Morgunblaðið - 26.05.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 31
Krossgáta
Lárétt | 1 karp, 4 stilltur,
7 ryskingar, 8 þakin ryki,
9 væn, 11 numið, 13 kven-
fugl, 14 sammála, 15 þrí-
hyrna, 17 handleggja, 20
títt, 22 misteygir, 23 bætt,
24 þreyttar, 25 hinn.
Lóðrétt | 1 þægilegur við-
ureignar, 2 fiskar, 3 lítið
skip, 4 ómjúk, 5 byssu-
bógs, 6 staðfest venja, 10
margt, 12 blekking, 13
saurga, 15 afdrep, 16 ilm-
ur, 18 auðugan, 19 nabb-
inn, 20 eirðarlaus, 21 hey.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 auðsveipt, 8 lagin, 9 doppa, 10 nei, 11 narra, 13
róaði, 15 hvarf, 18 gassi, 21 lóu, 22 rugga, 23 leiti, 24
ónytjungs.
Lóðrétt: 2 uggur, 3 senna, 4 endir, 5 pipra, 6 flón, 7 bali,
12 rýr, 14 ósa, 15 hóra, 16 augun, 17 flatt, 18 guldu, 19
sting, 20 iðin.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki reyna að kaupa þér aðgang
að einu né neinu. Allt sem þú kemst ekki
lagalega inn í, hentar þér ekki – punktur.
Réttu dyrnar munu opnast þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Að hugsa öðruvísi en fólkið í kring-
um þig mun hjálpa þér að öðlast það sem
þú vilt. Þegar aðrir mæla velgengni með
málbandi sérð þú hlutina heildrænt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Á tilfinningaþrungnu augnabliki
gæti reynst rétt að greiða götu einhvers,
gefa mikið þjórfé eða lifa hátt. En er það
enn rétt þegar þú brýtur eyðsluna til
mergjar?
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Lærðu, notaðu og mergsjúgðu
upplýsingarnar. Því hvað er gott við það
að vera á réttum stað á réttum tíma, ef
maður getur ekki nýtt sér tækifærið?
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Njóttu þín í dag eins og ljónið eitt
kann að njóta sín. Gerðu sýningu úr öllu
sem þú kemur nálægt; vinnunni, innkaup-
unum, þrifunum. Skemmtu öðrum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ef þú veist ekki hvernig þú átt að
taka á vandamáli, er möguleiki að bíða og
sjá hvort það hverfur. Tíminn læknar að
lokum, ef ekki bara gleymir þér!
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu engan trufla þig. Brýndu skila-
boðin. Slepptu upplýsingum sem mæla
þér í mót, forðastu þá sem vilja eyða skila-
boðunum. Vertu markviss og þú getur
ekki tapað.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Er komið að eindaga?
Tryggðu þér hjálp með því að láta ein-
hvern leika varðhund fyrir markmiðin
þín. Traust skiptir öllu máli svo þú getir
staðið þig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Kæti er tónninn sem þú til-
einkar þér, af því að hún er flott, ekki auð-
veld. Þú leggur ætíð áherslu á það besta í
lífi þínu, og því vilja margir kynnast þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert einn af fáum sem eru til
reiðu þegar þörf myndast einhvers stað-
ar. Það er því þitt hlutverk að verja það
sem aðrir hafa dofnað fyrir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú færð fréttir sem hrista upp
í draumórum þínum um hvernig hlutirnir
ættu að vera eða munu verða. Draumar
þínir gætu enn ræst. Ekki láta þetta
koma þér úr jafnvægi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Ef valkostur er heimskulegur,
hættir hann ekki að vera það, þótt milljón
manns kjósi hann. Þú syndir á móti
straumnum, gleðst yfir því seinna meir.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 c5 2. Rf3 Rf6 3. e5 Rd5 4. Rc3 e6
5. Re4 f5 6. Rc3 Re7 7. b3 a6 8. g3 Rbc6
9. Bg2 Rg6 10. Bb2 Be7 11. 0-0 0-0 12.
He1 b5 13. h4 Bb7 14. Re2 f4 15. h5
fxg3 16. fxg3 Rh8 17. Rf4 Rf7 18. Hf1
Rh6 19. De2 Dc7 20. Rh3 Hf5 21. Rh2
Hxf1 22. Hxf1 Rf5 23. Hxf5 exf5 24.
