Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 45 Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095 Sími: 588 9090 Glæsileg 4ra herbergja 144,8 fm íbúð á 3. hæð við Efstaleiti (Breiðablik). Vandaðar inn- réttingar. Merkt stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Einstakt útsýni. Mik- il sameign með sundlaug, líkamsrækt og fleira. Húsvörður. 7257 EFSTALEITI - VÖNDUÐ ÚTSÝNISÍBÚÐ Mjög góð 130 fm efri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt 34 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í tvær góðar stofu, eldhús með borðkrók, þrjú stór herbergi og baðherbergi. Innrétting í eldhúsi er endurnýjuð svo og er fallegt parket á allri íbúðinni. Rúmgóð og falleg eign. V. 33,9 m. 7553 4ra herbergja 134,7 fm íbúð í sérflokki ásamt 41,3 fm bílskúr. Íbúðin hefur kosti sem sjaldgæft er að íbúðir í blokkum hafi, s.s. allt sér, stóran bílskúr, stóra sérverönd auk frá- bærs útsýnis. V. 36,9 m. 7457 KRISTNIBRAUT M. STÓRUM BÍLSKÚR - ALLT SÉR Grundarhvarf - við Elliðavatn Glæsilegt mjög vandað 171,1 fm parhús á einni hæð með innb. bílskúr. Húsið stendur á 1.018 fm lóð rétt við Elliðar- vatnið og með einstöku útsýni. Guðbjörg Magnúsdóttir innanhús arkitekt hannaði húsið að innan og teiknaði allar innrétting- ar. Allur viður í húsinu er eik. Granít á borðum og gólfefni er gegnheilt eikarp- arket og flísar. Garðurinn er sérhannaður af landslagsarkitekt. Húsið er laust strax. V. 62,5 m. 6997 Ljósaland - Fossvogur Nýkomið í sölu einstaklega gott 137 fm endaraðhús á einni hæð ásamt 24 fm bílskúr, samtals 160,6 fm Húsið skiptist í anddyri, gest- asnyrtingu, hol, baðherbergi, þrjú góð svefnherbergi, eldhús, þvottaherbergi, borðstofu og dagstofu. Húsið er sérlega vel hannað og er m.a. stór verönd í garði, arinn, fallegt baðherbergi og endurnýjað og fallegt eldhús. V. 58,0 m. 7449 101 Skuggahverfi. Um er að ræða einstaka fullbúna 139,2 fm íbúð í hinu nýja Skuggahverfi. Íbúðin er staðsett á 5. hæð og er með stórkostlegu útsýni. Íbúð- inni fylgi stæði í bílageymslu. Allar innrétt- ingar eru sérsmíðaðar úr hvíttaðri eik og öll gólfefni eru sérvalin. Íbúðin er mjög björt með hærri lofthæð en almennt ger- ist. V. 59,0 m. 7413 Þingholtsstræti - útsýni Mjög glæsileg og góð 99,2 fm íbúð á 3ju hæð í lyftuhúsi með miklu útsýni yfir Reykjarvík- urtjörn og miðborgina. Íbúðin er mikið uppgerð. V. 31,9 m. 7376 HOLTAGERÐI EFRI SÉRHÆÐ Í KÓPAVOGI STÓR BÍLSKÚR Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is ÉG SKORA á Ólaf F. Magnússon að sjá til þess að komið verði upp bekkjum í Hæðargarði (í Bústaða- hverfi) en þar finnst ekki einn ein- asti bekkur, enda þótt öldr- unarstofnanir séu í báðum endum götunnar. Þar eru margir eldri borg- arar á göngu og væru enn fleiri ef hægt væri að tylla sér þar öðru hverju. Þetta er í 3. skipti á nokkr- um árum sem ég sendi borgarstjórn þessa áskorun. Og hví eru ekki bekkir á Laugaveginum, Banka- stræti og á Lækjartorgi? Maður neyðist til að setjast inn á veit- ingastaði eða kaffihús og kaupa dýr- ar veitingar til að geta tyllt sér og hvílt sig. Það er eins og þessi borg- arstjórn hafi aldrei farið fótgang- andi um borgina né brugðið sér til útlanda og séð hvernig menn gera í