Morgunblaðið - 13.06.2008, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. JÚNÍ 2008 27
✝ Stefanía ÓlöfStefánsdóttir
fæddist í Hergilsey
á Breiðafirði 4.
október 1918. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Sunnuhlíð að
morgni 5. júní síð-
astliðins. Foreldrar
hennar voru Stefán
Jónsson, f. 27. sept-
ember 1888, d. 14.
desember 1935, og
Þuríður Jónsdóttir
frá Munaðarnesi á
Ströndum, f. 27. apríl 1879, d. 20.
mars 1953. Stefán og Þuríður
skildu. Systkini Stefaníu, sam-
feðra, voru Þórey, Hafliði Þórður
og Daggrós, þau eru látin, og Sig-
ríður, búsett í Kópavogi. Uppeld-
isbróðir Stefaníu var Hrólfur
Árnason.
Hinn 1. nóvember 1947 giftist
Stefanía Ingólfi Guðbrandssyni, f.
6. apríl 1917, d. 25. september
1990. Foreldrar hans voru Guð-
brandur Jónasson, f. 29. maí 1890,
d. 24. ágúst 1981, og Guðrún
Á uppvaxtarárunum bjó Stef-
anía í Flatey á Breiðafirði og á
Brjánslæk. Þar naut hún sín vel
við leiki og störf. Hún flutti á möl-
ina 17 ára gömul og fór að vinna í
Þvottahúsi Vesturbæjar, en
nokkru síðar á Landakotsspítala,
eða þar til hún stofnaði heimili
með Ingólfi og þau settust að í
Bræðraparti við Engjaveg. Á þess-
um árum sinnti hún hefðbundnum
heimilisstörfum. Þau byggðu sér
einbýlishús við Kársnesbraut í
Kópavogi og fluttu í það 1961. Eft-
ir farsæl ár á Kársnesbrautinni
kom að því að þau minnkuðu við
sig og tók þau nokkur ár að finna
sig, en Kópavog gerðu þau að sín-
um heimabæ allt til hinstu stund-
ar. Eftir að Stefanía flutti á Kárs-
nesbrautina fór hún út á
vinnumarkaðinn aftur, fyrst í nið-
ursuðuverksmiðjunni Ora og síðar
í Málningu ehf. Starfsferlinum
lauk árið 1987. Eigendum Máln-
ingar eru færðar þakkir fyrir
ræktarsemi í hennar garð eftir að
hún lét af störfum. Stefanía bjó
síðustu árin í sambýli við Björn,
son sinn, í Laufbrekku í Kópavogi,
en á haustmánuðum 2007 fékk
hún pláss á hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð, þar sem hún dvaldi síð-
an í góðu yfirlæti.
Útför Stefaníu fer fram frá
Kópavogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
Helga Jónsdóttir, f.
19. júní 1891, d. 14.
apríl 1976. Börn Stef-
aníu og Ingólfs eru a)
Guðbrandur, f. 28.
apríl 1947. Börn m.
Matthildi Ólafsdóttur
(skildu) eru Ingólfur,
sambýliskona Ásrún
Karlsdóttir, Lilja,
sambýlismaður Þór-
arinn Einarsson.
Börn m. Ástríði Jóns-
dóttur (skildu) Her-
dís Rut, sambýlis-
maður Sigurvin
Árnason, Stefanía og Helga Jóna,
sambýlismaður Ragnar Atlason; b)
Björn, f. 4. desember 1948, maki
Steinunn Erla Friðþjófsdóttir.
Börn þeirra eru Linda Björk, maki
Sigurður Benediktsson, Stefán
Logi, sambýliskona Marta, og
Víðir Snær. c) Þuríður, f. 23. des-
ember 1950, maki Jóhannes Pét-
ursson, börn þeirra eru Pétur,
sambýliskona Thelma Birna Ró-
bertsdóttir, Ingólfur, maki Katrín
Vala Arjona, Elínborg og Örn.
Barnabarnabörnin eru 13.
Komið er að kveðjustund. Í dag
verður til moldar borin tengdamóðir
mín Stefanía Ólöf Stefánsdóttir.
