Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 20.07.2008, Blaðsíða 60
SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 202. DAGUR ÁRSINS 2008 Heitast 20°C | Kaldast 12°C  Suðlæg átt, 3-8 m/s, léttskýjað austan til og annars bjart veður. Þykknar upp smám saman undir kvöld. » 8 ÞETTA HELST» Opinn hugbúnaður betri?  Opinn hugbúnaður er öllum að- gengilegur og oft ókeypis. Í stefnu forsætisráðuneytisins segir að slíkur hugbúnaður ýti undir frjálsa sam- keppni og komi í veg fyrir einokun birgja. Deildar meiningar eru þó um ágæti slíks búnaðar. » Forsíða Milljón í afslátt  Umboðsaðili Nissan á Íslandi mun bjóða ákveðinn fjölda bíla sinna á allt að einnar milljónar króna af- slætti frá og með morgundeginum. Fyrirtækið situr uppi með dágóðan fjölda óseldra bíla og skv. sam- komulagi við framleiðanda verður gefinn afsláttur frekar en að end- ursenda bílana. » 4 Tryggvi styrkir stjórn  Talsmenn stjórnarandstöðunnar telja skipun nýs efnahagsráðgjafa forsætisráðherra yfirleitt vera skref í rétta átt sem jafnvel hefði átt að stíga fyrir löngu. » 2 Vegagerðin og Kerið  Vegagerðin segist ekki hafa stundað neina efnistöku við Kerið þótt því hafi verið haldið fram. » 8 SKOÐANIR» Staksteinar: Bubbi í sálmabókina? Forystugreinar: Réttur maður í starfið | Ríkið á auglýsingamarkaði Reykjavíkurbréf: Hvað varð um einkavæðingarstefnuna? Ljósvaki: Ewing lifir góðu lífi … UMRÆÐAN» Starfsfólk ánægt með reykingabann Atvinnuleysi minnkaði milli ára Skipti breyta um skipulag Þetta helst Falskt öryggi í Kópavogi Vinsælar náttúruperlur og ferðamenn Leið út úr gróðurhúsavandanum Ábending ATVINNA » KVIKMYNDIR» Ekkert framhald af Gyllta áttavitanum? » 59 Árni Matthíasson segir fyrstu breið- skífu söngkonunnar Santogold eina bestu frumraun síð- ustu mánaða. » 54 TÓNLIST» Frábær frumraun FÓLK» Leikkonan Salma Hayek er á lausu. » 58 MYNDASÖGUR» Blautir draumar nörda geta ræst. » 57 Á vefsíðu lista- mannsins Banksy er meðal annars hægt að prenta verk hans á hvað sem hugurinn girnist. » 56 Heimagerðir Banksy-bolir MYNDLIST» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 300 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Tveir svindlarar á ferð 2. Björk ætti frekar að syngja … 3. Ljóðakeppni á Litla-Hrauni 4. Bandarískir sérsveitarmenn … Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is HALLDÓR Björnsson er í hópi nokkurra leið- sögumanna sem starfa fyrir Flugfélag Íslands á Grænlandi og leiðir ferðamenn um Kulusuk í dagsferðum og lengri ferðum. Þetta er tíunda árið sem Halldór er á þessum slóðum og þekkir hann því orðið hverja klöpp í Kulusuk. Vinnudagurinn hjá honum er óhefðbundinn að því leyti að hann býr á Selfossi og þarf því að koma sér að morgni til Reykjavíkur til að ná flug- inu til Kulusuk. Einhverjir vinna eflaust lengri vinnudag fyrir austan fjall því eftir dagsferð til Grænlands er Halldór yfirleitt kominn heim til sín um kvöldmatarleytið, ef áætlunin stenst. Leiðsögumannsferill Halldórs nær lengra aftur en til 1998, því fyrst hóf hann störf í ferðamennsk- unni árið 1987. Fyrstu tvö sumrin á Grænlandi voru fyrir Íslandsflug, sem þá auglýsti eftir leið- sögumanni, en síðan fór hann að vinna fyrir Flug- félag Íslands. Hann segist hafa unnið við leiðsögn allt árið um kring, þar til síðasta vetur að hann gerðist flugumsjónarmaður hjá Air Atlanta. Leið- sögnin í Kulusuk er því orðin að sumarstarfi. Þekkir fleiri en í hverfinu Halldór segir ferðamynstrið hafa örlítið breyst á þessum tíu árum. Eftir sem áður eru erlendir ferðamenn langfjölmennastir en þeir eru farnir að dveljast lengur á svæðinu í senn, í 1–3 nætur, og fara þá líka til Ammassalik, Kummiut eða fleiri staða á austurströndinni. Ferðaþjónustan sé klár- lega að aukast á þessum svæðum. Ferðamennirnir koma úr öllum áttum, þetta eru ekki bara Norðurlandabúar, Þjóðverjar, Bret- ar eða Bandaríkjamenn. Halldór verður var við æ fleiri Austur-Evrópubúa, Kínverja og Japani. Hann segir marga ferðamenn nota það tækifæri sem þeir hafa á Íslandi til að skreppa til Græn- lands, nokkuð sem þeir myndu ekki gera annars. Gjarnan vildi hann sjá fleiri Íslendinga. „Eftir tíu ár í þessum ferðum er maður farinn að þekkja vel til í Kulusuk og næsta nágrenni. Þorpsbúar eru farnir að kannast vel við mann og ég þekki þarna mun fleiri en ég geri í hverfinu mínu á Selfossi.“ Spurður um breytingar í Kulusuk á þessum tíma, segir Halldór að atvinnuveiðimönnum hafi fækkað. Um leið hafi sleðahundum á svæðinu fækkað. Eftir sem áður gangi illa að fá fólk í önnur störf. Velferðarkerfið á Grænlandi sé mjög gott og margir hafi vanist því að vera á bótum. Fólki vanti því hvatningu til að hefja eigin atvinnustarfsemi. Frá Selfossi til Grænlands  Halldór Björnsson leiðsögumaður þekkir orðið hverja klöpp í Kulusuk eftir leið- sögn þar síðustu tíu sumrin  Finnur aukinn áhuga ferðamanna á Grænlandi Morgunblaðið/Björn Jóhann Leiðsögn Halldór Björnsson leiðsögumaður að störfum í Kulusuk fyrir Flugfélag Íslands. Í HNOTSKURN »Árlega fara um 20 þúsund manns tilKulusuk með áætlunarflugi Flugfélags Íslands. Þangað fara um 165 tonn af alls kyns vörum árið um kring. »Langflestir farþeganna eru erlendirferðamenn, en þetta er stærsta flugleið félagsins. Um 10% farþega eru íslensk. » Íslensk hjón, Jóhann Brandsson ogGuðrún Eyjólfsdóttir, hafa rekið minja- gripaverslun og ferðaþjónustu í Kulusuk undanfarin tíu ár. Þau dvelja þar núna yfir sumarmánuðina.  Hundrað mínútur | 6 VÍÐÁTTUR hálendisins eru vinsælar til hverskonar gönguferða og úti- vistar á sumrin. Hestamenn eru meðal þeirra sem eru duglegir við að nýta sér kosti óbyggðanna og virtust þessir knapar una sér vel í veð- urblíðu og náttúrufegurð Landmannalauga á dögunum. Fjölmargar hesta- leigur skipuleggja hálendisferðir á sumrin jafnt fyrir vana sem óvana knapa og er það tilvalið til að komast í snertingu við landið. jmv@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Litadýrð í Landmannalaugum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.