Morgunblaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 03.07.2008, Blaðsíða 40
Við fengum sex trommara til að gera þriggja mínútna trommusóló, þau eru á víð og dreif … 45 » reykjavíkreykjavík Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is „BARN einhvers, sonur einhvers.“ Það er Ben Affleck sem mælir á vandaðri japönsku og Bono sem botn- ar hann. Þetta er úr japanskri auglýs- ingu sem hvetur iðnríki heims til þess að takast á við fátækt í heiminum og undir lok myndbandsins segir David Beckham okkur að „það eru raddir ykkar sem er þörf á,“ og Bob Geldof og Matt Damon botna; „allir verða að vera með í þessu verkefni og við verð- um að vinna saman.“ Það er Gísli Snær Erlingsson kvik- myndaleikstjóri, sem þekktastur er hérlendis fyrir myndir á borð við Benjamín dúfu, Stuttan Frakka og Ikingut, sem leikstýrir auglýsingunni en hann hefur unnið og starfað í Jap- an um nokkurt skeið. Auglýsingin er unnin fyrir góðgerðarsamtökin One eftir því sem fram kemur á vef Landi og sona (logs.is) og auk ofangreindra stjarna bregður fyrir Michael Stipe, Thierry Henry, Claudiu Schiffer og Matt Damon í auglýsingunni, sem er öll á jap- önsku. One eru gras- rótarsamtök stofnuð af und- irlagi Bono sem berjast gegn fá- tækt í heiminum sem og mannrétt- indabrotum – og þeir sem eru skráðir á póstlista samtakanna fá reglulega bréf frá fólki á borð við Bono sjálfum, Matt Damon og George Clooney. Stjörnur bjarga heiminum Ljósmynd/Jónas Hallgrímsson Í stjörnufans Gísli Snær Erlingsson leikstýrir þeim Bono, Beckham, Mich- ael Stipe, Thierry Henry, Claudiu Schiffer, Ben Affleck og Matt Damon. Gísli Snær leikstýrir stórstjörnum í japanskri auglýsingu Bono David BeckhamClaudia Schiffer Myndbandið má sjá á gislisnaer.com  Vökulir út- sendarar Víkur- frétta náðu mynd af bandaríska leikaranum Tony Shalhoub, sem sjónvarpsáhorf- endur kannast vafalaust við úr glæpaþáttunum Monk, þar sem hann var að leita að rakvél- arblöðum í bensínstöð Orkunnar í Reykjanesbæ á mánudag. Mun einnig hafa sést til leikarans í verslun 10-11. Ekkert er nánar vitað um ferðir leikarans hér á landi, en hann hvarf fyrirvaralaust eins og oft vill henda þau fórn- arlamba sem sögupersóna hans reynir að hjálpa í sjónvarpsþátt- unum. Þær vísbendingar sem Tony skildi eftir sig duga þá held- ur ekki hæfustu blaðasnápum og papparössum til að spá fyrir um ferðir leikarans eða í hvaða er- indagjörðum hann var í Reykja- nesbæ. Monk órakaður í Reykjanesbæ  Í gær var sagt frá því að Björk hefði neyðst til að aflýsa tónleikum sínum á tónleikahátíðinni Wild in the Country sökum ófullnægjandi aðbúnaðar tónleikahaldara. Ein- hverjir hátíðargesta urðu að vonum vonsviknir og tónleikahaldarar munu hafa boðið þeim endur- greiðslu. En nú er von á að enn fleiri tónleikagestir fari fram á að fá miða sína endurgreidda því hin frábæra New York-sveit Battles hefur aflýst upptroðslu sinni á há- tíðinni án þess að fyrir því séu gefn- ar nokkrar ástæður. Orðrómur er svo um að Soulwax muni einnig af- lýsa tónleikum sínum og þá lítur há- tíðin ekki svo beysin út. Fleiri aflýsa tónleikum Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is HINN 30. janúar síðastliðinn birtist á þessum stað í Morgunblaðinu viðtal við Ágúst nokkurn Bjarnason viðskiptafræðing sem hafði vakið at- hygli fyrir kynningarmyndband sitt á vefsíðunni YouTube. Ágúst hafði þá gefið viðskiptafræðina upp á bátinn og hafið nám í kvikmyndaleik við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndbandið hafði hann sett saman í Kvikmyndaskólanum til að kynna sig og leikhæfileika sína og þar komust blaðamenn Morgunblaðsins fyrst í kynni við Ágúst. Spurður hvort hann stefndi á erlendan markað sem leikari svaraði Ágúst játandi og bætti við að frá upphafi hefði stefnan verið sett á Bandaríkin. „Ég var að velta fyrir mér að leika hér heima í sumar og fara síðan utan á næsta ári og reyna að koma mér áfram þar.