Morgunblaðið - 03.07.2008, Page 17
Eftir Þuríði Magnúsínu Björnsdóttur
thuridur@mbl.is
H
estamennska er
dásamlegt sport og
það er sérstaklega
gaman hvað það
getur sameinað fjöl-
skyldur,“ segir Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra sem er enginn nýgræðingur
í hestamennsku. Hún sækir að
sjálfsögðu uppskeruhátíð hesta-
manna þessa dagana á Hellu. Þor-
gerður Katrín setur Landsmót
hestamanna í kvöld klukkan 20 og
verður í hópi 500 manna opn-
unarreið á Gaddstaðaflötum, og
það verður ekki í fyrsta sinn.
Landbúnaðarráðuneytið og
menntamálaráðuneytið hafa unnið
að sameiginlegum verkefnum á
landsmótinu og mun Einar K.
Guðfinnsson landbúnaðarráðherra
opna Hestatorgið formlega í
kvöld.
Megum vera stolt af
þróuninni í hestamennsku
„Það er einstakur heiður og
ánægja af því að taka þátt því
landsmótið er að mínu mati orðið
eitt merkilegasta mannamót sem
við stöndum fyrir. Landssamband
hestamanna og allir þeir sem
standa að landsmótinu eiga heiður
og þökk skilið fyrir hvernig þeir
hafa náð að þróa mótið áfram í þá
veru að þetta sé orðin meiri fjöl-
skylduhátíð. Auðvitað ganga menn
ekki alltaf hægt um gleðinnar dyr
en mér finnst mikill munur á
landsmóti í dag og á árum áður,“
segir Þorgerður Katrín sem hefur
sótt landsmót frá barnsaldri. Mót-
in segir hún hafa þróast í mjög já-
kvæða átt, annars vegar með
bættum aðbúnaði og hins vegar
hafi hestarnir sjálfir tekið miklum
framförum og öll fagmennska í
hestamennsku. „Við megum svo
sannarlega vera stolt af þessari
þróun í greininni,“ segir hún.
Þorgerður Katrín er alin upp
við hestamennsku og stundaði
hana hér áður af fullum krafti en
hefur ekki getað sinnt því eins síð-
ustu ár en segir að það standi
vonandi til bóta.
„Fyrsti hesturinn minn var Úa,
nefnd eftir persónu Kristnihalds
undir Jökli. Þetta var svolítið
táknrænt. Ætli ég hafi ekki verið
sex ára þegar ég sá folald koma út
úr þokunni með móður sinni
Kengálu og þá sagði pabbi:
„Þarna er folaldið þitt komið.“
Gunnar Eyjólfsson, hinn kunni
leikari og faðir Þorgerðar Katr-
ínar, hefur verið drifkrafturinn í
hestamennskunni hjá fjölskyld-
unni og Þorgerður Katrín segir
systur sína, Karítas, hafa tekið við
þeim kyndli. Hestamennskuáhug-
inn er runninn undan rifjum Skag-
firðingsins Ara Arasonar, tengda-
föður Gunnars sem „smitaði“
hann.
„Fallegt að horfa á
samskipti hrossa og barna“
„Ég hef alltaf verið mikið á
hestum, bæði á sumrin og vet-
urna, fyrst uppi í Víðidal en núna
erum við systurnar komnar í
Hafnarfjörðinn,“ segir Þorgerður
Katrín og telur þar að finna eitt
allra besta hestasvæði landsins,
bæði hvað varðar aðbúnað og
fagrar reiðleiðir þar sem stutt sé í
mikla náttúru frá þéttbýlinu.
Þorgerður segir strákana sína
tvo og dóttur fara reglulega með
sér upp í hesthús en allt fari það
þó eftir önnum ráðherrans hverju
sinni.
„Maður sér hvað allir verða
glaðir og fá mikið út úr því þegar
við förum þarna upp eftir. Ég held
það séu mikil forréttindi að geta
fengið að umgangast dýr reglu-
lega. Krakkarnir eru fljótir að ná
tengslum við hrossin og læra á sig
og þurfa að reyna á sig alveg eins
og dýr þurfa að reyna á sig að
umgangast börnin. Það er fallegt
að horfa á samskipti hrossa og
barna.“
Ekki stendur á svari þegar Þor-
gerður Katrín er spurð um uppá-
haldsreiðhestinn í gegnum tíðina:
„Bjarmi hans pabba. Hann er
undan Ófeigi frá Flugumýri og
fyrstu verðlauna hryssu frá pabba.
