Morgunblaðið - 13.06.2008, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2008 17
ÞAÐ MÁ með sanni segja að framlag
Gallerís Ágústs til listahátíðar í ár sé
smellið, enda sýnir þar Andrea Ma-
ack undir yfirskriftinni SMART.
Andrea hefur brugðið sér um stund-
arsakir í gervi ilmvatnsframleiðanda
og kveðst í samvinnu við franskt ilm-
vatnsfyrirtæki hafa „sett á mark-
aðinn“ nýja tegund ilmvatns –
SMART.
Hún hefur einnig hannað og hand-
unnið umbúðirnar: flöskur sem
skreyttar eru teikningum Andreu og
forláta öskjur úr hertu plastefni.
Markaðssetningin er af listrænum
toga: fjögur ilmvatnsglös, ásamt hvít-
um, hringlaga öskjunum, hanga á
vegg gallerísins líkt og um fallega
lágmynd væri að ræða. Á öðrum vegg
hanga pappírsstrimlar sem gestir
mega taka til að fá á ilmvatnsprufu.
Pappírsstrimlarnir eru upprunalega
hluti af uppstækkaðri teikningu eftir
listamanninn sem var hlutuð niður og
fest þannig á vegginn. Teikningin
hverfur þannig smám saman af
veggnum, eftir því sem fleiri gestir ná
sér í „prufu“ og hafa hluta af sýning-
unni með sér heim.
Andrea líkir hér eftir venjubund-
inni vörukynningu en snýr upp á
hana og einangrar sem listræna at-
höfn í samhengi listgallerísins.
Skírskotað er til þess tákngildis
sem lagt er í vörur í auglýsingum:
slíkt gildi getur gefið til kynna eft-
irsóknarverðan lífsstíl sem fylgir
neyslu vörunnar. Andrea beinir hins
vegar athygli áhorfenda/neytenda að
hinu metnaðarfulla handverki og
hugviti sem oft býr í hönnun og útliti
slíks varnings. Hér er hönnunin ekki í
beinni þjónustu lífsstílsímyndar held-
ur staldrar áhorfandinn við sýning-
arefnið sem slíkt.
Fyrirætlun listamannsins virðist
sú að breyta sýn áhorfandans á hinn
upprunalega varning og vekja hann
til umhugsunar um sjálfsmynd sína
sem neytandi, og ekki síst um mörk
fjöldaframleidds varnings og list-
ræns. Slík stílbrögð eru ekki ný af
nálinni í samtímalistum en sýningin
hefur fágað og lokkandi yfirbragð og
má því segja að Andreu takist að
rugla sýningargesti í ríminu með at-
hyglisverðum hætti; með því að láta
þátttökureynslu þeirra í hinum list-
ræna gjörningi renna saman við
kunnuglega reynslu og algleymi
neytandans.
Ilmandi neysla
Morgunblaðið/Valdís Thor
Ilmurinn Áhorfandinn er vakinn til umhugsunar um sjálfsmynd sína sem neytandi, segir m.a. um sýninguna.
MYNDLIST
Gallerí Ágúst
Til 28. júní 2008. Opið miðv.-lau. kl. 12-
17 og eftir samkomulagi.
Ókeypis aðgangur.
SMART – Andrea Maack
Anna Jóa
Á SÍÐARI tónleikum Njúton í Frí-
kirkjunni var m.a. boðið upp á þrjár
íslenskar tónsmíðar.
Sú fyrsta var eftir Atla Heimi
Sveinsson og nefndist „Fluff and
Drama“. Ég verð að viðurkenna að
mér leist ekki nógu vel á hana í byrj-
un, hún virtist aðallega vera hjakk á
fremur óaðlaðandi tónahendingum
sem engan tilgang virtust hafa.
En síðan gerðist eitthvað. Hjakkið
smám saman leystist upp í áleitna en
draumkennda tónaleiðslu, síendur-
tekin stefbrot sem höfðu undarlega
róandi áhrif á mann. Þessi flötur á
verkinu varð stærri og stærri, uns
hann breiddist út í óendanleikann; of-
urveikir hljómar runnu saman við ei-
lífðina og var það undursamlega vel
útfært undir nákvæmri stjórn Úlfars
Inga Haraldssonar.
„Sononymoys fyrir píanó og tölvu“
eftir Hilmar Þórðarson kom einnig
prýðilega út. Það gerðist svo sem
ekki mikið í tónlistinni, sem hér var í
„unplugged“ útgáfu, en allir framandi
hljómarnir er Tinna Þorsteinsdóttur
píanóleikari spilaði voru fallegir og
sköpuðu notalega stemningu.
Nokkuð síðri var „v18“ eftir Kol-
bein Einarsson, sem þær Tinna og
Berglind María Tómasdóttir flautu-
leikari léku. Vissulega lofaði róleg
byrjunin góðu, en það varð aldrei
neitt úr henni og því var heild-
armyndin óttaleg flatneskja.
