Morgunblaðið - 20.07.2008, Side 6

Morgunblaðið - 20.07.2008, Side 6
6 SUNNUDAGUR 20. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is EFTIR ríflega eins og hálfs tíma flug frá Reykjavík blasir austurströnd Grænlands við, þar sem þokan er að hverfa yfir landinu líkt og frádregin tjöld á leiksviði. Maður nýtur þeirra forréttinda að sitja frammi í flug- stjórnarklefanum í aðfluginu. Þvílíkt útsýni! Í fjarska glittir í sjálfan Grænlandsjökulinn. Nær ísbreiðan eins langt og augað eygir. Við ströndina rétt kíkja fjallstind- arnir upp úr sjónum og lítið sem ekk- ert láglendi að sjá. Fyrir þann sem sér Grænland í fyrsta sinn virkar þetta eins og að flóð hafi skollið á og fært byggðina í kaf. En þegar nær dregur koma litskrúðug húsin í Kulu- suk í ljós, þessu litla þorpi sem telur aðeins um 350 manns. Sökum útsýnisins taka flugmenn- irnir á Fokkernum, þeir Ragnar Arn- arson flugstjóri og Örvar Gestur Óm- arsson, aukahring til að sýna farþegunum Tasiilaq, stærsta bæinn í Ammassalik-sýslu. Íslensk hjón í ferðaþjónustu Lendingin gekk vel, enda var veðr- ið eins og best verður á kosið. Um borð voru um 40 manns, langflestir erlendir ferðamenn. Stoppið er stutt hjá þeim sem taka dagsferðina, um fjórir tímar, en það er vel nýtt með skipulagri leiðsögn frá flugvellinum og niður í þorpið. Bílar eru sjaldgæf sjón, aðallega notast við fjórhjól. Eitt fjórhjólið við flugstöðina skar sig úr en á því sat ljóshærð og myndarleg kona með ungan son sinn. Þar reynd- ist vera á ferð Guðrún Eyjólfsdóttir, ásamt hinum átta ára Vali, syni þeirra Jóhanns Brandssonar en hjón- in hafa rekið ferðaþjónustu og minja- gripaverslun í Kulusuk í tíu ár: Kulu- suk Art & Souvenirs. Samnefnda verslun reka þau einnig við Lauga- veginn í Reykjavík. Bjuggu þau í fyrstu árið um kring í Kulusuk en dvelja þar nú aðeins yfir sumarmán- uðina. Selja handverk frá grænlensk- um listamönnum á austurströndinni en við fjöllum um þau síðar í blaðinu. Á leiðinni frá flugvellinum niður í þorpið er m.a. stoppað við kirkju- garðana. Þeir eru öðruvísi en við eig- um að venjast heima á Íslandi. Frost- hörkur leyfa ekki lifandi blóm eða gróður og því er notast við litrík plastblóm á leiðunum. Krossarnir eru heldur ekki merktir með nöfnum en Grænlendingar hafa þá trú að sálin lifi áfram og því fá nýfædd börn nöfn hinna látnu. Geltandi hundar rjúfa þögnina Er nær dregur þorpinu dettur vindurinn niður og kyrrðin á svæðinu verður algjör. Hið eina sem rýfur þögnina er hljóðið frá þyrlunni, sem er í reglulegum ferðum milli Kulusukeyju og Tasiilaq, og ýlfrið frá glorsoltnum sleðahundum. Yfir sum- arið er þeim aðeins gefið tvisvar í viku og greinilegt að langt var liðið frá síðustu máltíð hjá einhverjum, slíkt var gólið. Það er ekki fyrir æsingnum að fara í þorpinu, íbúarnir taka því rólega og kippa sér ekki upp við gestakomuna. Mestan áhuga sýna okkur forvitin og glaðvær börn, en sleðahundarnir sem bundnir eru við annað hvert hús láta sér fátt um finnast - svo fremi sem enginn gengur nærri þeim. Þá geta þeir sýnt tennurnar. Fyrsti viðkomustaður okkar í þorpinu er eina matvöruverslunin, sem líkt og í flestum öðrum þorpum á Grænlandi er rekin af fyrirtækinu KNI, sem er leifar af Konunglegu dönsku Grænlandsversluninni. Mikið og gott vöruúrval var að sjá og kannski ekki að undra, fyrsta birgða- skip sumarsins hafði nýlega komist til Kulusuk eftir að sjóleiðin opnaðist. Að sögn heimamanna var búðin nán- ast orðin tóm og lítið annað að hafa þar nema niðursuðudósir og byssur! Það eru reyndar dálitlar ýkjur því Flugfélag Íslands sér íbúum Kulusuk fyrir margs konar varningi árið um kring. Þannig voru flutt þangað um 165 tonn á síðasta ári, aðallega fersk matvara, en einnig önnur versl- unarvara, varahlutir og póstur. Næst er litið inn í myndarlega minja- gripaverslun Guðrúnar og Jóhanns og þaðan rölt að kirkjunni í Kulusuk, sem reist var fyrir tæpum 90 árum úr rústum seglskips er strandaði við þorpið. Í kirkjunni er okkur m.a. sögð saga af ísbjörnum en í vor voru flestir bæjarbúar í messu er þeir sáu ísbjörn ganga á land og spígspora fyrir utan kirkjugluggana. Undir venjulegum kringumstæðum hefðu veiðimenn Kulusuk tekið upp byssuna, en í þetta sinn urðu þeir að veifa bangsa og bíða þess að hann færi aftur út á ísinn, sem hann og gerði. Af