Morgunblaðið - 18.06.2008, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2008 27
✝ Edda SigurveigHalldórsdóttir
fæddist í Ólafsvík
12. ágúst 1942. Hún
lést er 12. júní sl.
Foreldrar hennar
voru hjónin Matt-
hildur Kristjáns-
dóttir og Halldór
Jónsson, útgerð-
armaður, bjuggu
þau allan sinn bú-
skap í Ólafsvík.
Systkini Eddu voru
Laufey, Krist-
mundur, Bára, þau
eru látin, Jón Steinn, Leifur Stein-
ar, Bylgja, Kristín, öll búsett í
Ólafsvík, Pálína og Víkingur, bú-
Sigurður Arnar, f. 2008. b) Her-
mann Gunnarsson, f. 1996. Unn-
usti Matthildar er Theódór Barða-
son, kerfisstjóri. 2) Jensína Edda,
leikskólastjóri, f. 1969, gift Har-
aldi Baldurssyni, tæknifræðingi.
Dóttir Jensínu Eddu er Kolbrún
Björk Baldvinsdóttir, Kvenna-
skólastúlka, f. 1990. Synir Jensínu
Eddu og Haraldar eru Hermann
Björgvin, f. 1996, og Halldór
Benedikt, f. 2000.
Edda ólst upp hjá foreldrum sín-
um í Stakkholti í Ólafsvík og vann
við ýmis störf, m.a. í Kaupfélaginu
Dagsbrún þar til hún giftist. Eftir
það helgaði hún sig heimili og fjöl-
skyldu að mestu. Edda og Her-
mann bjuggu alla tíð í Ólafsvík, og
lagði hún metnað sinn í að búa
þeim þar fallegt heimili.
Útför Eddu verður gerð frá
Seljakirkju í Reykjavík að ósk
hinnar látnu, í dag, 18. júní, klukk-
an 15.
sett í Reykjavík.
Hinn 12. maí 1962
giftist Edda Her-
manni Hjartarsyni.
Foreldrar hans voru
hjónin Jensína
Sveinsdóttir frá
Gillastöðum í Reyk-
hólahreppi og Jón
Hjörtur Finnbjarn-
arson frá Ísafirði.
Börn Eddu og Her-
manns eru: 1) Matt-
hildur Laufey, leik-
skólastjóri f. 1961.
Börn Matthildar eru
a) Sigurveig Þórisdóttir, f. 1983,
læknanemi, gift Helga Má Jóns-
syni cand.med. Sonur þeirra er
Amma mín, Edda Sigurveig, er
látin eftir baráttu við illvígt krabba-
mein. Ég var mikið hjá ömmu í
Ólafsvík sem barn og á margar góð-
ar minningar um hana.
Amma var einstök kona sem skar
sig úr fjöldanum og fór sínar eigin
leiðir. Ég man ekki eftir henni öðru-
vísi en svo sólbrúnni að eftir var tek-
ið, og var ég oft spurð að því hvort
amma mín væri útlendingur. Hún
var alltaf svo fín og vel til höfð, enda
mikil smekkmanneskja, og lét aldrei
sjá sig öðruvísi en vel greidda og
uppáklædda, jafnvel þótt leiðin lægi
bara út í búð. Amma var rausnarleg
kona og stórtæk í gjafavali. Til
dæmis fékk ég í 7 ára afmælisgjöf
frá þeim afa vídeótæki sem þótti nú
til tíðinda og vakti hjá fólki spurn-
ingar um hvort barnið ætti að fá bíl í
fermingargjöf. Amma hafði þann sið
að fara út á stétt með vatn í fötu og
skrúbba á sér fæturna af miklum
móð á stéttinni. Þetta þótti mér
mjög áhugavert og við skrúbbuðum
oft fæturna saman úti þegar ég var
lítil og í heimsókn í Vallholtinu.
Amma var líka mjög fjörug þegar
best lét og reyndi þá oft að tjútta við
mig sem gekk misvel, því ég var
ekki nógu góður herra, svo söng hún
lagið Only you, með The Platters og
sagði mér frá því þegar hún dansaði
við það á böllunum í gamla daga.
Jólin voru einn af uppáhaldsárs-
tímum ömmu. Hún var mikið jóla-
barn og skreytti allt húsið hátt og
lágt, setti seríur í alla glugga og
bakaði margar sortir af smákökum.
Húsið var samt sem áður ætíð
glæsilegt enda nostraði amma við að
gera heimilið sem fallegast og var
alltaf nýbúin að þrífa alla króka og
kima. Það var mikill töggur í ömmu
og hún var harðdugleg kona. Afi
minn sagði okkur frá því á dögunum
að eitt sinn þegar hann kom heim úr
vinnunni þá hafði amma afrekað það
að mála allt húsið að utan yfir dag-
inn.
