Morgunblaðið - 03.07.2008, Síða 20
daglegtlíf
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Íslensk náttúra er svo rík affegurð að stundum þarf ekkiannað en að fara upp yfirfjallsbrún, inn í dal eða upp í
gil, til að finna geggjað umhverfi,“
segir Halla Kjartansdóttir Flóa-
kona, hestakona og leiðsögumaður.
Halla er mikil útivistarkona enda
stundar hún nám í Landbúnaðarhá-
skólanum á Hvanneyri í náttúru- og
umhverfisfræðum. Auk þess er hún í
tveimur björgunarsveitum, Ársæli á
Seltjarnarnesi og Brák í Borgarnesi
„Mér finnst mikil upplifun að fara
í hellaskoðun. Það er kynngimagnað
að sitja í kolniðamyrkri inni í helli og
ekkert heyrist nema droparnir sem
falla úr loftinu. Á sumrin getur mað-
ur séð meira af hraunspenum,
dropasteinum, hraunstráum og fleiri
jarðmyndunum. Að vetri til má oft
sjá falleg listaverk úr tærum ís bæði
í lofti og gólfi hella, jafnvel þeirra
sem láta lítið yfir sér að sumri til.
Það er þessi mikla kyrrð og töfrar í
hellum sem verða til þess að ég upp-
lifi þar vissa sálarró.“
Gist hjá gömlum beinum
Halla segir hellana Leiðarenda og
Surtshelli koma fyrsta upp í hugann.
„Surtshellir er í Hallmundarhrauni
sem er ofarlega í Borgarfirði. Hann
er einn af stærstu hellum landsins,
og er sérstaklega fallegur á veturna.
Síðastliðinn vetur gisti ég einmitt í
Surtshelli ásamt nokkrum félögum
mínum úr björgunarsveitinni og úti-
vistarklúbbnum hér á Hvanneyri.
Við gistum í afhelli á móti öðrum af-
helli sem heitir Beinahellir en þar
má finna fornt eldstæði með eld-
gömlum stórgripabeinum. Í þeirri
ferð gengum við hellinn á enda alveg
inn í þann hluta hans sem heitir Ís-
hellir. Öll op voru full af snjó þannig
að við gátum oft rennt okkur niður í
næsta hluta. Í Íshelli fengum við að
njóta mjög fallegra ísmyndana en
eftir því sem innar kom minnkaði ís-
inn þar til það var bara orðið nokkuð
heitt í lofti. Þrátt fyrir að ferðin hafi
verið farin á köldustu helgi vetrarins
var okkur ekki kalt þegar við gistum
þarna þar sem við vorum vel búin og
í þessu svartamyrkri sváfum við
langt fram á morgun.“
Halla segist seint gleyma þegar
hún fyrir þremur árum fór með
nokkra útlendinga í hellaferð í Leið-
arenda í Stórbollahrauni nálægt
Bláfjallavegi. „Ég vissi að innst inni í
hellinum, sem er um 750 metra lang-
ur, væri beinagrind af kind. Mér
Myrkur og kyrrð í Surtshelli
Hlýtt Halla gisti í Surtshelli í fyrra.
Ljósmynd/Halla Kristjánsdóttir
Villur framundan Það var meira mál að komast út úr Leiðarenda en að ganga þar inn en allt fór vel að lokum.
Eftir Guðrúnu Huldu Pálsdóttur
gudrunhulda@mbl.is
Það var kátt á hjalla hjá krökkunum fráfrístundaheimilinu Hvergilandi semkepptu hvert við annað í strandblakiá dögunum. Sólin skein og krakkarnir
voru í sumargalla á tánum hoppandi í gulum
sandi á eftir boltanum. Var engu líkara en þau
væru stödd á fagurri sólarströnd.
Strandblaksvellirnir eru hins vegar nýstand-
settir og eru hluti af mikilli uppbyggingu sem á
sér stað á landi Gufuness í Grafarvogi.
Atli Steinn Árnason, forstöðumaður frí-
stundamiðstöðvarinnar Gufunesbæ segir vell-
ina mikið notaða af hópum frá íþróttafélögum
og frístundaheimilum. „Fyrirtækjahópar og
vinahópar koma hérna gjarnan í skemmtiferðir
og vellirnir eru mikið notaðir af almenningi á
kvöldin,“ segir hann. „Þetta er aðstaða sem við
vissum að margir myndu nýta sér. Strand-
blaksvellir hér á landi eru örfáir og greinilegt
að þörf var á völlunum því notkunin hefur verið
stöðug síðan þeir voru settir upp.“
Auk strandblaksins geta gestir svæðisins
spreytt sig í klifri, farið í frisbígolf og fótbolta
eða nýtt sér hjólabrettaaðstöðu og útigrill.
Stærsta hjólabrettaaðstaða
landsins á teikniborðinu
Að sögn Atla Steins munu í framtíðinni bæt-
ast við körfuboltavellir, torfærubraut fyrir
BMX-hjól, leiktæki fyrir yngstu börnin og
stærsta hjólabrettaaðstaða á Íslandi. „Verið er
að gera upp gamla hlöðu og mun hún verða
hluti af fjölnota frístundahúsi sem mun rísa á
svæðinu. Í húsinu verður aðstaða fyrir fjöl-
breytta tómstundaiðju, m.a. æfingaaðstaða fyr-
ir hljómsveitir, smiðjur, fjölnota salur, veit-
ingasala og setustofa. Þá mun Klifurfélag
Reykjavikur og Brettafélag Reykjavikur fá
húsnæði fyrir sína starfsemi til veggjaklifurs
og fyrir hjólabretti.“
Frístundamiðstöðin Gufunesbær var stofnuð
haustið 1998 og er rekin af Íþrótta- og tóm-
stundasviði Reykjavíkur. Að sögn Atla Steins
er áhersla lögð á að bjóða upp á fjölbreytt og
áhugavert frístundastarf en Gufunesbær hefur
m.a. umsjón með félagsmiðstöðvunum og frí-
stundaheimilum í Grafarvogi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sumar og sól Mikill keppnisandi var í börnum jafnt sem fullorðnum í blakleik í Gufunesi á dögunum.
Grillað Kampakát og glorhungruð fengu börnin pylsur.Klifur Sumir spreyttu sig í veggjaklifri inn í gömlum súrheysturni.
Strandblakið vinsælt í Gufunesi
|fimmtudagur|3. 7. 2008| mbl.is