Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigríður HannaGuðmannsdóttir fæddist í Reykjavík 18. júní 1932. Hún lést á líknardeild Landakotsspítala snemma dags 8. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðmann Hannesson bílstjóri, f. 8. janúar 1912, d. árið 1994, og Rann- veig Filippusdóttir húsmóðir, f. 6. októ- ber 1900, d. árið 1953. Börn þeirra, auk Sigríðar, voru Filippus Svavar, f. 1929, lést af slysförum fimmtán ára, og Rún- ar, f. 1939, kvæntur Sjöfn Hafdísi Jóhannesdóttur, börn þeirra eru Jón Árni, Jóhannes, Rannveig og Sigurður. Eiginmaður Sigríðar til hartnær 50 ára er Þórir Jónsson, f. í Húna- vatnssýslu 1922. Þau bjuggu lengst af á Miklubraut 40 í Reykjavík en undanfarin ár í Lækjarsmára 8 í Kópavogi. Foreldrar Þóris eru hjónin Jón Kristófersson frá Köldukinn í Húnavatnssýslu og Jakobína Ásgeirsdóttir af Strönd- um. Þórir ólst upp á Þingeyrum í Húnavatnssýslu hjá Jóni Pálmasyni og Huldu Á. Stefánsdóttur. Dóttir þeirra er Guðrún, f. 1935. Börn hennar eru Hulda, Anna Salka, Stefán Jón og Páll Jakob. Sonur Sigríðar og Þóris er Jón, f. 1964, kvæntur Margréti Kristínu Sigurð- ardóttur, f. 1964. Dóttir þeirra er Hel- ena Margrét, f. 1996. Þau eru búsett á Seltjarnarnesi. Í æsku bjó Sigríð- ur með fjölskyldu sinni í Einholti. Hún gekk í Austur- bæjarskóla, æfði handbolta með Val, söng í kór sem hét Sólskins- deildin en sá kór fór víða um landið í söngferðalög. Hún gekk í Hús- mæðraskólann í Reykjavík og hafði jafnan gaman af mat og mat- argerð. Framan af ævi vann Sigríð- ur á Kleppsspítala og síðar á leik- skólanum Hlíðaborg. En eftir að hún lauk námi frá Sjúkraliðaskóla Íslands á 8. áratugnum starfaði hún á Landspítalanum við Hring- braut, lengst af á handlækninga- deild og skurðstofum, allt þar til hún lét af störfum sökum aldurs. Útför Sigríðar fór fram frá Digraneskirkju 11. júlí, í kyrrþey eins og hún hafði óskað eftir. Siggu kynntist ég þegar ég var 17 ára. Hún átti son sem mér fannst bæði myndarlegur og skemmtilegur. Það leið ekki langur tími þar til ég var eins og grár köttur á heimilinu á Miklubraut 40. Hún tók þessari við- bót á heimilið bara býsna vel og leið ekki á löngu þar til kvöldverður í eld- húsinu á Miklubraut var orðinn fastur liður í tilverunni. Þegar gifting okkar Jóns var framundan fannst Siggu nú óþarfa tilstand að gifta sig í kirkju með viðhöfn, ferð til borgarfógeta hefði nú alveg dugað enda gerði hún það sjálf þegar hún giftist sínum manni, honum Tóta. Alla tíð nýtti Sigga vel það sem hún hafði lært í Húsmæðraskólanum, matur og matargerð var hennar stóra áhugamál. Þær eru margar upp- skriftabækurnar sem hún laumaði í jólapakkana enda tókst henni að smita soninn með þessum mikla mat- aráhuga. Eftir að við Jón stofnuðum okkar eigið heimili var alltaf vel þegið að vera boðið í mat á Miklubrautinni og síðar Lækjasmáranum. Hún var árrisul og þeir eru ófáir laugardags- og sunnudagsmorgnarnir sem hún og Tóti komu í kaffi og þá ávallt með bakkelsið með sér. Enda lítið hægt að treysta á að tengdadóttirin væri búin að gera viðeigandi ráðstafanir. Jóla- dagur verður aldrei sá sami þegar nú vantar veisluna hennar Siggu. Allar gómsætu kökurnar gerðar úr upp- skriftum sem höfðu fylgt henni lengi og alvöru súkkulaði með rjóma í dönsku sparibollunum frá hinu kon- unglega. Í betri veislur var vart hægt að komast. Allir saddir og sælir og þá var hún ánægð. Umhyggjusemi var henni í blóð borin. Það er til eftirbreytni hversu vel hún ræktaði samband sitt við fjöl- skylduna, vinkonur sínar og vini. Hún var ávallt boðin og búin að hlaupa undir bagga hvenær sem var og kom okkur foreldrunum oft til bjargar með pössun á sonardóttur- inni, Helenu Margréti. Amma Sigga var alltaf með eitthvert plan og bröll- uðu þær vinkonur margt saman. Hún gerði allt það sem góðar ömmur gera fyrir barnabörnin sín og miklu meira því hún var ekki spör á tíma sinn sem er ómetanlegt í hröðum nútímaheimi. Ömmu Siggu er nú sárt saknað. Hún studdi mig heilshugar í þeirri ákvörð- un að hætta að vinna og setjast aftur á skólabekk. Því þá hefði ég meiri tíma fyrir „litlu manneskjuna“, enda vissi hún hversu dýrmætt það er. Eitt það skemmtilegasta sem hún gerði var að fara í ferðalög, hvort sem það voru styttri ferðir rétt fyrir utan borgarmörkin eða þegar lengra var haldið. Hún þekkti landið sitt vel, ör- nefni, bæjarnöfn og fjöll gat hún þulið upp og þurfti ekki að fletta upp í neinni bók. Kaupmannahöfn var í miklu uppáhaldi enda hafði hún farið þangað með son sinn 2ja ára og hafði margs að minnast úr þeirri ferð. Kaupmannahafnarferð án ömmu Siggu verður ekki söm. Útförin fór fram í Digraneskirkju þar sem ættingjar og vinir kvöddu Siggu og sköpuðu þar með fallegan dag sem gott er að eiga í minningunni. Með þessum orðum langar mig til að þakka tengdamóður minni fyrir allt og allt síðustu 26 árin. Sigga hefur nú haldið í sitt hinsta ferðalag. Megi minningin um góða konu lifa lengi. Margrét. Góð kona er horfin yfir móðuna miklu. Traust og trygglynd kona, sem vildi margt á sig leggja til að létta samferðamönnum sínum lífið í víð- tækum skilningi. Sigga var kona fóstbróður míns, Þóris Jónssonar. Hún fylgdist alla tíð vel með okkur, fólkinu hans, og lét sig varða líðan okkar allra. Við vorum vin- ir hennar hvert á sinn hátt. Það tók á að sjá þessa vinkonu okk- ar þjást. Við báðum þess heitt og inni- lega að hún kæmist yfir sjúkdóminn svo við fengjum að hafa hana lengur hjá okkur. Við áttum eftir að gera svo margt skemmtilegt saman. Sjá ömmustúlkurnar Helenu Margréti og Snæfríði vaxa úr grasi, vera saman í sveitinni á Grjóteyri, fara til Kaup- mannahafnar, sjá nýtt og heimsækja aftur staði sem við fórum til þegar Sigga og Nonni komu í heimsókn fyrir mörgum, mörgum árum. Það var þeg- ar Sigga ákvað að kaupa „Obelisk“- hnífapörin eftir Erik Herlöv, heims- fræga hönnun og óumræðanlega fal- leg. Hún Sigga kom oft á óvart. Afstaða hennar til manna og málefna var mjög skýr og einörð. Engin dóm- harka, ekkert illt umtal, en vel greint milli góðs og ills, hismi og kjarna. Við bjuggum í íbúðinni hjá Siggu og Tóta í rúmlega hálft ár, þegar við komum til Íslands árið 1966, meðan beðið var eftir húsnæði og nutum alls hins besta. Ættingjar okkar og vel- unnarar höfðu einnig búið hjá þeim áður fyrr eins og Margrét saumasnill- ingur frá Spónsgerði, Stefán Pálma- son fyrrv. bústjóri hjá Thor Jensen á Korpúlfsstöðum og svo Anna Salka sem dvaldi hjá þeim hjónum mánuð- um saman sem barn og áfram mætti telja. Öll þessi sambúð, samskipti og samvera leiddi til vináttu sem haldist hefur alla tíð, dýpkað og styrkst. Nú er Sigga farin og það er okkar sem eftir lifum að halda á lofti vinátt- unni og þeim gildum sem Sigga stóð fyrir. Megi okkur takast það sem best. Guðrún Jónsdóttir. Sigríður Hanna Guðmannsdóttir var einstaklega heilsteypt, iðin og glaðlynd manneskja. Gestrisin og gjafmild var hún með eindæmum, hvort sem var heim að sækja eða í vinnunni. Siggu Guðmanns eins og við köll- uðum hana kynntist ég er ég hóf störf á skurðstofum Landspítalans árið 1982. En þar störfuðum við saman í um 15 ár, báðar við sjúkraliðastörf. Síðan unnum við saman á dauðhreins- unardeild sjúkrahússins um nokkurra ára skeið, þar sem hún starfaði sem verkstjóri. Það var gott að vinna með Siggu. Alltaf var Sigga boðin og búin að gera það sem hún gat svo að samstarfsfólki hennar liði sem best í öllum viður- gjörningi. Alltaf var hún bjóðandi. Það voru ófáir matarbitarnir, brauðið eða þá áleggið sem hún kom með í vinnuna til þess að bjóða upp á. Oft sagðist hún hafi keypt þetta og hitt fyrir hann Tóta sinn og hann ekki vilj- að. Við samstarfsfólkið vissum að svo var ekki heldur hitt, að hún hafði gam- an af að veita. Sigga kunni þá list öðrum fremur að hlusta. Hlusta á þá samstarfsmenn sem þurftu að fá áheyrn um hin ýmsu mál bæði í gleði og sorg. Enda voru það ófáir sem gengu á hennar fund til þess að bera undir við hana mál sín. Alltaf spurði hún frétta af því hvernig öðrum liði þegar fólk hitti hana eða heyrði. Í mörg ár vissi ég að hún hugsaði um gamla vinkonu sína rétt eins og um móður hennar sjálfrar væri að ræða, en hana missti Sigga strax í æsku. Þá var viðkvæðið að hún þyrfti að fara með hana gömlu sína þetta eða hitt, eða að hún þyrfti að fara og er- indreka hitt og þetta fyrir hana gömlu sína. Sigga var mikil pabbastelpa öll þau ár sem faðir hennar lifði og hugsaði hún af alúð um hann á hans efri árum. Eins og ekki síður um sambýliskonu hans eftir að faðir hennar dó. Með föð- ur sínum ferðaðist Sigga margar ferð- ir á sólarstrendur og hafði frá mörgu að segja eftir þær ferðir. Mikil var gleði Siggu er hún sagði okkur frá því að Jón Guðmann einka- sonurinn væri að verða pabbi. Enda var sonardóttirin augasteinninn henn- ar og mikil var gleði hennar yfir þeim stundum er þær áttu saman. Þegar ég heimsótti Siggu á Land- spítalann sá ég af hvílíku æðruleysi hún tók veikindum sínum. Hún barð- ist af þrautseigju við hinn illvíga sjúk- dóm sem þó að lokum tók yfirhönd- ina. Ég vil þakka Siggu fyrir samferð- ina í gegnum tíðina og mun minnast hennar sem góðrar vinkonu sem gott var að starfa með. Fjölskyldu Siggu votta ég samúð mína og bið góðan guð að vera með þeim í sorg þeirra. Kristín Á. Guðmundsdóttir. Ég kynntist Siggu fyrst í heim- sóknum mínum til Reykjavíkur, þeg- ar ég og amma Hulda heimsóttum Siggu og Tóta á Miklubraut 40. Afa- bróðir minn Stefán Pálmason bjó hjá þeim og Jón Guðmann sonur þeirra leit á hann sem afa. Upp í hugann koma minningar um hlýjar móttökur, bjarta íbúð með út- sýni yfir Esjuna, góða lykt á baðher- berginu og Tóta í bílskúrnum. Stefán tók í nefið og minnti mig á afa og um- ferðarniðurinn á næturnar var mjög framandi. Sigga var mjög glaðvær og lifandi kona og hjá henni var höfðinglega veitt. Ekkert jafnaðist á við jólaveislurn- ar hennar, en þær voru hápunktur jólanna hjá syni mínum Nikka og bræðrum mínum Stebba og Bobba. Þeir hlökkuðu lengi til, því ekki var nóg með að boðið væri uppá forrétt, aðalrétt og