Langri lífsgöngu er lokið og lífið oft
verið þér erfitt síðustu árin sökum
slysa og veikinda. Aldrei heyrði ég
þig kvarta, þú hélst ávallt ró þinni og
æðruleysi til hinsta dags. Mig langar
að þakka þér fyrir þær fjölmörgu
góðu stundir sem við áttum saman.
Mikið var skrafað og oft var hlegið.
Stríðnispúkinn var oft við stýrið hjá
mér og gat ég stundum farið offari,
en þú varst alltaf fljót að svara fyrir
þig og áttir auðvelt með að gefa til
kynna þegar nóg var komið. Að leið-
arlokum vil ég þakka þér fyrir góð
kynni og óska þér góðrar heimkomu
á ókunnum slóðum þar sem þú nú ert
komin til þeirra fjölmörgu samferða-
manna sem á undan þér fóru.
Allir sem þér unnu þakkir gjalda.
Ástúð þinni handan blárra tjalda
opið standi ódauðleikans svið.
Andinn mikli gefi þér sinn frið.
(Jóhannes úr Kötlum)
Hvíl þú í friði.
Jóhannes Pétursson.
Nú er hún amma í Kópavogi farin í
sína hinstu ferð.
Hún Stefanía amma mín, sem ég
heiti í höfuðið á, er og verður alltaf
amma í Kópavogi, þó svo að hún hafi
búið um tíma í Hafnarfirði.
Hvar sem ég bjó, í Sandgerði, Ak-
ureyri eða Sauðárkróki, var amma
alltaf í Kópavogi. Hún og afi voru á
Nýbýlaveginum, fastur puntur í öll-
um heimsóknum á suðurhornið.
Amma og afi höfðu þá reglu að
gefa barnabörnunum fyrstu reiðhjól-
in og þó að eitthvað bilaði þá gerði
það ekki til, afi reddaði því og amma
bakaði jólakökur, pönnukökur og
kleinur ofan í alla.
Alltaf var gaman að fá afa og
ömmu í heimsókn og oftar en ekki
var farið í ferðalög með nesti, amma
með prjónana að prjóna lopapeysu á
eitthvert barnabarnið.
Vikan á Illugastöðum og ferðin að
Dettifossi og í Hljóðakletta er oft
rifjuð upp, þegar pústið fór undan
„Concortinum“, en áfram var skrölt
þar til næsta skilti sagði að vegurinn
væri aðeins fær flugvélum. Ég gæti
rifjað upp margt skemmtilegt í sam-
bandi við ömmu, því hún var gam-
ansöm og kát og gerði grín að sjálfri
sér.
Oft var gert að gamni sínu við
matarborðið í Laufbrekkunni en
þangað flutti hún með okkur árið
2000 þegar hún sá sér ekki lengur
fært að búa ein á Nýbýlaveginum.
Oft höfðum við ákveðið að skreppa
út í Flatey sem henni var svo kær og
var þá ákveðið að ég myndi smakka
selspik og súra selshreifa sem í
minningu ömmu voru herramanns-
matur.
Við vissum bæði að sú ferð yrði
aldrei farin en það mátti alveg gera
grín.
Síðasta ferðalag ömmu í lifanda lífi
var að heimsækja okkur Mörtu í
Vogana á afmælisdegi afa 6. apríl sl.
og lítum við á þann dag sem innflutn-
ingsdag okkar en þá var amma orðin
ansi þreytt.
Síðasta myndin af ömmu var tekin
af henni á Sunnuhlíð með nýfædda
dóttur okkar, Mörtu, nýjasta lang-
ömmubarnið, í fanginu.
Amma mín, ég ætla að geyma þá
mynd og sýna dóttur minni þegar
hún stækkar og segja henni frá þér
og lofa því að fara með hana út í Flat-
ey seinna meir, en hvort við borðum
súra selshreifa, því vil ég ekki lofa.
Hvíldu í friði, amma mín, þér veitir
ekki af.
Stefán Logi.
Kæra amma. Það var vordag einn
fyrir 20 árum að ég er staddur fyrir
utan heimili foreldra minna í Graf-
arvogi. Mér er litið niður eftir göt-
unni þar sem ég sé að kemur akandi
blár eðalvagn við enda götunnar.
