Morgunblaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 10
Morgunblaðið/Júlíus
Sérsveitin Ekki er talin þörf á auknum viðbúnaði vegna hryðjuverka.
Eftir Önund Pál Ragnarsson og Þorbjörn
Þórðarson
„FORVIRKAR rannsóknarheimildir
munu verða bundnar við það, sem
ákveðið er lögum samkvæmt og aldr-
ei yrði til þeirra
gripið nema með
samþykki dóm-
ara,“ segir Björn
Bjarnason, dóms-
málaráðherra.
Hann hefur hug á
því að Alþingi
veiti lögreglu slík-
ar heimildir en
þær felast í því að
safnað er upplýs-
ingum um fólk eða fyrirtæki án þess
að rökstuddur grunur sé um afbrot.
Slíkar heimildir hefur lögregla á
Norðurlöndum. Í mati greiningar-
deildar ríkislögreglustjóra kemur
fram að þrátt fyrir lágt hættustig sé
ljóst að hryðjuverk geti átt sér stað á
Íslandi og sömuleiðis undirbúningur
og skipulag hryðjuverka í öðrum
löndum. Í matinu kemur fram að
merki séu um aukin umsvif skipu-
lagðrar glæpastarfsemi hér á landi,
bæði á vegum innlendra og erlendra
hópa, sem láti nú til sín taka á fleiri
sviðum en verið hefur t.d í mansali og
barnaklámi, auk fíkniefnasölu. Grein-
ingardeild ríkislögreglustjóra leggur
þunga áherslu á að möguleikar til að
bregðast við þróun af þessu tagi séu
minni en ella því að lögregla hafi ekki
forvirkar rannsóknarheimildir.
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra segist munu kynna tillögur um
forvirkar rannsóknarheimildir við
fyrirhugaða heildarendurskoðun lög-
reglulaga og einnig hyggst hann
leggja þær fyrir svonefnda hættu-
matsnefnd, sem starfar á vegum
utanríkisráðherra.
Á brattann að sækja í þinginu
„Reynsla mín er sú, að það geti
verið á brattann að sækja í fyrstu á
Alþingi með sjálfsagðar og eðlilegar
breytingar á starfsháttum lögreglu
og þingmenn þurfi því töluvert ráð-
rúm til að fjalla um mál af þessu
tagi,“ segir Björn. Rökræður og miðl-
un upplýsinga leiði þó að lokum til
skynsamlegrar niðurstöðu, eins og
hafi gerst þegar þingið samþykkti að
greiningardeild ríkislögreglustjóra
yrði stofnuð. „Fyrsta skrefið er að
sjálfsögðu, að ég leggi fram tillögur
mínar,“ segir Björn. Hann telur
nauðsynlegt að horfa fram á veg og
leggja sig fram um að búa í haginn
enn frekar. „Alþjóðlegri glæpastarf-
semi verður til dæmis að svara með
auknu alþjóðlegu lögreglusamstarfi
og hefur markvisst verið unnið að því
að efla það af okkar hálfu,“ segir
Björn jafnframt. Hættustig vegna
hryðjuverkaógnar var lágt í júníbyrj-
un, skv. fyrsta mati greiningardeildar
ríkislögreglustjóra á slíkri hættu.
Það þýðir að ekki liggja fyrir sérstak-
ar upplýsingar um hættu á hryðju-
verkum né er almennt talin sérstök
ástæða til að auka viðbúnað lögreglu.
Vilja forvirkar
rannsóknar-
heimildir
Lögregla vill geta safnað upplýsingum
án rökstudds gruns um tiltekin afbrot
Í HNOTSKURN
»Fjórfrelsið hefur skapaðnýja möguleika á sviði
skipulegrar glæpastarfsemi.
»Þekkt er frá útlöndum aðhryðjuverkahópar láti til
skarar skríða gegn ferða-
mönnum.
»Hryðjuverkamenn, inn-lendir sem erlendir, gætu
talið sendiráð erlendra ríkja
og erlend fyrirtæki á Íslandi á
Íslandi álitleg skotmörk. Gæti
það í huga hryðjuverkamanna
Í HNOTSKURN
»Hindrunarlítil för fólksmilli landa í Evrópu hefur
skapað nýja möguleika á sviði
skipulegrar glæpastarfsemi.
»Þekkt er frá útlöndum aðhryðjuverkahópar láti til
skarar skríða gegn ferða-
mönnum.
