Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 1
S U N N U D A G U R 2 0. J Ú L Í 2 0 0 8 STOFNAÐ 1913 197. tölublað 96. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er VEÐURTEPPT VIÐ HEIMSKAUTSBAUG HLÆGILEGT BORGAR- BARN Á FERÐINNI KVIKMYNDIR Lífseigur Leður- blökumaður Leikhús í sumar >> 53 Eftir Oddnýju Helgadóttur oddnyh@mbl.is Í STEFNU forsætisráðuneytisins um opinn hugbúnað á Íslandi kemur fram að frjáls hugbúnaður ýti undir samkeppni á markaði. Mörg lönd styðja við þróun opins hugbúnaðar, enda mikilvægt að vera ekki háður fáum birgjum um allan hugbúnað. Opinn hugbúnaður er byggður á for- ritunarkóða sem höfundar hafa valið að gera opinberan og öllum aðgengi- legan. Notendur mega dreifa, aðlaga og betrumbæta hugbúnaðinn að vild, að því gefnu að afurðin verði áfram opin og frjáls. Hugbúnaður af þessari gerð er oft ókeypis. Ekki eru allir á sama máli um nýja stefnu ráðuneytisins. Halldór Jörg- ensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi er einn þeirra. „Það þarf yf- irleitt mikla sérfræðiaðstoð og aðlög- un til að nota opinn hugbúnað,“ segir Halldór, sem telur að opinn hugbún- aður sé ekki ódýrari en séreignarhug- búnaður þegar upp er staðið. Halldór harmar einnig hvernig staðið er að Allt opið og ókeypis?  Ísland styður þróun opins hugbúnaðar og telur hann ýta undir samkeppni  Opinn hugbúnaður verður líklega betri en séreignarhugbúnaður innan fárra ára  Hver græðir? | 10 þessum málum og kveðst frekar vilja að sett sé fram stefnumótun um notk- un hugbúnaðar almennt. Breyttar leikreglur Kerfahönnuðurinn Vinay Gupta og Eben Moglen, lagaprófessor við Col- umbia-háskóla, fluttu nýverið erindi á ráðstefnu sem haldin var á vegum Fé- lags um stafrænt frelsi á Íslandi. Telja þeir að með tæknivæðingu síð- ustu áratuga hafi bilið milli ríkra og fátækra aukist. „Netið og yfirfærsla upplýsinga og gagna á stafrænt form breytir öllum leikreglum og færir völd frá einstaklingum til fjöldans,“ segir Moglen sem telur að innan fárra ára verði opinn hugbúnaður mun betri en séreignarhugbúnaður. „Innan fárra ára verður samruni síma og tölvu algjör og þá mun fá- tæku fólki sem hefur aðgang að Net- inu fjölga mjög hratt,“ segir Gupta. Hann vinnur að tæknilegum lausnum og útfærslum sem geta bætt lífsskil- yrði þeirra sem búa við mesta fátækt. HANN neitar að setjast í helgan stein og góna út í loftið. Árni Valdi- marsson keypti fyrir tveimur árum gamalt hraðfrystihús á Eyrarbakka og vinnur nú hörðum höndum við að gera það upp sem flóamarkað, lista- aftur á kortið. „Eyrarbakki var fyrsta borg á Íslandi.“ | 18 gallerý, kaffihús, byggðasafn, kvik- myndahús og íbúðir og vinnustofur fyrir áhugasama eldri borgara. „Meðan fólk hefur heilsu til á það að vera virkt og með í umræðunni.“ Hann vonar að Eyrarbakki komist Morgunblaðið/Ómar Ellin er góð ef hausinn er í lagi Uppbygging í „fyrstu borginni á Íslandi“ Uppreisn ellinnar mbl.is | Sjónvarp Lokaprófanir eru hafnar í borginni Bochum í Þýska- landi á nýju jarð- lestakerfi sem kallast Cargocap. Rafknúnum vögnum er komið fyrir í leiðslum sem eru einungis 1,6 m í þvermál. Hver vagn getur borið tvö vörubretti. Leiðslurnar liggja í gagnstæðar áttir og því er engin hætta á árekstrum. Kerfið er algerlega sjálfvirkt svo mannshöndin kemur hvergi nærri. Vagnarnir eru losaðir og fermdir á áfangastöðum og nokkrir þeirra tengdir saman ef þörf krefur. Sjálf- virkur búnaður fylgist einnig með því