Nú getur auðvitað verið að Kol-
beinn hafi aðeins ætlað sér að skapa
tímalaust augnablik með stuttu tón-
verki – það þarf ekki alltaf eitthvað að
GERAST í músík. En útfærslan virk-
aði ekki, verkið var bara allt í einu bú-
ið.
Mér dettur í hug að ástæðan hafi,
a.m.k. að hluta til, verið aðstæður í
Fríkirkjunni, flygillinn þar er ótta-
lega leiðinlegt hljóðfæri og hann var
eingöngu opinn að hálfu leyti. Ég
held að það hafi verið mistök – dósa-
hljómurinn í honum var ekki til að
auka á sjarmann, hvað þá að skapa
tímalausa stemningu, þvert á móti.
Eftir stutt hlé var komið að stóru
tónsmíðinni á efnisskránni. Það var
„Indigenous Music II“ eftir Stephen
Lucky Mosko, sem var kennari Kol-
beins í Kaliforníu. Í tónleikaskránni
mátti m.a. lesa eftirfarandi um verk-
ið: „Þarna má glöggt heyra að dýrt er
kveðið – mörg fínleg blæbrigði í
hljómi og rytma ásamt fágætri virkj-
un samspils hljóðfæraleikaranna fær-
ir þér stórkostlegan hljómaheim sem
seint er hægt að verða þreyttur á“.
Það reyndust ekki orð að sönnu.
Jú, sannanlega samanstóð tónlistin af
allskonar blæbrigðum sem for-
vitnilegt hefði verið að upplifa undir
betri kringumstæðum, en vandamálið
var bara að hljómburðurinn í Frí-
kirkjunni er alls ekki góður. Það er
eitthvað þurrt og leiðinlegt við hann
sem gerir að verkum að tónlist þar
inni nær aldrei að komast á flug. Og
þegar um er að ræða íhugunar-
kenndan hljómagerning þar sem út-
færsla blæbrigða skiptir höfuðmáli,
blæbrigða er skila sér ekki í ómlausu
rýminu, þá er einmitt mjög auðvelt að
verða þreyttur.
Satt best að segja var upplifunin
sársaukafull, ekki síst þar sem
kirkjubekkirnir voru andstyggilegir,
og maður varð þeirri stund fegnastur
þegar tónleikarnir voru búnir.
Sárs-
aukafull
upplifun
TÓNLIST
Fríkirkjan
Tónsmíðar eftir Atla Heimi Sveinsson,
Kolbein Einarsson, Hilmar Þórðarson og
Stepen Mosko. Flytjandi: Njúton (Berg-
lind María Tómasdóttir, Matthías Nar-
deau, Rúnar Óskarsson, Una Sveinbjarn-
ardóttir, Hrafnkell Orri Egilsson,
Gunnlaugur Torfi Stefánsson, Tinna Þor-
steinsdóttir, Hrönn Þráinsdóttir, Frank
Aarnink, Eggert Pálsson og Árni Áskels-
son). Stjórnandi: Úlfar Ingi Haraldsson.
Sunnudagur 8. júní.
Kammertónleikarbbnnn
Jónas Sen
KLASSÍSKIR hljómdiskar með und-
irstöðuverkum gömlu stórmeist-
aranna eru ekki daglegt brauð á ís-
lenzkum plötumarkaði og að auki
sjaldan víst hvort þeir ná alþjóðlegum
hljómgrunni. Má því kalla aðdáun-
arvert hvað hljómlistamenn landsins
láta samt frá sér fara, jafnvel þótt
mest sé út á innlendan status, miðað
við almennt minnkandi plötusölu
seinni ára heima sem heiman.
En vitaskuld er það rakið sjálf-
stæðismál að blanda virku geði við
framlög fremstu erlendra hljómlist-
armanna. Engu minna vert en að
reka sjálfstætt menningarþjóðfélag
án tillits til smæðar. Þrátt (ef ekki
einkum) fyrir aðeins 78 ára aldur
fyrstu tónlistarskóla okkar og 58 ára
sögu sinfóníuhljómsveitar, sem telst
aðeins brot af rótfastri tónlistar-
arfleifð nágrannaþjóðanna sunnar í
álfu.
Samanburðarkrafan verður því
óhjákvæmilega geysihá þegar jafn-
víðkunn standardverk og á þessum
diski eiga í hlut. Frammistaða flytj-
enda er háð jafn miskunnarlausum
smásjárkröfum og t.d. árangur for-
ystusöngvara í 30 þekktustu óperum
Vesturlanda. Enda viðmiðunin aug-
ljós – og geigvæn.
