Morgunblaðið - 03.07.2008, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. JÚLÍ 2008 41
- kemur þér við
FME rannsakar
viðskipti Lands-
bankans
Bóndi býr til raforku
með vindmyllu
Læknar hafna
kjaraboði ríkisins
Bandaríkjamenn
pynta eins og
Kínverjar
Meirihluti í borginni
varð að minnihluta
Árni Johnsen er
úreltur segir Björk
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
HIN alþjóðlega sýning á verðlauna-
myndum blaða- og fréttaljósmynd-
ara, World Press Photo, er orðin
jafnárviss viðburður hér á landi og
koma farfuglanna. Sýning á verð-
launamyndum ársins 2007 opnar á
göngum Kringlunnar í dag.
Að vanda voru veitt verðlaun í 10
efnisflokkum, sem ætlað er að ná til
margra helstu sviðanna sem með-
vitaðir og metnaðarfullir ljósmynd-
arar fjölmiðlanna eru að fást við í
hinum ægihraða samtíma okkar.
Metfjöldi sendi myndir inn í keppn-
ina að þessu sinni, 5.019 ljósmynd-
arar frá 125 löndum. Myndirnar
voru ríflega 80.000 talsins þannig
að dómnefndinni var vandi á hönd-
um, við að finna það áhrifamesta,
að þeirra mati. Nefndin var ekki
skipuð neinum aukvisum; formaður
var ljósmyndarinn Gary Knight,
forseti ljósmyndarasamtakanna VII
og meðal þeirra sem sátu í nefnd-
inni með honum voru National
Geographic-ljósmyndarinn Michael
Nichols og Erin Elder myndstjóri
The Globe and Mail, sem iðulega
birtir ljósmyndun á framúrskar-
andi hátt.
„Þessi ljósmynd sýnir uppgefinn
mann – og uppgjöf þjóðar,“ sagði
Knight um Mynd ársins eftir Tim
Hetherington, af úrvinda banda-
rískum hermanni í Afganistan.
Knight bætti við: „Við tengjumst
þessu öll. Þetta er mynd af manni
sem er kominn á leiðarenda.“
Ekki líta undan
Margar myndanna endurspegla
átök manna á meðal, það sem er í
fréttum fjölmiðlanna. Þarna eru
einnig myndir hugsjónafólks sem
reynir að benda á mikilvægar sög-
ur sem það telur að heimurinn eigi
að vita af. Sögur sem skipta máli.
Við eigum nefnilega ekki líta und-
an, eins og því miður virðist vera sí-
fellt algengara í vestrænum fjöl-
miðlum, þar sem sápuvella
gerviheima skiptir fólk meira máli
á alltof mörgum fjölmiðlum en hið
raunverulega líf sem fólk lifir í
heiminum.
En það eru ekki bara stríðsátök í
þessum verðlaunamyndum World
Press Photo. Þarna eru líka átök í
íþróttum, portrett af frægum sem
ófrægum, myndir úr heimum lista
og vísinda; svipmyndir úr heim-
inum eins og hann er.
Brent Stirton, Getty Images fyrir Newsweek.
Dauð Fjallagórilla borin niður úr fjöllunum í þjóðgarði í Kongó eftir að fjórar górillur fundur skotnar í garðinum.
Górillurnar eru í útrýmingarhættu en um 700 eru villtar á svæðinu. Fyrstu verðlaun í flokknum Samtímamálefni.
Svipmyndir úr heim-
inum eins og hann er
Chris Detrick, The Salt Lake Tribuna
Krækja Leikmaður Pepperdine krækir í augu leikmanns Bingham Young-háskólans. Leikmaðurinn skoraði ekki,
en varð heldur ekki fyrir meiðslum. Dómarinn dæmdi ekki villu! Þriðju verðlaun í Íþróttir-myndafrásögn.
Roberto Schmidt, AFP
Æði Reiður fylgismaður kenýska forsetaframbjóðandans Raila Odinga veif-
ar priki á meðan aðrir nærstaddir ræna verslanir í fátækrahverfi við Nai-
robi á gamlársdag í fyrra. Ófriður braust út eftir nauman sigur Mwai Ki-
baki í forsetakosningum. Önnur verðlaun fyrir staka fréttamynd.