Morgunblaðið - 18.06.2008, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
dagbók
Í dag er miðvikudagur
18. júní, 170. dagur ársins 2008
Orð dagsins: En sonurinn sagði við
hann: Faðir, ég hef syndgað móti
himninum og gegn þér. Ég er ekki
framar verður að heita sonur þinn.
(Lúk. 15, 21.)
Víkverji á það til að taka hlutunumpersónulega. Lengi vel hafa þau
íþróttalið, sem hann heldur hvað
mest með verið án titla, mátt þola
margar niðurlægingar og þrauka
langar eyðimerkurgöngur.
x x x
Það getur verið erfitt að vera ántitils. Saklausar athugasemdir
verða að eitruðum skotum. Nafngiftir
geta fengið nýja merkingu. Það getur
til dæmis aðeins eitt vakað fyrir lista-
manni, sem dettur í hug að skíra
mynd sína Án titils: hann er að núa
salti í sárin.
x x x
Sálfræði titilleysisins er undarlegtfyrirbæri. Titilleysi getur skapað
vissa samkennd. Þeir sem hafa
þraukað þegar illa gengur, mætt á
völlinn og sýnt sínum mönnum stuðn-
ing þegar ekkert hefur gengið hættir
til dæmis til að snúa dálítið upp á sig
gagnvart fjöldanum, sem skyndilega
birtist þegar allt í einu fer að ganga
vel. Og spyrja hvar þetta fólk hafi
haldið sig þegar verst lét.
x x x
En fyrst og fremst getur tilfinn-ingin þegar titillinn er loks í
höfn verið undarleg, eins og eitthvað
hafi glatast við sigurinn. Horfið er tit-
illeysið, sem sameinaði og sýndi að
mótlætið var til að sigrast á – sem var
uppspretta æðruleysis – ekki síst
þegar liðið var betra, en ýmist tókst
því ekki að ná sér á strik, dómarinn
var óvilhallur eða heppnin sá bara
ástæðu til að vera með hinu liðinu.
x x x
Mögru árin skerpa karakterinn,fínpússa siðferðisþroskann,
brjóta odd af oflætinu. Velgengnin
veikir og grefur undan festunni. Hún
blekkir og afbakar. Svo er líka hægt
að missa sig gjörsamlega í skrúfuðum
vangaveltum um hluti eins og íþróttir
sem í samhengi hlutanna skipta engu
máli utan hvað skemmtanagildið get-
ur verið ótvírætt.
vikverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vandræðaleg,
8 mikið af einhverju, 9
logið, 10 væn, 11 kaggi,
13 endurtekið, 15 flösku,
18 öflug, 21 hlemmur, 22
áreita, 23 gömul, 24
dæmafátt.
Lóðrétt | 2 angan, 3
toga, 4 lita blóði, 5 eru í
vafa, 6 vangá, 7 mikill,
12 ekki gamall, 14
lengdareining, 15 gróð-
ur, 16 ráfa, 17 lina á, 18
fiskur, 19 fóðrunar, 20
slunginn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bráka, 4 hemja, 7 atóms, 8 óefni, 9 afl, 11 að-
an, 13 hann, 14 ýkinn, 15 þjór, 17 étur, 20 kar, 22 kúg-
un, 23 úlfum, 24 agnar, 25 tjara.
Lóðrétt: 1 Braga, 2 ámóta, 3 ausa, 4 hjól, 5 mafía, 6 ar-
inn, 10 feita, 12 nýr, 13 hné,15 þekja, 16 ólgan, 18 tyfta,
19 remma, 20 knýr, 21 rúmt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Sudoku
Þrautin felst í því að fylla út í
reitina þannig að í hverjum 3x3-
reit birtist tölurnar 1-9. Það verð-
ur að gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
www.sudoku.com
© Puzzles by Pappocom
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. e4 d6 4. d4 Bg7 5.
Bd3 0-0 6. Rge2 Rc6 7. 0-0 Rh5 8. Be3
e5 9. d5 Re7 10. Rg3 Rf4 11. Bc2 f5 12.
f3 Rxg2 13. Kxg2 f4 14. Bd2 fxg3 15.
hxg3 h6 16. Hh1 g5 17. De2 Rg6 18.