eftirrétt, heldur var klykkt út með heitu súkkulaði, kökum og konfekti. Þeir voru alsælir. Þá var kæfan hennar Siggu í fyrsta sæti hjá manninum mínum Mugga, að öðrum kæfum ólöstuðum. Ég vona bara að Jón Guðmann lumi á uppskriftinni einhvers staðar. Eftir að ég flutti til Reykjavíkur var mikill samgangur milli fjölskyld- unnar minnar og fjölskyldunnar á Miklubraut 40, en þar áttu systkini mín Stefán og Anna Salka annað heimili eftir að við fluttum á Miklu- braut 48. Við eyddum oft saman ára- mótunum og horfðum á brennuna á Miklatúninu, sem ekki var þakið trjá- gróðri þá eins og nú. Sigga lét ekki mikið á sér bera í fjölmenni, hún var aftur á móti mjög félagslynd og hafði gaman af tilbreyt- ingu. Hún var úrræðagóð og gaman var að ræða við hana um hin ýmsu málefni. Þá kom glöggt í ljós hve gott innsæi hún hafði í mannlegum sam- skiptum. Ég ætla að leyfa mér að rifja upp gott ráð sem hún brá á þegar Jón Guðmann var á unglingsaldri. Þannig var, að hún fann sígarettustubb í vasa hans, ekki óvanalegt hjá unglingi. Hún lét sér hvergi bregða, en bauð honum samning. Ef hann legði reyk- Sigríður Guðmannsdóttir ✝ Alda Steinþórs-dóttir Blöndal tannlæknir, fæddist á Djúpalæk í Skeggjastaðahreppi á Langanesströnd 8. apríl 1940. Hún lést á sjúkrahúsinu í Herlev í Kaup- mannahöfn 17. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðný Björnsdóttir frá Hnefilsdal á Jökul- dal, f. 20.5. 1906, d. 17.7. 1977 og Steinþór Einarsson kennari frá Djúpalæk, f. 29.12. 1904, d. 22.7. 1952. Systkini Öldu eru Stella Björk, f. 1939 og Hjalti Karl, f. 1943. Alda giftist 30.1. 1981 Ole Blön- dal lögfræðingi, f. 24.5. 1943. For- eldrar hans voru hjónin Ingólfur Blöndal læknir, f. 21.7. 1912 og Ragnhild Jensigne Christoffersen, f. 2.10. 1916. Börn Öldu eru: 1) Guðný Þóra Hjálmarsdóttir við- skiptafræðingur, f. 6.10. 1960. on School of Economics, f. 24.5. 1978. Alda bjó með foreldrum sínum og systkinum fyrstu 7 árin á Djúpalæk, en þá flutti fjölskyldan til Norðfjarðar þar sem Steinþór var ráðinn kennari við barnaskóla sveitarinnar. Steinþór faðir Öldu lést aðeins 48 ára að aldri eftir erf- ið veikindi sumarið 1952, þegar Alda var aðeins 12 ára. Árið 1953 flutti Guðný, móðir hennar, með börn sín til Akureyrar og seinna til Reykjavíkur. Alda lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri og prófi sem meinatæknir nokkru síðar. Hún flutti til Danmerkur 1963 og starfaði þar sem meina- tæknir fyrstu árin. Alda lauk prófi í tannlækningum frá Kaupmanna- hafnarháskóla 1974. Eftir að tann- læknanámi lauk starfaði Alda fyrst sem skólatannlæknir en síð- ar rak hún sína eigin tannlækna- stofu í Lyngby í Danmörku meðan heilsa hennar leyfði. Útför Öldu fór fram í kyrrþey að hennar ósk. Faðir Hjálmar Ás- geir Sigurðsson, f. 1936. Maki Peter Buhl, viðskiptafræð- ingur, f. 28.8. 1959. Börn þeirra Christ- ine nýstúdent, f. 2.1. 1989, Martin, f. 13.10. 1990 og Magn- us Holger, f. 24.1. 2002. 2) Þorsteinn Þorsteinsson, cand. scient. í efnafræði og Ph.D í kvantaefna- fræði, f. 14.11. 1966. Faðir Þorsteinn Gunnarsson leikari og arkitekt, f. 1940. Fyrrverandi maki Zuhal Dincer Þorsteinsson dýralæknir, f. 12.4. 1964. Þau skildu. Sambýlis- kona hans er Barbara Þorsteins- son. Sonur þeirra Matthias, f. 2007. 3) Bjarki Blöndal viðskipta- fræðingur, sérfr. í alþjóðavið- skiptum, f. 3.10. 