Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 34
ferðalög 34 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Meira að segja Bjössi ámjólkurbílnum reynistþá vera héðan frá Ítalíuog hljómar á móti okk- ur þar sem við þrömmum enn eina ferðina inn hjá Tító að fá okkur eitt- hvað að borða – já, öll lögin, sem við mamma sungum í bílnum í gamla- daga og syngjum enn, virðast hafa verið pikkuð upp hér suður á Ítalíu. Það er eins og við endum alltaf hér hjá honum Tító með allar okkar þarfir; þarftu að komast á int- ernetið, jú, farðu niður í bæ til hans Tító – horfa á fleiri fótboltaleiki, skelltu þér bara til Títós – svöng sona seint; fáðu þér eitthvað hjá Tító – svöng seint og snemma, nú, Tító reddar því. Og meira að segja eina dýrlega máltíð – sítrónusnitsel með bök- uðum kartöflubátum – borðuðum við næstum ef svo má segja með sjálfum Mick Jagger þar sem hann æddi um í fullri stærð á skjánum hjá honum Tító í gulum sokkabuxum og bleikum brjóstahaldara og við vor- um einu gestirnir og ég kynnti stolt þennan gamla frjálsa og fitta vin minn fyrir syni mínum ungum, en á hann runnu tvær grímur yfir móður sinni og félagskap. En Jagger tókst að töfra hann um síðir þrátt fyrir Bítlana og brjóstahaldarann, og hann var lengi að spyrja út í ýmis smáatriði. Já, allt getur gerst hjá Tító. En þar er ekki mikið um pipar og salt, reyndar ekki mikið verið að ota því að manni yfirleitt, alltaf þarf að biðja um piparinn, og þar sem allt flýtur i sítrónum og allt er úr sítrón- um er lítil þörf á salti. Takið nú eftir sítrónunum, kólestrólrónar! Ljóti karlinn Hallfreðsson Einn daginn býður Tító upp á fót- boltaleik með matnum, og nú er staðurinn fullur af strákum og lögg- um í stuði, og dúkkar þá ekki upp nema einn Hallfreðsson þarna að eltast við bolta Ítalanna. Og það með Regginamönnum á móti Na- pólíliðinu., „Hvað er þessi helvítis Íslend- ingur að gera?“ æpa strákarnir á næsta borði og við höldum áfram með Napolí. Á dauða mínum átti ég von en ekki því að slá sjálfri Sor- rento á frest og sitja frekar áfram hjá Tító og éta franskar og glápa á fótbolta, en hef mér til afsökunar að það er vitlaust veður og vont í sjó. „Napolí er í 36. sæti en Reggina í 26.“, essemmessar Illugi að heiman. Forza Napoli, meiri sítrónu á kartöflurnar takk, Argentína og Ís- land eru eitthvað mikið að kljást í þessum leik, ljóti kallinn Alfredson af Íslandi, eins og þeir kalla hann, spilar eins og halanegri með handa- lögmáli og fær gula spjaldið fyrir, Cannavaro líka, litli bróðir einhvers ennþá frægari Cannavaros er mér sagt, og minn spretthlaupari skorar, en Napolíþjálfarinn er alvarlegur á svip með agalega mikið tyggjó, og ef ég væri í fótbolta tæki ég ekki ann- að í mál en að spila með hjálm á hausnum, atgangurinn og blóðnas- irnar ganga fram af mér, er þetta kannski nautaat? Man svo ekkert hvernig leikurinn endaði því það leystist allt upp í að við gátum ómögulega munað muninn á Bjarnabófabúningunum og KR- búningunum, og svo komu þrumur og eldingar sem sumir ungir menn taka alvarlega, en alltaf er jafn gam- an að kveðja kontómanninn káta hjá Tító, því strákur sá strax um að biðja um reikninginn á ítölsku, borga og gefa þjórfé. Komdu nú með kontóinn, stutti káti maður. Syngdu svo í svefn mig inn, og vertu bara glaður. Á stóra sviðinu í Pompei Til Pompei eru tíu mínútur með lestinni. Og það segir sig sjálft að strax annan daginn erum við eld- fjallabúar lögð af stað á nýjum ítölskum Neróskóm að skoða borg- ina sem Vesúvíus færði á kaf og var niðurgrafin í ösku í 2000 ár. Það er mikið þramm að skoða Pompei, þetta er stór borg og marg- ar vistarverur. Ég væri meir en til í að búa í þess- ari borg við rætur fjallsins með öll- um þessum rosalegu baðher- bergjum og steinlögðu strætum. Ísleifi fylgdarmanni finnast aftur villihundarnir minnistæðastir; þeir sem þarna búa og sleikja sólina, sofa eða sníkja súkkulaðikökur af túr- istum. Annars hafa þeir greinilega alltaf verið þarna því yfir hverjum dyrum eða á þröskuldunum má sjá myndir úr mósaiki af þessum sömu hundum með yfirskriftinni „cave ca- nem“ – varist hundinn. Drengurinn er líka alveg hneyksl- aður á því hvað langt er að labba í Pompeileikhúsið, en ég hætti ekki fyrr en ég kemst þar á stóra sviðið sem rúmaði 5000 áhorfendur. Já, það bar til á dögum Ágústusar keis- ara. En fótboltakappanum mikla sem með mér er verður um og ó þeg- ar við göngum eftir skylm- ingaþrælaflötinni og ég útskýri fyrir honum að þeir hafi verið svona sam- bland af leikurum og fótboltaköllum fortíðar; á dögum Ágústusar