Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Í Café Flóru í Grasagarð- inum í Laugardal bíður séra Kristín Þórunn Tóm- asdóttir eftir mér með tvö af þremur börnum sínum, synir hennar báðir borða kleinur að gömlum sið meðan móðir þeirra spjallar við mig um brúðkaup, en hún er héraðsprestur í Kjalarness- prófastsdæmi sem nær allt frá Reykjanesi og upp í Kjós. „Ég hef á tilfinningunni að fólk leyfi sér meira, sé galsafengnara í sumarbrúðkaupum,“ segir séra Kristín Þórunn þegar ég spyr hana hvort hún finni mun á brúðkaupum sem haldin eru á sumrin og þeim sem fara fram á öðrum árstímum. En skyldi fólk spara meira nú í brúðkaupsundirbúningi, á þessum erfiðu tímum, en verið hefur und- anfarið? „Já, ástandið í efnahagsmálunum snertir brúðkaup eins og annað í samfélaginu,“ segir Kristín. „Rétt eins og fyrirtæki þurfa að hagræða í sínum rekstri þurfa heimili og einstaklingar að gera það líka. Fólk sem ég hef rætt við um þessi efni vill þó ógjarnan fækka í hópnum sem bjóða á, það sparar fremur í öðrum hlutum, svo sem ýmsum uppákomum og skemmtiatriðum sem eru aðkeypt. En sá veldur sem á heldur, það er auðvelt að eyða miklu í brúðkaup en það er líka hægt að stilla kostn- aði í hóf. Raunar eru brúðkaup þannig samkomur að boðsgestir gefa þeim gjarnan persónulegan svip, svo sem ættingjar og vinir brúðhjónanna. Gamanmál eru vin- sæl í brúðkaupum enda er þetta gleðihátíð. Athöfnin í kirkjunni snýr að trúarlegum efnum, hinum alvar- legri hluta en öðru máli gegnir með veisluna. Það á sér djúpar rætur í vestrænni menningu að brúðkaup sé tilefni til léttleika og gleði – að gera vel við sig og gesti sína í mat og drykk.“ Fer trúarlegi þátturinn vaxandi eða minnkandi? „Hann hefur ekki farið minnk- andi. Sumir hafa haft áhyggjur af að hið trúarlega hverfi í skugga „Hollywood-áhrifanna“ en það er ekki mín reynsla. Ef fólk velur að gifta sig í kirkju þá gengst það undir hið trúarlega og formlega í hjónavígslu. Það fer eftir kringumstæðum hvernig giftingin er, athöfnin verð- ur öðruvísi utanhúss en í kirkju t.d. Við Íslendingar tengjum gjarn- an náttúruna hinum skapandi Guði. Fjölmargir finna sterkt til hins heilaga einmitt úti í nátt- úrunni, ekki síst í hinum ósnortnu víðáttum. En inntakið er alltaf hið sama – tvær manneskjur eru að gefast hvor annarri og viðstaddir samein- ast í bænum og góðum óskum þeim til handa.“ Undirbúningur brúðkaupa langur Nú hefur verið gott sumar, giftir fólk sig fremur úti þá? „Brúðkaup eru gjarnan und- irbúin með löngum fyrirvara og Ís- lendingar vita að það er ekki á vís- an að róa með veðrið og taka tillit til þess. Ég ræddi við nokkra aðila sem hafa gengið í hið heilaga í sumar og spurði af hverju þeir hefðu valið sumarbrúðkaup. Þeir sögðu þó allir að veðrið ætti sinn þátt í því, ef það væri gott á brúð- kaupsdaginn væri hægt að hafa veisluna utanhúss. Það kom líka fram að viðkomandi hefðu haft miklar áhyggjur af hvernig veðrið yrði, ein sagði: „Alltaf þegar rignir á laugardögum hugsa ég; aumingja þeir sem eru að gifta sig í dag.