Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 21
Kristín er að fara til framhalds-
náms í Svíþjóð, skyldu brúðkaups-
siðirnir þar fá sérstaka athygli
hennar?
„Ég ætla auðvitað að skoða þá
með öðru. Ég byrja á að fá ársfrí
til læra meira í guðfræði og skoða
kirkjufræði, einkum með tilliti til
helgihalds og athafna kirkjunnar,“
segir hún.
Kristín kveður stöðu kvenna inn-
an íslensku kirkjunnar vera góða
að sínu mati.
„Sú er mín reynsla,“ segir hún
og brosir.
En hvað í umhverfinu telur hún
að hafi mest áhrif á þróun brúð-
kaupa hér á landi?
„Brúðkaup í dægurmenningunni
hafa mikil áhrif. Brúðkaup eru vin-
sæl í bíómyndum. Þar sér fólk
hvernig þau fara fram í öðrum
löndum og tekur upp ýmislegt af
því sem það sér. Það er til dæmis
algengt að fólk láti spila lög úr
kvikmyndum við brúðkaup hér.
Brúðkaup taka mið af samtím-
anum, það er því eðlilegt að brúð-
kaup séu öðruvísi í dag en fyrir
100 árum.“
En það er þó ýmislegt sem ekki
hefur breyst að hennar sögn.
„Það er hinn kirkjulegi texti,
hlutverk manneskjunnar sem
sköpuð er í Guðs mynd og það að
vera félagi hvers annars, elska
hvert annað og hugsa um þarfir
hins, ekki bara okkar eigin þarfir.
Gleymum að síðustu ekki orðum
Páls postula í fyrra Korintubréfi:
„Kærleikurinn er langlyndur,
hann góðviljaður, hann öfundar
ekki. Hann breiðir yfir allt, trúir
öllu, vonar allt, umber allt. Kær-
leikurinn fellur aldrei úr gildi.“
r gildi
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 21
Til eru mörg fræg brúðkaup, hið frægastaer þó án efa brúðkaupið í Kana. Þangaðvar Jesús boðinn ásamt lærisveinum
sínum og vínið þraut. Hann breytti þá vatni í
vín í sex stórum kerum og tókst það svo vel að
orð var á haft við brúðgumann. „Þetta sitt
fyrsta tákn gjörði Jesús í Kana í Galíleu, og
opinberaði dýrð sína; og lærisveinar hans
trúðu á hann,“ segir í Jóhannesar Guðspjalli.
Páll Ólafsson skáld gerir umrætt brúðkaup
að yrkisefni í Brúðkaupsvísum sínum:
Að drekka’ í veislum orðið
að ósköp gömlum vana.
Um vottinn beztan ber
brúðhlaupið í Kana.
Fréttast má um breiða byggð,
að bikarinn sérhver tæmi
en gætum hófs í gleði’ og hryggð,
gefum af oss það dæmi.
Páll þótti bæði orðheppinn og skemmtilegur
maður. Hann var tvígiftur. Fyrri konu sína
Þórunni Pálsdóttur gekk hann að eiga 1856,
hún var „valkvendi og búsýslukona mikil“. Þór-
unn dó 1880 og kvæntist Páll sama ár Ragn-
hildi Björnsdóttur. Fyrri konan var nokkru
eldri en hann en sú síðari að sama skapi yngri.
Að sögn sveitunga gekk heldur saman hagur
Páls eftir að hann kvæntist Ragnhildi en Páll
var sagður hafa „unnað henni með ærslum“.
Til Ragnhildar orti Páll
Ég vildi’ ég fengi’ að vera strá
og visna’ í skónum þínum,
því léttast gengirðu’ eflaust á
yfirsjónum mínum.
Ágætt heilræði fyrir þá sem vilja láta hjóna-
band sitt endast.
Engum sögum fer af brúðkaupum Páls en
líklega hafa þau verið að gömlum sið og með
öðru sniði en brúðkaup Árna Thorsteinssonar
tónskálds sem hann lýsir í ævisögu sinni;
Harpa minninganna.
Árni og Helga Einarsdóttir frá Hraunum í
Fljótum giftu sig 15. september 1900 í Hafn-
arfirði á heimili Páls Einarssonar sýslumanns,
síðar fyrsta borgarstjóra Reykjavíkur og fyrri
konu hans Sigríðar, systur Helgu.