útlöndum. Ég var nýlega á Tenerife, þar voru alls staðar bekkir, meira að segja á umferðareyjum. Svo ég tali nú ekki um skemmtigarðana í Xia- men í Kína þar sem ég dvaldi vet- urinn 2006-7. Þar voru granítbekkir sem þurfa ekkert viðhald og þola öll veður, jafnvel íslenskan vetur. Þar mátti una sér heilu dagana við að horfa á útilistaverkin og setjast á bekki og við borð. Þar voru einnig fót– og handknúin leiktæki fyrir börn, svo og líkamsræktartæki fyrir fullorðna. Sjáið svo Klambratúnið, þar sem útigangsfólk hefur hreiðrað um sig, bekkja- og borðalaust. Því væri heldur ekki of gott að hafa borð og bekki. Klambratúnið nýtist í raun engum sem skyldi, og ekki eru grænu svæðin í borginni mörg. Ég hef heyrt að Íslendingur flytji inn granítbekki frá Kína, bæði til op- inberra aðila og einkaaðila. Ég ítreka áskorun mína um bekki í Hæðargarð og mun fylgja málinu eftir. Að lokum bið ég borgarstjóra vel að lifa og vona að hann njóti sum- arsins og blíðunnar. HRÖNN JÓNSDÓTTIR Hæðargarði 19b, Reykjavík. Tilmæli til Ólafs F. Magnússonar og borgarstjórnar Frá Hrönn Jónsdóttur LÝSI hf gerir lítið úr kvörtunum Þorlákshafnarbúa vegna loftmeng- unar frá fiskþurrkuninni, sam- anber ummæli Katrínar Péturs- dóttur forstjóra í fjölmiðlum fyrir nokkru. Hún fer fram með her af lögfræðingum til þess að setja of- an í menn sem mótmæla þessari ýldu- og rotnunarfýlu sem berst frá þessari fiskþurrkun. Ég gef mér það að þeir sem hafi ein- hverntíma komið til Þorlákshafnar viti því hvað ég er að tala um. Sóðaskapurinn er þvílíkur í kring- um þessa fiskþurrkun að svona verkun á ekki heima í þéttbýli. Fyrirtæki þetta, sem margbrýtur starfsleyfisreglur, á ekki að kom- ast upp með að halda íbúum Þor- lákshafnar í gíslingu. Mörg fyr- irtæki hafa viljað koma hingað en það er ekki hægt að hafa léttan iðnað hér þegar ýldufýlan liggur yfir öllu og smýgur í föt, farartæki og inn í húsnæðin. Ég skora á Katrínu Péturs- dóttur forstjóra Lýsis að boða til fréttamanna- og íbúafundar með Þorlákshafnarbúum við fisk- þurrkun Lýsis hf við Unubakka í Þorlákshöfn. Ég skora á hana að hafa fiskþurrkunina í gangi með fullum afköstum á meðan fund- urinn væri. Þá gefst henni tæki- færi að réttlæta ýldufýluna, sóða- skapinn og einnig finna rotnunarlyktina með eigin nefi. RÚNAR ODDGEIRSSON, Setbergi 25, Þorlákshöfn. Áskorun til Katrínar Pétursdóttur, forstjóra Lýsis hf. Frá Rúnari Oddgeirssyni MIG langar til að vekja athygli á þeim möguleika að byggja útisund- laug við Sundhöllina í Reykjavík. Til- lögur þess efnis hafa áður komið fram í fjölmiðlum og hugmyndir arki- tekta að viðbyggingu Sundhall- arinnar birtust í Morgunblaðinu fyrir nokkrum árum. Ég er fædd og uppalin hér í Norð- urmýrinni, mínir tveir strákar hafa gengið í Austubæjarskólann og öll höfum við nýtt okkur Sundhöllina á liðnum árum. Sundhöllin er merkileg bygging og hefur staðist tímans tönn, búningsklefar og sturtuaðstaða þar er sambærileg flestum nýjum sund- laugum. Í búningsklefum er reyndar pláss fyrir mun fleiri notendur en sækja laugina. Byggist það líklega á því að í upp- hafi þegar Sundhöllin var nýbyggð þá var mikil aðsókn og sundgestir fengu einungis takmarkaðan tíma í lauginni. Öllu var stýrt með núm- erum