Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Jórunn Liljafæddist að
Dvergasteini í Vest-
mannaeyjum hinn 5.
desember 1919. Hún
lést 14. febrúar sl.
Magnús faðir henn-
ar, Magnússon, var
skipasmiður í Vest-
mannaeyjum og bjó
vestur á Flötum og
síðar í Reykjavík, en
afi hennar, Magnús
Sigurðsson, var
bóndi að Geitagili í
Örlygshöfn við Pat-
reksfjörð og amma
hennar þar Þórdís Jónsdóttir. Móð-
ir Lilju var Oddný Erlendsdóttir,
en Erlendur Erlendsson afi Lilju
var bóndi á Skíðbakka í Landeyjum
og amma hennar þar Oddný Árna-
dóttir. Lilja ólst upp hjá móð-
ursystur sinni, Jórunni Erlends-
dóttur, og manni hennar, Jóni
Jónssyni, bónda og útgerðarmanni
í Ólafshúsum í Vestmannaeyjum.
Ætla má að það hafi verið æði-
mannmargt heimili að Skíðbakka
því alsystkini Oddnýjar voru tíu.
Tíu urðu líka börn Oddnýjar og
Magnúsar, eldri Lilju: Hulda,
Marta Sonja, Magnús Adolf og Þór-
dís, en yngri Erlendína, sem dó
kornabarn, Erlendur, Guðbjört, El-
ísabet Fjóla, sem varð ættleidd
dóttir Kristófers og Helgu, og
86. Elsti sonurinn, Viktor Þór,
flutti reyndar ekki í Boðaslóðina,
en hann fór til fósturs að Ólafs-
húsum eins og móðir hans fyrrum.
Viktor Þór er fæddur 1942 áður en
móðir hans tekur ljósmóðurprófið,
en fósturforeldrar hans urðu Er-
lendur Jónsson og Ólafía Bjarna-
dóttir. Viktor er kvæntur Huldu
Jensdóttur. Börn þeirra Viktors
Þórs og Huldu eru Viktor Björn og
Jóna Laufey Jóhannsdóttir. Næst
Viktori fæddist Pálína og var hún
gift Kristni Ævari Andersen sjó-
manni hér í Vestmannaeyjum en
þau skildu. Börn þeirra eru Lilja,
gift Þorsteini Sigurðssyni, og Úr-
anus Ingi, kvæntur Sigríði Diljá
Magnúsdóttur. Barnabörn þeirra
Viktors Þórs og Pálínu eru Karen
Sif, Ísak, Mia og Tera; Þóra Sif,
Sigrún og Bertha; og Jón Gauti og
Tara Sól.
Næstur Pálínu fæddist Jón
Trausti sem andaðist 28. júní 1993.
Þá koma þeir Gylfi Þór, Skúli og
Oddgeir Magnús og búa þeir allir
hér í Vestmannaeyjum. Héldu þeir
heimili með móður sinni að Boða-
slóð 6 meðan hennar naut við og
hafa systkinin öll hjálpast að við að
annast hana síðan hún tók að veikj-
ast fyrir nokkrum árum, en flutti
síðan að Hraunbúðum fyrir rúmu
ári.
Útför Jórunnar Lilju fór fram
23. febrúar sl. í kyrrþey.
yngst er Fanney,
fædd ’28. Af systk-
inum Lilju lifa þær
hana Marta Sonja,
Guðbjört og Fanney.
Lilja lærði til ljós-
móður og tók próf sitt
frá Ljósmæðraskóla
Íslands 30. september
1944 og vann sem
ljósmóðir á Lands-
spítalnum í rúmt ár.
Það má segja að Lilja
hafi innan fárra ára
farið að snúa sér að
sínum eigin börnum
því hún var ekki
starfandi ljósmóðir eftir að hún
flutti heim til Eyja. Hún kynnist
lífsförunaut sínum, Úranusi Guð-
mundssyni og hófu þau búskap sinn
að Svalbarði við Birkihlíðina og
fluttu þaðan að Skógum, Bessastíg
8. Úranus var fæddur á Barónsstíg
18 í Reykjvík 28.12. 1914 og var
sonur Guðmundar Semingssonar
frá Skinnastað og Pálínu Sam-
úelsdóttur, en átti þrjú systkini
sammæðra og átta samfeðra. Úr-
anus var vélstjóri en féll frá langt
um aldur fram liðlega fimmtugur
17. júní 1968.