Bd5 Kh8 25. Dg2 Rd8 26. h6 Bxd5 27.
Dxd5 Dc6 28. hxg7 Kxg7 29. Dd3 Re6
30. Dxf5 Hf8 31. Dg4 Kh8 32. Rf1 c4 33.
Rf4 Hg8 34. De2
Staðan kom upp í rússnesku deilda-
keppninni sem lauk fyrir skömmu.
Stórmeistarinn Denis Khismatullin
(2.584) frá Rússlandi hafði svart gegn
landa sínum og kollega Evgeny Najer
(2.627). 34. … c3! 35. Bxc3 Rxf4 og
hvítur gafst upp enda fokið í flest skjól
eftir 36. e6+ Dxc3.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Bragð frá Vín.
Norður
♠ÁKD2
♥G109
♦Á85
♣874
Vestur Austur
♠G94 ♠108763
♥754 ♥83
♦106 ♦KG94
♣ÁKD63 ♣102
Suður
♠5
♥ÁKD62
♦D732
♣G95
Suður spilar 4♥.
„Það er bragð að brauðinu frá Vín,“
sönglaði sagnhafi og stakk upp ♦Á.
Áður hafði þetta gerst: Norður vakti á
Standard-laufi, suður svaraði á 1♥ og
svo lá leiðin eftir bókinni upp í 4♥.
Vestur tók þrjá slagi á ♣ÁKD og aust-
ur kallaði í tígli. Samviskusamlega
skipti vestur yfir í ♦10 og það var á
þessum tímapunkti sem sagnhafi hóf
upp raust sína: „Það er bragð að
brauðinu frá Vín.“ Hann drap á ♦Á,
tók trompin til enda og þvingaði austur
með ♦K og lengdina í spaða. Sígilt Vín-
arbragð, sem byggist á því að af-
blokkera í öðrum þvingunarlitnum og
leggja þannig grunninn að jafnvígri
einfaldri kastþröng.
Vörnin gat brotið upp þvingunina
með því að skipta yfir í spaða í fjórða
slag og það áttu báðir varnarspilarar
að geta séð – ekki síst austur. Hefði
betur tekið ráðin af makker sínum,
trompað þriðja laufið og spilað spaða.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Hvernig vekja íslenskir grænmetisbændur athygli áþví að framleiðsla þeirra sé íslensk.
2 Hvaða íslenskur listamaður á verk á tveimur sýn-ingum í París þessa dagana?
3 Hvaða lið varð á fimmtudag skoskur meistari í knatt-spyrnu?
4 Hver er umboðsmaður barna?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Hvar er Vatnasafnið sem var opnað fyrir rúmu ári og hýsir lista-
verk bandarísku listakonunnar Roni Horn? Svar: Í Stykkishólmi.
2. Hver á fjarmálablaðið Wall Street Journal? Svar: Rupert Mur-
doch. 3. Hvaða íslenskur kylfingur tekur þátt í keppni á Evr-
ópumótaröð kvenna í golfi? Svar: Ólöf María Jónsdóttir.
4. Leikverkið Janis Joplin 27 verður sett upp í Íslensku óperunni í
haust. Hver leikur aðalhlutverkið. Svar: Ilmur Kristjánsdóttir.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
Fyrirlestur um uppreisn-
ina í Frakklandi í maí 1968
FRANSKI blaðamaðurinn
Eric Aeschimann heldur
fyrirlestur um uppreisn-
ina í Frakklandi í maí
1968 í tilefni af því að í
þessum mánuði eru fjöru-
tíu ár liðin frá þeim at-
burðum.
