Morgunblaðið - 26.05.2008, Síða 15

Morgunblaðið - 26.05.2008, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 15 MENNING SAMÍSKA leikhúsið Beaivváš sýnir Sá hrímhærði og draum- sjáandinn í Kassanum í Þjóð- leikhúsinu annað kvöld klukk- an átta. Leikstjóri sýningarinnar og listrænn stjórnandi leikhússins er Haukur J. Gunnarsson. Höfundur verksins, Nils As- lak Valkeapää, er eitt þekkt- asta ljóð- og tónskáld Sama. Hann fékkst jöfnum höndum við tónsmíðar, ljóðlist og listmálun, auk þess sem hann lagði stund á heimspeki. Valkeapää hlaut Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 1991. Miðaverð á sýninguna er 2.500 krónur. Leiklist Samísk leiksýning í Þjóðleikhúsinu Haukur J. Gunnarsson Í DAG verður haldinn fyrir- lestur á vegum Asíuseturs Ís- lands um samkynhneigð á Ind- landi og birtingarmyndir hennar í indverskum bók- menntum. Bókmenntafræðingurinn Hoshang Merchant gerir grein fyrir aðstæðum og sjálfsmynd samkynhneigðra á Indlandi og tekur dæmi úr verkum þekktra indverskra rithöfunda sem skrifa á mörgum ólíkum indverskum tungu- málum. Fyrirlesturinn fer fram í Aðalbyggingu Há- skóla Íslands og hefst klukkan 12. Bókmenntir Samkynhneigð á Indlandi Hoshang Merchant Kirsten Rask heldur fyr- irlestur á vegum Dansk- íslenska félagsins og Íslenska málfræðifélagsins undir yf- irskriftinni: „Rasmus Kristian Rask – stórar hugmyndir í litlu landi.“ Þar mun hún rekja hvernig Rask kom danskri tungu á kortið sem sjálfstæðu tungu- máli. Áður höfðu Grimms- bræður skilgreint hana sem þýska mállýsku. Fyrirlesturinn fer fram á dönsku í stofu 101 í Háskólatorgi Háskóla Íslands og hefst klukkan fjögur í dag. Fræði Rask og sjálfstæð dönsk tunga Rasmus Kristian Rask BANDARÍSKI arkitektinn Frank Lloyd Wright skildi eftir sig yfir 500 byggingar þegar hann lést í hárri elli árið 1959. Af þessum húsum standa enn um 400 og hafa þau aldrei verið eftirsóttari en nú, enda er áhugi á byggingarlist miðrar tutt- ugustu ald- arinnar í hámarki um þessar mund- ir. „Sum þessara húsa eru verðlögð alltof hátt. En al- gengast er að fólk borgi 25 til 40 prósentum meira fyrir þau en sam- bærilegar fasteignir eftir óþekkta arkitekta,“ segir Ron Scherubel, for- maður Frank Lloyd Wright- forvörslufélagsins, í viðtali við New York Times. Hann segir fólkið sem kaupir hús eftir Wright ekki síður leggja mikið fé í að halda þeim við. „Ef hjarir gefa sig hringja þau í okkur til þess að fá ábendingar um handverksfólk sem getur gert nýjar hjarir sem eru ná- kvæmlega eins. Ef það þarf að leggja nýja þaksteina vilja þau láta búa þá til með sömu aðferð og var upphaflega notuð. Þetta finnst mér frábært.“ Það er ekki bara áhugafólk um byggingarlist sem fjárfestir í þess- um húsum því þau hafa marga þá kosti sem þykja eftirsóknarverðir í íbúðarhúsnæði í dag. Meðal höfund- areinkenna Wrights eru stórir gluggar sem ná ofan í gólf, mikið op- ið rými og áhersla á náttúruna í kring. Steinn og gler Hús eftir Wright. Mikil eftirspurn eftir Wright 25 til 40 prósentum dýrari en önnur hús Frank Lloyd Wright STÆRSTA safn af verkum eftir breska súrrealista er í eigu Jeffrey Sherwin, læknis á eftirlaununum. Það verður bráðlega sýnt í ný- listasafni í Middlesbrough. Verkin í safninu eru meðal annars eftir Henry Moore, Paul Nash, Damien Hirst og Glen Baxter og þar finnast líka verk eftir listamenn af meg- inlandinu eins og René Magritte. Það