Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNESAR SÖLVA SIGURÐSSONAR
fyrrum bónda að Skálá,
Vogatungu 69,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 13-G,
Landspítalanum við Hringbraut.
Halldóra Ólafsdóttir,
G. Sigurður Jóhannesson,
Björn Jóhannesson, Eva Hjaltadóttir,
Rannveig María Jóhannesdóttir, Árni Guðni Einarsson,
Guðbjörg Sólveig Jóhannesdóttir,
Ólafur Ágúst Jóhannesson, Kirsten Winum Hansen,
Ingimar Þór Jóhannesson, Tinna Manswell Stefánsdóttir,
Jóhanna Lind Ásgeirsdóttir, Jón Stefánsson,
Kristín Jóhannesdóttir, Sigurjón Snær Friðriksson,
afabörn og langafabörn.
Englasteinar
Helluhrauni 10
Sími 565 2566 - www.englasteinar.is
Fallegir legsteinar
á góðu verði
✝
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
RAGNHILDAR SVEINBJARNARDÓTTUR,
Lambey,
Fljótshlíð,
sem lést laugardaginn 19. apríl.
Sérstakar þakkir til lækna hennar og hjúkrunarfólks.
Jón Kristinsson,
Guðbjörg Jónsdóttir, Jón Þorvaldsson,
Þórhildur Jónsdóttir,
Kristjana Jónsdóttir, Guðjón E. Ólafsson,
Sveinbjörn Jónsson, Jaana Rotinen,
Kristinn Jónsson, Guðbjörg Júlísdóttir,
Katrín Jónsdóttir, Helmut Grimm,
Þorsteinn Jónsson, Ásta Brynjólfsdóttir,
Sigrún Jónsdóttir, Jón Valur Baldursson,
barna- og barnabarnabörn.
✝
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
BJARNA HLÍÐKVISTS JÓHANNSSONAR,
Blásölum 24,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis
aldraðra í Borgarnesi fyrir frábæra umönnun
síðustu ár.
Guðný Þorgeirsdóttir,
Íris Hlíðkvist Bjarnadóttir, Kristmar Jóhann Ólafsson,
Jóhann Hlíðkvist Bjarnason, Sigríður Vilhjálmsdóttir,
Björgvin Hlíðkvist Bjarnason, Guðbjörg Elín Þrastardóttir,
Skúli Eyjólfur Hlíðkvist Bjarnason,
Guðný Hlíðkvist Bjarnadóttir, Sveinbjörn Ágúst Sigurðsson,
Guðrún Hlíðkvist Bjarnadóttir, Þorgeir M. Reynisson,
Hjördís Hlíðkvist Bjarnadóttir, Ingi Þór Guðmundsson,
afa- og langafabörn.
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
✝ Jóhannes Haf-steinn Björns-
son fæddist í Hafn-
arfirði 22. desember
1918. Hann andaðist
á Landspítalanum
17. apríl síðastlið-
inn.
Foreldrar hans
voru hjónin Björn
Jóhannesson bæj-
arfulltrúi, f. 28.3.
1895, d. 22.11. 1964
og Jónína Guð-
mundsdóttir hús-
móðir, f. 2.11. 1892,
d. 15.7. 1981. Bróðir hans var
Guðmundur augnlæknir, f. 9.2.
1917, d. 10.4. 2001 og hálfsystir
hans samfeðra er Erna Fríða
Berg skrifstofustjóri, f. 2.9.1938.
Hafsteinn kvæntist 10.7. 1943
Pálínu Kreis, f. 3.10. 1921 d. 22.1.
1979. Þau skildu.
Hann kvæntist 1.3.1953 Ragn-
heiði Pálsdóttur, f. 6.11.1922.
Börn þeirra eru: 1) Inga Guð-
finna, f. 30.9. 1951, sonur hennar
er Hafsteinn Thorberg, f. 3.2.
1974, sonur hans er Adam Orri,
fæddur 10.3. 2003.
2) Jón Garðar, f.
2.11. 1961, maki
Dagný María Sig-
urðardóttir, f. 18.1.
1964, synir þeirra
eru: Ragnar Heiðar,
f. 23.9. 1987, Axel
Ingi, f. 16.9. 1991,
Páll Grétar, f. 12.8.
1995.
Hafsteinn ólst
upp í Hafnarfirði.
Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá
Flensborgarskóla
og verslunarprófi frá Verslunar-
skóla Íslands.
Hann var skrifstofumaður, nær
alltaf gjaldkeri, fyrst hjá Bæj-
arútgerð Hafnarfjarðar, síðan hjá
Laxárvirkjun, þegar virkjunar-
framkvæmdir stóðu yfir upp úr
1950, og loks hjá Tollstjóraemb-
ættinu í Reykjavík, lengst af sem
aðalgjaldkeri, þar til hann lét af
störfum vegna aldurs.
Hafsteinn var jarðsunginn frá
Garðakirkju 29. apríl, í kyrrþey
að ósk hans.
Með fáeinum orðum langar mig að
kveðja kæran frænda minn, Hafstein
Björnsson. Um hann á ég margar
ánægjulegar minningar allt frá því að
ég man fyrst eftir mér fyrir hátt í 70
árum, er ég átti heima hjá foreldrum
mínum við Merkurgötu en hann ör-
skammt frá, ungur maður á heimili
foreldra sinna við Vesturbraut í
Hafnarfirði, en við Hafsteinn vorum
systrasynir. Síðar þegar ég var að
alast upp austur í Rangárvallasýslu
minnist ég ánægjulegra stunda þeg-
ar Hafsteinn kom í heimsókn hress
og glaður. Eftir að ég náði fullorðins-
aldri og átti heima í Hafnarfirði, en
hann í Garðahreppi og síðar í Hafn-
arfirði, hittust við alltaf öðru hvoru,
en það hefði mátt vera miklu oftar.
Hafsteinn var maður sem alltaf
var gaman að hitta og spjalla við.
Hann hafði notalega nærveru, var
hress og líflegur í viðræðum og fylgd-
ist alltaf vel með því sem var að ger-
ast. Þegar árin færðust yfir fannst
mér sérlega áhugavert að hlýða á
hann segja frá ýmsu sem gerst hafði í
Hafnarfirði og nágrenni á fyrri hluta
ævi hans. Hann var sérlega hraðvirk-
ur og fljótur að átta sig á því sem
hann var að fást við og hafði gott
minni, sem virtist lítt eða ekki vera
farið að gefa sig þegar ég heimsótti
hann í síðasta sinn nú rétt eftir
páskana.
Hafsteinn var lengst af ævinni
heilsugóður, en fyrir um hálfum öðr-
um áratug gekkst hann undir hjarta-
aðgerð. Má þá segja að líf hans hafi
hangið á bláþræði svo vikum skipti,
en að lokum fór hann að hjarna við og
komst heim af sjúkrahúsi rúmum
mánuði eftir aðgerðina. Þrátt fyrir
þetta náði hann mjög góðum bata, og
má geta þess að flest sumur eftir
þetta ók hann hringinn í kringum
landið, stundum oftar en einu sinni á
sumri. Hann lærði ungur á bíl, var
leikinn og farsæll ökumaður og hafði
unun af ferðalögum. Á miðju síðasta
ári fór að halla undan fæti og heilsu
hans hrakaði ört.
Ég og fjölskylda mín sendum
Ragnheiði, eiginkonu Hafsteins,
börnum þeirra og barnabörnum inni-
legustu samúðarkveðjur. Guð blessi
minningu Hafsteins Björnssonar og
gefi aðstandendum styrk.
Svanur Pálsson.
Hafsteinn Björnsson
Elsku mamma mín.
Í dag hefðir þú orðið
65 ára, til hamingju
með daginn. Það er
ótrúlegt að það skuli
vera orðnir tæpir 17 mánuðir síðan
að þú kvaddir okkur í þessum heimi
og enn styttra finnst mér síðan við
héldum upp á 60 ára afmælið þitt.
Þá komum við þér algjörlega á
óvart og það gladdi þig svo mikið.
Elsku mamma mín, ég veit að það var
vel tekið á móti þér af þeim sem voru
farnir héðan á undan þér, ömmu og
drengnum þínum sem þú syrgðir svo
Kristín Eiríksdóttir
✝ Kristín Eiríks-dóttir fæddist í
Reykjavík 11. maí
1943. Hún lést á
heimili sínu hinn 23.
janúar 2007og var
útför hennar gerð
frá Fella- og Hóla-
kirkju 1. febrúar
2007.
mikið og afa. Ég sakna
þín svo mikið og þau
eru ófá skiptin sem ég
hef tekið upp símann
til að hringja til þín.
Ég er þakklát fyrir
tímann sem við áttum
saman þegar við Inga,
Kata, Ásdís (Ella og
Siggi) hjúkruðum þér
heima þann stutta
tíma frá því þú greind-
ist með krabbameinið í
nóvember 2006 til 23.
janúar 2007. Þetta var
ótrúlega stuttur tími.
