Morgunblaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÓLAFUR F. Magnússon borgarstjóri út-
nefndi Þórarin Eldjárn rithöfund borg-
arlistamann Reykjavíkur 2008 á þjóðhátíð-
ardaginn. Var Þórarni við það tækifæri
veittur ágrafinn steinn, heiðursskjal og við-
urkenningarfé. Útnefning borgarlistamanns
er heiðursviðurkenning til handa reykvísk-
um listamanni sem með listsköpun sinni hef-
ur skarað fram úr og markað sérstök spor í
íslensku listalífi.
Útnefningin fór fram í Höfða og gerði Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir, formaður menn-
ingar- og ferðamálaráðs, grein fyrir vali
ráðsins á borgarlistamanni. Í máli hennar
kom fram að kjarninn í sérstöðu Þórarins
væri hvernig hann ynni úr íslenskum menn-
ingararfi og menningarhefð á einstaklega
frumlegan og skemmtilegan hátt. Þá gat hún
þess sérstaklega hve frábært efni Þórarinn
hefði samið handa börnum í gegnum tíðina.
„Eins og allar viðurkenningar þá eflir
þessi mann í því að maður sé á réttri leið og
hefur þess vegna löngun til að halda áfram,
sem er auðvitað það eina sem skiptir máli ef
maður er að fást við listrænt starf,“ sagði
Þórarinn í samtali við Morgunblaðið að verð-
launaafhendingu lokinni.
Fagnar með að klífa hæsta fjall Spánar
Aðspurður sagði Þórarinn að sér þætti
vænt um að formaður menningar- og ferða-
málaráðs skyldi minnast sérstaklega á það
efni sem hann hefði samið handa börnum.
„Mér finnst mjög fínt að það skuli koma með
sem óaðskiljanlegur hluti af öðru höfund-
arverki. Þetta er ekki eins og einhverjar
tvær deildir eða íþróttagreinar sem maður er
að keppa í, heldur er þetta sami hluturinn.“
Spurður hvernig hann hygðist halda upp á
viðurkenninguna sagðist Þórarinn ætla að
trítla niður í bæ og spóka sig þar í góða veðr-
inu á þjóðhátíðardeginum. „Á fimmtudaginn
ætla ég síðan til Spánar ásamt konu minni að
klífa Múlann, sem ég kalla svo, hæsta fjall
Spánar, sem er í Sierra Nevada,“ sagði Þór-
arinn og vísaði þar að sjálfsögðu til fjallsins
Mulhacén. „Eigum við ekki bara að segja að
ég haldi upp á þetta þannig,“ sagði Þórarinn
kíminn.
Viðurkenning sem eflir mann til dáða
Rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn var útnefndur
borgarlistamaður Reykjavíkur árið 2008
Morgunblaðið/G.Rúnar
Borgarlistamaður Þórarinn Eldjárn rithöfundur ásamt Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur, for-
manni menningar- og ferðamálaráðs, og Ólafi F. Magnússyni borgarstjóra við Höfða.
„ÞAÐ er mín skoðun að Alþingi Ís-
lendinga eigi að hafa aðstöðu á
Þingvöllum þar sem hægt sé að
hafa þingfundi innandyra, taka á
móti gestum og halda upp á merk-
isatburði. Ég tel einnig að vel færi
á því að Alþingi og ríkisstjórn færu
með stjórn þeirrar hátíðardag-
skrár sem haldin er á Austurvelli
að morgni 17. júní ár hvert fyrir
framan styttu Jóns Sigurðssonar,
enda er það hátíðarviðburður ætl-
aður landsmönnum öllum.“
Þetta sagði Sólveig Pétursdóttir,
formaður nefndar sem hefur það
að hlutverki að undirbúa hvernig
minnast eigi þess að 17. júní 2011
verða liðin 200 ár frá fæðingu Jóns
Sigurðssonar forseta, í ræðu sem
hún flutti á Hrafnseyri, fæðing-
arstað Jóns, í gær.
Líf og starf Jóns í forgrunni
Fram kom í máli Sólveigar að
nefndin ætti að skila forsætisráð-
herra fyrstu tillögum eigi síðar en
í árslok 2008 en vinna að und-
irbúningi hátíðarhalda á árinu
2011. Sagði Sólveig ljóst að í mörg
horn væri að líta þegar fagna ætti
200 ára afmæli Jóns. Nefndi hún í
því samhengi sýningar, kvik-
myndagerð, margmiðlun, bókaút-
gáfu og ritgerðarsamkeppni og
sagði þetta aðeins fá dæmi af
mörgum sem nefndin myndi skoða.