Hann var stórkostlegur og er enn
þá brattur 26 vetra í haga.
Viljugt og hreingengt
Maður er alltaf að leita eftir
góðu geðslagi og viljugu og hrein-
gengu hrossi, með góða yfirferð.
Ég er enginn sérfræðingur í
þessu, mér bara líður vel á góðum
hesti og þá verður manni hugsað
til ljóðsins Fákar hans Einars
Ben; maður er kóngur um stund á
góðum hesti úti í náttúrunni. Það
toppar það vart neitt annað.“
Hryssan Úa út úr þokunni
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur Landsmót hestamanna á Hellu í kvöld
Hefur sótt landsmót frá barnsaldri og segir mótið orðið eitt merkilegasta mannamót Íslendinga
Kóngur um stund Hjónin Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Kristján Arason í hestaferð á góðum gæðingum.
Gleði Þorgerður Katrín heldur í dóttur sína, Katrínu Erlu, er situr Brá frá
Löndum. Karítas Gunnarsdóttir og Gunnar Ari Kristjánsson fylgjast með.
Sameinar fjölskyldur Menntamálaráðherra í hestaferðalagi árið 1992.
„Það toppar það vart neitt annað,“ segir Þorgerður Katrín.
HLÝ gola lék um gesti á
Landsmóti hestamanna á
Gaddstaðaflötum í gær. Fín
stemning er á meðal mann-
fjöldans enda margar úrvals-
sýningar.
Veðurspáin fyrir helgina er
með eindæmum góð, ekki
lýgur a.m.k. sólin sem skín
beint í augu blaðamanns þeg-
ar þessi orð eru skrifuð.
Sviptingar í ungmenna-
og unglingaflokki
Sigurbjörn Bárðarson, eða
Diddi Bárðar, er sannarlega
karl í krapinu. Í forkeppni A-
flokks gæðinga er hann efst-
ur með Kolskegg frá Oddhóli
og líka annar með Stakk frá
Halldórsstöðum.
Arnar Logi Lúthersson á
Frama frá Víðidalstungu II
er efstur eftir keppni í milli-
riðli í unglingaflokki og í
ungmennaflokki Henna Siren
á Gormi frá Fljótshólum 3.
Sýningu nokkurra hryssna
í 4 vetra flokknum var lokið í
gærmorgun vegna hvassviðr-
isins sem skall á í fyrradag.
Þar er efst Salka frá Stuðl-
um, sýnd af Þórði Þorgeirs-
syni. Yfirlitssýning hryssn-
anna er svo í dag þar sem
þær geta hækkað einkunn
sína.
Seiður frá Flugumýri II er
efstur í flokki 4 vetra stóð-
hesta en hann er sýndur af
Mette Mannseth. Í 5 v.
flokknum er Ómur frá
Kvistum efstur hjá Þórði Þor-
geirssyni og Glotti frá
Sveinatungu er efstur 6 v.
hesta hjá Jakobi Sigurðssyni.
thuridur@mbl.is
Diddi
seigur
Menntamálaráðherra segist alltaf
verða jafnhissa yfir framförunum í
hestamennsku á hverju landsmóti;
að það sé mögulegt að toppa það
síðasta. Hún fylgist með ræktun frá
ákveðnum búum og svæðum og
segir gaman að sjá hve rækt-
unarlína geti verið einkennandi.
„Ég hef alltaf verið hrifin af af-
kvæmum Ófeigs frá Flugumýri, mér
finnst þetta bleik- og móálótta sem
kemur undan honum ofsalega fal-
legt.“ Ræktunin frá Holtsmúla-
Hrafni er líka í uppáhaldi og hún
segir hafa verið gaman að fylgjast
með Stála frá Kjarri sem toppaði á
síðasta landsmóti auk þess sem
henni finnst ræktunarhópurinn frá
Feti skemmtilegur. „Mér finnst allt-
af gaman að sjá afkvæmasýning-
arnar,“ segir Þorgerður Katrín.
„Kirkjubæingarnir höfða líka alltaf
til mín og ég er hrifin af rauðbles-
óttu.“ Hún kveður hesta fjölskyld-
unnar upphaflega ættaða þaðan
ásamt Ófeigskyninu o.fl.
Hrifin af rauðblesóttu Kirkjubæingunum
Landsmót hestamanna