Umræður hafa verið í
Frakklandi og víðar um
áhrif þessa tímabils á nú-
tímann og hátt á annað
hundrað bækur hafa verið
gefnar út þar sem efnið. Í
fyrirlestrinum fer Eric
Aeschimann yfir þessa
umræðu og reynir að
svara spurningunni
hverju atburðirnir
breyttu, nú þegar fjórir
áratugir eru liðnir frá
þeim.
Eric Aeschimann er
blaðamaður við blaðið
Libération og hefur haft
með höndum ritstjórn og
vinnslu á greinaflokki um
„mai 68“ sem hefur verið
birtur í Libération und-
anfarna mánuði.
Hann er auk þess höf-
undur tveggja skáldsagna
og bóka um efnahags- og
stjórnmál.
Fyrirlestur fer fram í
Alliançe francaise mið-
vikudaginn 28. maí kl. 20
og fer fram á frönsku, en
hann verður túlkaður á
íslensku. Að fyrirlestri
hans loknum verða um-
ræður með þátttöku Við-
ars Þorsteinssonar og
nokkurra manna og
kvenna sem sum hver
urðu sjálf vitni að atburð-
unum, Sigurðar Páls-
sonar, Gérard Lemarquis
og Dominique Plédel. Um-
ræðum stýrir Torfi Tul-
inius/Friðrik Rafnsson.
Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill aðgang-
ur.
PÁLL Ísólfur Ólason hefur varið dokt-
orsritgerð sína í lífupplýsingatækni við Dan-
marks Tekniske Universitet í Lyngby, Dan-
mörku. Ritgerðin nefnist „Data mining and
data integration in biology“.
Í ritgerðinni greinir frá rannsóknum í
tengslum við samþættingu gagna í líffræði
og þá sérstaklega erfðafræði. Undanfarinn
áratug hefur gagnamagn í erfðafræði og líf-
fræði aukist gífurlega og margar nýjar teg-
undir gagna litið dagsins ljós. Vefþjónustur
og dreifðir gagnagrunnar gegna æ mik-
ilvægara hlutverki í greiningu og samþætt-
ingu á slíkum gögnum og lýsir fyrsti kafli rit-
gerðarinnar starfi Páls á þeim vettvangi.
Annar hluti ritgerðarinnar lýsir nýrri teg-
und próteingagna, víxlverkunum milli pró-
teina, en flest prótein gegna hlutverki sínu
sem hluti af stærri heild ásamt fleiri prótein-
um. Upplýsingar um víxlverkanir próteina
er erfitt að nálgast og sannreyna. Því er mik-
il þörf á módelum og aðferðum til að spá fyr-
ir um víxlverkanir próteina, og lýsir annar
hluti ritgerðarinnar smíðum slíkra aðferða
með hjálp gervitauganeta og stoðvigravéla.
Í þriðja og síðasta hluta ritgerðarinnar
eru upplýsingar víxlverkanir milli próteina
notaðar til að byggja net próteina og upplýs-
ingar um þekkt meingen
notaðar til að spá fyrir um
óþekkt meingen í prótein-
þyrpingum.
Á þann máta spá Páll
og samstarfsfélagar hann
fyrir um ný meingen í
sjúkdómum eins og syk-
ursýki, Alzheimers,
nokkrar tegundir krabba-
meins ásamt öðrum.
Páll vann ritgerð sína undir leiðsögn dr.
Sörens Brunaks við Center for Biological
Sequence Analysis við Tækniháskólann í
Danmörku (DTU). Andmælendur við vörn-
ina voru Anders Gorm Pedersen, prófessor
við DTU, Peter Rice, European Bioinform-
atics Institute, Cambridge og Ole Nörrega-
ard Jensen, prófessor við Syddansk Uni-
versitet.
Páll útskrifaðist frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1997 og lauk meistaraprófi í
efnaverkfræði frá DTU árið 2003. Foreldrar
hans eru Óli Hilmar Briem Jónsson og
Kristín Salome Jónsdóttir arkitektar. Hann
er kvæntur Ólöfu Söru Árnadóttur lækni og
eiga þau eina dóttur, Helenu Evu. Páll starf-
ar hjá Íslenskri erfðagreiningu.
Doktor í lífupplýsingatækni
Páll Ísólfur Ólason