Morgunblaðið - 26.05.2008, Side 1
STOFNAÐ 1913 142. TBL. 96. ÁRG. MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ÞAÐ er ekki á valdi Skipulagsstofnunar
að stöðva Bitruvirkjun en sem kunnugt er
ákvað stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að
hætta við virkjunina í kjölfar álits Skipu-
lagsstofnunar. Ákvörðun stjórnar OR
byggist því fyrst og fremst á pólitísku
mati.
Núverandi lög um mat á umhverfis-
áhrifum eru frá árinu 2005. Í eldri lögum
var talað um að Skipulagsstofnun ætti að
kveða upp „úrskurð“ og í honum ætti að
koma fram hvort fallist væri á fram-
kvæmd eða hvort lagst væri gegn henni.
Með lagabreytingunni 2005 var þessu
breytt og nú veitir Skipulagsstofnun ein-
ungis „álit“ en úrskurðar ekki.
Vægi Skipulagsstofnunar minnkað
Í greinargerð með lagafrumvarpinu
segir að ákvörðunarferli stjórnvalda um
mat á umhverfisáhrifum hafi verið með
öðrum hætti hér en annars staðar á Norð-
urlöndunum. Þar sé ekki um að ræða mið-
læga sjálfstæða ríkisstofnun sem sjái um
framkvæmd laganna og hafi ákvörðunar-
vald. Telja verði eðlilegra að hlutverk
Skipulagsstofnunar sé að samræma gerð
matsáætlana og matsskýrslna og treysta
gæði þeirra. Þingið fól því Skipulags-
stofnun það hlutverk að fara yfir mats-
skýrslur til að kanna hvort þær væru í
samræmi við þær reglur, en taldi ekki að
það ætti að vera hlutverk stofnunarinnar
að ákveða hvort hafna eða leyfa ætti
framkvæmd. Með lögunum var því ótví-
rætt verið að draga úr vægi Skipulags-
stofnunar
Í lögunum segir að stofnunin skuli „gefa
rökstutt álit sitt á því hvort skýrslan upp-
fylli skilyrði laga þessara og reglugerða
settra samkvæmt þeim og að umhverfis-
áhrifum sé lýst á fullnægjandi hátt.“
Af orðanna hljóðan mætti draga þá
ályktun að Skipulagsstofnun ætti einungis
að kanna hvort rétt væri staðið að gerð
skýrslunnar. Í reglugerð segir hins vegar
að Skipulagsstofnun skuli „gefa álit um
mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og
starfsemi sem þeim fylgir“.
Ef sveitarfélag ákveður að leyfa fram-
kvæmd þrátt fyrir neikvætt álit Skipu-
lagsstofnunar verður hún að rökstyðja þá
ákvörðun. Jafnframt er hægt að vísa
þeirri ákvörðun til úrskurðarnefndar
skipulags- og byggingamála. Sú nefnd hef-
ur oftar en einu sinni samþykkt fram-
kvæmd sem skipulagsnefnd hafði veitt
neikvæða umsögn.
Pólitísk
ákvörðun
Skipulagsstofnun úr-
skurðar ekki lengur
Morgunblaðið/RAX
Bitra Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur
ákveðið að hætta við Bitruvirkjun.
SAMKOMULAG náðist um nýjan
kjarasamning Bandalags starfs-
manna ríkis og bæja (BSRB) og rík-
isvaldsins til skamms tíma seint í
gærkveldi og voru samningar und-
irritaðir rétt fyrir miðnættið. Samn-
ingurinn er til ellefu mánaða og
kveður á um 20.300 króna hækkun
allra launaflokka og hækkunar á
greiðslu í sjúkrasjóði um 0,2 pró-
sentustig, auk þess sem tekið er á
ýmsum réttindamálum. Samningur-
inn er til ellefu mánaða, gildir frá 1.
maí og út marsmánuð á næsta ári.
„Ég er mjög ánægður að sam-
komulag skuli vera í höfn,“ sagði Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB,
í gærkveldi í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég tel hagsmunum félaga í
BSRB vel borgið með því að gera
skammtímasamning um krónutölu-
hækkun á laun við þessar aðstæður.