og tímakvóta, svo búningsklef- arnir þurftu að vera nógu margir fyr- ir þá sem voru á leiðinni ofan í, þá sem voru á leið upp úr og þá sem voru ofann í! Þess vegna hefur mér alltaf fund- ist svo gráupplagt að bæta útilaug við Sundhöllina. Grasflötin sunnan við húsið er nægilega stór fyrir útilaug, liggur vel við sólu og væri dásamleg viðbót. Íbúar hverfisins myndu hittast í lauginni og efla hverfisandann og for- eldrar þyrftu ekki lengur á sumrin að keyra börnin í Laugardals- eða Vest- urbæjarlaug eins og nú er raunin. Nú las ég í 24 stundum að áformað væri að taka þetta svæði undir bíla- stæði og/eða göng til að tengja saman þjónustu heilbrigðisstofnana á næstu lóðum. Hvernig var ekki alveg aug- ljóst í grein blaðsins en mér finnst ástæða til að vekja athygli á þessu og legg það til að íbúar og hverf- issamtök sem að Sundhöllinni standa leggist á eitt um að vinna að þessu máli. Það væri mikið skipulagsslys ef möguleikinn til að stækka og bæta útilaug við Sundhöllina færi þannig forgörðum. Nú er verið að byggja á hverri auðri lóð hér á miðbæjarsvæð- inu (þá tel ég Norðurmýri og Holtin með) og þétting byggðar er í há- marki. Það er ekki nóg að segja að fólk vilji búa í námunda við kaffihúsin, það þarf líka að bjóða íbúum upp á þá sömu þjónustu og er í öðrum hverf- um borgarinnar. Aðstaða barna og unglinga í þessu hverfi til tómstunda, íþrótta og úti- vistar er slakari en í mörgum nýrri hverfum. Langt er í félagsmið- stöðvar, íþróttahúsið (Vódafónhöllin) er handan við þvílíkar umferð- arflækjur og „grænum“ óskipulögð- um flötum fækkar óðum. Við íbúar miðborgar, Norð- urmýrar, Holta og Hlíða þurfum að standa vörð um þennan dýrmæta möguleika og vinna að því að koma honum í framkvæmd. SÓLVEIG AÐALSTEINSDÓTTIR, myndlistarkona. Útilaug við Sundhöll Reykjavíkur Frá Sólveigu Aðalsteinsdóttur Morgunblaðið/Golli Greinarhöfundur telur gráupplagt að bæta við útilaug við Sundhöllina. Í Morgunblaðinu 29. mars tíundar félagsmálaráðherra það sem gert hefur verið til lagfæringar á kjörum lífeyrisþega og nefnir þar að tekju- tenging við laun maka verði afnumin 1. apríl og tekur dæmi um lífeyris- þega sem hefur 1 milljón í lífeyri á ári og sé tengdur launþega með 6 milljónir í árslaun og telur ráð- herrann að breytingin auki tekjur lífeyrisþegans um 56 þús. á mánuði. Þessi 56 þúsund át lífeyrisþeginn út úr launaumslagi makans mánaðar- lega, því breytist hans lífeyrir ekk- ert, það er aðeins verið að hætta svikamillunni. Með breytingunni er ekki verið að hækka nein laun eða lífeyri heldur aðeins leyfa aðilum að halda samningsbundnum launum og hætta að brjóta á þeim mannrétt- indi. Eftir breytinguna eiga lífeyr- isþegar alveg eftir að fá sína hækk- un í samræmi við nýgerða kjara- samninga og það er óheiðarlegt að nota þessa breytingu sem lífeyris- hækkun, með því móti er áfram ver- ið að níðast á launþeganum, bara með enn lúmskari hætti því launþeg- inn verður að sækja verðhækkanir í launaumslag makans. Það er heldur ekki heiðarlegt að meta afkomu líf- eyrisþega út frá tekjum hátekju- manna. Guðvarður Jónsson, Valshólum 2, 111 Rvík. Verða lífeyrisþegar plataðir? Frá Guðvarði Jónssyni Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.