Morgunblaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 45
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
SJÓNRITIÐ Rafskinna kemur út
öðru sinni í dag en um ár er frá því
fyrsta tölublað þessa fyrsta íslenska
DVD-tímarits leit dagsins ljós. Þá
var þemað fiskur en nú er það hús.
Sigurður Magnús Finnsson, einn að-
standenda Rafskinnu, segir hug-
myndina hafa kviknað í kjölfar allr-
ar umræðunnar um húsin í
miðbænum. „Það er eitt og annað
sem tengist því á einhvern hátt.
Biggi Veira, Gus Gus-liði, er með
fræðsluþátt um sögu hústónlistar,
svo er húsbílaferð með múm þar sem
farið er í rúnt um æfingahúsnæðið
þeirra, gömul heimildarmynd um yf-
irtöku á gula húsinu, sem var listaat-
hvarf niður á Lindargötu fyrir um
áratug og svo fylgir ritinu minnisspil
með pínulitlum kortum með mynd-
um af húsum á Laugaveginum sem
stendur til að rífa, þannig að fólk
getur lagt þau á minnið áður en þau
fara,“ segir Sigurður Magnús sem
stendur að ritinu ásamt Þórunni
Hafstað, Ragnheiði Gestsdóttir og
Pétri Má Gunnarssyni. Loks á Vi-
beke Bryld heimildarmyndina
Throwing Paint Tins off the Roof,
sem fjallar um tvö húsapör í Austur-
London sem bíða niðurrifs, en mynd-
in fylgir eftir fólkinu sem bjó þar og
rannsakar sögu þeirra.
Ritið snýst þó ekki bara um hús.
Leyndarmál og stuttmyndir
„Við fylgjum Hreini Friðfinnssyni
myndlistarmanni eftir einn dag og
hann fræðir okkur um verk sem
hann hefur unnið að í meira en 30
ár, þar sem hann safnar og varð-
veitir leyndarmál fólks hvaðanæva
að úr heiminum, en með ritinu fylgir
einmitt veggspjald frá Hreini þar
sem hann auglýsir eftir leynd-
armálum.“ Eins fylgja disknum
stuttmyndir eftir leikstjórana Óskar
Jónasson, Músíkvat og Huldar
Breiðfjörð.
Þá er tónlistin ríkjandi í ritinu
sem fyrr. Finna má tónlistar-
myndbönd með Arcade Fire, Clark,
múm og Grizzly Bear – sem einnig
bjóða til grillveislu í öðru atriði. Svo
er „Wanderlust“ með Björk í þrívídd
á disknum, en þrívíddargleraugu
fylgja með. En það eru þó tromm-
ararnir sem eru í aðalhlutverki. „Við
fengum sex trommara til að gera
þriggja mínútna trommusóló, þau
eru á víð og dreif á disknum, en það
er líka valmöguleiki að stilla þeim
saman og horfa á allt í einu,“ segir
Sigurður og segir þetta þá tromm-
ara sem þau telji fremsta í dag, þeir
Björn Stefánsson, Daníel Þor-
steinsson, Gunnlaugur Briem, Helgi
Svavar Helgason, Ólafur Björn
Ólafsson og Sigtryggur Baldursson.
Hús og
leyndarmál
Útgáfupartí Hjaltalín spilar í útgáfupartíinu og svo er einnig myndskeið
með þeim á Rafskinnu. Þar taka sex trommarar líka trommusóló.
Annað hefti Raf-
skinnu kemur út
Af tilefni útgáfunnar verður efnt
til útgáfufagnaðar í nýskreyttu
Sirkusportinu á horni Laugavegs
og Klapparstígs á milli kl. 17 og 20.
GALLINN við aulamyndir er sá að
af tíu slíkum eru í mesta lagi tvær
þess virði að eytt sé á þær tíma og
peningum og Big Stan er ekki í litla
hópnum. Schneider er reyndar ekki
mikill bógur og ástæðulaust að búast
við umtalsverðri skemmtun. Samt
sem áður, þetta er sjálfsagt hans
slakasta mynd. Schneider leikur
Stan, svikahrapp og fasteignabrask-
ara sem lendir í fangelsi. Dauð-
hræddur við að verða fórnarlamb
fjöldanauðgunar í grjótinu, sækir
væskilslegur fasteignasalinn kung
fu-tíma hjá Meistaranum (Carrad-
ine). Eins gott fyrir Stan að kunna
eitthvað fyrir sér í sjálfsvarnarí-
þróttum því myndin er tilraun til
paródíu um ofbeldisfullar fangels-
ismyndir eins og The Longest Yard,
en hefur ekki erindi sem erfiði. Sjálf-
sagt á Schneider sína aðdáendur
hérlendis, þeir einir geta hugsanlega
stytt sér stundir á Big Stan – fyrir
utan Schneider sjálfan. Aðrir bíó-
gestir ættu að halda sér í öruggri
fjarlægð. Fyndnin felst í klúrum lín-
um og linnulausum homma- og ras-
istabröndurum. Léttvægt drasl sem
ágætir aukaleikarar (Walsh, Wilson,
Gibson, Carradine), geta ekki komið
til hjálpar.
Schneider skemmtir sér
Sæbjörn Valdimarsson
KVIKMYND
Smárabíó, Háskólabníó,
Borgarbíó Akureyri
Leikstjóri: Rob Schneider. Aðalleikarar:
Rob Schneider, David Carradine, Jennifer
Morrison, M. Emmet Walsh, Scott Wil-
son, Henry Gibson. 105 mín. Bandaríkin
2007.
Big Stan
bbnnn
Fréttir á SMS
WWW.EBK.DK
Danskir gæðasumarbústaðir
(heilsársbústaðir)
Hafðu samband við okkur fyrir frekari
upplýsingar: Trine Lundgaard Olsen
farsími nr. +45 61 62 05 25
netfang: tlo@ebk.dk
Ert þú í byggingarhugleiðingum?
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
KUNG FU PANDA m/íslensku tali kl. 6 LEYFÐ
WANTED kl. 8 - 10 B.i. 16 ára
CHRONICLES OF NARNIA 2 kl. 6 B.i. 7 ára
THE BANK JOB kl. 9 B.i. 16 ára
KUNG FU PANDA ísl. tal kl. 8 LEYFÐ
HANCOCK kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
THE INCREDIBLE HULK kl. 10 B.i. 12 ára
KUNG FU PANDA m/íslensku tali kl. 8 LEYFÐ
HANCOCK kl. 8 -10:10 B.i. 12 ára
WANTED kl. 10:10 B.i. 16 ára
SÝND Í KEFLAVÍK
EDWARD NORTON ER HULK Í EINNI FLOTTUSTU HASARMYND SUMARSINS.
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
- Viggó,
24stundir
,,Ævintýramynd Sumarsins”
- LEONARD MALTIN, ET.
,,Besta spennumynd ársins”
- TED BAEHR, MOVIEGUIDE.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
TJALDIÐ SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
,SAFAR
ÍK KVIK
MYND,
BYGGÐ
Á SANN
SÖGUL
EGU
BANKA
RÁNI S
EM KEM
UR SÍFE
LLT Á Ó
VART...,
,
- Rollin
g stone
s
eee
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
H E I M S F R U M S Ý N I N G
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI