Morgunblaðið - 18.06.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2008 11
FRÉTTIR
32 liða úrslit karla
Miðvikudag 18. júní
19:15 Víkingur R. – Grótta Víkingsvöllur
19:15 HK - ÍA Kópavogsvöllur
19:15 Víðir - Þróttur V. Garðsvöllur
19:15 ÍBV - Leiknir R. Hásteinsvöllur
19:15 Haukar - Berserkir Ásvellir
19:15 Grindavík - Höttur Grindarvíkurvöllur
19:15 Þróttur R. - Fylkir Valbjarnarvöllur
19:15 Reynir S. - Sindri Sparisjóðsvöllurinn
Fimmtudag 19. júní
19:15 Fjarðarbyggð – FH Eskifjarðarvöllur
19:15 Þór – Valur Akureyrarvöllur
19:15 Hamar - Selfoss Grýluvöllur
19:15 Fram - Hvöt Laugardalsvöllur
19:15 Fjölnir – KFS Fjölnisvöllur
18:00 Breiðablik - KA Kópavogsvöllur
19:15 Keflavík - Stjarnan Sparisjóðsv. Keflavík
19:15 KR - KB KR-völlur
HAFIN hefur verið söfnun fyrir
Guðmund Þorsteinsson, ábúanda á
Finnbogastöðum í Trékyllisvík, en
hann missti hús sitt og innbú í elds-
voða á mánudag.
„Ég á eftir fötin sem ég var í þeg-
ar ég hljóp út og svo tókst mér líka
að bjarga einu viskastykki sem ég
setti fyrir andlitið,“ sagði Guð-
mundur í samtali við Morgunblaðið.
Í eldinum fórust tveir hundar Guð-
mundar en ketti náðist að bjarga.
Það er Félag Árneshreppsbúa
sem opnað hefur styrktarreikning.
Reikningsnúmerið er 1161-26-
001050 og kennitalan 451089-2509.
Safnað fyrir
Guðmund
Ónýtt Húsið gjöreyðilagðist í eldsvoðanum og allt innanstokks brann til
ösku. Finnbogastaðir eru einn af átta bæjum sem eru í byggð í Árneshreppi.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur dæmt íslenska ríkið til að
greiða þrítugum karlmanni 400 þús-
und krónur í miskabætur vegna
gæsluvarðhalds sem hann sætti að
ósekju. Maðurinn var til rannsóknar
vegna fíkniefnabrots.
Maðurinn sem var sendill hjá
hraðflutningafyrirtæki var handtek-
inn vegna gruns um innflutning
fíkniefna. Þótti framganga hans við
meðferð sendingar – sem í höfðu áð-
ur fundist fíkniefni – óeðlileg en hann
afhenti pakkann ekki viðtakanda á
tilsettum tíma. Hann var hins vegar
handtekinn af lögreglu þegar hann
ók af stað á bifreið fyrirtækisins að
kvöldi, eftir hefðbundinn vinnutíma.
Maðurinn var ekki ákærður í málinu.
Dómurinn taldi eðlilegt að maður-
inn sætti gæsluvarðhaldi í vikutíma,
en sérlega harkalegt að varðhaldið
væri framlengt í tvær vikur þegar
engin ný gögn lágu fyrir og mann-
inum ómögulegt að torvelda rann-
sókn. andri@mbl.is
Dæmdar bætur vegna
langs gæsluvarðhalds
Harkalegt þótti að framlengja varðhald
IKEA hefur ákveðið að innkalla
FEMTON-kastara í forvarnaskyni.
Eru viðskiptavinir IKEA sem keypt
hafa um-
rædda kast-
ara beðnir
að skila
þeim í
IKEA-versl-
unina þar
sem þeir
verða endur-
greiddir.
Í fréttatilkynningu frá IKEA
kemur fram að Sænska rafmagns-
öryggisráðið hafi prófað kastarana
og komist að þeirri niðurstöðu að
lampinn geti ofhitnað. Kastarinn er
með langan og sveigjanlegan arm.
Prófanir hafi sýnt að frávik í sveigj-
anleika geti valdið því að hægt sé að
beina perunni of nálægt yfirborði
sem geti leitt til ofhitnunar.
Innkalla
kastara
YFIRSKATTANEFND hefur úr-
skurðað að félagsmanni VR hafi ver-
ið heimilt að færa kostnað vegna
flugnáms til frádráttar námsstyrk
sem hann fékk úr starfsmenntasjóði
og að ekki komi til skattlagningar á
styrknum.
Frá málinu er greint á vef VR en
þar segir ennfremur að yfirskatta-
nefnd hafi þar með hnekkt ákvörðun
skattstjóra, sem hafði hafnað því að
færa kostnað vegna námsins til frá-
dráttar styrknum. Gerði skattstjóri
kröfu um að greiddur yrði skattur af
honum eins og öðrum tekjum.
Hefur mikla þýðingu
Haft er eftir Guðmundi B. Ólafs-
syni, lögmanni VR, að úrskurðurinn
hafi mikla þýðingu fyrir félagsmenn,
sem margir kunni að eiga endur-
greiðslukröfu á skattayfirvöld.
Umræddur flugnemi fékk 170
þúsund króna styrk frá Starfs-
menntunarsjóði verslunar- og skrif-
stofufólks. Á skattskýrslu síðasta árs
færði hann styrkinn sem tekjur og
kostnað vegna námsins á móti.
Ekki skattur
af flugnámi
ÁNÆGJA farþega með þjónustu
Strætó bs. hefur heldur minnkað
milli ára. Reiknuð gæðavísitala er nú
3,68 miðað við 5 stiga kvarða, en var
3,7 í fyrra. Þetta er niðurstaða þjón-
ustumats sem Viðskiptafræðistofn-
un HÍ vann fyrir Strætó í febrúar sl.
Rannsóknin náði til 612 viðskipta-
vina Strætó bs. og voru þeir beðnir
að segja álit sitt og upplifun á þeirri
ferð sem þeir voru í þegar spurning-
unum var svarað. Niðurstaðan var
m.a. sú að aðstaða á biðstöð fékk
3,11 í einkunn, þrif og umhirða
vagns að innan 3,56, stundvísi 3,64,
aksturslag 3,72, viðmót vagnstjóra
3,82, ferðin í heild 3,92 og hitastig í
vagni 4,03.
Minni ánægja
með Strætó