Það var okkur Helga Má mikils
virði að amma skyldi vera við brúð-
kaup okkar og skírn Sigurðar Arn-
ars hinn 16. mars síðastliðinn. Þá
var hún orðin mikið veik en mætti
glerfín á staðinn og lét engan bilbug
á sér finna.
Við munum sakna ömmu og minn-
ast hennar alla tíð en hugga okkur
við það að þjáningum hennar er nú
lokið, hún hefur fundið frið og feng-
ið hvíld frá öllum kvölum og pínu.
Ég krýp og faðma fótskör þína
frelsari minn á bænastund.
Ég legg sem barnið bresti mína
bróðir, í þína líknarmund.
Ég hafna auðs og hefðarvöldum
hyl mig í þínum kærleiksöldum.
(Guðmundur Geirdal.)
Sigurveig.
Góð kona, hjartahlý kona, sterk
kona. Þessi orð koma mér fyrst í
hugann þegar ég minnist minnar
kæru mágkonu Eddu Sigurveigar.
Edda var búin að stríða við ára-
langa vanheilsu, sem hún tókst á við
með þrautseigju enda ekki í hennar
anda að gefast upp fyrr en í fulla
hnefana. Hún átti ekki langt að
sækja kraftinn og hörkuna, dóttir
Halldórs Jónssonar, útgerðar-
manns í Ólafsvík og konu hans
Matthildar Kristjánsdóttur, en þau
eignuðust níu börn. Faðir hennar
byrjaði nánast með tvær hendur
tómar í bátaútgerð, sem síðan óx og
dafnaði í höndum hans og sonanna
og varð um tíma umfangsmikil út-
gerð.
Ef Edda tók sér eitthvað fyrir
hendur eins og t.d. að vinna í garð-
inum, þá lét hún hendur standa
fram úr ermum og svo var um annað
sem hún fékkst við.
Hún var mikill fagurkeri og um
það bar heimilið og garðurinn þess
fagurt vitni. Mágkona mín hafði
næmt auga fyrir fötum og var alltaf
glæsileg til fara er hún fór út á með-
al fólks.
Réttlætiskennd var henni í blóð
borin og hún lét skoðanir sínar í ljós
skírt og á afdráttarlausan hátt og
tók alltaf upp hanskann fyrir lítil-
magnann
En fyrst og síðast er það hlýjan
og útgeislunin sem streymdi frá
henni sem ég mun ævinlega geyma í
hjarta.
Edda og Hermann eða Hermann
og Edda, þannig voru þau iðulega
nefnd í sömu andránni, enda voru
þau ákaflega samrýmd.
Innilegar samúðarkveðjur til
bróður míns Hermanns, til Möttu
og Tedda, Jensu og Hadda, Sigur-
veigar og Helga, Kollu og smáfólks-
ins.
Kolbrún Hjartardóttir.
Edda Sigurveig
Halldórsdóttir
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason
✝
Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ÓLAFUR SKÚLASON
biskup,
Kirkjusandi 5,
Reykjavík,
sem andaðist mánudaginn 9. júní, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
19. júní kl. 13.00.
Þeir sem vildu minnast hans, vinsamlega látið
líknarstofnanir njóta þess.
Ebba Sigurðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SJÖFN JÚLÍUSDÓTTIR,
Álfhólsvegi 30,
Kópavogi,
sem lést þriðjudaginn 10. júní, verður jarðsungin
frá Áskirkju föstudaginn 20. júní kl. 15.00.
Guðlaug Eygló Elliðadóttir, Ari Reynir Halldórsson,
Júlíus Elliðason, Ása Ásgrímsdóttir,
Þröstur Elliðason, Ásthildur Sumarliðadóttir,
Magnús Elliðason,
Guðrún Hrefna Elliðadóttir, Svavar Valur Svavarsson.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ARNGRÍMS SIGURJÓNS STEFÁNSSONAR
bifvélavirkja,
Ásbyrgi,
Dalvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dalbæ, Dalvík.
Kristjana Margrét Sigurpálsdóttir,
börn, tengdabörn,
barnabörn og aðrir vandamenn.
Kæri mágur.
Nokkrum dögum áð-
ur en þú fluttir svo til fyrirvaralaust í
aðra tilveru, var ég svo heppin að
vera hjá ykkur Dísu í góðu yfirlæti að
venju. Við gengum frá húsinu í gegn-
um fallega
trjálundinn sem þið hjónin gróður-
settuð á sínum tíma. Þú sýndir mér
þína stórglæsilegu nýendurgerðu
vinnustofu. Þú ljómaðir af stolti og
ánægju. Hér er alveg dásamlegt að
vinna sagðir þú mér, sömuleiðis sýnd-
ir þú mér nýjustu málverkin þín. Ég
sá að eitthvað alveg nýtt var í uppsigl-
ingu, öðruvísi. Kannski nýtt tímabil
að hefjast eins og stundum er sagt.