Bíllinn þokast nær uns hann stað-
næmist í bílaplaninu og út stíga þau
hjón Stefanía Stefánsdóttir og Ing-
ólfur Guðbrandsson, amma og afi,
sposk á svip. Þarna voru þau mætt á
nýjum Skóda Favorit. Þér leiddust
aldrei bíltúrar og þeir voru ófáir sem
þið afi fóruð saman. Skódinn átti
stóran stað í þínu hjarta, sérstaklega
eftir að afi dó. Mér er minnisstætt
hve mikil áhersla var lögð á að halda
honum við eftir það.
Lengi varst þú helgargestur á
heimili okkar í Grafarvoginum. Við
systkinin skiptumst á að sækja þig á
Nýbýlaveginn á Skódanum fráa. Þá
settist þú í farþegasætið eins og
hefðarfrú með töskuna í kjöltunni og
naust hverrar mínútu meðan farar-
tækið rann þýðlega eftir götunum
áleiðis að Grafarvoginum. Þessum
bíl mátti aldrei hallmæla í þín eyru
og það eru margar minningar sem
við systkinin eigum um þennan bíl.
Í mínum huga varst þú hinn eini
sanni Kópavogsbúi. Í þeim heims-
hluta undir þú þér vel og vildir
hvergi annars staðar búa. Ég gerði
oft að gamni mínu að benda á ýmsa
ókosti þess sveitarfélags en þú hagg-
aðist aldrei í þinni ást á staðnum,
bentir mér á kostina og hélst uppi
merkjum þess ágæta bæjarfélags.
Þetta kemur upp í hug mér nú eftir
síðasta fund okkar, þá lást þú fyrir
og hrærðir þig ekki. Ég settist hjá
þér og byrjaði að segja þér frá starfi
sem ég hafði nýlega hafið fyrir Kópa-
vogsbæ, og þá sérstaklega í Gjá-
bakka þar sem þú vandir komur þín-
ar um skeið. Við þessa frásögn mína
virtist mér sem það færðist í þig líf,
og athyglin var greinilega vakin. Þú
hafðir bara ekki mátt til þess að
segja mikið á þessari stundu. Það
var þér að skapi þegar vel var rætt
um Kópavog.
Þið afi tókuð mig og Ingólf bróður
gjarna með ykkur í kirkju á aðfanga-
dag jóla. Þú hrósaðir okkur bræðr-
um alltaf fyrir hve vel við sungum
jólasálmana og hve prúðir og eftir-
tektarsamir við vorum. Þú varst
nefnilega þannig, fylgdist vel með
hvað við krakkarnir vorum að gera
og áttir alltaf til hrós þegar svo bar
undir. Þessar kirkjuferðir eru mér
alltaf í fersku minni. Ekki vegna
þess hve fagnaðarerindið náði vel til
mín heldur var það eftirvæntingin
sem heltók ungan drenginn þarna á
kirkjubekkjunum. Við sungum
nefnilega hátt og fylgdumst vel með,
því það stytti biðina eftir því að
klukkan slægi sex og við gætum
haldið heim í gjafaflóðið. Í seinni tíð
hef ég haldið í þennan sið sem þið afi
kynntuð okkur systkinunum, og kem
til með að gera enn um sinn.
Kæra amma. Nú er samveru-
stundum okkar hér í þessum heimi
lokið. Ég vil fá að þakka þér fyrir allt
gamalt og gott. Sjálfsagt hafið þið afi
nú hist að nýju og ég bið þig fyrir
kveðju til hans. Þú verður nú jarð-
sett við hlið hans í Fossvogskirkju-
garði með útsýni yfir Kópavoginn,
ég veit að það finnst þér ekki ónýtt.
Pétur Jóhannesson.
Elsku amma. Ég hugsa til þess
með gleði í hjarta að nú sé þér farið
að líða betur. Það hafa eflaust verið
mikil fagnaðarlæti þegar þú hittir
afa og allt fólkið sem farið var á und-
an þér.
