Morgunblaðið - 11.06.2008, Blaðsíða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Björn Jóhann Björnsson og
Halldór Armand Ásgeirsson
bjb@mbl.is | haa@mbl.is
OLÍUKREPPA er orð sem æ fleiri
eru farnir að nota um stöðu mála á
heimsmarkaði með eldsneyti. Þeg-
ar spurt er hvað veldur þessum
hækkunum kemur margt til og
flestar hanga þessar ástæður sam-
an. Ýmsar kenningar eru einnig
uppi og sérfræðingum ber ekki
saman um hina einu sönnu skýr-
ingu.
Aukin eftirspurn er ein skýr-
ingin, ekki síst í Asíu og Afríku,
önnur er sögð veik staða dollars
gagnvart helstu myntum eins og
evru og margir vilja þar kenna pen-
ingamálastefnu Bandaríkjastjórnar
um – að ógleymdri lausafjár- og
húsnæðislánakreppu þar vestra.
Veik staða dollars og lækkandi
verð hlutabréfa leiðir síðan til
þeirrar skýringar sem hefur orðið
ofan á hjá mörgum sérfræðingum,
þ.e. spákaupmennsku, líkt og fram
kom í nýlegri fréttaskýringu í Við-
skiptablaði Morgunblaðsins.
Fjárfestar og vogunarsjóðir eru í
auknum mæli farnir að stunda við-
skipti með olíu eins og hverja aðra
hrávöru og þessa dagana eru því
ýmsir duglegir að „tala upp“ olíu-
verðið, t.d. greiningardeildir helstu
banka heims. Rætt er um olíu-
hækkanir sem hverja aðra verðbólu
sem gæti sprungið með látum.
Olíufurstar eru ekki undanskildir
með það að „tala upp“ verðið, líkt
og forstjóri rússneska olíurisans
Gazprom, sem lét hafa eftir sér á
ráðstefnu í Frakklandi í vikunni að
olíuverð kynni að fara í 250 dali á
tunnuna, en verðið í dag er komið
upp undir 140 dollara.
Einn viðmælenda blaðsins sagð-
ist telja að sanngjarnt verð fyrir ol-
íuna væri um 100 dollarar, allt um-
fram það væri vegna spákaup-
mennskunnar. Hafa vogunarsjóðir
flutt til heilu deildirnar til að fara í
olíuviðskipti eingöngu og talið er
að þessum kaupahéðnum takist að
halda verðinu háu nokkuð um sinn.
Spurning sé aðeins hvenær bólan
springi og talað hefur verið um 200
dollara sem algjört hámark. Hvort
markaðurinn nær þeim hæðum skal
ósagt látið en ekki er langt síðan
vísustu menn töluðu um að olía gæti
að hámarki farið í 100 dollara tunn-
an.
Dýr orð féllu á föstudag
Nokkrar skýringar eru síðan
sagðar á því stökki sem olíuverðið
tók síðastliðinn föstudag. Þá féllu
dýr orð úr munni ráðherra í rík-
isstjórn Ísraels sem kyntu undir
„olíubálinu“. Lýsti hann því yfir að
ef Íranir héldu áfram óbreyttri
stefnu í kjarnorkumálum yrði óum-
flýjanlegt að gera loftárásir á land-
ið. Þessi ummæli ollu mestu dags-
hækkun á heimsmarkaðsverðinu í
langan tíma.
Einnig hafa jarðskjálftarnir í
Kína haft áhrif á olíuverðið, þar
sem loka varð nokkrum kolanám-
um og grípa þurfti til olíunnar í
staðinn. Þá hefur eftirspurn eftir
gasolíu stóraukist vegna Ólympíu-
leikanna í Peking. Allt hefur þetta
bæst ofan á aðra eftirspurn í Asíu,
sem farið hefur ört vaxandi. Hefur
þessi eftirspurn t.d. leitt til þess að
gasolía, öðru nafni dísilolía, hefur
hækkað mun meira en sjálft bensín-
ið. Þetta hefur komið vel í ljós hér á
landi en dísilolíulítrinn er nú orðinn
16 krónum hærri en bensínið. Hef-
ur dísilolía hækkað um rúm 50% á
einu ári, á meðan 95 okt. bensín
hefur hækkað um 36%. „Gömlu
góðu dagarnir“ koma því varla aft-
ur, eins og einn viðmælenda orðaði
það, þegar bensínið var dýrara en
dísilinn.
Stöðugt fleiri ökumenn hafa fært
sig yfir í dísilbíla og þá er urmull
vinnuvéla og -tækja í Asíu og Afr-
íku keyrður áfram með dísilolíu,
sem aukið hefur eftirspurnina.
Einnig hefur tekist að auka gæði
dísilolíunnar með betri tækni hjá
olíuhreinsunarstöðvum.
Hvað gerist næst?
Sem fyrr segir vita fáir hve lengi
þessar hækkanir geta staðið yfir.
Strax í dag gætu komið vísbend-
ingar um þróun næstu vikna þegar
birtar verða nýjar birgðatölur í
Bandaríkjunum. Þá hafa Sádi-
Arabar boðað til fundar 23. júní nk.
með helstu olíuframleiðendum og
kaupendum heims, um til hvaða að-
gerða hægt er að grípa til að koma
á stöðugleika á markaðnum. Eru
miklar vonir bundnar við þann fund
og að aukið verði við birgðirnar.
Kynt undir olíubálið
Aukin eftirspurn, veik staða dollars og spákaupmennska eru meðal helstu
skýringa á hækkuðu olíuverði Beðið eftir birgðatölum frá Bandaríkjunum
BENSÍN 95 OKT.
DÍSILOLÍA
Júlí
2005
114,1 kr./l
114 kr./l
Janúar
2006
114,7 kr./l
112,8 kr./l
Júlí
2006
134,4 kr./l
128,3 kr./l
Janúar
2007
117,7 kr./l
118,5 kr./l
Júlí
2007
132,2 kr./l
132,7 kr./l
Janúar
2008
137,9 kr./l
141,4 kr./l
Mars
2008
152,9 kr./l
162,9 kr./l
Júní
2008
170,4 kr./l
186,8 kr./l
Að fylla bíl með 60 l tank af 95
okt kostaði 7.476 kr. í júní
2007.
Nú kostar það 10.224 kr.
Eldsneyti í flugvél fram og til
baka frá Keflavík til Boston
kostar rúmlega þrjár milljónir
eða 168,1 dollara tunnan. Það er
92,7% hækkun frá því fyrir ári.
Hráolía 69,40 dollara tonnið
í júní í fyrra.
Nú kostar hún 90 dollara á
tonnið.
Tunnan af flugvélaeldsneyti
kostar 168,1 dollara tunnan í
dag. Fyrir ári kostaði hún 87,2
dollara á tunnuna og er þetta
92,7% hækkun.
Eldsneyti
á Íslandi
Í HNOTSKURN
»Miklar olíuverðshækk-anir koma ekki strax
fram í öllum geirum at-
vinnulífsins, t.d. í ferðaþjón-
ustu þar sem fyrirtæki eru
bundin við verð vegna pant-
ana með löngum fyrirvara.
»Hækkanir fara beint út ígjaldskrár flug- og
skipafélaga og rekstrar-
kostnað.
»Vegna gengisfalls krón-unnar er ódýrara fyrir
erlenda ferðamenn að kom-
ast hingað en hér mæta
þeim hækkanir á nauðsynja-
vörum eins og mat og drykk.