Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 47 ALDARMINNING ✝ GunnlaugurGuðmundsson fæddist í Berufirði 1. júlí 1908 og þar ólst hann upp, yngstur átta barna Gyðríðar Gísladótt- ur og Guðmundar Guðmundssonar, sem þar bjuggu. Kona hans Helga Einarsdóttir fædd- ist í Vestmanna- eyjum 10. október 1912. Foreldrar hennar voru Ing- unn Jónsdóttir og Einar Þórð- arson. Helga átti sjö alsystkini og tvö hálfsystkini. Hún var tekin í mundssyni að Felli í Breiðdal og þar ólst hún upp til fullorðinsára. Gunnlaugur og Helga giftu sig 16. júlí 1932, settu saman bú í Berufirði og bjuggu þar allan sinn búskap. Þeim varð þrettán barna auðið og eru þau: Bragi, f. 1932, Kristrún, f. 1933, Einar, f. 1935, d. 1991, Ingunn, f. 1936, Óskar, f. 1937, Guðríður, f. 1939, Guðmundur, f. 1942, Guðlaug, f. 1943, Baldur, f. 1947, Vilborg, f. 1949, Hallur, f. 1951, d. 1985, Björn, f. 1952 og Haukur, f. 1955. Í Berufirði bjuggu einnig Marta systir Gunnlaugs, ásamt manni, þremur dætrum, og fóst- ursyni. Á þriðja heimilinu bjuggu þrjú einhleyp systkini Gunnlaugs, foreldrar þeirra og föðursystkini. Gunnlaugur lést 30. júlí 1985, en Helga lifði mann sinn í tæp átta ár, hún lést 13. febrúar 1993. Þau eru jarðsett í Berufirði. fóstur af Guðlaugu Þorgríms- dóttur, ljósmóður í Breiðdal, sem síðar giftist Árna Birni Guð- Að minnast þeirra sem farnir eru yfir móðuna miklu í örfáum orðum, er vandasamt verk svo vel fari. Okkur mönnunum er svo farið að tíminn bregður oftlega eins konar blæju yfir endurminningar okkar, þannig að sumt máist út og dofnar en annað ljómar skærar eftir því sem frá líður. Verða þá stundum hversdagslegir hlutir að stærstu ævintýrunum, en stóru stundirnar þokast til hliðar, þegar horft er til baka í því skyni að rifja upp atburði liðins tíma. Sumt er það þó sem aldrei fyrnist. Mannkostir, manndómur og menn- ingararfur setja oft svip sinn til fram- búðar á staði, vítt og breitt um okkar litla land. Þannig er því farið um býlið Berufjörð sem stendur við samnefnd- an fjörð á Austurlandi. Þar má segja að hver blettur beri vitni um alúð og ræktarsemi ábúendanna Gunnlaugs Guðmundssonar og Helgu Einars- dóttur, sem þar bjuggu allan sinn bú- skap og ræktuðu þar land og lýð í orðsins fyllstu merkingu. Segja má að mörg hinna stóru sveitaheimila hér áður fyrr hafi verið menningar- og félagsmiðstöðvar síns tíma. Þar var hlúð að öllu sem til stað- ar var, utan húss sem innan, landi, fólki, fénaði, húsakynnum og búshlut- um. Þessi takmarkalausa og óeigin- gjarna alúð til allra hluta var þeim hjónum Helgu og Gunnlaugi í blóð borin og setti mark sitt á allt þeirra líf og starf. Hæfileikar þeirra voru margþætt- ir. Dugnaður, útsjónarsemi og um- hyggja til alls sem í kring um þau hrærðist, verður þeim minnisstæður sem nutu gestrisni þeirra og gæsku. Bæði höfðu þau stórt skap og mikinn metnað til að bera og slíkt verður fólki ævinlega hvöt til að leggja allt að mörkum sem hægt er að gefa. Þau hjónin voru miklar hagleiks- manneskjur hvort á sinn hátt. Gunn- laugur var lagtækur maður í fleiri en einum skilningi og innan dyra lék allt í höndum húsfreyjunnar hvort sem um var að ræða matargerð eða saumaskap. Mikill tími fór einnig í að sinna gestum enda bærinn í þjóð- braut, margir á ferð, og gott að heim- sækja húsbændur í Berufirði, þar voru allir ævinlega velkomnir og leiddir að veisluborði gestrisninnar. Og auðvitað þótti sjálfsagt að allir kirkjugestir við Berufjarðarkirkju drykkju kirkjukaffi á staðnum eftir guðsþjónustur. Aldrei var vinnudagurinn samt svo langur að ekki gæfist tími til að sinna öðrum áhugamálum. Bæði voru þau hjónin fróðleiksfús og afar fjölfróð og á heimilinu var lögð áhersla á mál- vöndun og varðveislu gamalla fræða. Þau Helga og Gunnlaugur höfðu yndi af bókmenntum og skáldskap. Gunn- laugur var góður hagyrðingur og Helga húsfreyja hafði sérlega ánægju af tónlist og hún söng alla tíð við guðs- þjónustur í Berufjarðarkirkju. Þau hjónin voru bæði gefin fyrir að tileinka sér tækninýjungar sem létt gátu dagleg störf, enda þótt hvorugt þeirra gleypti umhugsunarlaust við tískubólum nútímans, enda höfðu þau bæði skarpa greind til að greina hism- ið frá kjarnanum í umhverfi og sam- félagi. Þau hjónin gátu stundum orðið ærið hvassyrt við að rökstyðja álit sitt á mönnum og málefnum og sérlega ef um var að ræða eitthvað sem var þeim lítt að skapi og ófeimin voru þau að láta í ljósi skoðanir sínar ef svo bar undir og var þá sama hvort viðmæl- endur voru háir eða lágir. Þeim hjónum varð þrettán barna auðið og komust þau öll til fullorðins- ára. Öll þessi börn ólust upp heima í Berufirði. Það hefur einhvern tíma verið þröng á þingi og þétt setið við eldhúsborðið og auðvelt er að gera sér í hugarlund hvílíka vinnu foreldr- arnir hafa þurft að inna af hendi við að fæða og klæða allan þennan stóra hóp, uppfræða þau og annast. Öll eru börn þeirra búsett nálægt æskustöðv- um sínum og halda mikilli tryggð og heiðri við heimaslóðir. Slíkt ber glöggan vott um það veganesti, sem þeim var fengið í foreldrahúsum. Blessuð sé minning þeirra. Hrönn Jónsdóttir. Gunnlaugur Guðmundsson Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, HILMARS ÞÓRS BJÖRNSSONAR fv. útgerðarmanns, Árskógum 8, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Magnús Þór Hilmarsson, Björn Ingþór Hilmarsson, Birna Katrín Ragnarsdóttir, Hilmar Þór Hilmarsson, Þórunn Arinbjarnardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, SIGURÐAR BEN ÞORBJÖRNSSONAR vélvirkja, Pósthússtræti 1, Keflavík. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks á deild 13E á Landspítalanum við Hringbraut. Guð blessi ykkur öll. Maja Sigurgeirsdóttir, Ásta Ben Sigurðardóttir, Erlingur Bjarnason, María Ben Erlingsdóttir, Eyjólfur Ben Erlingsson. ✝ Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar kæru JÓHÖNNU HALLDÓRU ELÍASDÓTTUR, síðast til heimilis á Öldugötu 44, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar- heimilisins Víðihlíðar í Grindavík. Sigríður Elsa Óskarsdóttir, Jón Áskels Óskarsson, Valur Óskarsson, Ásdís Bragadóttir, Guðríður Óskarsdóttir, Hrafnkell Óskarsson, Þórhildur Sigtryggsdóttir, Rut Óskarsdóttir, Gunnar Tómasson, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og stjúpföður, HILMARS JÓHANNESSONAR rafeindavirkjameistara, Brekkugötu 19, Ólafsfirði. Guð blessi ykkur öll. Hrafnhildur Grímsdóttir, Jóhann G. Hilmarsson, Anne Irmeli Turunen, Haukur Hilmarsson Gunnar B. Þórisson, Helga Helgadóttir, Súsanna V. Þórisdóttir, Gunnar S. Sigurðsson, Gísli V. Þórisson, Guðný Ó. Viðarsdóttir Grímur Þórisson, Anna Ingileif Erlendsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför KRISTJÁNS ÞÓRÐARSONAR fv. bónda Miðhrauni, Boðahlein 29, Garðabæ. Guðmunda Veturliðadóttir, Þórður Kristjánsson, Ásta Einarsdóttir, Veturliði Rúnar Kristjánsson, Ragnheiður Haraldsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Linda Karlsdóttir, Guðrún Helga Kristjánsdóttir, Arnar Þorsteinsson, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Ólafur Ólafsson, afabörn og langafabörn. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar og tengdamóður, STEINUNNAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Dalbraut 27, Reykjavík. Oddfríður Lilja Harðardóttir, Þórður Guðmannsson, Guðmundur Þ. Harðarson, Ragna María Ragnarsdóttir, Kristján Harðarson, Ruth Guðbjartsdóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför, EGGERTS KONRÁÐSSONAR frá Kistu. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunarinnar Hvammstanga. Konráð Eggertsson, Jakobína Guðmundsdóttir, Ragnheiður Eggertsdóttir, Jóhannes Erlendsson, Valdimar Eggertsson, Agnes Magnúsdóttir, Gunnar Konráðsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.