Það var mér ómetanlegt þegar þú
komst til okkar í nýársboðið 2007 hel-
sjúk. Elsku mamma mín, nú er ég
tilbúin að kveðja þig, ég veit að þú ert
í góðum höndum. Góði Guð mun
varðveita þig og vernda.
Ástarkveðja.
Þín dóttir,
Jónína Þóra Sigurjónsdóttir
(Nóný).
Sveinn skipstjóri er
farinn. Tölvubréf með
þessum orðum barst
mér 31. mars síðastliðinn. Þá hafði
hann legið nokkra daga á Sjúkrahúsi
Akureyrar til að hlíta þeim dómi sem
hann hlaut fyrir mörgum mánuðum
þegar dæmdur var í hann hættulegur,
illkynja sjúkdómur.
Vinur minn og okkar margra frí-
múrabræðra, Sveinn Hjálmarsson,
áður skipstjóri á Kaldbaki, hefur nú
orðið að lúta í lægra haldi fyrir skæð-
um óvini sem hefur verið að narta úr
honum líftóruna allt síðastliðið ár og
nokkru lengur. Þessi góði drengur
bar alla tíð með sér fágætan þokka
þegar á ystu skelina var brotið dálítið
Sveinn Hjálmarsson
✝ Sveinn Hjálm-arsson skipstjóri
fæddist á Syðra-
Vatni í Lýtings-
staðahreppi 10.
mars 1948. Hann lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri
30. mars síðastliðinn
og var útför hans
gerð frá Glerár-
kirkju 8. apríl.
gat. Undir var gull-
hjarta sem veitti okkur
vinum hans verulega
hlýju. Þegar að honum
var rétt smávægilegt
fylgdi gjarnan frá hon-
um: „Þakka þér,“ á
þennan hógværa,
óborganlega hátt.
Sjálfur var hann oftar
veitandi en þiggjandi,
hvort sem var um harð-
fisk eða „púrtara“ að
ræða. Svenni var vinur
vina sinna og miklu
meira. Hann var okkur
félögum sínum miklu fremur kennari
í háttsemi, festu, góðsemi, góðum sið-
um og glaðværð, þangað til hann fékk
skellinn. Þá breytti hann yfir í hljóð-
læti, undirgefni og tryggð. Hann bar
sársauka sinn af karlmennsku en
þráðurinn varð fínni og ekki lengur
þessi rammi, slitsterki þráður sem
tengdi okkur saman vinina.
Ég ræddi oftlega við hann á þess-
um mánuðum og fann þá vel að sterka
gullhjartað hafði tekið á sig fljótandi
form þegar hann velti fyrir sér hvern-
ig framvinda sinna nánustu yrði ef
hann tæki nú upp á því að sigla til
austursins eilífa, með rifuð segl og
fengi ekki sjálfur að standa við stýrið.
Þá hlyti öldurótið að ná að sökkva
fleyinu.
Við félagarnir höfum átt margar
góðar stundir þetta erfiðleikaár, þrátt
fyrir allt. Þetta hefur bundið okkur
saman í sterka heild þar sem klett-
urinn Sveinn Hjálmarsson hefur stað-
ið óbugaður upp á endann og haldið
um stjórnvölinn. Það var ekki fyrr en
óvinurinn hafði fellt hann á annað
hnéð og síðan í rúmið að bráin féll yfir
haukfrán augun, svo að hann sá ekki
lengur á áttavitann, að hann hætti að
stýra og lét Guð sinn um að taka við
stýrinu og sigldi því þöndum seglum í
austur.
Svona líkamlegir og andlegir
kraftakallar og góðdrengir hljóta að
finnast á níundu gráðu í bókinni hans
Péturs við Gullna hliðið. Ekki þarf að
hafa Svenna í poka á þeim stað eins og
Jón forðum. Sveinn Hjálmarsson
sómdi sér alklæddur og blátt áfram
hvar sem var. Ekki þarf Pétur heldur
að væmast yfir handtakinu sem verð-
ur eins og áður, þétt, hlýtt og af færni
skipstjórans Sveins Hjálmarssonar á
Kaldbaki.
Farðu í friði, vinur.
Ég votta eiginkonu Svenna, dætr-
um þeirra og barnabarni mína dýpstu
samúð.
Eiríkur Páll Sveinsson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningar-
grein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar