Morgunblaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar Bjarna-son fæddist í Brekkugerði á Búð- um í Fáskrúðsfirði hinn 17. september 1927. Hann lést á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi 24. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Bjarni Ragnar Jóns- son, f. á Núpi á Berufjarðarströnd 5. október 1882, d. í Brekkugerði á Fá- skrúðsfirði 22. des- ember 1940 og Ragnheiður Magn- úsdóttir, f. á Eyjólfsstöðum í Fossárdal 25. maí 1889, d. í Reykjavík 17. feb. 1970. Systkini Gunnars: Snjólaug Magnea Long, f. 31. júlí 1913, látin; Jón Beck Long, f. 13. nóv 1914, látinn; Sveinn Halldór Long, f. 13. sept. 1917, látinn; Þórlaug Bjarnadótt- ir, f. 27. okt 1917, látin; Antonía Jóna Bjarnadóttir, f. 22. nóv 1920, býr á Álftanesi; Bergþóra Bjarna- dóttir, f. 3. nóv. 1923, býr á Akur- eyri; og Rebekka Bjarnadóttir, f. 24. nóv. 1924, látin. Árið 1949 gekk Gunnar að eiga Ásu Hjartardóttur, f. 24. apríl 1930, d. 4. maí 1998. Þau bjuggu allan sinn búskap á Akranesi. Ása og Gunnar áttu þrjú börn, sem eru: 1) Hjörtur, f. 1949, kvæntur Lilju Guðlaugsdóttur, f. 1951. Börn þeirra eru Guðlaugur, f. 1980 og Ása Katrín, f. 1974, synir hennar Wilhelm Hjörtur og Árni Steinn. 2) Atli, f. 1953, kvæntur Sigrúnu Þórarins- dóttur, f. 1952. Börn þeirra eru Hjördís, f. 1980 og Einar, f. 1971, börn hans eru Thelma Lind og Benedikt Aron. Sambýliskona Ein- ars er Hulda, f. 1983. 3) Ásdís, f. 1956, gift Pétri Björnssyni. Börn þeirra eru þrjú: Sigurður, f. 1985, sambýliskona Sólrún, f. 1983; Bjarki Þór, f. 1980, sonur hans Nikulás Ísar; og Gunnar Örn, f. 1978, hann á tvö börn, Steindór Mar og Ásdísi, sambýliskona Gunnars er Jó- hanna, f. 1976, hún á tvö börn, Birki og Viktoríu. Gunnar fluttist til Akraness 1946 og vann fyrstu 20 árin sem bifvélavirki, gegndi einnig ýms- um trúnaðar- og nefndarstörfum, hann vann í 10 ár sem lagermaður hjá Sementverksmiðju Ríkisins og síðustu 18 starfsárin vann hann sem lagerstjóri hjá Íslenska Járn- blendifélaginu. Útför Gunnars fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Elsku afi, það hryggir mig að ég muni aldrei aftur geta heimsótt þig. Þú varst mikill sögumaður og margir tímar liðu með sögum frá liðnum stundum. Sérstaklega naut ég þess að heyra gamlar sögur af ævintýralegu og huguðu ferðalagi um Ísland sem þú og bróðir þinn lögðuð í sem ungir menn. Það var einnig gaman að heyra sögur frá því þú og amma voruð ung og á þann hátt lifa mig inn í tíma og sögur sem ég sjaldan eða aldrei aftur mun fá innsýn í. Það gladdi mig alltaf mikið að heyra þig tala um ömmu, það var augljóst hve mikið þú elskaðir hana og hversu mikið þú saknaðir hennar. Ég óska þess af öllu hjarta að þú hafir fundið hana, þar sem þú ert núna. Ég er þakklát fyrir hve mikla gæsku þú eilíflega sýndir mér. Ég var alltaf velkomin í heimsókn þegar ég var á Íslandi og í þau skipti sem Mikkel var með í för, komst þú mér á óvart með því að halda uppi samræð- um á dönsku. Ég naut þess að koma til þín og heyra fréttir af fjölskyldumeðlimum nær og fjær. Það var alltaf mikið stolt í röddinni þegar þú talaðir um börn og barnabörn og það yljaðir mér um hjartarætur að heyra að þú varst stoltur af mér. Ég mun sakna þín afi minn. Ég vona að þú hafir það gott þar sem þú ert núna og að þú hafir fundið verskuldaðan frið. Ég elska þig og mun aldrei gleyma þér. Kysstu ömmu frá mér. Þín, Hjördís Ósk. Gunnar Bjarnason Vegna mistaka við vinnslu minningar- greina um Sverri í Morgunblaðinu laug- ardaginn 28. júní sl. birtum við þrjár greinar aftur og biðjum hlutaðeigandi velvirðingar. Með miklum söknuði kveðjum við Sverri, elskulegan frænda okkar. Sverrir frændi var ljúflingur, hlýja og lífsgleði einkenndi hann og húm- orinn var alltaf í fyrirrúmi hjá hon- um, sama á hverju gekk. Maður fór alltaf betri maður og glaðari af fundi frá Sverri enda laðaðist fólk að hon- um og sóttist eftir nærveru hans. Hann sá nefnilega iðulega það skop- lega í umhverfinu og mannlífinu, bet- ur en flestir aðrir. Þess vegna var hann vinsæll gestur í mannfagnaði og kom til dæmis alltaf í árlegt af- mælispartí til Ingu. Þar var hann hrókur alls fagnaðar og jafningi allra þótt aðrir veislugestir væru 30 árum yngri, honum fannst svo gaman að kynnast nýju fólki enda forvitinn að eðlisfari. Sverrir var alltaf sjálfum sér nóg- ur, fannst gott að sýsla einn og hafði einstaka innri ró, list sem margan nútímamanninn skortir. Hann starf- aði sem arkitekt, var mikill skákmað- ur og stundaði jóga reglulega. Hann vann lengst af starfsævi sinnar heima við þar sem hann var með teiknistofu. Þannig gat hann sinnt drengjunum sínum þegar þeir voru yngri. Sverrir var frábær pabbi og afi og var óskaplega stoltur af strákun- um sínum enda fengu þeir gott vega- nesti úr föðurhúsum. Sverrir var bóhem og breyttist lít- ið frá því hann kom frá Kaupmanna- höfn 1973. Hann hélt fast í sín lífs- gildi og hafði til dæmis einstakan fatastíl, var ætíð með alskegg og fór aldrei út án alpahúfunnar. Hann var í raun mikill Dani í sér og kunni þá list að „hygge sig“, naut þess að fá sér einn bjór á kvöldin og gott súkkulaði var aldrei langt frá teikniborðinu. Lífgæðakapphlaupið var honum ekki að skapi og veraldlegir hlutir skiptu hann engu máli. Hann talaði oft um það við okkur að það sem mestu máli skipti í lífinu væri að lifa fyrir daginn í dag, njóta lífsins og vera sáttur við sjálfan sig. Hann vissi af eigin raun, eftir erfið veikindi rúmlega fertugur, að lífið er hverfult. Hann naut þess að ferðast og skoða nýja staði og fór í menningarreisur á hverju ári með Alenu og drengjunum. Hann var ný- kominn úr einni ferðinni þegar kallið kom. Aggi heyrði síðast í Sverri þeg- ar jarðskjálftinn gekk yfir. Það var dæmigert fyrir Sverri að gera lítið úr þeim tíðindum en vilja frekar vita hvernig hvernig uppeldið gengi og hvernig stemningin væri í Kaup- mannahöfn. Þannig var Sverrir, vildi alltaf vita hvernig aðrir höfðu það en talaði minna um sjálfan sig. Það var alltaf bjart og gott í kring- um Sverri og þótt hann sé horfinn þá lýsa dýrmætar minningar. Efst í okkar huga er þakklæti fyrir að hafa kynnst einstökum manni. Hann kenndi okkur mikið, ekki með því að predika, heldur með því að vera góð fyrirmynd. Þegar fram líða stundir eigum við eftir að segja litlu Nönnu Kolbrúnu með stolti frá uppáhalds- frænda okkar og halda minningu hans og góðum gildum á lofti. Elsku Alena, Sverrir Jan, Óttar Martin, Bryndís, Eloísa og litlu afa- strákar. Megi guð og góðir vættir styrkja ykkur í sorginni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Ingibjörg, Magnús Agnar (Inga og Aggi) og fjölskylda. Sverrir Norðfjörð ✝ Sverrir Norð-fjörð fæddist í Reykjavík 17. júní 1941. Hann lést á heimili sínu, á Hrefnugötu 8, 17. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Seljakirkju 27. júní. Sverrir Norðfjörð arkitekt FAÍ samein- aði hugsunarhátt og viðhorf gamla og nýja tímans í starfi arki- tektsins. Hann nam arkitektúr við Kun- staakademiets Arki- tektskole í Kaup- mannahöfn á árunum 1964-71. Á námsárun- um ávann Sverrir sér reynslu af teiknistofu- vinnu bæði heima og erlendis. Að námi loknu vann hann um tæpan áratug á Teiknistofunni Höfða með Reyni Vilhjálmssyni, Stefáni Jónssyni, Guðrúnu Jónsdóttur og Knúti Jeppesen ásamt öðrum starfs- mönnum. Hann kom að fjölbreyttum verkefnum á sviði skipulagsmála og bygginga, m.a skipulag íbúðabyggð- ar í Selási og verslunarmiðstöðvar í Mjódd. Sverrir hafði að baki fjöl- breytta starfsreynslu m.a. við hönn- un einbýlis- og týpuhúsa og við úr- lausn stærri skipulagsverkefna þegar hann stofnaði ásamt eiginkonu sinni Alenu Anderlovu arkitekt FAÍ, Vinnustofuna, Hrefnugötu 8 árið 1982. Verkefni þeirra voru fyrst og fremst einbýlishús og íbúðarhús, ný- byggingar og breytingar. Þau hlutu 2. verðlaun í samkeppni um stein- steypt einingahús Nýhúsa árið 1984. Sverrir starfaði náið með verkkaup- um sínum og oftast varð úr því sam- starfi vinátta sem varði upp frá því. Hann hafði mikla þekkingu á bygg- ingarefnum og tæknilegri hlið þeirra mála sem nýttist viðskiptavinum hans vel. Nálægðin við verkefnin, skilningurinn og hæfileikinn til að sjá fyrir lausnir sem hentuðu í smáu sem stóru, voru eðlislægir kostir hans. Í þeirri vinnu voru skissupappírinn og blýanturinn verkfæri hans, sem dugðu honum vel og hafa eflaust oft haft betur en tölvurnar í framsetn- ingu og einfaldleika. Stærsta verk- efnið hans verður að teljast kirkjan og kirkjumiðstöðin í Seljahverfi en það verkefni var honum jafnframt hjartfólgnast. Þaðan verður útför hans gerð í dag. Sverrir gerðist félagi í Arkitektafélagi Íslands þegar hann kom heim frá námi. Hann var alla tíð virkur í starfi félagsins og gegndi trúnaðarstörfum á þess vegum, sat í laganefnd félagsins og í kirkjulista- nefnd um margra ára skeið. Arkitektafélag Íslands þakkar Sverri Norðfjörð fyrir góð störf í þágu félagsins og vottar Alenu og fjölskyldu innilega samúð við andlát hans. Sigríður Magnúsdóttir, formaður Arkitektafélags Íslands. Það var reiðarslag fyrir fjölskyld- una þegar Sverrir var kallaður á brott. Andlát hans bar brátt að og á öllu öðru áttum við von á sjálfan af- mælisdaginn hans. En vegir Guðs eru órannsakanlegir og þegar stórt er spurt er fátt um svör. Genginn er góður maður sem skilur eftir sig margar bjartar og góðar minningar í hugum þeirra sem eftir lifa. Hann var með stórt hjarta og gerði tilveruna svo skemmtilega með návist sinni. Hann var ávallt léttur í lundu og ein- staklega vel að sér um menn og mál- efni og lá ekki á skoðunum sínum. Stolt hans voru synirnir, tengdadæt- urnar og barnabörnin og voru hann og Alena amma alltaf til staðar þegar á þurfti að halda og sinntu þeim af al- úð. Við snerum öll ríkari heim eftir samverustundir fjölskyldunnar og spjall við Sverri enda umræðurnar oft líflegar og skemmtilegar og miðl- aði hann miklu af sínum viskubrunni. Það er sorglegt að fá ekki að njóta fleiri slíkra samverustunda og verður hans sárt saknað. Mikill er missir litlu afastrákanna sem sakna afa síns og áttu svo stóran sess í hjarta hans. Eftir standa ljúfar minningar um yndislegan mann. Hvíl þú í ró við lands þíns ljósa barm, ó ljúfi vin! Bros þitt er geymt – og bak við þyngstan harm er bjartast skin. Þakklát og bljúg sem blóm, er hneigja sig, við breiðum krónu lífsins yfir þig. (Jóhannes úr Kötlum.) Við fjölskyldan kveðjum Sverri með söknuði og þökkum góðar stund- ir. Alena, Sverrir, Bryndís, Hákon Jan, Pétur Wilhelm, Óttar og Elo, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Innilegar samúðarkveðjur, Pétur og Sigrún, Þórarinn, Kristín og dætur, Hjördís, Hafþór og synir. „Tengdasonur Tékklands“ kynnti Sverrir sig fyrir mér. Hann sagðist stoltur vera tengdasonur Tékklands, og sagði í gríni að hann væri hissa á því að hafa ekki fengið stórriddara- kross fyrir það. Sverrir var mér afar kær vinur og grínuðumst við alltaf þegar við hittumst. Ég hitti hann síð- ast 6. júní og var hann hress að vanda og var að velta fyrir sér gullnu ár- unum sem voru í vændum. En fljótt skipast veður í lofti og Sverrir er kall- aður héðan. Ég á góða minningu þeg- ar Tékkar léku landsleik við Íslend- inga á Laugardalsvelli. Kom þá Sverrir heim til mín ásamt fjölda stuðningsmanna Tékka og var gengið á völlinn undir tékkneska fánanum og stuðningsborða á tékknesku. En Tékkarnir töpuðu leiknum gegn Ís- lendingum. En mikil gleði ríkti þenn- an dag og kvöldið líka, ekki síst Sverri að þakka. Við áttum það sam- eiginlegt að heillast af Tékklandi og töluðum við mikið um það. Fannst okkur sveitirnar og litlu þorpin mjög heillandi. Ég á þá von að himnaríki Sverris sé eins og fallegt þorp í Tékk- landi, og ég munu hitta hann þar ein- hvern tíma. Með miklum söknuði kveð ég minn vin, og votta elskulegu eiginkonu hans Alenu og sonum hans Sverri Jan og Óttari og fjölskyldum þeirra samúð. Missir þeirra er mikill. Líka vil ég votta samúð háfullorðni kisu Sverris og Alenu sem var Sverri góð- ur félagsskapur. Elísabet Magnúsdóttir. Um það leyti sem við áttum von á okkar fyrsta barni í febrúar 1976 var okkur boðið til kvöldverðar á heimili Hallfreðs Arnar Eiríkssonar og Olgu Maríu Fransdóttur. Aðrir gestir í þessu boði voru þau Alena og Sverrir. Það sem tengdi okkur öll var sameig- inlegur áhugi á Tékkóslóvakíu, en Baldur hafði verið einn vetur í Prag. Svo vildi til að bæði Alena og Eva voru komnar á steypinn og frum- burðir beggja fæddust í mars. Sex árum síðar fluttum við heim frá Svíþjóð og leigðum íbúð á Hrefnu- götu 6. Börnin í götunni fundu fljót- lega hvert annað og í kjölfarið tókst mikill vinskapur með okkur öllum. Við störfuðum saman í Tékknesk-ís- lenska menningarfélaginu sem þá stóð með nokkrum blóma, gaf út fréttabréf, hélt árlegar hátíðir og stundum tónleika. Sverrir var þeirri náðargáfu gædd- ur að geta jafnan séð skoplegar hliðar mannlífsins. Þótt vinum Tékka væri ekki alltaf hlátur í huga á stjórnarár- um Husáks hafði Sverrir lag á að skopast að Rússunum og brölti þeirra og hvernig þeir fylgdust með starf- semi okkar litla menningarfélags yfir öxlina á sendifulltrúa Tékkóslóvaka hér á landi. Skopskyn hans minnti óneitanlega á hvernig Tékkar sjálfir sögðu gamansögur af ástandinu. Sverrir hafði mikinn áhuga á fólki og hafði lag á að rekja úr því garn- irnar á sinn sérstaka launfyndna hátt. Á stuttum tíma gat hann fengið viðmælanda sinn til að segja frá helstu æviatriðum og afrekum þann- ig að sögumanni fannst hann hafa tekið þátt í miklu ævintýri. Sverrir hafði gott minni og gat alltaf tekið upp þræði úr fortíðinni til að koma viðmælanda sínum af stað og fylla í eyðurnar. Sjálfur var hann hlédræg- ur og hógvær, sló jafnan á létta strengi ef talið barst að honum sjálf- um