Morgunblaðið - 18.06.2008, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristveig Jóns-dóttir fæddist í
Klifshaga í Öx-
arfirði 18. nóv-
ember 1925. Hún
lést á líknardeild
Landakotsspítala að
morgni 8. júní síð-
astliðins. Foreldrar
hennar voru hjónin
Sigurðína Sigurð-
ardóttir og Jón
Grímsson, bóndi í
Klifshaga.
Systkini Krist-
veigar eru Þóra og
Grímur, búsett í Klifshaga, Guð-
rún (látin), María, búsett í Tungu í
Öxarfirði og Sigurður (látinn).
Fósturforeldrar Kristveigar frá 7
ára aldri voru Kristveig Björns-
dóttir og Gunnar Árnason. Fóst-
ursystkini hennar voru Rannveig,
Björn, Sigurveig, Arnþrúður,
Árni, Sigurður, Jón Kristján og
Þórhalla. Þau eru öll látin. Yngst-
ur er Óli sem búsettur er á Kópa-
skeri.
Hinn 18. ágúst 1951 giftist
Kristveig Árna Árnasyni frá
Bakka, f. 15.11.
1915, d. 30.7. 1987.
Börn þeirra eru: 1)
Gunnar, f. 21.6.
1952. Kona hans er
Sólveig Jóhann-
esdóttir. Synir
þeirra eru þrír og
barnabörn fjögur.
2) Ástfríður, f. 9.10.
1953. Maður hennar
er Þorsteinn Helga-
son. Börn þeirra eru
fjögur og barna-
börn fjögur. 3) Ein-
ar, f. 9.5. 1955 Kona
hans er Ragnheiður Friðgeirs-
dóttir. 4) Jón, f. 30.5. 1963 Kona
hans er Metta Helgadóttir. Þeirra
börn eru tvö. Fyrir átti Árni einn
son, Árna Hrafn, f. 10.10. 1943.
Kona hans er Hlín P. Wíum. Börn
þeirra eru fjögur og barnabörn
fimm.
Kristveig bjó á Kópaskeri til
ársins 1985 en flutti þá til Reykja-
víkur og bjó þar til dauðadags.
Útför Kristveigar fer fram frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Lát ei víl þér veginn þyngja,
vert þú æ til taks að syngja.
Lát þér vera langt til tára,
létt um bros til hinstu ára.
Svo má lífsins sólskin fanga,
silfurhærur, rjóða vanga.
(H.Haf.)
Í dag kveðjum við elskulega
tengdamóður mína Kristveigu
Jónsdóttir. Ég kynntist Kiddu
minni árið 1986 eftir að hafa fallið
fyrir litla örverpinu hennar Jóni
Árnasyni. Þá var hún flutt frá
Kópaskeri til Reykjavíkur. Mér var
það strax ljóst að þarna var á ferð-
inni sterk og harðdugleg kona þó
smávaxin væri. Hún vann alls kyns
störf frá unga aldri, hafði mikið
verksvit og með eindæmum skipu-
lögð. Kidda hætti að vinna sextíu og
fimm ára vegna lasleika í lungum.
Hún lét það aldeilis ekki buga sig
og setti því enn meiri kraft í hann-
yrðir sínar. Á þeim vettvangi var
hún hreinn og klár snillingur. Hún
var mikil búkona og hélt fast í
gamlar hefðir. Mér er það svo
minnisstætt þegar Jón fór á fund
móður sinnar til að segja henni að
hann væri kominn með stúlku upp á
arminn. Það fyrsta sem Kidda vildi
vita um mig, tilvonandi tengdadótt-
ir, hvort ég væri ekki örugglega
sparsöm stúlka og nægjusöm.
Kidda var ekki mikið fyrir óþarfa-
bruðl. Hún fylgdist vel með þjóð-
málum og lét ákveðnar skoðanir
sínar í ljós. Hún var afar fróð kona
og minnug með einsdæmum.
Kidda tengdamóðir mín hefur
alla tíð reynst mér vel og miðlað af
visku sinni. Tvíburum okkar þótti
alltaf svo gott að sækja ömmu heim.
