Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 11.05.2008, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. MAÍ 2008 57 • Rótgróin bílaleiga með 21 bíl. Auðveld kaup. • Þekktur tölvuskóli. Ársvelta 80 mkr. • Heildverslun með bílavörur. EBITDA 25 mkr. • Sérverslun og heildverslun með tölvurekstrarvörur. Ársvelta 100 mkr. EBITDA 10 mkr. • Þekkt verslun með húsgögn og gjafavörur. • Sérverslun með sportvörur. Ársvelta 120 mkr. • Lítil heildverslun með hársnyrtivörur. Hentugt til sameiningar. • Heildverslun með neytendavörur (ekki matvæli) sem selur í verslanir um allt land. Ársvelta 160 mkr. EBITDA 15 mkr. • Rótgróið þjónustufyrirtæki í ferðamannaiðnaði. Ársvelta 120 mkr. EBITDA 25 mkr. • Framleiðslufyrirtæki í byggingariðnaði. Ársvelta 300 mkr. Góður rekstur í stöðugum vexti. • Innflutningsfyrirtæki, að hluta með eigin framleiðslu erlendis. Ársvelta 450 mkr. • Réttingaverkstæði-sprautun í nágrenni Reykjavíkur. Gott húsnæði og vel tækjum búið. Ársvelta 50 mkr. Góð afkoma. • Framkvæmdastjóri-meðeigandi óskast að hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir í veflægum lausnum. Ársvelta 180 mkr. EBITDA 35 mkr. • Lítil verslun í Kringlunni. Ársvelta 50 mkr. árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Bústaðakirkja | Sumarferð Kvenfélags Bústaðasóknar til Stykkishólms verður farin sunnudaginn 18. maí nk. kl. 10 frá Bústaðakirkju. Uppl. hjá Laufeyju í síma 898-5208 og Fjólu í síma 581-3276. Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga er fjölbreytt dag- skrá, m.a. opnar vinnustofur, spilasalur o.m.fl. Sund og leik- fimiæfingar eru í Breiðholtslaug mánud. og miðvikud. kl. 9.50. Helgistundir eru á fimmtudögum kl. 10.30 í samstarfi við Fella- og Hólakirkju. Uppl. um starfsemina á staðnum og s. 575-7720. Hraunbær 105 | Sameiginleg handverkssýning Fé- lagsmiðstöðvanna Hraunbæ 105, Þórðarsveig 3 og Fé- lagsstarfs aldraðra í Árbæjarkirkju verður haldin 17. og 18. maí. Opið kl. 13-16 báða dagana. Allir velkomnir. Kaffi og meðlæti á vægu verði. Hæðargarður 31 | Bókmenntadagskrá til heiðurs skáld- unum Ólöfu frá Hlöðum og Skáld-Rósu verður í Leikhúsinu að Möðruvöllum í Hörgárdal fimmtudaginn 15. maí kl. 20.30. Soffíuhópur frá Hæðargarði 31 undir stjórn Soffíu Jakobsdóttur leikara og Tungubrjótar frá Dalbraut 18 undir stjórn Guðnýjar Helgadóttur leikara. Íþróttafélagið Glóð | Hringdansar í Kópavogsskóla á þriðjud. kl. 14.20, pútt í Sporthúsinu á miðvikud. kl. 9.30- 11.30, ringó í Smáranum á miðvikud. kl. 12 og í Snælands- skóla á laugard. kl. 9.30. Línudans á miðvikud. kl. 17 í Húna- búð, Skeifunni 11. Uppl. í síma 564-1490. Korpúlfar, Grafarvogi | Á morgun er ganga frá Grafarvogs- kirkju kl. 10. Vitatorg, félagsmiðstöð | Miðvikudaginn 14. maí kl. 10 fyrir hádegi mun biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson, messa hjá okkur. Allir eru velkomnir. Fimmtudaginn 15. maí kl. 13 verður farið suður með sjó, í Herdísarvík, Strand- arkirkju og í Eden, þar verða kaffiveitingar. Uppl. í síma 411- 9450. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Kennsla, leikir o.fl. Almenn samkoma kl. 20. Helga R. Ármannsdóttir prédikar, lofgjörð og fyrirbænir og að samkomu lokinni verður kaffi og samfélag. Einnig verður verslun kirkjunnar opin. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | International church, ser- vice in the cafeteria kl. 12.30. Almenn samkoma kl. 16.30, vitnisburðir frá nemendum Arken í Svíþjóð, ræðumaður Vörður Leví Traustason. Gospelkór Fíladelfíu syngur og barnakirkja fyrir börn 1–13 ára. www.filadelfia.is Óháði söfnuðurinn | Hátíðarguðsþjónusta á hvítasunnudag kl. 14. Einsöngvari mun syngja í messunni. Barnastarf á sama tíma. Kaffi og veigamikill viðurgjörningur að messu lokinni. Allir velkomnir og nýir safnaðarfélagar eru hvattir til að koma. Óháði söfnuðurinn | Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Barnastarf á sama tíma. Góður viðurgjörningur að messu lokinni. 80ára afmæli. Í dag 11.maí er áttræður Gunn- laugur Finnsson, bóndi, kenn- ari og fyrrverandi alþing- ismaður, Hvilft, Önundarfirði. Hann er að heiman á afmæl- isdaginn. dagbók Í dag er sunnudagur 11. maí, 132. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Hver er sá, er mun gjöra yður illt, ef þér kappkostið það sem gott er? (1Pt. 3, 13.) Rannsóknasetur í barna- ogfjölskylduvernd, og fé-lagsráðgjafarskor HI bjóðatil tveggja málstofa 14. og 15. maí. Á miðvikudag mun dr. Ulla Björnberg prófessor við Gautaborg- arháskóla flytja erindið „Intergenera- tional solidarity and social Structures in Sweden. Class, ethnicity, and gen- der in private support patterns“. Á fimmtudag flytur dr. Michael Ungar prófessor við Dalhouse-háskóla í Kan- ada erindið „Nurturing the hidden re- silience of children and youth with pro- blem behaviours in school settings.“ Sigrún Júlíusdóttir er prófessor í fé- lagsráðgjöf við HÍ og stjórnarformað- ur RBF: „Við fáum til okkar þessa góðu gesti, sem eru meðal þekktustu fræðimanna á sínu sviði, bæði í sínum heimalöndum og alþjóðlega,“ segir Sig- rún. „Dr. Björnberg skoðar í erindi sínu samskipti kynslóða, samstöðu i fjölskyldum og áhrif samfélagsins Hún fjallar um tilfinningatengsl barna og ungmenna við foreldra og frændgarð, og segir frá rannsóknum sínum á því að hvaða marki uppkomin börn að- stoða foreldra sína, og hvernig for- eldrar styðja börnin sín fyrstu fullorð- insárin.“ Erindi Michaels Ungar fjallar um hugtakið „seigla“ (e. resilience). „Hann hefur stýrt alþjóðlegum rannsóknum í 11 löndum og kynnir líkan sem beinist að því hvernig skólakerfið getur þróað dulda seiglu barna í erfiðleikum þannig að þau flosni síður úr námi. Hann skoðar m.a. hvernig innsti kjarni per- sónuleikans, sjálfstraust og fjöl- skyldutengsl koma við sögu.“ Rannsóknasetur í barna- og fjöl- skylduvernd hefur staðið fyrir fjölda fyrirlestra í vetur: „Markmið starfsins er að vinna að velferð barna með því að efla rannsóknir á sviði barna- og fjölskylduverndar, miðla vísindalegri þekkingu og hafa þannig áhrif á úr- ræði og aðferðir á vettvangi fé- lagsráðgjafar og í stefnumótun um málefni barna og fjölskyldna,“ segir Sigrún. „Með samstarfi við erlendar og innlendar rannsóknarstofnanir og fræðimenn öflum við sem áreiðanleg- astrar þekkingar um samhengi sam- félagsáhrifa sem skapa barna- fjölskyldum svo mismunandi aðstæður, afkomu og lífsgæði.