og gerði gys að þeim sem ætluðu að hafa skoðanir á högum hans. Sum- um þótti undarlegt að sjálfur arki- tektinn hefði ekki brotið vegg í húsi sínu og ef fólk beindi talinu að garð- inum gerði hann sér upp miklar áhyggjur af gömlu og fúnu tré sem þar stóð. Einhverju sinni vildum við forvitn- ast um verkefni teiknistofunnar. Sverrir gerði lítið úr því, sagðist helst vera að hjálpa fólki með eitthvert smáræði – og gengi misjafnlega. Ný- lega hefðu komið til hans hjón og vildu láta teikna fyrir sig stækkun við einbýlishús. Eftir að hafa kynnt sér óskir hjónanna kvaðst hann hafa ráð- lagt þeim að kaupa sér heldur svefn- sófa og sofa í stofunni í 4-5 ár. Þá myndu elstu börnin flytja að heiman og húsnæðið rýmkast aftur. Sverrir var mikill skákmaður og hafði yndi af að tefla bréfaskák með gamla laginu, póstsenda leiki í um- slagi með frímerki. Síðasti fundur okkar var á pósthúsinu í vor, þá var Sverrir að póstleggja leiki í nokkrum skákum út um heiminn. Hann kvaðst vera með um það bil tíu eða fimmtán skákir í gangi og þær stæðu mánuð- um – eða jafnvel árum – saman. Sverrir virtist geta hafið sig upp yfir ys og argaþras líðandi stundar og lif- að þar sem tíminn er aukaatriði. Við vottum Alenu, drengjunum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð. Baldur og Eva. Sverrir Norðfjörð var ákaflega vandaður arkitekt og vék aldrei frá grundvallarlögmálum arkitektúrsins í verkum sínum. Arkitektinn tilheyrir þeim hópi listamanna, því það er arkitektinn með öðru og arkitektúr hefur verið kallaður móðir listanna, sem frá því að hann stígur inn fyrir þröskuld arkitektaskólans fæst við rými, form, skipulag, „funktion“ uns yfir lýkur. Maðurinn er viðmiðunin, sem allur arkitektúr tekur mið af. Skynjun mannsins á rými, formi og skipulagi er þungamiðja starfs arkitektsins, „kaosinu“ gefin meining. Arkitektúr er rýmislist, staðbundin, en einnig hreyfilist, því manneskjan er jú alltaf á hreyfingu innan rýmisins. Að með- höndla þetta er alltaf í huga arki- tektsins við vinnu sína og þar er staða arkitektsins meðal listanna. Sverrir meðhöndlaði þessa þætti á agaðan og meðvitaðan hátt. Íbúðarhús, sem Sverrir teiknaði vitna hér um og ekki má gleyma Seljakirkju í Breiðholti. Sérkenni Sverris sem manneskja og arkitekt birtist þar með skýrum hætti. Hófstillt byggingin með þaul- hugsuðu skipulagi, tenging kirkju- skips, safnaðarheimilis og starfs- mannaaðstöðu um bjart miðrýmið og rýmismyndun sjálfs kirkjuskipsins er ein sú best heppnaða í kirkjum hér- lendis og þótt víðar væri leitað. Á þessari stundu koma margar minningar upp í hugann alveg frá því að við Sverrir kynntumst á Kun- stakademiets arkitektskole, Det Kongelige danske Kunstakademi for de Skønne Kunster, í Kaupmanna- höfn forðum daga, samræður um lífið og tilveruna og ekki síst arkitektúr- inn. Samferðamenn Sverris eiga eftir að sakna hins ljúfa manns, sem Sverrir var, hluttekningu hans og græskulausa og einstæða kímnigáfu og næmt auga fyrir fáfengileika efn- ishyggjunnar. Sverrir átti því láni að fagna að kynnast hinni hæfileikaríku eiginkonu sinni, Alenu Anderlovu á Kunstakademíunni, þar sem hún tók sitt annað diplóma í arkitektúr eftir að hafa einnig tekið diplóma frá arki- tektaskólanum í Prag. Á þessari stundu sendi ég Alenu og sonum þeirra, Sverri Jan og Óttari Martin og systkinum Sverris samúð- arkveðjur mínar. Björn H. Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.