Kímnigáfa hennar höfðaði svo
sannarlega til stríðnispúkans í þeim
báðum. Fram á síðasta dag var
hláturinn og léttleikinn í fyrirrúmi
hjá Kiddu minni. Hún kvartaði
helst ekki og tók hverjum nýjum
degi með bros á vör. Áleit sig ekki
sjúkling þrátt fyrir öll sín mein. Við
fjölskyldan litum til hennar á af-
mælisdegi tvíburanna og pabba
þeirra 30. maí, þá var Kidda orðin
ansi lasin. Við tókum myndir af
henni með börnunum. Þegar ég
ætlaði að ganga frá myndavélinni
sagði sú gamla að ég þyrfti að taka
eina mynd til viðbótar, hún bað mig
um að rétta sér prjónakörfuna sína,
tók prjónana og fékk myndina
tekna. Þannig vildi hún láta minn-
ast sín.
Starfsfólk Líknardeildar Landa-
kots dásamaði Kidda óspart enda
augljóst að þar hefur valist til
starfa einstakt fólk sem vinnur
störfin sín af alúð, virðingu og fag-
mennsku. Þessu fundum við fjöl-
skyldan svo sannarlega fyrir, ekki
síst, síðustu dagana fyrir andlát
hennar. Jón minn var hjá mömmu
sinni þegar hún kvaddi svo
áreynslulaust og fallega. Ég veit að
innst í hjartanu er hann afar þakk-
látur fyrir þá stund.
Ég trúi því að Kidda mín sé kom-
in heim, þar sem eilífur friður og
Guðsblessun ríkir.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Þín tengdadóttir,
Metta.
Elskuleg amma mín, Kristveig
Jónsdóttir er fallin frá. Hún barðist
við lungnasjúkdóm til margra ára
og síðustu mánuði einnig við
krabbamein. Ég dáðist alltaf að
henni fyrir þá þolinmæði og styrk
sem einkenndi hana í gegnum veik-
indin. Þrátt fyrir slæma heilsu
hafði hún alltaf mestu áhyggjur af
öðrum en sjálfri sér. Þegar ég kíkti
í heimsókn til hennar spurði hún
alltaf hvað væri frétta af fólkinu
sínu og mundi þá eftir öllum, jafn-
vel nýjustu meðlimunum.
Kidda amma, eins og við barna-
börnin kölluðum hana, var yndisleg
kona. Þrátt fyrir lélega sjón var
henni margt til lista lagt og þá sér-
staklega handavinna. Hún hafði
yndi af því að prjóna, hekla og
sauma út. Ég man ekki eftir henni
sitjandi auðum höndum. Fólk dáð-
ist af handbragði hennar og oftar
en ekki þurfti mikið til að sannfæra
fólk um að það hafi verið rúmlega
áttræð sjóndöpur kona sem þarna
væri að verki.
Það sem einkenndi ömmu var
dugnaður, nákvæmni, hugulsemi og
hreinskilni. Hún lá aldrei á sínum
skoðunum og hikaði ekki við að
fussa og sveia ef það var eitthvað
sem henni mislíkaði.
Það var alltaf gott og í raun lær-
dómsríkt að hlusta á hana rifja upp
og segja sögur úr sínu lífi. Hún hélt
heimili, ól upp fimm börn, vann
flest í höndum hvort sem um var að
ræða mat eða fatnað á fjölskylduna.
Ég velti því stundum fyrir mér
hvað tíminn þurfti að nýtast vel í þá
daga. Í dag finnst mér alltof al-
gengt að enginn gefi sér tíma fyrir
neitt sem skiptir máli, við erum
síkvartandi, þrátt fyrir öll þau þæg-
indi sem við lifum við. Þá hugsa ég
til Kiddu ömmu og dáist að henni og
fólki af hennar kynslóð. Það kennir
mér að vera þakklátt og sátt við það
sem ég hef í dag.
Minningarnar eru endalausar
þegar ég hugsa til ömmu minnar.