“ Málstofurnar fara fram í stofu 101 í Odda, kl. 12-13 báða dagana. Fræði | Málstofur á vegum RBF á miðvikudag og fimmtudag kl. 12-13. Börn, kynslóðatengsl og seigla  Sigrún Júlíusdóttir fæddist í Hrísey 1944. Hún lauk fél.r- áðgj.prófi frá Háskól- anum í Lundi 1970, klínísku framhalds- námi frá University of Michigan 1978 og doktorsprófi í fjöl- skyldufræðum frá Gautaborgarháskóla 1993. Sigrún hefur kennt félagsráðgjöf við HÍ frá 1981 og er prófessor frá 2000. Hún rekur meðferðarstofuna Tengsl og er stjórnarformaður RBF. Eiginmaður Sigrúnar er Þorsteinn Vil- hjálmsson próf. og eiga þau samtals fimm börn og níu barnabörn. Leiklist Bifröst, Sauðárkróki | Leik- félag Sauðárkróks sýnir fars- ann Viltu finna milljón? eftir Ray Cooney í nýrri leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar. Leik- stjóri er Jón Stefán Krist- jánsson. Lokasýning kl. 15, miðasala 849-9434. Kvikmyndir Félagsheimilið Herðubreið | Kvikmyndin Undrahundurinn sýnd kl. 15. Miðaverð 1.000 kr. Tónlist Hallgrímskirkja | Mótettukór Hallgrímskirkju flytur Vesper eftir Sergei Rachmaninov annan í hvítasunnu, 12. maí, kl. 17. Einsöngvarar: Vladimir Miller basso profondo frá St. Pétursborg, Nebojsa Colic tenór og Auður Guðjohnsen – nýmiðlum frá Listaháskóla Íslands. Verkið nefnist Music for Turntables, Pianos, Marim- bas, Percussion, Guitar and Tape og er fyrir plötuspilara, píanó, marimbu, slagverk, gít- ar og segulband. alt. Stjórnandi er Hörður Ás- kelsson. Miðasala í s. 510- 1000, sjá nánar www.listv- inafelag.is. Iðnó | Í kvöld kl. 21 heldur Ian Alexander MacNeil útskrift- artónleika sína úr tónsmíðum Morgunblaðið/Ómar Hallgrímskirkja. TVEIR sjö vikna gamlir hlé- barðar leika sér í dýragarð- inum í Rothenburg nærri borginni Lucerne í Sviss. Þótt dýrin séu lítil og sæt um þessar mundir breytast þau í stór og grimm rándýr áður en langt um líður. Grimmir kettlingar Reuters FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur bor- ist eftirfarandi yfirlýsing frá embætti ríkislögreglustjóra varðandi ummæli DV um emb- ætti ríkislögreglustjóra í um- fjöllun um Baugsmálið: „Í fréttaskýringu sem DV birti um Baugsmálið 1. maí sl. er ranglega fullyrt að í framhaldi af húsleit hjá Baugi Group hf. hafi Haraldur Johannessen rík- islögreglustjóri lagt drög að því að Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs Group, yrði handtekinn á Keflavík- urflugvelli þann 29. ágúst 2002. Blaðamaður DV segir í frétta- skýringunni að menn á vegum embættis ríkislögreglustjóra hafi verið sendir á Keflavík- urflugvöll til þess að handtaka Jón Ásgeir Jóhannesson. ,,Í kjöl- far lögreglunnar fylgdu töku- og fréttamenn frá Ríkissjón- varpinu þess albúnir að mynda atburðarásina væntanlegu“ seg- ir í blaðinu. Það er fullyrt að ríkislögreglustjóri hafi með þessu viljað sýna Jón Ásgeir Jó- hannesson í handjárnum í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Þegar hefur komið fram í fjöl- miðlum að hvorki fréttamenn né tökumenn frá Ríkissjónvarp- inu voru á staðnum. Það skal einnig áréttað að Haraldur Jo- hannessen ríkislögreglustjóri stýrði ekki aðgerðum vegna rannsóknar málsins, heldur sak- sóknari efnahagsbrotadeildar embættisins. Það er einnig rangt í skrifum blaðamanns DV að lög- reglumenn frá embætti ríkislög- reglustjóra hafi farið í Leifsstöð til þess að handtaka Jón Ásgeir Jóhannesson. Það hefur verið kannað bæði hjá embætti rík- islögreglustjóra og hjá lög- reglustjóranum á Keflavík- urflugvelli. Í fréttaskýringunni er sagt að ,,atburðarásin hafi vakið athygli og jafnvel hneykslan tollvarða og lög- gæslumanna á Keflavík- urflugvelli“. Þetta er undarleg fullyrðing í ljósi þess að hvorki lögreglumenn frá embætti rík- islögreglustjóra né fulltrúar Ríkissjónvarpsins voru á staðn- um. Embætti ríkislögreglustjóra fer fram á að DV leiðrétti þess- ar rangfærslur sem fyrst.“ Yfirlýsing frá embætti ríkislögreglustjóra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.