hverju? Jú, veiðikvóti ársins upp á 20 ísbirni var búinn! Trommudans og kajakróður Ferðamenn fá einnig að sjá græn- lenskan trommudans og þegar veður leyfir sýna kajakræðarar listir sínar í höfninni. Að þessu sinni var farið að gára um of á sjónum til að kaj- akræðarinn treysti sér í einhverjar æfingar en dansinn fengum við að sjá heima hjá Önnu Kuitse Thastum, sem er með kunnustu dönsurum Grænlendinga, fékk menning- arverðlaun landsins í síðasta mánuði og hefur nýlega verið á sýning- arferðalagi á Ítalíu og í Bandaríkj- unum.. Fáir kunna þá list í dag að dansa trommudans, en Anna er að koma kunnáttunni áfram til komandi kyn- slóða með danskennslu í skólunum í Kulusuk og Ammassalik-sýslu. Þegar hér er komið sögu er stutt í heimferð, og í stað þess að ganga sömu leið til baka upp á flugvöll býðst ferðamönnum kostur á að sigla innan um borgarísjakana áleiðis til lítillar hafnar neðan við völlinn. Þrír bátar eru fylltir og með okkur siglir þraut- reyndur veiðimaður, Ammassa, sem sagður er sá frægasti í Kulusuk. Snemma fór hann að bera björg í bú, skaut sinn fyrsta ísbjörn aðeins 11 ára gamall! Báturinn var ekki stór en honum var stýrt fimlega inn á milli jakanna. Allt gefið í botn síðasta sprettinn, þar sem ísinn þéttist, og um stund fannst okkur við skoppa á klakanum. Á leiðarenda komumst við, bláir af kulda þar sem lofthitinn var ekki nema 3-4 gráður. Eftir stutta en ánægjulega dvöl kvöddum við Kulusuk. Það er auðvelt að ánetjast Grænlandi, undraheimi sem er miklu nær en við höldum. Í hundrað mín- útna fjarlægð. Bátsferð Ammassa reifur við stýrið og fyrir framan hann Vig- fús Vigfússon frá Flugfélagi Íslands og hjón frá Finnlandi. Leiðin Kirkjugarðarnir í Kulusuk vekja strax athygli gesta sem þangað koma, plastblóm á leiðunum og krossar ómerktir. Kjöltudans Anna Kuitse Thastum sýndi ferðamönnum trommudans, sem um tíma breyttist í hálfgerðan kjöltudans. Hundrað mínútur í annan heim  Erlendir ferðamenn fara í tugþúsundatali á hverju ári til Kulusuk frá Íslandi  Þorpsbúar taka ferðamönnum vel  Urðu að veifa ísbirni út um kirkjuglugga          *+      ,-.--.. *0*--/ 12 (3 $++      1- +3 .%% % /%   % % ,  +       /  4 Í HNOTSKURN »Kulusuk er í Ammassalik-sýslu, þar sem alls búa um 3.000 manns. »Sýslan er fimm sinnumstærri en Danmörk að flat- armáli. »Stærsti bær sýslunnar erTasiilaq, eða Ammassalik, þar sem um 1.800 manns búa. »Vinabær Kulusuk á Íslandifrá árinu 1990 er Bíldudal- ur en Kópavogur er vinabær Ammassalik-sýslu. Morgunblaðið/Björn Jóhann Hundalíf Lítið er við að vera fyrir sleðahundana yfir sumartímann. Á veturna eru þeir ómissandi við veiðarnar og heimsóknir yfir ísinn til ættingja í grennd. Veiðimönnum í Kulusuk hefur fækkað, sem og hundunum, síðustu árin. FLUGFÉLAG Íslands flýgur með um 20 þúsund manns til Kulusuk á ári, að sögn Inga Þórs Guðmundssonar, forstöðumanns sölu- og markaðssviðs, og er þetta stærsta flugleið félagsins. Langflestir farþeganna eru erlendir ferðamenn, eða um 90%, og segir Ingi Þór að jafn og stöðugur vöxtur hafi verið á þessari flugleið undanfarin ár, bæði með farþega og frakt. Hafa skipu- lagðar flugferðir verið farnar milli Reykjavíkur og Grænlands til margra ára og Ingi Þór segir samstarfið við Grænlendinga hafa verið mjög gott. „Þetta er einnig mikilvæg samgönguleið fyrir íbúa Austur-Grænlands, sem eru um fimm þúsund talsins, og þá sérstaklega á veturna,“ segir Ingi Þór. Yfir sumartímann eru 19 ferðir farnar á viku til Grænlands, þar af 12 til Kulusuk, tvær til Constable Point og Narsarsuaq og frá Keflavík eru farnar þrjár ferðir á viku til Nuuk á vesturströndinni. Á veturna eru farnar tvær ferðir á viku til Kulusuk. „Flugfélag Íslands lítur á flugleiðina milli Kulusuk og Reykjavíkur sem mikilvægan hluta af sinni starfsemi og hefur væntingar um að flug eigi eftir að vaxa inn á þetta landsvæði Grænlands næstu árin. Mikið hefur meðal annars verið rætt um allskyns möguleika á jarð- gasefnum á Grænlandi og þá sérstaklega á austur- ströndinni. Ef svo verður mun það hafa mikil áhrif á þessa flugleið,“ segir Ingi Þór. Kulusuk stærsta leiðin hjá flugfélaginu Morgunblaðið/Björn Jóhann Kulusuk Snjóþungt getur verið í Kulusuk og vissara að hafa alvöru traktor í að draga farangursvagnana.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.