Öll eftirminnilegu jólin sem ég fékk
að eyða með henni, alltaf náði
amma að slá met í gjafafjölda, þrátt
fyrir að börnin væru oft svo nálægt
henni í fjölda gjafa. Þetta þótti
henni og okkur í fjölskyldunni alltaf
jafn skondið. Gott er til þess að
hugsa hvað það voru margir sem
vildu senda henni eitthvað fallegt
og þakka fyrir þann prjónaskap eða
handavinnu sem hún hafði gert.
Ég minnist ótrúlega góðu grill-
uðu samlokurnar með eplum og
aromati sem amma útbjó oft þegar
ég kíkti til hennar í hádegismatnum
mínum. Kleinurnar sem hún bakaði
eru þær bestu sem ég hef nokkurn
tímann smakkað. Alltaf var hægt að
kíkja á Kiddu ömmu í kaffibolla,
súkkulaði og gott spjall.
Ég er þakklát fyrir allar þær
góðu stundir sem við amma áttum
saman og hversu sátt hún var við
lífið og tilveruna þegar hún vissi
hvert stefndi. Hún sagði mér og
Guðrúnu systur minni þremur mán-
uðum áður en hún lést að nú væri
verið að undirbúa himnaríki fyrir
hana, það væri verið að „handa-
vinna“ allt herbergið hennar eins
og hún orðaði það sjálf. Hún sá fyr-
ir sér að herbergið væri allt hand-
unnið með hekluðu rúmteppi og
dúkum, útsaumuðum myndum og
skreyttum englum allt í kring. Sú
sýn á himnaríki þykir mér ótrúlega
falleg og þannig sé ég hana fyrir
mér með handavinnuna sína hlust-
andi á spennusögur í himnaríki.
Þakka þér fyrir allt, elsku amma
mín, þú ert mér meiri fyrirmynd en
þig hefði sjálfa nokkurn tímann
grunað.
Þín
Hildur.
Nú er hún amma Kidda sofnuð og
komin á góðan, fallegan stað. Hún
var yndisleg amma, alltaf tilbúin til
að hlusta á og spjalla við okkur.
Fangið hennar var alltaf opið og
svo stutt í grínið og hláturinn. Hjá
ömmu lærðum við að prjóna, hekla
og sauma út. Okkur þótti alltaf
jafngaman að hjálpa henni að tína
rifsberin á haustin svo hún gæti
gert góðu sultuna sína.
Við erum líka ánægð með að hafa
farið í heimsókn til hennar daginn
áður en hún sofnaði. Kysst hana á
kinnina, faðmað og haldið í hönd
hennar um stund. Við munum aldr-
ei gleyma því hversu lífsglöð amma
Kidda var.
Þær góðu minningar geymum við
í hjörtum okkar að eilífu.
Hjartakær amma, far í friði,
föðurlandið himneskt á,
þúsundfaldar þakkir hljóttu
þínum litlu vinum frá.
Vertu sæl um allar aldir,
alvaldshendi falin ver;
inn á landið unaðsbjarta,
englar Drottins fylgi þér.
(Höf. ók.)
Þínir tvíburar,
Arna Ýr og Andri Freyr.
Kær vinkona hefur kvatt þennan
heim. Kidda bjó á Bakka á Kópa-
skeri þegar ég var að alast upp og
hún ól börn sín upp samhliða for-
eldrum mínum. Samverustundirnar
eru ófáar og órjúfanlegur hluti af
lífi okkar sem fæddumst og ólumst
upp á Kópaskeri á árabilinu 1953
fram yfir 1970. Móðir mín og hún
voru einlægar vinkonur, frá því þær
kynntust fyrst árið 1949, og verður
Kiddu nú sárt saknað af henni og
föður mínum, sem er jafnaldri
hennar. Samofið er líf þeirra, Kiddu
og pabba, frá því þau voru kornung
og fóru tvö fótgangandi með síð-
ustu kýrnar frá æskuheimili sínu,
Skógum í Öxarfirði, alla leið til
Kópaskers á vordögum 1940 þegar
foreldrar þeirra (fósturforeldrar
Kiddu) hættu búskap. Um langan
veg og yfir vötn var að fara, þau
bæði á fermingarárinu sínu.