keis- ara. Föstudagurinn langi Við erum strax orðin eins og latir Ítalir hér og viljum helst halda okk- ur heima í þorpinu okkar og í gær sofnaði ég út frá fasteignablaðinu frá Sorrentó. Klausturhaldarar eru nú í óðaönn að sópa og blása upp blöðrur því nú stendur til mikið fjör – sjálfur föstu- dagurinn langi og allir fara í grímu- búningana sína sem úthlutað var á sýsluskrifstofunum í gær. Við Ísleif- ur vorum ein skilin útundan því við erum ekki á skrá hér, því miður. Verndari þorpsins er S.Ciro og var læknir frá Alexandríu sem ein- hver keisaratuddinn lét drepa árið 303 í ofsóknum gegn kristnum mönnum. Rafael hliðvörður og vinur okkar hefur raðað myndum af hon- um eftir endilangri framrúðunni á bláu Fíat Pöndunni sinni. Ég vissi ekki fyrr en núna að Jesú er búinn að liggja hérna á neðri hæðinni hjá mér allan tímann, en nú er kveikt á kertum og kyndlum og allt þorpið, ungir sem aldnir í Ku Kux Klan búningum kemur í pró- sessíu inn um klausturhliðið. Garð- urinn fyllist, það er grafarþögn og í miðri prósessíunni gnæfir María mey í svörtum sorgarbúningi, hlaðin blómum – já, þá er hún komin að sækja son sinn sem liggur hér á lík- börunum allt árið og bíður eftir henni og nú kemur hún loksins þegj- andi og hljóðalaust og við sláumst í hópinn þar sem lýðurinn ber þau um allt þorpið, hverja einustu götu og tvo hringi kring um spítalann. Þetta er bæði fallegt og hádramatískt og aðkomumenn á gangstéttunum kasta sér á kné og signa sig, því eins og séra Nonni sagði í gamladaga „Þau eru ekki eins stirð og þau lút- ersku, þessi katólsku kné.“ Þegar svo búið er að blessa allan bæinn rífa súkkulaðikaupmenn hler- ana frá sjoppum sínum og kveikja ljósin og litlir og stórir fjólubláir munkar streyma inn að fá sér páska- egg af öllum stærðum og gerðum. Barnakórinn syngur loksins, María fer heim með son sinn, en við verð- um eftir í einskonar 17. júní stemn- ingu niðri í bæ og setjumst með öll- um hinum inn á City Pizza og hámum í okkur hitt og þetta. Rusl og rottur Nú, ég hafði víst herjað út blaða- mannapassa hjá Morgunblaðs- mönnum af því ég hafði þá trú að hann gæti einhvernveginn varið mig bæði gegn rottunum og ruslamafí- unni, sem búið var að hræða mig með áður en ég fór; já, ég þótti bara alveg snar að æða með barnið til Na- polí í drepsóttir og rottugang um páska og vafamál hvort við kæmum aftur. Myndum við „sjá Napolí og deyja“? En á endanum var það ég sem var einna sóðalegust á staðnum. Rafael og Paolo við hliðið eru mjög strangir þegar ég kem með ruslapokann minn fullan af umbúðum því ég er auðvitað alltaf eitthvað að kaupa, og ég held þeim ofbjóði ruslið eftir varla tvo Íslendinga. Samt er þetta bara svona poki á dag og maður á að stinga honum út fyrir kastalahliðið en það má samt alls ekki gera fyrr en eftir myrkur þegar hann stingur ekki í augun og að morgni er hann horfinn. Ég sá auðvitað svolítið af rusli niðri í Napolí sjálfri, en hér er allt tandurhreint og illa séð að veifa rusli. Svo ég finn upp á þeirri aðferð sem ég nota enn, að leggja allar um- búðir í bleyti í eldhúsvaskinn þegar sumir eru sofnaðir, hnoða þetta svo saman í litla kúlu og minnka þar með ruslpokann minn niður í svosem ekki neitt neitt. Það snjóaði bæði í Vesúvíus og Heklu daginn sem við fórum og þeg- ar lestin brunar gegn um sítrónubæ- inn Pianó de Sorrento strengi ég þess heit að koma aftur fljótt, því það gaf aldrei á sjóinn til Capri, en þangað var ferðinni heitið. Ljósmyndir/Guðrún Gísladóttir Eins og í himnaríki Fyrir þá Amalfíbúa, sem von eiga himnaríkisvist, verður dómsdagur bara eins og hver annar miðvikudagur. Því hvar annars staðar en í himnaríki eru slíkir ávextir? Vel skóaður Gott að vera á nýjum og góðum skóm á göngu í gamalli borg. Daprir í bragði Af svip fótboltaáhugamannanna hjá Tító að dæma stendur Napolíliðið sig ekki þessa stundina. Steinrunninn Hundur í Pompei. Allt og alltaf hjá Tító Um páskana fór Guðrún S. Gísladóttir ásamt níu ára syni sínum til Vico Equense í Amalfí í næsta nágrenni Napolí. Þau gistu í fornu klaustri þar sem nú er rekið gistihús. Þetta er síðari grein um dvöl þeirra mæðgina. Við erum strax orðin eins og latir Ítalir hér og viljum helst halda okkur heima í þorpinu okkar og í gær sofnaði ég út frá fast- eignablaðinu frá Sorrentó. Jesú skilað heim Búnir að taka ofan Ku Klux Klan hetturnar og á leið með Jesú aftur heim í kjallarann. Dularfullar verur Svona ganga menn um götur Vico Equense á föstudaginn langa, guði og Jesú til dýrðar. Höfundur er leikkona
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.