki með
hækkandi sól ef
marka má síðustu
mælingar Capa-
cent á sjónvarpsáhorfi. Allir helstu
dagskrárliðir Sjónvarpsins tapa
áhorfi og skiptir þá engu hvort
horft er til Spaugstofunnar sívin-
sælu, Sunnudagskvölds Evu Maríu
eða Útsvars.
Sömu sögu er að segja um helstu
dagskrárliði Skjás eins. Top Gear
sem maður hefði haldið að ætti sér
stöðugan áhorfendahóp, hrapar úr
23,8% áhorfi í aldurshópnum 12–80
ára niður í 16,5%.
Hins vegar hefur spennan í Am-
erican Idol á Stöð 2 fært áhorfið
upp á við um rúm 2% og rúmlega
1% aukning var á áhorfi á úr-
slitaþátt Bandsins hans Bubba. Um
er að ræða tvo vinsælustu þætti
Stöðvar 2 vikuna 14.–20 apríl og því
fróðlegt að sjá hvað dagskrárstjóri
Stöðvar 2 tekur til bragðs þegar
American Idol sleppir.
Sumar og sól eitur í
beinum dagskrárstjóra
Hinn gamalreyndi stórleikari
Jóhann Sigurðarson hefur ákveð-
ið að söðla um, og hefur hann nú
verið fastráðinn sem leikari við
Borgarleikhúsið. Jóhann hefur
verið fastráðinn hjá Þjóðleikhús-
inu síðan 1986 og því um nokkur
tímamót að ræða. Jóhann hefur
leikið fjölmörg hlutverk á sviði, en
einnig í kvikmyndum á borð við
Óðal feðranna, Eins og skepnan
deyr, Tár úr steini og 101 Reykja-
vík. Jóhann er fimmti leikarinn
sem er fastráðinn hjá LR frá því
Magnús Geir Þórðarson var skip-
aður leikhússtjóri leikfélagsins.
Jói stóri til LR
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG ætlaði að hefja tökur um síðustu jól, en svo
frestuðust þær af þeirri einu ástæðu sem bíó-
myndir frestast,“ segir kvikmyndagerðarmað-
urinn Hilmar Oddsson um sitt næsta verkefni,
jólamynd sem hefur hlotið vinnuheitið Hátíð í bæ
eftir samnefndu jólalagi. Unnið er að fjár-
mögnun fyrir myndina, sem að sögn Hilmars
gengur nokkuð vel, og stefnir hann að því að
hefja tökur fyrir næstu jól.
„Ég er svolítið búinn að mála mig út í horn
vegna þess að ég verð að taka myndina um jól.
Ég þarf sem sagt Reykjavík í jólaljósunum og vil
þess vegna taka hana í nóvember, desember og
janúar,“ útskýrir leikstjórinn.
Handrit myndarinnar skrifar Páll Kristinn
Pálsson, en það er byggt á hugmynd Páls og
Hilmars.
„Þetta er mynd um basl, en samt á kómískum
nótum. Það er aðeins verið að fjalla um að það
geta ekki allir haldið eins jól og þeir vilja, þannig
að þessi mynd er gagnrýnin, en um leið hugljúf.
En þetta er samt ekki tragedía því ég fer ekki þá
leið. Sögnin í myndinni er frekar uppbyggileg,
ég er ekki að draga fólk niður heldur frekar að
reyna að peppa það upp.“
Mætti þá kannski segja að þarna verði á ferð-
inni grátbrosleg fjölskyldumynd? „Já kannski,
en þó ekki „a la Disney“. En hún verður örugg-
lega ekki bönnuð börnum,“ segir Hilmar og bæt-
ir því við að tónlistin verði fyrirferðarmikil í
myndinni, því bæði vinni aðalpersónan við tón-
list, auk þess sem íslensk jólatónlist verði að
sjálfsögðu i fyrirrúmi.
„Við ætlum sem sagt að reyna að mynda
mannlega, grátbroslega, íslenska jólamynd.
Reykjavík er líka einstök yfir jólin, og það skipt-
ir engu máli hvort það verður snjór eða ekki.“
Gerir mynd um Dieter Roth
Það er því allt útlit fyrir að Hilmar muni gera
fyrstu íslensku jólamyndina í fullri lengd, en fjöl-
margar slíkar hafa verið gerðar vestur í Holly-
wood, og nægir þar að nefna National Lampo-
on’s Christmas Vacation sem fjölmargir
Íslendingar horfa á hver einustu jól. „Það væri
algjör draumur, ef hún næði slíkum stalli,“ segir
Hilmar um sína mynd.
Hvað leikarana varðar segist Hilmar ekki bú-
inn að ráða í helstu hlutverk, þó hann sé nú þeg-
ar með ákveðnar hugmyndir í kollinum.
Áður en að gerð jólamyndar Hilmars kemur
mun hann hins vegar frumsýna heimildarmynd
um myndlistarmanninn Dieter Roth. Um er að
ræða 105 mínútna langa mynd sem hann hefur
unnið að síðan 2004. Myndin verður sýnd í Sjón-
varpinu áður en langt um líður, en verður þó lík-
lega frumsýnd í kvikmyndahúsi fyrst.
„Það getur vel verið að við reynum líka að
koma henni á framfæri erlendis því Dieter Roth
er eitt af 100 stærstu nöfnum í myndlist í heim-
inum,“ segir Hilmar sem er bæði höfundur og
leikstjóri myndarinnar. „Hún er gerð á svolítið
persónulegum nótum vegna þess að ég þekkti
hann alla mína ævi því hann var giftur föð-
ursystur minni. Þannig að þetta er ekki hlutlaus
úttekt heldur er ég að gera hana sem maður sem
þekkti hann.“
Hilmar á fjórar kvikmyndir í fullri lengd að
baki: Eins og skepnan deyr (1986), Tár úr steini
(1995), Sporlaust (1998) og Kaldaljós (2004).
Hátíð Hilmars í bíó
Hilmar Oddsson er með fyrstu íslensku jólamyndina í fullri lengd í bígerð
Morgunblaðið/Jim Smart
Verðlaun Hilmar tekur við Eddu-verðlaununum fyrir kvikmynd sína Kaldaljós árið 2004.