Kidda var aðeins nokkurra ára
þegar afi og amma tóku hana í fóst-
ur. Hún bjó hjá þeim þar til þau
brugðu búi 1940 og fluttist með
þeim til Kópaskers. Sem barn og
unglingur naut Kidda umönnunar
ömmu, en síðar snerist hlutverkið
við er hún annaðist fóstru sína las-
burða og farna að kröftum og Kidda
var hjá henni þegar hún dó árið
1945.
Árið 1951 giftist Kidda Árna sín-
um og saman hófu þau búskap á
Bakka og þar eignuðust þau börnin
sín fjögur. Á Bakka var miðstöð at-
hafna hennar, en hún vann alla tíð
bæði innan og utan heimilis. Meðan
börnin voru öll ung prjónaði Kidda
plögg af ýmsum toga fyrir fjöl-
skyldurnar í þorpinu. Mikið af ull-
arnærfötum og sokkabuxum,
hnausþykkum sem héldu hita og
vatni. Kidda var handavinnukenn-
ari við barnaskólann. Hún kenndi
okkur að prjóna, sauma, hekla og
hún kenndi okkur vandvirkni.
Kennslustofan var pínulitla stofan á
heimili hennar á Bakka, og við sát-
um í hring í stofunni stelpurnar og
hún leiðbeindi okkur. Afraksturinn
á maður enn. Handavinnupokann,
dúkkukjólinn og hin skyldustykkin.
Kidda vann „í búðinni“ á Kópa-
skeri og var þar sérfræðingur í
vefnaðarvöru og tengdum varningi.
Hún leiðbeindi konum úr héraðinu,
lagði á ráðin og afgreiddi yfir borð-
ið upp á gamla mátann.
Áratugum síðar hefur hún nýju
hlutverki að gegna í lífi mínu. Ég sé
hana fyrir mér, á inniskónum, tipl-
andi um eldhúsið mitt, stýrandi
okkur til verka við laufa-
brauðsgerðina. Af röggsemi gengið
til verka, af vandvirkni verkið unn-
ið, hvergi látið af kröfum um hæstu
gæði, bæði í útliti og innihaldi. Hún
hafði alla þræði í hendi sér, hratt og
vel gekk verkið undir hennar
stjórn. Nákvæm, skipulögð og vel-
virk. Hannyrðakona var Kidda og
liggja eftir hana ógrynni af meist-
arastykkjum sem hún var ósínk á.
Afkomendurnir allir og vinahópur-
inn stóri hefur allur notið hæfileika
hennar á þessu sviði. Sjálf á ég
nokkrar gersemar eftir Kiddu sem
munu prýða heimili mitt um ókomin
ár.
Líf Kiddu var ekki alltaf dans á
rósum. Til að láta enda ná saman
þurfti að vinna mikið. Það þótti
Kiddu eðlilegt og aldrei kvartaði
hún og þrátt fyrir áralöng and-
styggileg veikindi var hún alltaf já-
kvæð. Þess vegna var gott að koma
til hennar og gaman að eiga hana að
vinkonu. Baráttuþrekið var mikið
og aldrei uppgjöf að finna. Hlátur-
mild og uppörvandi tók hún á móti
mér fram undir það síðasta. Það er
eftirbreytnivert og ætti að vera
okkur öllum sem eftir stöndum leið-
arljós um ókomna tíð. Það var dýr-
mætt að eiga vináttu Kiddu.
Lovísa Óladóttir.
Nú er Kidda mín farin. Hún lok-
aði augunum og sofnaði hægt og
hljótt eins og Jón sonur hennar
sagði við mig í símann þegar hann
hringdi til okkar austur á Bakka.