1976. Maki Rikke Tvedegaard Blöndal, cand. mag. í ensku og sögu. Sonur þeirra Emil, f. 6.4. 2008. 4) Nína Blöndal stjórn- málafræðingur, master frá Lond- Þegar sumarskrúðið á Íslandi stóð í blóma og náttúran skartaði sínu feg- ursta í sólbjörtum júnímánuði síðast- liðnum, laut Alda frænka mín í lægra haldi í baráttu sinni við illvígt krabba- mein á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn; 17. júní síðastliðinn. Alda barðist af hetjuskap við ofurefli sjúkdómsins studd af Ole Blöndal, eiginmanni sín- um, og börnunum sem studdu hana með öllum ráðum. Alda fór ung til Danmerkur og varð ung dóttir hennar, Guðný Þóra, þá eftir hjá nöfnu sinni og ömmu, Guð- nýju Björnsdóttur, sem ól hana upp við mikið ástríki til 17 ára aldurs er Guðný eldri lést sumarið 1977. Flutt- ist Guðný Þóra þá til móður sinnar og manns hennar í Danmörku og lauk þar námi. Alda vann í fyrstu á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn en þegar Þorsteinn sonur hennar bættist í búið 1966 og Alda varð einstæð móðir varð að hugsa málin upp á nýtt. Hún innritaðist þá í tannlæknadeild Kaupmannahafnarháskóla og lauk þaðan prófi 1974. Þar með fékk hún námslán og barnagæslu sem fleytti þeim mæðginum yfir fyrsta hjallann. Þessi smávaxna, fallega og fínlega kona tókst á við ýmsa erfiðleika á sín- um yngri árum, föðurmissi, viðkvæma heilsu framan af og að berjast áfram í námi og starfi ein með drenginn sinn. Alda átti góðar vinkonur í Dan- mörku sem studdu hana og samband hennar við móður sína og dóttur var alltaf gott. Studdu þær hver aðra eftir bestu getu. Efnahagur móður hennar, var ekki sterkur en viljinn til að styrkja börn sín til náms og hlúa að elskulegri dótt- urdóttur flutti fjöll. Svo kom Ole Blöndal lögfræðingur til sögunnar. Ole varð hinn ágæti eig- inmaður Öldu en samband þeirra varði í yfir 30 ár. Hann er sonur ís- lensks læknis og danskrar konu hans. Börn þeirra eru Bjarki viðskipta- fræðingur, kona hans er Rikke Tve- degaard Blöndal og eiga þau eitt barn, Emil, f. 2008, og Nína, stjórn- málafræðingur sem fyrir nokkru sneri heim til að styðja móður sína í veikindunum eftir að hafa starfað við Alþjóðabankann í Washington. Fjölskyldan átti yndislegt og hlý- legt heimili í Kokkedal norðan Kaup- mannahafnar og gestrisni þeirra og fallegt samband Öldu og Ole var sér- stakt. Þangað var gott að koma, vera umvafin notalegheitum og glaðlegri hlýju Öldu, sem minnti mikið á móð- ursystur sína, Helgu frá Desjarmýri. Börnin luku menntun sinni eitt af öðru og flugu úr hreiðrinu. Guðný Þóra býr skammt frá Kokkedal með fjölskyldu sinni á glæsilegu heimili við Strandvejen. Þorsteinn og Bjarki bættu við nýjum barnabörnum. Lífið brosti við fjölskyldunni, en sorgin gleymir engum, sagði Tómas Guðmundsson í kvæði sínu Þjóðvísu. Fyrir þemur árum greindist Alda með þann sjúkdóm sem varð henni að aldurtila allt of snemma. Alda, sem stundaði holla lífshætti, var stælt og hraustleg, glöð og geislandi. Tómið sem Alda skilur eftir verður aldrei fyllt en minningin um hana mun lifa í hjörtum okkar sem þótti vænt um hana. Innilegar samúðarkveðjur til Ole, Guðnýjar, Þorsteins, Bjarka, Nínu og fjölskyldna þeirra og til Stellu og Hjalta, systkina hennar. Anna Þrúður Þorkelsdóttir. Alda Steinþórsdóttir Blöndal
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.