hvar vörurnar eru hverju sinni og viðskiptavinirnir vita því ná- kvæmlega hvenær þeirra er von. Kerfið dregur úr umferðarþunga á yfirfullum hraðbrautum, mengun- in er engin og vörur berast mun hraðar á milli staða en með vöru- bifreiðum. Búist er við að fyrsta flutningaleiðslan verði tekin í notk- un innan 5 ára. | 34 Skutlaðu þessu bara neðanjarðar Hverfa vöruflutn- ingar af vegum? Draumur Nicolas Sarkozys Frakk- landsforseta um Miðjarðarbanda- lag hefur loksins ræst. Tækifærin sem í því felast eru mikil, en fram- tíðin er enn óráðin. Framtíðin á huldu Bandarískir þingmenn eru ósáttir við bresk meiðyrðalög og segja þau ógnun við málfrelsi. Þeir boða eigin lagasetningu svo bandarískir þegn- ar verði ekki múlbundnir. Bresk ógnun við málfrelsi Hvers vegna heggur saksóknari Al- þjóða glæpadómstólsins aðeins að forseta Súdans, en ekki neinum samstarfsmanna hans? Og því reið- ir hann svo hátt til höggs? Vafasöm ákvörðun VIKUSPEGILL Júlí er helsti giftingarmánuður árs- ins, um það eru þeir sammála sem rætt var við um sumarbrúðkaup sem eru mjög vinsæl. Fólk lítur gjarnan til veðurfars þegar það ákveður að ganga í það heilaga að sumri, en veður á Íslandi eru gjarn- an válynd og oftar en ekki er rign- ing þegar hinn langþráði brúð- kaupsdagur rennur upp. Þess vegna verða íslensk brúðhjón, sem hyggja á veisluhöld utanhúss og jafnvel hjónavígslu jafnan að hafa varaáætlun um hvað gera skuli, séu veðurguðir þeim ekki hliðhollir og það hellirigni á heiðursdegi brúð- hjónanna. | 20 Júlí mánuður brúðkaupa Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þingvallakirkja Sumarbrúðkaup eru þar algeng, ekki síst í júlí. Snæbjörn Jónasson seg- ir að vissulega gætu sumir talið heimsku- legt að byggja á sandi. Það gerir hann hins vegar í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og geng- ur bara vel. „Það er nefnilega hægt að stýra sandi,“ segir hann, en við- urkennir að sandurinn valdi vanda þegar bílar festast og bílastæði og vegir týnast undir honum. „Þetta er þeirra snjór.“ Snæbjörn er verkfræðingur og starfar við uppbyggingu á eyjunni Saadiyat, sem á að verða sælureitur heimamanna og vel stæðra ferða- manna. | 26 „Þetta er þeirra snjór“ ÍSLENSKA friðargæslan leggur nú megináherslu á að vinna að ýmsum verkefnum í samráði við Sameinuðu þjóðirnar. Konum hefur fjölgað mjög í starfsliði gæslunnar. Sólveig Björk Sveinbjörnsdóttir vinnur með Barnahjálp SÞ í Abeyei- héraði á landamærum Suður- og Norður-Súdans. Í héraðinu eru miklar olíulindir og því miklir hags- munir í húfi. Þá hafa geisað átök á milli íbúa af afrískum og arabískum uppruna um aðgang að beitilandi. SÞ eru nú með fjölmennar sveitir í Súdan og er þeim m.a. ætlað að hafa eftirlit með friðarsamkomulagi sem gert var á milli norðan- og sunn- anmanna árið 2005. „Ástandið er mjög ótryggt og átök geta brotist út nær hvenær sem er,“ sagði Sólveig við Morgunblaðið. Írakar streyma til Sýrlands Bjarney Friðriksdóttir vinnur á skrifstofu SÞ í Damaskus við að skipuleggja aðstoð við flóttafólk frá Írak. „Enginn veit í raun hvað marg- ir Írakar dveljast hér um þessar mundir,“ segir hún, „en talið er að þeir séu um ein og hálf milljón. Sýrlensk yfirvöld líta á þetta fólk sem gesti og þess vegna leita þau ekki langtímalausna fyrir fólkið. Þess vegna eru margar fjölskyldur komnar í algert þrot.“ | 12 arnthor@mbl.is Yfirþyrmandi neyð flóttafólks
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.