Ég á aldrei eftir að gleyma þeim
stundum sem við áttum saman. Það
var nú oft glatt á hjalla hjá okkur á
Nýbýlaveginum meðan ég kom til
þín vikulega og hjálpaði þér með
þrifin. Síðan brunuðum við í búðina
og keyptum í matinn. Aldrei mátti
gleyma að kaupa slúðurblöðin. Svo
sátum við og lásum þau spjaldanna á
milli, borðuðum sviðasultu og drukk-
um kók, en ef vel lá á okkur var pönt-
uð pítsa. Rúnturinn var eitt af þínu
uppáhaldi, talaðir óspart um hvað
þér fyndist ég góður bílstjóri, þótt
keyrt væri utan í kanta og hraðinn
ekki alltaf alveg löglegur.
Það kom þér svo glettilega á óvart
þegar ég fékk skilaboð frá afa á mið-
ilsfundi sem tengdust nefnilega
hraðakstri. Þú varst staðráðin í að
koma skilaboðum til mín þegar þú
færir yfir móðuna miklu.
Þú varst húmoristi af Guðs náð,
ung í anda og hafðir gaman af að um-
gangast þá sem yngri voru, náðir að
slá flestu upp í grín og gerðir óspart
grín að sjálfri þér ef svo bar undir.
Þú vildir alltaf vera fín og minntir
mig oft á að taka með mér lit og
plokkara þegar ég var á leið til þín,
ekki var verra ef ilmvatnsprufur
fylgdu með. Þú varst alltaf svo þakk-
lát fyrir allt sem gert var fyrir þig
elsku amma mín. Takk fyrir allt.
Hvíl í friði.
Elínborg.
Stefanía Ólöf
Stefánsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Stefaníu Ólöfu Stefánsdóttur
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu á næstu dögum.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
MARÍA OLGA TRAUSTADÓTTIR,
Seftjörn 16,
Selfossi,
verður jarðsungin laugardaginn 14. júní kl. 13.30
frá Selfosskirkju.
Bjarni Þórhallsson,
Svanhildur Bjarnadóttir, Grétar Birkir Guðmundsson,
Berglind Bjarnadóttir, Arnar Bjarni Eiríksson,
Olga Bjarnadóttir, Guðmundur Sigmarsson
og barnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SIGURGESTUR GUÐJÓNSSON
bifvélavirkjameistari,
Vogatungu 33,
Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
16. júní kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartaheill.
Hörður Sigurgestsson, Áslaug Ottesen,
Sigrún Sigurgestsdóttir, Guðlaugur B. Sumarliðason,
Ásgeir Sigurgestsson, Stefanía Harðardóttir,
Ásdís Sigurgestsdóttir, Þórarinn Klemensson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
SIGURÐUR ÞÓR GARÐARSSON,
Hólabraut 14,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 16. júní kl. 13.10.
Blóm og kransar vinsamlega afbeðin en þeim sem
vildu minnast hans er bent á ,,Hauka í horni”,
bankareikningur 1101-26-484 kt. 670281-0279.
Grétar M. Garðarsson, Soffía G. Karlsdóttir,
Kristinn G. Garðarsson, María K. Sigurðardóttir,
Særún Garðarsdóttir, Magnús Jóhannsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýju við andlát og útför mannsins míns, föður,
tengdaföður og afa,
SIGURÐAR ÞÓRÐARSONAR
tannlæknis.
Sérstakar þakkir til starfsfólks 11E Landspítala og
líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra
umönnun.
Kristín S. Karlsdóttir,
Guðrún Hrund Sigurðardóttir, Hörður Harðarson,
Arnar Þór Sigurðsson, Guðrún Dögg Jóhannsdóttir,
Andri Vilhjálmur Sigurðsson, Auður Ýrr Þorláksdóttir,
Gunnar Már Sigurðsson,
Guðrún Anna Pálsdóttir, Gunnar Halldór Sigurjónsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SJÖFN JÚLÍUSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 30,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 10. júní á líknardeild Landakots-
spítala.
Guðlaug Eygló Elliðadóttir, Ari Reynir Halldórsson,
Júlíus Elliðason, Ása Ásgrímsdóttir,
Þröstur Elliðason, Ásthildur Sumarliðadóttir,
Magnús Elliðason,
Guðrún Elliðadóttir, Svavar Valur Svavarsson.