“ En venjulega hafa þeir sem ætla að hafa veislu og jafnvel athöfn ut- anhúss „B-plan“, ef veðrið verður slæmt er hægt að fara bæði með athöfn og veislu í hús. En fólk er óneitanlega mjög ánægt ef brúð- kaupsdagurinn er bjartur og fagur sólardagur. Í samtali mínu um sumarbrúð- kaup sagði einn brúðguminn að vorið kveikti og yki holdlega löng- un hjá fólki og brúðkaupið væri eðlilegt framhald af því. Víst er að vorið og gróandinn er frjósem- isskeið í náttúrunni og þess gætir líka í mannlífinu, kannski þess vegna eru brúðkaup mun fleiri á sumrin, einkum í júlí. Fólk kemur með sína sögu og vonir Sumarið er líka mjög skemmti- legur tími kirkjuársins til að gefa saman fólk. Tímann frá hvítasunnu og fram að aðventu köllum við sunnudagana eftir þrenning- arhátíð. Þá er litur kirkjuársins grænn, sem táknar vöxt og gró- anda og hvernig við eigum að þroskast sem einstaklingar. Veganestið sem fólk þarf þegar það gengur í hjónaband er einmitt hvernig það getur vaxið saman sem hjón en líka tekið ábyrgð hvort á öðru. Hvernig það getur gengið leiðina saman til góðs. Sumarbrúðkaup eru dásamleg að þessu leyti.“ Sjálf kveðst Kristín Þórunn hafa gift sig að vetri. „En það var af „praktískum“ ástæðum, svo þeir gætu verið við- staddir sem okkur þótti vænt um. En veturinn með sín kertaljós og fegurð er líka rómantískur,“ segir hún og brosir. Hún kveður flesta hafa þegar hafið sambúð þegar gifting fer fram en fólk sé eigi að síður oft í ólíkum sporum. „Sumir eigi mörg börn, jafnvel frá öðrum sam- böndum og þá sé brúðkaupið öðr- um þræði aðferð til að sameina fjölskylduna. Börnin fá gjarna hlutverk í athöfninni, þá verður þetta fjölskylduhátíð, einkum ef fólk fær hlutverk sem hæfir aldri og þroska og nálgunin við við- fangsefnið er kærleiksrík og ekki mörkuð of mikilli spennu.“ Kristín kveður algengast að fað- ir brúðar leiði dóttur inn kirkju- gólfið, jafnvel þótt viðkomandi fað- ir hafi ekki gegnt miklu hlutverki í uppeldi hennar. Að því leyti séu hefðbundin kirkjubrúðkaup tals- vert feðraveldisleg, eins og hún orðar það. Séra Kristín Þórunn er prests- dóttir. „Það setti ekki mikinn svip á minn uppvöxt, ég er fædd 1970, en áður fyrr fóru giftingar gjarnan fram á heimili presta, en svo var ekki heima hjá okkur,“ segir hún, en faðir hennar Tómas Sveinsson er sóknarprestur í Háteigskirkju. Hún kveður kirkjubrúðkaup hafa orðið æ algengari síðari árin og ekki sé enn lát á þeirri þróun. „Það segir okkur að þetta tilefni sé til að deila með öðrum og sé stór stund,“ bætir hún við. En mörg hjónabönd enda með skilnaði, skyldi fólk hugsa um það fyrir brúðkaupið? „Líklega eru ýmsir meðvitaðir um þessa staðreynd. Til brúðkaups kemur hver og einn með sína sögu, sínar vonir og vonbrigði og enginn veit hvernig framtíðin verður. Fólk vonar það besta og kannski einmitt vegna þessa tárast margir í brúð- kaupum, fólk gerir sér svo vel grein fyrir hverfulleika lífsins á svona stórum stundum. Staða manneskjunnar verður áleitin spurning við slíkar kring- umstæður. Jafnframt hugsar fólk um mikilvægi þess að standa sam- an og vera fjölskylda.