»Hryðjuverkamenn, inn-lendir sem erlendir, gætu
talið sendiráð erlendra ríkja
og erlend fyrirtæki á Íslandi
álitleg skotmörk. Gæti það í
huga hryðjuverkamanna falið
í sér vel heppnaða atlögu að
hagsmunum einhvers þess rík-
is sem þeir hatast við.
»Hell’s Angels-vélhjóla-samtökin hafa um langt
skeið haft áhuga á því að ná
fótfestu á Íslandi en stór vél-
hjólagengi eru alþjóðlegt
vandamál. Þau leitast stöðugt
við að auka umsvif sín.
»Erlendir aðilar koma íauknum mæli að skipu-
lögðu vændi á Íslandi.
Björn Bjarnason
Ríkislögreglustjóri getur ekki brugðist við hættu án aukinna heimilda
10 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup kemurfram að 52% aðspurðra kvenna
eru ánægð með að Hanna Birna
Kristjánsdóttir skuli hafa tekið við
af Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni sem
oddviti sjálfstæðismanna í Reykja-
vík og 38% aðspurðra karla eru
ánægð. Hins vegar eru 82% af
fylgismönnum Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík ánægð með þessa til-
högun og 87% þeirra eru ánægð
með að Hanna
Birna verði næsti
borgarstjóri í
Reykjavík.
Þetta þarf ekkiað koma
nokkrum manni á
óvart.
Svo virðist semEyjólfur sé örlítið að hressast,
því fylgi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík þokast örlítið upp á við,
þótt þar sé vissulega bitamunur en
ekki fjár.
Sjálfstæðisflokkurinn var með tæp27% fylgi í Reykjavík í Þjóðar-
púlsinum í júní en fær nú tæp 29%.
Samfylkingin bætir hraustlega viðfylgi sitt frá því í júní, er með
tæp 52% fylgi, en var með 45% í júní.
Það er því ljóst að það er á bratt-ann að sækja fyrir Hönnu Birnu
og félaga. Raunar hlýtur að fara að
verða tímabært fyrir borgarstjórn-
arflokk Sjálfstæðisflokksins og hin
ólíku hverfafélög Sjálfstæðisflokks-
ins í borginni, að setjast á rökstóla
og velta upp spurningum um það
hvernig flokkurinn vill skipa sínu
liði á framboðslistum til næstu borg-
arstjórnarkosninga?
Þarf ekki mikil endurnýjun aðeiga sér stað? Verður ekki
krafa um nýtt fólk til ábyrgðar há-
vær hjá sjálfstæðisfólki í Reykjavík?
Eða verður kannski látið nægja að
Vilhjálmur taki pokann sinn?
STAKSTEINAR
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Er Eyjólfur að hressast?
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"
#$$#
%
#$$#
#$$#
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
" " "
"
"
*$BC
! !" #
$ %& '& ( *!
$$B *!
&! '
!
(
)
<2
<! <2
<! <2
&( '
$# *
$%
+,-#$.
D2E
*
B
$ ) "
*! ( ) # #
+# $ %' % ' , # - /
$ "
,. , ! !
$ %' %/ %/ ' # <7
# #
"!
+ #
! $ %& % ( /0##11
$# 2
-*
$%
VEÐUR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
VEGURINN um Sprengisand verð-
ur opnaður í dag, fimmtudaginn 3.
júlí.
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar að unnið hefði verið að
því að hefla veginn undanfarna daga
en talsverð bleyta var í veginum
norðan Nýjadals. Vegagerðin vill
ítreka, að vegurinn er aðeins fær
stærri bílum og jeppum.
Vegagerðin hefur einnig sent frá
sér hálendiskort, sem tekur gildi í
dag. Samkvæmt því er um að ræða
þrjú svæði á hálendinu, sem ennþá
eru lokuð allri umferð. Þau eru
Þjófadalsleið, austan Langjökuls,
vegir um Auðkúluheiði og Austur-
leið, milli Sprengisands og Öskju.
sisi@mbl.is
Sprengisands-
leið opnuð í dag
Í HNOTSKURN
» Á hálendinu eru þrjúsvæði enn lokuð allri um-
ferð. Þau eru Þjófadalsleið,
austan Langjökuls, vegir um
Auðkúluheiði og Austurleið
milli Sprengisands og Öskju.