Í tómarúminu sem myndast þeg-
ar sterkur einstaklingur hverfur úr
lífi manns sækja minningarnar
sterkt á. Fyrir rúmum 40 árum
þegar Árni fór með mig til Kópa-
skers og kynnti mig fyrir Árna föð-
ur sínum og Kiddu er mér svo
minnisstæð þessi smávaxna,
granna kona með glimt í augum og
ákveðin að bjóða konuna hans Árna
Hrafns velkomna inn á sitt heimili
og Árni svo ljúfur og rólegur eins
og ekkert gæti haggað honum. Með
einhverra ára millibili var stefnan
sett á Kópasker og alltaf vorum við
velkomin í litla húsið á Bakka. Þá
var farið með Árna afa á bátnum og
ég tala nú ekki um að komast í
berjamó með Kiddu. Mér er svo
minnisstæður Snartarstaðanúpur-
inn, fagurblár af berjum og við að
tína þau í steikjandi hita allan dag-
inn og þegar ég lagðist út af um
kvöldið sá ég bara bláa depla. Ég
man líka kaldara veðurfar og við
krókloppnar í berjamó þannig við
komum varla berjunum í dósina. Þá
komu Reykjavíkurárin.
Þegar börnin á Bakka voru öll
komin suður fóru Bakkahjónin að
hugsa sér til hreyfings. Kidda fór
aðeins á undan að búa í haginn fyrir
Árna afa. Hann heldur lengur að
venjast tilhugsuninni, kom og
skrapp heim þess á milli. Svo minn-
ist ég þess að það var til mynd-
bandstæki hjá Kiddu ömmu og fjöl-
skyldan í Steinagerði fór á
fimmtudagskvöldum (fríkvöld hjá
Sjónvarpinu) með spólu undir hendi
sem við horfðum á saman og feng-
um kaffi og kökur á eftir. Ekki má
gleyma laufabrauðinu sem hún inn-
leiddi á okkar heimili og er ómiss-
andi þáttur af jólahaldi okkar. En
það var erfitt þegar heilsan fór að
bila og hún komst ekki til að vera
með. Það var nú þannig að mér
fannst það óhugsandi að hún kæmi
ekki og gerði deigið en þá sagði
hún: Hlín mín, við erum búnar að
gera þetta saman í mörg ár, þetta
verður ekkert mál fyrir þig og auð-
vitað hafði hún rétt fyrir sér. En
mikið söknuðum við hennar úr sel-
skapnum.
Kidda var mikil hannyrðakona,
ég sagði oft við hana hvernig ferðu
að því að þræða perlur á örmjóan
þráð, þú sem ert hér um bil blind á
öðru og sérð bara sæmilega með
hinu? Þá hló hún og sagði að þetta
væri ekkert mál. Hún var dugleg að
nota sér hljóðspólur, þá gat hún
hlustað á sögur meðan hún prjónaði
eða bróderaði. Og nú hefur þessi
duglega og jákvæða hvunndags-
hetja lagt í sína hinstu ferð. Við
Árni, börnin okkar og fjölskyldur
þeirra þökkum Kiddu ömmu fyrir
allt sem hún var okkur. Megi Guð
varðveita hana.
Hlín.
Kristveig Jónsdóttir
✝
Dóttir okkar, sambýliskona, móðir, systir, tengda-
móðir og amma,
VALGERÐUR MARGRJET GUÐNADÓTTIR,
Hvannhólma 20,
Kópavogi,
sem andaðist á heimili líknardeildar Landspítalans í
Kópavogi fimmtudaginn 12. júní, verður jarðsungin
frá Fossvogskirkju föstudaginn 20. júní kl. 13.00.
Guðni Þórðarson, Sigrún Jónsdóttir,
Einar Pétursson,
Guðni Þór Scheving, Helga Rós Reynisdóttir,
Halla Sigrún Ingvarsdóttir,
Arna Fríða Ingvarsdóttir,
Jón Snævarr Guðnason, Þórdís Unndórsdóttir,
Sigrún Halla Guðnadóttir, Ólafur Ólafsson
og barnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
SIGURLÍNA GÍSLADÓTTIR,
Hlíðarvegi 45,
Siglufirði,
lést föstudaginn 13. júní á Heilbrigðisstofnun
Siglufjarðar.
Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 21. júní kl. 14.00.
Valur Johansen,
börn, tengdabörn og barnabörn.