Ég vissi ekki þá að tími þinn var út-
runninn. Æð við hjartað gaf sig. Þú
komst í hendur færustu lækna strax.
Þrátt fyrir flókna og stranga meðferð
var ekki hægt að bjarga lífi þínu.
Minningarnar streyma. Þú varst
svo lifandi persóna og samkvæmur
sjálfum þér, duglegur, jákvæður, gef-
andi, glettinn og skemmtilegur. Mik-
ill listamaður. Skynjaðir svo djúpt líf-
ið, tilveruna og andans mál. Það var
alltaf svo mikið að gerast í kringum
þig, Gunnar Örn. Ástæður voru
margvíslegar. Listin, skapa, mála.
Umbætur, bústörf, ræktun og smíð-
ar. Fjölskyldan, umhyggja og hjálp-
semi við annað fólk o.fl. o.fl. Til
margra ára hafðir þú eflt og þroskað
markvisst þinn innri mann. Fáir vissu
að þú notaðir hæfileika þína til að
hjálpa fólki í erfiðleikum og veikind-
um. Ég man að þú sagðir eitt sinn:
„Sumir eru alltaf að bíða eftir að hitt
breytist eða að eitthvað gerist í lífinu.
Ég bíð ekki eftir því, ég geri, fram-
kvæmi svo að eitthvað gerist eða
breytist í lífi mínu.“ Flott sagt, en
þetta var satt og rétt.
Þegar ég hugsa um þetta sé ég þig
fyrir mér, snöggan í hreyfingum,
hlaupa við fót. Ég er viss um að þú
nærð meiri hraða núna og að um-
skiptin hafi verið jafn stórkostleg og
þú varst sannfærður um.
Það er erfitt að koma að Kambi
núna. Þín er sárt saknað af okkur sem
hinum megin erum. Þú átt yndisleg
Gunnar Örn
Gunnarsson
✝ Gunnar ÖrnGunnarsson
myndlistarmaður
fæddist í Reykjavík
2. desember 1946.
Hann lést á bráða-
deild Landspítalans
við Hringbraut 28.
mars síðastliðinn og
var jarðsunginn frá
Neskirkju í Reykja-
vík 11. apríl.
börn sem ég hef hitt í
gegnum tíðina. Yngstu
dæturnar tvær þekki
ég betur en hin. Nú
finnst mér ég hafa
kynnst þeim öllum bet-
ur ásamt ættingjum
þínum, fjölskylda þín
öll hefur staðið þétt
saman og stutt hvert
annað.
Ég og fjölskylda mín
biðjum Guð að varð-
veita og styrkja systur
mína Þórdísi, börnin
og fjölskylduna alla.
Blessuð sé minningin um Gunnar
Örn.
Elínborg Ingólfsdóttir.
Hendur
á hvítri kistu
stórar – smáar
sterkar – hlýjar
alltumvefjandi
regnbogans litir
hönd í hönd í hönd
Þú hljómaðir svo glaður og fullur af
lífi í gegnum símþráðinn, nokkrum
dögum fyrr. Tilbúinn að fljúga og
hittast í uppáhaldsborginni París,
þrátt fyrir annir í tengslum við sýn-
ingarhald í Galleríinu á Kambi. Nýju
mýrar-málverkin á trönunum, mögn-
uð í spunaflæði með djúpar rætur. Þó
var eitt sem þú sagðir, sem benti til
brottfarar og tengdist hinni óræðu og
lifandi sköpunarþrá, sem er í beinu
sambandi við kjarna tilverunnar. Ég
velti því ekki frekar fyrir mér, en
hlakkaði til að heyra og smitast af
þínum dillandi hjartans hlátri. Okkar
kynni tókust seint á þinni lífsreyndu
ævi, þróuðust hratt og oft í gegnum
óútskýrð fjarhrif. Ég er afar þakk-
látur fyrir þessi ár, varðveiti steinana
þína og hugga mig við þín mögnuðu
málverk, sem hanga í öndvegi.
Þín er sárt saknað.
Í gullinskini
fyrir allar aldir
hann er kominn
að skapa líf
(Ísak Harðarson)
Samúðarkveðjur til fjölskyldu, vina
og ættingja.
Kveðja frá vorinu í París.
Sverrir Guðjónsson,
Elín Edda Árnadóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda efni
til Morgunblaðsins – þá birtist val-
kosturinn Minningargreinar ásamt
frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram eða
grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur birt-
ing dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word Co-
unt). Ekki er unnt að senda lengri
grein. Hægt er að senda örstutta
kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur, og votta þeim sem kvaddur
er virðingu sína án þess að það sé
gert með langri grein. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli, sem nánustu að-
standendur senda inn.
Minningargreinar