Fljótlega flytja þau frá Skógum
að Boðaslóð 6 og þar er heimili fjöl-
skyldunnar æ síðan, nema á gos-
tímanum, er Lilja bjó með börnin
hjá Mörtu systur sinni á Laugavegi
Það að ætla að skrifa örfáar línur
um hana Lilju á Boðó er auðvelt því
þegar ég hugsa aftur í tímann skjót-
ast fram ótal margar minningar um
hana og það sem hún gerði fyrir okk-
ur litlu fjölskylduna sem átti heima í
kjallaranum á Boðaslóð 6 í 6 ár og
þau ár vorum við alltaf partur af
hennar lífi. Oft þurfti ég að leita ráða
hjá henni um ýmislegt og spjalla um
margt og fá ráðleggingar um marga
hluti og var gott að hlaupa upp á loft í
gegnum þvottahúsið þegar þurfti að
biðja hana um pössun ef skreppa átti
í bíó eða ef það var þjóðhátíð eða
bara gamlárskvöld. Hún passaði Jó-
hönnu Kristínu fyrir okkur hvort
sem var með sínum barnabörnum
eða að opið var á milli og hún hlust-
aði. Svarið var alltaf það sama: ég
verð heima, ég er ekki að fara neitt.
Það var ekki bara að við værum
leigjendurnir í kjallaranum því alveg
var sama hvað kom upp á, hún redd-
aði málunum. Ef ég þurfti að sækja
Reyni þegar hann kom heim af sjó
eða keyra hann niður á bryggju þeg-
ar hann fór var annaðhvort nóg að
hlaupa upp tröppurnar og Lilja pass-
aði en stundum hljóp Jóhanna bara
upp og kallaði svo að allt væri í lagi,
hún mætti vera.
Mikið var bakað á loftinu. Kleinur,
jólakökur, snúðar eða bara hvað sem
er þá var kallað eða bankað og spurt
hvort ekki væri tilvalið að fá sér kaffi
og nýbakað, alltaf var eitthvað til
með kaffinu og komu strákarnir þín-
ir alltaf heim í kaffitímunum og þá
varst þú búin að hella upp á og allt
tilbúið fyrir þá. Þeir þurftu bara að
hlakka til að koma heim og vita hvað
væri á boðstólum.
Pella þín og krakkarnir hennar,
Lilja og Ingi, áttu stóran sess í þínu
lífi og þegar þau voru búin í skól-
anum var gott að koma heim til
ömmu Lilju því stutt var að fara til
þín. Margar uppskriftirnar fékk ég á
loftinu og mörg góð ráðin og fannst
mér yndislegt hvað þú gast dúllað
við allt sem þú varst búin að safna og
sorteraðir í plastpoka sem þú varst
búin að geyma undan einhverju öðru
því engu var hent, braust allt vel
saman og settir teygju utan um, rað-
aðir svo í kassa eða box. Oft seinni
árin stríddi ég þér með þessu og þá
hlógum við bara og þú sagðir:
Magga, láttu nú ekki svona.
Þegar ég sagði þér að við hefðum
skoðað hús á Brekastíg og ætluðum
að kaupa það sagðir þú við mig hvort
ég ætlaði að láta þig fá nýja leigend-
ur, þið sem eruð búin að vera hér svo
lengi og það er eins gott að þið flytjið
ekki langt í burtu, ég get fylgst með
ykkur á tröppunum, en samt alveg
óþarfi að fara að skipta um húsnæði.
Það verður skrítið að hugsa til
þess að eiga ekki eftir að hitta þig
oftar en við hittumst bara seinna.
Elsku Lilja mín. Takk fyrir að vera
til staðar þegar ég þurfti á þér að
halda og þarfnaðist þín, takk fyrir
tímann sem við áttum saman, takk
fyrir allt. Megi góður Guð gefa ykk-
ur Pellu, Gylfa, Skúla, Oddgeiri og
fjölskyldum styrk á þessum erfiðu
tímamótum. Mamma ykkar var allt-
af til staðar svo missir ykkar er mik-
ill.