„Ég hafði fengið lánaðan vagn hjá Geir
Zoëga kaupmanni til þess að aka í suður eftir
til brúðar minnar. Auk mín voru í vagninum
foreldrar
mínir og Steingrímur Thorsteinsson. Vagn-
inn var opinn og dundi regnið á okkur. Var ég
klæddur olíustakk og vaðstígvélum,“ segir Árni
sem lét verða sitt fyrsta verk í Hafnarfirði að
fara úr hlífðarfötum og klæðast kjólfötum.
Brúðurin var á íslenskum búningi.
„Í sýslumannshúsinu hafði verið útbúið alt-
ari, og var það blómum skrýtt. Þarna fór svo
hjónavígslan fram og flutti séra Friðrik Hall-
grímsson (skólabróðir Árna) hjartnæma og fal-
lega ræðu við þetta tækifæri. Á eftir var veg-
leg veizla og mikil gleði, eins og vera bar.
Úti beljaði regnið látlaust. Klukkan 4 um
nóttina fórum við ungu hjónin að hugsa til
heimferðar, en aðrir veizlugestir héldu fagn-
aðinum áfram.“
Fóru svo Árni og Helga í íbúð sína að Aust-
urstræti 3, sem þau leigðu fyrir 22 krónur á
mánuði. Þar beið þeirra húsbúnaður, vinnu-
stúlka og fjöldi gjafa. Þegar Árni ritaði brúð-
kaupslýsingu sína 1955 höfðu þau Helga verið
gift í 55 ár.
Þeim búnaðist vel, enda er stundum sagt að
rigning á brúðkaupsdaginn viti á gott hvað af-
komu hjónanna snertir.
Annað brúðkaup þekkts Íslendings fór 12.
nóvember 1912. Þá kvæntist Jóhann Sig-
urjónsson skáld ekkjunni Ingeborg Thidemann
í ráðhúsi Kaupmannahafnar. Í hinni vönduðu
bók Jóns Viðars Jónssonar; Kaktusblómið og
nóttin segir frá brúðkaupi þessu:
„Brúðkaupsveislan fór fram á fyrstu hæð
hússins (Charlottenlund). Höfðu öll gólf verið
fernisseruð af því tilefni og húsgögn borin út.
Eitthvað urðu menn þó seinir fyrir við það
verk því gólfborðin voru ekki orðin vel þurr
um það bil sem gleðskapurinn hófst. Þegar
gestir urðu þess varir að skór þeirra tóku að
loða við þau var ákveðið að flytja veisluna upp
á aðra hæð þar sem menn máttu gera sér að
góðu að sitja á gólfinu. En varla hefur vinum
Jóhanns og Ib þótt það mikið stílbrot frá því
sem venja var í veislum þeirra.“
Svona gátu brúðkaup verið ólík fyrir um
hundrað árum, rétt eins og gerist nú um
stundir, þegar stórfengleg „þemabrúðkaup“
eru algeng – en líka fjarska látlausar hjóna-
vígslur – jafnt á sumri sem vetri.
Gætum hófs í gleði og hryggð
Morgunblaðið/ÞÖK
Gömul Æði margar brúðir hafa staðið með blóm-
vönd sinn frammi fyrir altari Fríkirkjunnar í
Reykjavík á sinni heiðursstundu.
www.sunnuhlid.is
Góður staður fyrir efri árin
Í takt við tímann
Sunnuhlíðarsamtökin byggja nú íbúðir fyrir aldraða á einstaklega góðum stað
við Kópavogstún í vesturbæ Kópavogs. Bjartar og vandaðar íbúðir með svalir
og stofu mót suðri. Íbúðirnar eru sniðnar að þörfum aldraðra.
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
O
R
K
43
04
2
07
.2
00
8
Sunnuhlíð er sjálfseignarstofnun á vegum félaga-
samtaka í Kópavogi og rekur hjúkrunarheimili
fyrir aldraða. Auk þess eru á vegum samtakanna
yfir 100 íbúðir, sem hafa verið fullsetnar frá
upphafi, eða í tvo áratugi. Nú ráðast samtökin í
byggingu 70 íbúða til viðbótar og er auglýst eftir
umsóknum um íbúðarrétt í þessum íbúðum.
Upplýsingar og viðtalstímar í síma 560 4100.
Verið velkomin á kynningarskrifstofuna að
Kópavogsbraut 1c milli kl. 13 og 16 virka daga.
Nánari upplýsingar á