Rd1 Hf7 19. Re3 Df8 20. b4 Bf6 21.
Haf1 Hh7 22. Hh5 Df7 23. Rg4 Bg7 24.
Hh2 h5 25. Hfh1 Rf8 26. Re3 Bf6 27.
Rf5 b6 28. Ba4 Rg6 29. Be3 Bd8 30.
Dd2 Bxf5 31. exf5 Dxf5 32. Bc2 Df7 33.
Bxg5 Hg7 34. Hxh5 Bxg5 35. Dxg5 Rf4
36. gxf4 Dxf4
Staðan kom upp á hollenska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í
Hilversum. Stórmeistarinn Dimitri
Reinderman (2.526) hafði hvítt gegn
alþjóðlega meistaranum Daan Brand-
enburg (2.435). 37. Hh8+ Kf7 38.
Bg6+! og svartur gafst upp enda yrði
hann mát eftir 38. … Hxg6 39. H1h7+
Hg7 40. Hxg7#.
Hvítur mátar í 4 leikjum (120508)
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Getspeki.
Norður
♠G1083
♥D9532
♦--
♣D106
Vestur Austur
♠K97 ♠5
♥-- ♥ÁG8764
♦G973 ♦KD2
♣K9832 ♣G54
Suður
♠ÁD642
♥K10
♦Á1086
♣Á7
Suður spilar 4♠.
Hittingur er það kallað þegar spil-
arar þurfa að velja á milli tveggja jafn-
gildra möguleika. Sumir eru getspak-
ari en aðrir og Norðmaðurinn Geir
Helgemo er sérlega hittinn, en hann
var með spil suðurs í fyrstu umferð
Evrópumótsins. Austur vakti á 1♥,
Helgemo kom inn á 1♠ og síðan lá leið-
in upp í 4♠. Út kom tígull, sem Hel-
gemo trompaði og spilaði litlu hjarta á
tíuna heima. Vestur trompaði og skipti
yfir í smátt lauf. Þessi byrjun sást á
mörgum borðum og flestir sagnhafar
reyndu ♣10 og fóru einn niður. Hel-
gemo stakk hins vegar upp ♣D og vann
sitt spil. Ástæðan er sálfræðileg. Það
sýnir sig nefnilega að varnarspilarar
eru mun fúsari til að spila frá kóng en
gosa í gegnum D10, því menn reikna
með því að sagnhafi setji tíuna. Ágisk-
un í brids er sjaldnast alveg blind.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert kerfisbundið á móti ut-
anaðkomandi hjálp. Þú hefur alltaf viljað
uppgötva og skilja fullkomlega kraftinn
innra með þér. Þiggðu hjálpina sem þér
býðst nú.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú setur sjálfan þig þær aðstæður að
þú munt fá – eða ekki – viðurkenningu per-
sónu sem þú lítur upp til. Mundu að þú ert
jafn góður og hver annar.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert nú þegar fullur vonar. Og
það sem þú lærir næsta sólarhringinn mun
opna augu þín enn fremur fyrir möguleik-
unum í stöðunni. Kraftaverk geta gerst.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur heyrt að efnislegir hlutir
geti ekki gert þig hamingjusaman. Samt
ertu núna yfir þig hrifinn af nýjungum sem
berast þér í fallegum umbúðum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú er ánægður með lífið. Ef þú treður
smátíma fyrir vinina inn í vinnutímann, og
stundar líkamlega og andlega bætandi
iðju, verður það fullkomið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gerðu hlutina sjálfur og bættu
þannig líf þitt til muna. Skrifaðu niður
áætlun og þú færð sífellt betri hugmyndir.
Smáþrif hér og þar og myndin er full-
komin.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Vertu í sambandi við himininn. Jafn-
vægi skapast þegar þú leyfir loftinu að
endurnæra þig. Þú þarft ekki að fara á
fjallstind, strönd eða sveit til að anda því að
þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Fólk sem hringir án fyrirvara
vekur mikla gleði og forvitni hjá þér. Þú
veltir fyrir þér hvað fyrir því vakir. Hafðu
eins gaman og mögulegt er af samskipt-
unum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú getur verið gáfaður og vitur,
eða kátur eins og lítill krakki. Hvort sem
þú velur í aðstæðum dagsins mun það enda
með hlátri.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur mikinn tilfinningalegan
aga og getur stjórnað skapinu. Þú upp-
götvar eitthvað sem kætir þig og svo eitt-
hvað áhugavert. Það er svo gaman hjá þér!