“ Ekkert öruggt fyrr en búið er að klippa Ágúst hefur hins vegar ekki getað beðið fram á næsta ár því nú er hann kominn til Los Angeles og það sem meira er; hann segist vera búinn að landa sínu fyrsta hlutverki í Hollywood- kvikmynd. Ekki slæmt fyrir mann sem á eftir eitt ár í Kvikmyndaskóla Íslands. „Ástæðan fyrir því að ég er kominn til LA er kvikmynd sem er loksins kominn í framleiðslu en það eru ein- hverjir mánuðir þangað til ég kem aftur til LA í tökur. Ég skrifaði undir í síðustu viku og er því öruggur með mína stöðu þessa stundina, ef ekk- ert breytist þá er þetta mjög stórt tækifæri.“ Ágúst segir hins vegar að hann sé enn bundinn trúnaði og megi því ekki gefa upp hverjir leiki í myndinni með honum, né um hvað hún fjallar „En það er mjög þekktur leikari og grínisti sem semur handritið og leikur aðalhlutverkið en ég leik frekar breytta útgáfu af sjálfum mér og verð hér og þar með honum mestalla myndina. Ég er búinn að hitta ótrúlega marga þekkta ein- staklinga í þessu ferli og er alltaf spenntur þegar ég heyri nöfnin sem eru orðuð við þetta verk- efni, segir Ágúst en vara sig á því að segja of mikið þar sem ekkert sé öruggt í Hollywood fyrr en myndin er komin af klippiborðinu. Lífið í Hollywood snýst þó um annað en að mæta í leikprufur og skrifa undir samninga. Ágúst hefur komist í kynni við fjöldann allan af kvikmynda- og tónlistarstjörnum og varla renn- ur upp sá dagur að hann gangi ekki í flasið á ein- hverri goðsögninni. „Hér er lífið mjög ólíkt og á Íslandi. Ég hitti Justin Timberlake og Mike Myers á frumsýningu á myndinni Love Guru. Er búinn að sjá Hugh Hefner og Playboy-stelp- urnar, Robert Downey jr., Warren Beatty, Steve Carrell, Jane Fonda, Angelu Lansbury, Andrew Dice Clay og fleiri og fleiri. Við fórum til dæmis á sundlaugabar á Rosevelt-hótelinu en það er staður sem Britney Spears, Lindsay Lohan, Jes- sica Simpson og Ben Affleck stunda meðal ann- ars reglulega og þar var Lindsay Lohan einmitt að skemmta sér.“ Mesta tilviljun í heiminum Hápunktur ferðarinnar hingað til var hins vegar þegar Ágúst fór með félögum sínum á Saddle Ranch veitingastaðinn á Sunset Boulev- ard. „Þar er hægt að fara upp á svið og taka lag- ið en ég hafði ákveðið að taka „Angels“ með Robbie Williams. Þegar við komum á Saddle Ranch þá fáum við borð og ég er að hugsa um að standa upp og panta lagið. Þrír menn standa þá fyrir aftan mig og þurfa að komast framhjá. Ég færi mig og þá segir Helgi félagi minn: ,,Þetta var Robbie!“ Ég hlæ að sjálfsögðu bara að þess- um lélega brandara en geri mér svo grein fyrir því að Robbie Williams stendur fyrir framan borðið okkar með tveimur vinum sínum og er að tala í símann. Þetta er náttúrulega mesta til- viljun í heiminum og þessu myndi enginn trúa. Robbie Williams var að vísu farinn þegar ég náði loks að syngja lagið en bestu vinir hans sátu enn við sitt borð og höfðu mjög gaman af.“ Draumurinn rætist  Ágúst Bjarnason leikari og viðskiptafræðingur hefur landað hlutverki í Holly- wood-mynd  Líður varla sá dagur að hann hitti ekki Hollywood-stjörnu Í LA Ágúst Bjarnason með Mullholland Drive að baki sér og draumaborgina sjálfa, Los Angeles.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.