telur alls um 350 verk. Sherwin eyðir síðkvöldunum oft í að endurraða verkunum til þess að sjá þau í nýju ljósi og ólíku sam- hengi. Hann fékk áhuga á súrreal- isma þegar fimmtíu ára afmælis hinnar frægu súrrealista sýningar í London árið 1936 var minnst með sögusýningu í heimabæ hans Leeds. „Hún opnaði augu mín, ég vissi ekki fyrr en þá að það væri neitt til sem héti breskur súrrealismi,“ sagði hann í samtali við Guardian. „Ég er venjulegur maður og súrrealismi er eitthvað sem venjulegt fólk skilur. Þetta er raunveruleikinn, nema honum er snúið á haus. Þú sérð hluti sem þú þekkir, annað en í ab- straktlist eða expressjónisma, sem þarf yfirleitt að útskýra. Maður hugsar með sér: En áhugavert! En spennandi!“ Safnaði súrrealistum Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Á SKJÁ í Listasafni Reykjavíkur má sjá Israel Rosenfield útskýra hvernig svarthvít ljósmynd breytist í litmynd. Áhugamál Rosenfields eru svo fjölbreytileg að það má bú- ast við því að sjá hann útskýra hina ólíklegustu hluti. Hann er þó eink- um kunnur fyrir hugmyndir sínar um þann leyndardóm sem manns- heilinn er. Rosenfield aðstoðaði umsjónar- menn Tilraunamaraþonsins um liðna helgi, þá Hans Ulrich Obrist og Ólaf Elíasson, við að velja vís- indamenn til þátttöku á þessu stefnumóti lista og vísinda. Rosen- field nam stærðfræði, læknisfræði og heimspeki og er kunnur háskóla- kennari og fyrirlesari. Hann hefur skrifað margverðlaunaðar bækur; þar á meðal um heilann, taugalífeðl- isfræði, meðvitundina og DNA, og tvær satýrur. Skrif hans hafa vakið athygli ýmissa listamanna og verið notuð af þeim; til að mynda hefur hann unnið með Ólafi Elíassyni. „Ég var beðinn að hitta íslenska vísindamenn og stinga upp á því hverjum ætti að bjóða. Það var nokkuð óþægileg staða því við hefð- um getað boðið svo mörgum. Ég kom því í desember og hitti fólk.“ Við Rosenfield ræðum saman „baksviðs“ í Hafnarhúsinu en frammi er fjöldi fólks að fylgjast með hreyfilistamanni frá Venesúela flytja mál sitt, á þessum stefnumót- um lista og vísinda. En hverju var Rosenfield að leita eftir? „Ég velti fyrir mér hvaða áhersluþáttum ég ætti að sækjast eftir frá íslensku vísindamönnunum. Sjónir beindust vitaskuld að sögu Íslenskrar erfðagreiningar, sem er þekkt alþjóðlega, hefur ýmsar vís- indalegar vísanir og tengist vís- indum og stjórnmálum. Ég vildi fá til liðs við okkur fólk af þeim vett- vangi til að fjalla um heim erfða- tækninnar. Það gekk því miður ekki, enginn var reiðubúinn að tjá sig. Að lokum fórum við því ekkert út í erfðavísindin. Við vildum einnig koma inn á heim taugalíffræðinnar og því hitt- um við Hilmar B. Janusson, fram- kvæmdastjóra rannsóknar- og þró- unarsviðs Össurar. Hann er að vinna að afar áhugaverðum hlutum með stoðtækjum og hefur for- vitnilega heimspekilega sýn. Til að skapa samtal á milli Hilmars og annarra, til að mynda um líkamann, buðum við til dæmis Peter Coles, sem er stjarneðlisfræðingur sem veltir heiminum fyrir sér. Við höfum verið að velta fyrir okkur hug- myndum um sjálfsmyndir, myndinni af heiminum og hugmyndum um hreyfingu og skynjun og hvað að- skilur þetta tvennt. Það varð að eins konar þema.“ Nýr skilningur verður til – Við að hlýða á þessa for- vitnilegu en ólíku þátttakendur vaknar spurningin hvort þið séuð að reyna að þrýsta vísndum og listum saman. „Alls ekki. Það er ekki hægt. Ef þú reynir að útskýra listir með vís- indum, þá verður það bara kjánaleg æfing.“ – En hvað gerist þegar þú stillir listum og vísindum upp saman? „Ég veit það ekki. Þegar þú geng- ur út á götu verðurðu fyrir alls kyns upplifunum sem hafa áhrif á þig síð- ar um daginn. Það sama má segja um uppákomurnar hér. Þú heyrir eitthvað, ert kannski að vinna í list- um en kemst að einhverju forvitni- legu úr vísindaheiminum. Hver veit hvað gerist? Fólk verður oft fyrir áhrifum af öðrum og af hugmyndum sem það rekst á á óvæntan hátt; það er hluti af margbreytileika lífsins. Áhrif eru svo mikilvæg.“ – Hér er bent á að myndlist getur verið ferli, ekki bara hlutur. „Einmitt. Þetta er svo mikið um minningar og móttöku, um skilning. Maður er sífelllt að vinna úr minn- ingum og upplifunum. Maður festir mynd ekki í huga sér á varanlegan hátt, hugurinn er sífellt að endur- meta og endurskapa úr þeim upp- lýsingum sem við tökum inn. Upp- lifanir eru settar í nýtt samhengi, nýr skilningur verður til. Þetta er svo sannarlega ferli. Listin er svo dýnamísk í eðli sínu að hún er alltaf að breytast. Eins er mikil fegurð í stærðfræði, fagur- fræði sem gerir hana spennandi – burtséð frá því hvort lausnirnar byggi á afgerandi sannleika. Á morgun geta komið fram nýjar up- lýsingar sem breyta hugmyndum okkar og það sem við teljum satt í dag getur verið rangt á morgun; þar er munurinn á trúarbrögðum og vísindum. Í vísindum er sífellt leitað að nýjum lausnum og svörum.“ Róttækar breytingar – Fyrir 20 árum hefði maraþon eins og þetta varla verið haldið hér. „Það er líklega rétt. En ég held það megi segja um hvaða tímabil sem er í sögunni, að hlutirnir taki róttækum breytingum. Líttu á bíl- inn, tilkoma hans hafði afar róttæk áhrif á lífshætti manna. Svo ekki sé minnst á lestar, flugvélar, DNA! Þetta eru allt breytingar, eins og á 19. öldinni þegar umræður voru hvað heitastar um kenningar Darw- ins, öll sú gróteska þvæla um sköp- unarsöguna hafði gríðarleg áhrif. Þá voru sköpunarsinnar í miklum meirihluta og þeim þóttu hug- myndir Darwins gróteskar! Samt eru þær undirstaða svo margs í hugsunum okkar og skoðunum um lífið og tilveruna. Þróunin hefur ver- ið til staðar, þótt hún virðist vissu- lega vera hraðari núna.“ – Hvað kemur út úr maraþoninu? „Það er erfitt að segja. Þetta er áhugaverður fundur lista og vísinda og kannski leiðir hann til fleiri slíkra funda. Ýmsar mikilvægar hugmyndir í vísindum eru ekki eins kunnar og þær ættu að vera og dag- skrá eins og hér hjálpar til við að miðla þeim; fólk verður fyrir örvun af áhugaverðum upplifunum.“ Listahátíð í Reykjavík | Israel Rosenfield valdi vísindamenn á Tilraunamaraþonið Áhrif eru svo mikilvæg Morgunblaðið/Einar Falur Samræða „Ef þú reynir að útskýra listir með vísindum, þá verður það bara kjánaleg æfing,“ segir Israel Rosen- field. Með því að stilla þessum heimum upp saman geti hinsvegar orðið til áhugavert samtal. Upplifanir settar í nýtt samhengi Í HNOTSKURN » Tilraunamaraþonið er um-fangsmesta framkvæmd sem Listasafn Reykjavíkur hefur staðið fyrir. Um fjörutíu lista- og vísindamenn komu að því. » Israel Rosenfield aðstoðaðivið val íslenskra og erlendra vísindamanna sem tóku þátt. » Rosenfield nam stærðfræðiog læknisfræði við N.Y.U. og er doktor frá Princetonháskóla. » Sýningunni í Hafnarhúsinulýkur í ágústlok. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.