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Í eðli þínu ertu mannvinur. Gjaf-
mildi er það eina rétta. Þú ert að uppgötva
nýjan grundvöll fyrir markmiðin þín.
Hverju viltu deila með öðrum?
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Stundum komum við verr fram við
vini en ókunnuga. Reyndu að eyðileggja
ekki góðar samræður á heimilinu. Þær
þurfa ekki alltaf að snúast um þig.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
18. júní 1000
Kristniboðarnir Gissur hvíti
Teitsson og Hjalti Skeggjason
tóku land á Heimaey. Þar
skipuðu þeir upp viði í kirkju
sem Ólafur konungur
Tryggvason hafði boðað að
reist skyldi þar sem þeir
kæmu fyrst að landi.
18. júní 1955
Þrír bræður frá Hvítárbakka í
Biskupstungum kvæntust
þremur systrum frá Aust-
urhlíð í sömu sveit. Þetta mun
vera einsdæmi.
18. júní 1997
Forseti Íslands, handhafar
forsetavalds og biskupsritari
lokuðust inni í lyftu á Bisk-
upsstofu. Þeir voru að koma af
fundi biskups. Slökkviliðs-
menn björguðu þeim út.
18. júní 2000
Grafarvogskirkja í Reykjavík
var vígð. Kirkjan var næst-
stærsta kirkja landsins og
þjónaði fjölmennustu sókn-
inni. Ríkisstjórnin gaf gler-
listaverk eftir Leif Breiðfjörð,
en það er jafnframt alt-
aristafla, tileinkuð æskunni í
landinu.
Heimild: Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist þá …
Sverrir Schev-
ing Thor-
steinsson á Höfn
verður 80 ára í
dag 18. júní.
Hann verður að
heiman á afmæl-
isdaginn. Papey-
París eða Esju-
fjöll í Vatnajökli,
ekki alveg búinn að ákveða.
80 ára
Í DAG fagnar Margrét Árnadóttir leiðsögumaður
55 ára afmæli sínu. Hún er fædd og uppalin í Hafn-
arfirði en býr nú í nágrannabænum Garðabæ. Hún
segist eyða sem mestum tíma uppi um fjöll og firn-
indi en hún er mikil göngukona. Á sumrin fer hún
með ferðamannahópa á íslensk fjöll en hún hefur
farið í fjallgöngur víða í Evrópu, meðal annars í
Ölpunum og Hálöndum Skotlands.
Hún lætur sérlega vel af för sinni á Kilimanjaro
í Tansaníu en fjallið er hæsta fjall Afríku og það
fjórða hæsta í heiminum, tæplega sex þúsund
metra hátt. Gangan tók sjö daga en Margrét vill
meina að hún sé ekki erfið því ekkert þurfi að klifra, aðaláskorunin
felist í hve bratt fjallið er. Hæðaraukningin sé svo mikil á skömmum
tíma að hún getur valdið veikindum og stundum þurfi jafnvel að ferja
fullhraust göngufólk niður á sjúkrabörum.
Það er viðeigandi að útivistarmanneskja eins og Margrét skuli
halda upp á afmælið sitt með göngu og veitingum í Heiðmörk en hún
gerði það þegar hún varð fimmtug og hyggst endurtaka leikinn í ár.
Hún hefur fulla trú á að veðrið í Heiðmörk verði eftir tilefninu á af-
mælisdaginn. „Það er alltaf svo gott veður á Íslandi, það fer bara svo-
lítið eftir því hvernig maður er klæddur.“ Hún hvetur sitt fólk til að
mæta með góða skapið sem hún segir að sé algerlega ómissandi.
skulias@mbl.is
Margrét Árnadóttir 55 ára
Alltaf gott veður á Íslandi
;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamt upplýsingum um fæðingarstað og stund, þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is