Þó að samningurinn sé til skamms
tíma eyðir þetta óvissu. Við höfum
staðið frammi fyrir þeirri hættu að
hjakka í sama farinu samningslaus
einhvern tíma og það er engum til
góðs, að sjálfsögðu ekki okkar fé-
lagsmönnum og ekki samfélaginu
heldur. Nú á að taka höndum sam-
an og ráðast með sameiginlegu
átaki að þeim vágesti sem helst
ógnar okkar samfélagi sem er
verðbólgan. Það er grundvallarat-
riði að okkur takist að ná verð-
bólgunni niður og vöxtum sem eru
að setja mörg heimili og fyrirtæki
í mikinn vanda,“ sagði Ögmundur.
Hann sagði að BSRB hefði ver-
ið með sterka áherslu á að umönn-
unargeirinn yrði efldur með sér-
tækum aðgerðum, fjárframlögum
sem gengju til þess að bæta kjör
umönnunarstétta. Það væru von-
brigði að það skyldi ekki ná fram
að ganga í þessum samningum.
Ögmundur sagði að krónutölu-
hækkun samninganna væri svipuð
þeirri sem samið hefði verið um á
almennum markaði.
BSRB gerir skammtíma-
samning til 11 mánaða
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Undirskrift Ögmundur Jónasson og Gunnar Björnsson handsala nýjan
kjarasamning BSRB og ríkisvaldsins rétt fyrir miðnættið.
Allir launataxtar
hækka um 20.300
kr. frá 1. maí
MIKIL flóðahætta er nú á
skjálftasvæðunum í Sichuan-
héraði í Kína eftir að öflugasti
eftirskjálfti sem mælst hefur síð-
an stóri skjálftinn reið yfir fyrir
tveimur vikum skók hamfara-
svæðið í gær. Skjálftinn mældist
5,8 á Richter-kvarða. Að minnsta
kosti tveir létust í skjálftanum í
gær en yfir 70.000 hús hrundu og
talið er að um 200.000 geti hrun-
ið til viðbótar á næstu dögum.
Yfirvöld segja að 69 stíflur geti
gefið sig auk þess sem tvísýnt sé um hundruð annarra stíflna. Tala
látinna frá upphafi skjálftanna er nú komin yfir 60.000 og eru yfir 5
milljónir manna heimilislausar. | 14
Neyðin eykst í Kína í
kjölfar eftirskjálfta
Allslaus Drengur situr uppi í
tré í búðum fyrir heimilislausa.
AP
Ástin er diskó,
lífið er pönk >> 33
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinu
PENINGAR
Í LJÓÐLIST
VESTUR-ÍSLENDING-
URINN BILL HOLM
SKRIFAR Á HOFSÓSI >> 16
ÝTRUSTU NAUÐSYNJAR
ERU INNAN SEILINGAR
FJÁRMÁL FJÖLSKYLDUNNAR >> 17
KRÓNURÆKT
Í GARÐINUM
STOFNAÐ hefur verið nýtt róðr-
arfélag í Reykjavík og skipulegar
æfingar hafnar. Aðalforsprakkinn,
Guðmundur Hrafn Arngrímsson,
kynntist íþróttinni í Kaupmanna-
höfn.
Félagið var stofnað fyrr í mán-
uðinum og þótt mesti krafturinn
fari í æfingar fyrir sjómannadag-
inn í upphafi hafa Guðmundur og
félagar hans verið að kynna íþrótt-
ina fyrir almenningi.
Guðmundur er landslags-
arkitekt hjá VSÓ ráðgjöf og hefur
smitað vinnufélaga sína af áhug-
anum. Fólkið skemmti sér vel þeg-
ar farið var á róðraræfingu undir
leiðsögn Guðmundar og komust
raunar færri að en vildu. | 9
Nýtt róðrarfélag vinnur að því að gera kappróður að alvöruíþrótt
Morgunblaðið/Valdís Thor
Áhuginn
smitast í
vinnunni