Margrét Grímlaug
Kristjánsdóttir.
Jórunn Lilja Magnúsdóttir
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BOGI TH. MELSTEÐ
yfirlæknir,
Svíþjóð,
lést laugardaginn 26. apríl.
Útför hans fer fram í Västervik í Svíþjóð,
þriðjudaginn 13. maí klukkan 14.00.
Ingibjörg Þorláksdóttir,
Páll Melsteð,
Anna Guðríður Melsteð,
Jón Þorlákur Melsteð,
tengdabörn og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
AÐALHEIÐUR FRÍMANNSDÓTTIR
(Alla),
Hjallabraut 33,
sem lést miðvikudaginn 30. apríl á
St. Jósefsspítala Hafnarfirði, verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja langveik börn.
Ármann Guðjónsson, Jórunn Ólafsdóttir,
Lilja Guðjónsdóttir, Árni Guðjónsson,
Jóna Ósk Guðjónsdóttir,
Lárus Guðjónsson, Guðrún Magnúsdóttir,
Ólafur Valgeir Guðjónsson, Hanna Björk Guðjónsdóttir,
Ingi Hafliði Guðjónsson, Æsa Hrólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og fyrrverandi
eiginkona,
RAGNA VILHELMSDÓTTIR,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítala Fossvogi
þann 28. apríl , verður jarðsungin í Grafarvogs-
kirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 15.00.
Daníel M. Knipe, Veróníka Björk Gunnarsdóttir,
Kristján Þór Ólafsson,
Vilhelm Þór Júlíusson,
Guðbjörg Benjamínsdóttir, Einar Þorvarðarson,
Benjamín Vilhelmsson,
Agnes Vilhelmsdóttir,
Kolbrún Vilhelmsdóttir, Ólafur Skúli Guðmundsson,
Martyn Knipe
og aðrir aðstandendur.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN GESTSDÓTTIR,
áður til heimilis að Hvassaleiti 39,
Reykjavík,
fædd á Seyðisfirði 27. júlí 1922,
lést á hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum mánudaginn
5. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Hólmfríður Árnadóttir, Jón Gauti Jónsson,
Elísabet G. Árnadóttir, Ingþór Kjartansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær dóttir okkar, systir og mágkona,
FJÓLA BJÖRK SIGURÐARDÓTTIR,
Stigahlíð 71,
Reykjavík,
sem á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi
laugardaginn 3. maí, verður jarðsungin frá Hafnar-
fjarðarkirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dauf-
blindrafélag Íslands, reikningur 0515-26-405703
kt. 570394-2159 eða Blindrafélagið, Hamrahlíð 17.
Sigurður Hannesson, Guðrún Böðvarsdóttir,
Böðvar Sigurðsson, Helena Guðmundsdóttir,
Lára Jóna Sigurðardóttir, Jón Baldvin Haraldsson
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN INGVARSSON,
bóndi,
Skipum,
Stokkseyrarhreppi,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Kumbaravogi fimmtudaginn 8. maí.
Ingigerður Eiríksdóttir,
Gísli Vilhjálmur Jónsson, Herdís Hermannsdóttir,
Móeiður Jónsdóttir, Ólafur Benediktsson,
Ragnheiður Jónsdóttir, Vilhjálmur Vilmundarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir,
BJÖRN BJÖRNSSON,
prófessor,
Aragötu 4,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti að morgni
föstudagsins 9. maí.
Svanhildur Ása Sigurðardóttir,
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, Valgeir Bjarnason,
Kristín Bjarnadóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÁSGEIR G. BENEDIKTSSON,
múrari,
Fannafold 77,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti að
morgni föstudagsins 9. maí.
Útförin verður auglýst síðar.
Brynhildur Sæmundsdóttir,
Ólína Margrét Ásgeirsdóttir,
Helga Fanney Ásgeirsdóttir,
tengdasynir
og barnabörn.