En hafi einhver fyrri viðleitni okk-
ar fólks stundum átt misjafnt erindi á
alþjóðlegum vettvangi, þá er manni
hins vegar skapi næst að álykta að
þetta framlag þeirra Bryndísar Höllu
og Steinunnar Birnu eigi það fullt og
óumdeilanlegt. Hið yndissnjalla litla
fjórþætta verk Jóns Nordal frá 1992,
Myndir á þili, man ég varla eftir að
hafa heyrt betur flutt, og vekur sam-
stundis spurninguna um hvort ekki
fleiri íslenzk verk hefðu komið til
greina, t.a.m. þjóðlagaútsetningar
Hafliða Hallgrímssonar fyrir sömu
áhöfn. Svona til að blaka frekar þjóð-
fánanum.
Arpeggione-sónata Schuberts er
bráðskemmtilega útfærð, sem og
Nocturne Chopins og þríþætt stór-
perlusónata Brahms í e Op. 38 – hvað
þá þríþætt fútúrísk sónata Debussys í
d–moll. Allt afar hlustvæn en um leið
burðug hágæðaverk sem hlusta má á
hvenær sem er. Hnífsamtaka flutn-
ingurinn er nær örðulaus; lifandi og
slyngilega mótaður í hendingum jafnt
sem í styrk. Og þó fetta mætti fingur í
umfjöllunarleysi diskheftis um verk-
in, þá fann ég fátt að fleiru nema hvað
upptökustaðir I og V virtust skila
skýrari píanóhljómi en II–IV.
Ríkarður Ö. Pálsson
Óumdeilanlegt alþjóðaerindi
TÓNLIST
Geisladiskur
Verk eftir Jón Nordal (I), Schubert (II),
Chopin (III), Brahms (IV) og Debussy (V).
Bryndís Halla Gylfadóttir selló, Steinunn
Birna Ragnarsdóttir píanó. Upptökur:
Guðmundur K. Jónsson í Studíói A RÚV
8/2008 (I), Páll S. Guðmundson í Von,
Efstaleiti 1/2007 (II–IV) og Hreinn Valdi-
marsson í Víðistaðakirkju 9/2002 (V).
Tónmeistari: Bjarni R. Bjarnason. Lengd:
74:05. Útgáfa: Smekkleysa, SMC11,
2007.
Myndir á þili. bbbbn
Fjórar stjörnur Bryndís Halla og
Steinunn Birna skila sínu vel.
INNSETNING Jóhannesar
Atla í 101 gallery er til-
þrifamikil á leikrænum nót-
um þar sem dramatísk lýs-
ing og búningar eða gervi
eru áberandi. Fjórar svart-
og hempuklæddar verur,
sem freistandi er að tengja
við höfuðáttirnar fjórar, eru
í aðalhlutverki og sýna ein-
hvern dulrænan fórn-
argjörning – eða galdur í
tengslum við lítið barn með
ásjónu skrímslis. Ásaumaðir
og vatteraðir fánar með
áleitnu og stundum óhugn-
anlegu myndefni virka sem
eins konar leiktjöld og und-
arlegar uglur skríða á jörð-
inni. Verk sem ber yfirtit-
ilinn „Flöskur/Spirit“ hafa
yfirbragð frumstæðra
átrúnaðarlíkneskja þar sem
hver flaska er í líki ein-
hverrar tákngerðrar per-
sónu og ber nafn á borð við
Prestur, Dandy eða Taktur.
Nærtækast er að lesa
sýninguna sem ádeilu á vín-
og leikhúsguðinn Díónýsus
eða Bakkus eins og við ís-
lendingar köllum hann.
Ádeilu frekar en upphafn-
ingu vegna óhugnanlegrar
myndraðar sem ber titilinn
„Dá“ og vísar í örlög raun-
verulegs fólks en ekki bara
leikbrúða. Díónýsus hefur
ákaflega margar skírskot-
anir og hefur verið upphaf-
inn mjög í listum hvers
konar, ekki síst í nútíma-
og samtímalistinni. Eft-
irsóttir eiginleikar hans
hafa verið frelsi, flæði, sam-
runi, leikur og víma. Í
myrkara ljósi má þó tala
um stjórnleysi, upplausn,
sundrungu, sjálfsfirringu og
lífsflótta tengdan eitri hvers
konar. Hinn holi hljómur
leikhúsmyndarinnar á því
ákaflega vel við inntak sýn-
ingarinnar (eins og ég les
það). Hin trúarlega vídd
sem fléttuð er inn í verkin
undirstrikar að hinn holi
hljómur tekur sér bólfestu
ekki bara á yfirborðinu
heldur í innsta kjarna
mannlegs lífs.
Hér er ekki á ferðinni
gamanleikhús heldur upp-
setning tómhyggjuh-
armleiks án allra jákvæðra
skírskotana.
Fæðing harmleiks
Leikræn sýning Í gagnrýni segir m.a. að „Flöskur/Spirit“
hafi yfirbragð frumstæðra átrúnaðarlíkneskja.
MYNDLIST
101 gallery Hverfisgötu
Sýningin stendur til 27. júní. Op-
ið fimmtudaga til laugardaga frá
kl. 14-17
Jóhannes Atli Hinriksson – Te-
nebrae
bbbmn
Þóra Þórisdóttir