Sagði hún að lögð yrði áhersla á
sem víðtækasta skírskotun í líf og
starf Jóns og að horfa ætti til
þeirra staða þar sem Jón bjó og
starfaði. | silja@mbl.is
Ljósmynd/Páll Önundarson
Hátíð Sólveig Pétursdóttir flutti
ræðu á Hrafnseyri í tilefni dagsins.
Alþingi fái
aðstöðu á
Þingvöllum
ÞRJÁR líkamsárásir voru til-
kynntar lögreglunni á Akureyri að-
faranótt þriðjudags. Engin þeirra
var þó alvarleg. Að sögn lögregl-
unnar var nóttin róleg, en aðeins í
samanburði við nýliðna helgi.
Árásirnar þrjár áttu sér allar
stað við og á sama skemmtistað í
miðbæ Akureyrar. Lögregla kom
að einni árásinni og stöðvaði karl-
mann sem veittist að öðrum með
hnefahöggum. Sá var vistaður í
fangaklefa yfir nótt.
Lögregla segir einnig töluvert
hafa verið um skemmdarverk.
Þurfti m.a. að hafa afskipti af
þremur mönnum sem gerðu sér að
leik að skemma umferðarmerki.
Þeirra bíður kæra vegna athæf-
isins. andri@mbl.is
Enn læti á
Akureyri
FORSETI lýðveldisins, Ólafur Ragnar Grímsson,
sæmdi í gær ellefu Íslendinga hinni íslensku
fálkaorðu við hátíðlega athöfn í forsetabústaðn-
um á Bessastöðum. Hafa þá 22 slíkar orður verið
veittar í ár, þar á meðal tveir stórriddarakrossar
en þeir eru annað virðingarstig fálkaorðunnar
af fimm.
Við riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu
tóku Árný Erla Sveinbjörnsdóttir rannsókn-
arprófessor, Haraldur Helgason verslunarmað-
ur, Helgi Björnsson rannsóknarprófessor, Kjart-
an Sveinsson tónlistarmaður, Lovísa
Einarsdóttir íþróttakennari, Ólafur Gaukur Þór-
hallsson tónlistarmaður, Sigríður Ragnarsdóttir,
skólastjóri Tónlistarskóla Ísafjarðar, Svafa
Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Þor-
steinn Bergsson framkvæmdastjóri og Þuríður
Rúrí Fannberg myndlistarmaður. Grétar Már
Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneyt-
isins, var sæmdur stórriddarakrossi fyrir störf
sín í opinbera þágu.
Fálkaorðan veitt á Bessastöðum
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Ellefu sæmdir hinni íslensku fálkaorðu
„MENN voru vissulega farnir að
undrast að ekkert virtist liggja á,“
segir Guðlaug Kristjánsdóttir, for-
maður BHM, en félagið óskaði eftir
fundi með ráðamönnum í byrjun
mánaðarins. Forsætisráðherra hef-
ur boðið fulltrúa BHM á sinn fund,
ásamt fjármála- og utanríkisráð-
herra á morgun.
Spurð hvaða væntingar hún geri
til fundarins segir Guðlaug mikil-
vægt að fá tækifæri til að koma á
framfæri sjónarmiðum þeirra stétt-
arfélaga sem eru í samningagerðinni
og skoða hvaða fletir séu mögulegir í
viðræðunum. „Við viljum reyna að
opna umræðuna, því fram að þessu
hefur samninganefnd ríkisins boðið
upp á þann eina valkost að sam-
þykkja eða hafna þeim samningum
sem ríkið hefur gert við aðra,“ segir
Guðlaug. Bendir hún á að krónutölu-
hækkun upp á 20.300 krónur, sem er
sú hækkun sem ríkið samdi um við
BSRB og í framhaldinu bauð BHM,
muni í reynd fela í sér kaupmáttar-
rýrnun fyrir félagsmenn BHM. „Við
förum í reynd aðeins fram á það að
halda í við kaupmáttinn,“ segir Guð-
laug.
Forsætisráðherra og
fulltrúar BHM funda
Segir að krónutöluhækkun myndi þýða kaupmáttarskerðingu
Í HNOTSKURN
»Um miðjan maí sl. lýsti að-alfundur BHM yfir áhyggj-
um vegna þeirrar pattstöðu
sem samningaviðræður við
ríkið væru komnar í.
»BHM er samtök 25 stétt-arfélaga háskólamennt-
aðra starfsmanna. Þar af
semja 23 félög beint við ríkið.