“ Kærleikurinn fellur aldrei úr Júlí er helsti gifting- armánuður ársins. Guðrún Guðlaugs- dóttir ræddi við séra Kristínu Þórunni Tóm- asdóttur héraðsprest um sumarbrúðkaup. Einnig var rætt við séra Guðbjörgu Jó- hannesdóttur, séra Kristján Val Ingólfsson og brúðhjónin Ingu Láru Sigurjónsdóttur og Njál Mýrdal Árna- son um sama efni. Morgunblaðið/G.Rúnar Bjartsýn Séra Kristín Þórunn Tómasdóttir er bjartsýn á hjónaband og stöðu kvenna. Það kjósa margir að gifta sigá hinum forna virðing-arstað Íslands – Þingvöll- um. Þar er prestur séra Kristján Valur Ingólfsson og segir hann bæði Íslendinga og útlendinga gifta sig í Þingvallakirkju. En er honum eitt brúðkaup öðru eftirminnilegra frá því í sum- ar? „Mér eru einkum tvö brúðkaup sérlega eftirminnileg. Kirkjan á Þingvöllum er lítil og yngra fólk býður gjarnan fleira fólki til brúð- kaups síns heldur en kemst í kirkjuna. Þá er vandi að velja hver á að sitja í kirkjunni. Þess vegna tóku ung brúðhjón þá ákvörðun að gifta sig úti og buðu 70 manns, en kirkjan tekur hið mesta 55 manns. En á brúðkaupsdaginn rigndi meira en aðra daga á árinu og fólkið var komið á staðinn svo góð ráð voru dýr. Ákveðið var að koma öllum 70 boðsgestunum fyr- ir í kirkjunni. Það var safnað saman klapp- stólum sem var raðað alls staðar þar sem einhver smuga var. Lág- vaxnir fóru upp á loft og sumir sátu í stiganum – og allir komust inn. Það var frekar erfitt að sumu leyti en þó um leið mikil nánd og óneitanlega fast haldið utan um brúðhjónin. Hitt eftirminnilega brúðkaupið var þegar þýskt par var gefið saman í Þingvallakirkju fyrir tíu dögum. Þau höfðu áður verið gef- in saman borgaralega í Þýska- landi og áttu þrjú börn. Ástæðan fyrir því að þau voru komin var að brúðurin hafði heimsótt Ísland fyrir nokkrum árum og hafði komið til Þingvalla og í kirkjuna. Hún hvíslaði því í veggina á kirkj- unni að hér vildi hún gifta sig – en hún átti engan kærasta. En í þess- ari sömu ferð til Íslands kynntist hún Þjóðverja sem var að læra ís- lensku á Íslandi og það leiddi til hjónabands í Þýskalandi. Nú voru þau komin eftir nokkur ár til að gifta sig í Þingvallakirkju eins og brúðurin hafði forðum ákveðið. Fólk er yfirleitt mjög glatt á brúð- kaupsdaginn en sjaldan hef ég séð glaðari brúðhjón yfir að hafa náð þessu takmarki sínu.“ Er fólk sem giftir sig á Þing- völlum þjóðhollara en flestir aðr- ir? „Annars vegar kemur fólk er- lendis frá og þá eru Þingvellir eins konar tákn fyrir tengsl þess við Ísland. Hins vegar koma gjarnan Íslendingar sem hafa ver- ið lengi erlendis og þá eru Þing- vellir tákn þjóðernisins. Eins af því að kirkjan er lítil þá er meira um sérstakar ástæður fyrir að hún er valin. Fólk sem komið er til vits og ára og er að gifta sig kannski í annað sinn velur gjarnan þessa kirkju og býður þá fáum. Líka er ástæðan helgi Þingvalla í heild, sú tilfinning er ríkari hjá þeim Ís- lendingum sem eldri eru. Vegna þess að í vitund margra eru Þing- vellir staður þar sem margir helgir sáttmálar þjóðarinnar hafa verið undirritaðir þá er eins og hjúskaparsáttmálinn fái þar nýja vídd í hugum sumra brúðhjóna.“ Helgi Þingvalla gefur nýja vídd Morgunblaðið/Jim Smart Helgi Séra Kristján Valur Ingólfsson segir helgi Þingvalla hugstæða brúðhjónum þar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.